Morgunblaðið - 07.07.1981, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981
27
Undirbúningur fyrir
landsmótið í fullum gangi
IIVAÐ líður undirbúninKÍ lands-
mótsins? var fyrsta spurning
fróttaritara MurKunblaÁsins i
Eyjafirði er hann leit inn i
Iðnskólann á Akureyri á mið-
vikudaKskvoIdið 1. júli.
Skráning er nú á lokastigi og
hafa um 1300 keppendur verið
skráðir frá 22 félögum hvaðanæfa
að af landinu.
Það er Sigurður Harðarson sem
verður fyrir svörum, en hann er
annar af tvein.ur framkvæmda-
stjórum mótsins.
Dagskrá liggur þegar fyrir og
verður keppt í einum 17 íþrótta-
greinum og tel ég þá frjálsar
íþróttir eina grein og einnig
starfsíþróttir, eru greinarnar því
raunar mörgum sinnum fleiri.
Fatlaðir eru nú í fyrsta sinn með á
landsmóti og vil ég bjóða þá
velkomna.
— Hvar fer mótið fram?
— Það fer fram á einum 12
stöðum hér í bænum. Auk þess
fara siglingar fram á Pollinum.
— Verður mótið þá út um allan
bæ?
— Nei, alls ekki. Aðstaða hér er
mjög góð. Miðstöð mótsins verður
hér í Iönskólanum sem er rétt
vestan við sundlaugina. Kvenna-
skólinn er næsta hús sunnan við
Iðnskólann. íþróttahöllin næsta
hús austan við Kvennaskólann og
Gagnfræðaskólinn þar rétt norð-
austur af. Á lóðum þessara húsa
verða svo tjaldbúðir keppenda. Þá
er ekki nema 5—10 mínútna gang-
ur á milli annarra keppnisstaða.
Tjaldbúðir gesta verða á túni um 5
mínútna gang suðvestur af mið-
stöð mótsins. Þar verður komið
upp salernum og snyrtingu og er
aliur undirbúningur á lokastigi.
Kaffitería verður starfrækt
Það sem er helst út úr er
Lundstúnið og Glerárskólinn, en
þetta er nú íþróttafólk og lætur
sig ekki muna um að skokka
smáspöl.
Sigurður Ilarðarson, annar framkvæmdastjóra Landsmóts UMFÍ.
mótsdagana í íþróttahöllinni. — Nú eru íþróttafélögin á Ak-
Verður þar mjólkurbar, kaffi, ureyri ekki aðilar að mótinu.
samlokur, pylsur o.fl. Einnig verð- Hvernig gekk að fá þessa aðstöðu?
ur Mjólkursamlag KEA með
ostakynningu þar.
— Það gekk vel. Afstaða félag-
anna hér mótast greinilega af því
I IDrðtllr Ittrótlirl
að þau eru fyrst og fremst að
vinna íþróttunum gagn. Þessi að-
staða er líka látin i té endur-
gjaldslaust. Svona mót bera sig
engan veginn fjárhagslega og það
þarf að reikna með að vinna og
aðstaða fáist fyrir lítið. Undanfar-
in mót hafa ekki borið sig þrátt
fyrir mikla sjálfboðavinnu. Við
stefnum að því að ná endum
saman en reiknum ekki með mikl-
um hagnaði.
— Hvað gerið þið ráð fyrir
mörgum aðkomugestum?
— Okkur þykir lítið ef ekki
koma 6—7 þúsund aðkomumenn,
en við gætum tekið á móti miklu
fleiri. Þetta er einhver mesta
þátttaka í keppnisgreinum, jafnt
félaga og einstaklinga. Við reikn-
um þó ekki með að slá aðsóknar-
met Laugarvatnsmótsins 1965 en
þar komu á milli 20 og 30 þúsund.
— Á hverra herðum hvílir svo
framkvæmd mótsins?
— Við Þóroddur Jóhannsson
erum framkvæmdastjórar og
Haukur Steindórsson ritari. Svo
kemur fjöldi manna og kvenna
sem sjá um hina ýmsu þætti.
Félögin á svæði UMSE, en það er
mótshaldarinn, leggja til megnið
af vinnunni, en þó hafa sum
aðkomufélög látið skrá inn starfs-
lið.
F'réttablað mótsins, Landsmóts-
fréttir, kemur út daglega í 4 daga,
fyrst á fimmtudag. Birtast spár og
úrslit þar jafnóðum. Ritstjóri þess
er Heimir Kristinsson.
— Hvað gerið þið ef þið fáið
vitlaust veður á allt þetta fólk?
— Við höfum fyrir löngu lagt
inn pöntun í gott veður, en ef það
bregst og við fáum vont veður þá
erum við með alla skóla bæjarins
sem neyðarhúsnæði.
— Og hvað kostar svo inn á
mótið?
— Það verða seld merki sem
gilda alla mótsdagana hvar sem er
nema á dansleikina og kvöldvök-
una. Merkin kosta 100 kr. fyrir
fullorðna og 35 kr. fyrir börn. Þá
verða seldir hálfs dags miðar sem
gilda eins og merkin en aðeins
hálfan daginn. Þeir kosta 15 kr.
fyrir fullorðna og 5 kr. fyrir börn.
Kvöldvaka verður á laugardags-
kvöldið í íþróttahöllinni og. verður
mjög mikið vandað til hennar. Þá
verða dansleikir í Höllinni á
hverju kvöldi?
— Hvað viltu svo segja í lokin?
— Eg vona bara að það komi
sem flestir. Það er nú svo með
landsmótin að þau gleymast seint
þeim sem þau sækja og eru
gjarnan umræðuefni árum saman.
Eg vona einnig að við getum sagt
eftir mótið að sjaldan hafi hér-
lendis jafnmargir íþróttamenn
keppt við jafngóðar aðstæður fyrir
jafnmarga áhorfendur.
Vikingur Guðmundsson