Morgunblaðið - 07.07.1981, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981
29
Menningarmálasjóður Norðurlandaráðs:
Styrkjum úthlutað
til þýðingar bóka
frá Norðurlöndum
MenninKarmálasjóður
Norðurlandaráðs hefur út-
hlutað styrkjum að upphæð
samtals 750 þúsund krónum
til þýðinga á bókum frá
Norðurlóndum yfir á önnur
„Þrauka fast
í neðri byggð“
BISKUPI, herra Sigurbirni
Einarssyni, bárust geysimarg-
ar kveðjur á afmæli sínu víðs-
vegar að. Á annað þúsund
manns hefur skráð sig í Af-
mætisgjafabók hans sem enn
liggur frammi í Hallgríms-
kirkju og er þar tekið við
framlögum til sjóðsins sem
kosta skal gerð prédikunar-
stóls kirkjunnar. Nær 150 þús-
und hafa borist í þann sjóð.
Athygli vakti hversu margar
kveðjanna voru í bundnu máli
og má þar nefna kveðju frá
séra Friðriki A. Friðrikssyni
fyrrum prófasti á Húsavík. Á
hún nokkra forsögu:
Þegar séra Friðrik átti 85
ára afmæli 17. júní sl. sendi
biskup honum þessa kveðju:
Júni soniir. sólardrongur.
sannur goisli vorsins blíöa.
Vortu hórna langtum longur.
láttu himnariki hírta.
Séra Friðrik sendi síðan
biskupi þessa afmæliskveðju:
Júni mögur. morkisbori
máls ok vits i trú og dyggó.
Art þinni vild óg þotta gori;
þrauka fast i noöri byggó.
Norðurlandamál. Sjötíu og
tvær bækur hafa fengið styrk
nú en alls hefur sjóðurinn
styrkt þýðingu á um 700
bókum. Sex islenskar bækur
verða þýddar með styrk frá
sjóðnum yfir á önnur Norður-
landamál og sjö bækur, þar af
fimm danskar, verða þýddar
á íslensku.
Þær bækur, sem þýddar verða
af íslensku á dönsku eru „Laur-
entiusarsaga", sem Háskólinn í
Óðinsvéum gefur út, „Haustskip"
eftir Björn Th. Björnsson, sem
gefin er út af Samlerens Forlag í
Kaupmannahöfn og „Er nokkur í
kórónafötum hér inni?“ eftir Ein-
ar Má Guðmundsson, sem Forlag-
et Vindrose í Kaupmannahöfn
gefur út.
„Hauströkkrið yfir mér“ eftir
Snorra Hjartarson er þýdd á
færeysku og útgefandi er Martin
Næs Forlag í Þórshöfn.
Á sænsku verða þýdd ellefu
íslensk leikrit eftir 10 höfunda og
verða þau gefin út í bókaflokki
með finnskum leikritum af Nor-
ræna leiklistarsambandinu og
Leiklistarsambandi íslands. Leik-
ritin eru „Dúfnaveislan" eftir
Halldór Laxness, „Sjóleiðin til
Bagdad" og „Herbergi 213“ eftir
Jökul Jakobsson, „Skilningstréð"
eftir Guðmund Steinsson.^Skjald-
hamrar" eftir Jónas Árnason,
„Jói“ eftir Kjartan Ragnarsson,
„Selurinn hefur mannsaugu“ eftir
Birgi Sigurðsson, „Stalín er ekki
hér“ eftir Véstein Lúðvíksson,
„Tíu tilbrigði" eftir Odd Björns-
Friðrik Ólafsson forseti FIDE:
Aðspurður um ályktun skáksam-
banda Færeyja, íslands, Noregs og
Svíþjóðar, sagði Friðrik að það væri
gott að hafa tillögu sem gengi í
sömu átt og hans hugmyndir, en að
vissu leyti væri ályktunin úrelt,
a.m.k. hvað varðar brýningu tií
FIDE á ákveðnum aðgerðum í
málinu, en hins vegar væri í
ályktuninni hvatning til Sovét-
manna og það væri í öllu falli gott
að hafa þessa ályktun til þess að
róa með.
Á stjórnarfundi Skáksambands
Norðurlands í Herning á Jótlandi
þann 7. mars sl. var tillögu að
sameiginlegri ályktun um heims-
meistaraeinvígið í skák og mál
fjölskyldu Korchnois vísað til
stjórna einstakra aðildarsam-
banda.
Skáksambönd Færeyja, Islands,
Noregs og Svíþjóðar hafa nú
samþykkt svohljóðandi ályktun:
„Eftirtalin aðildarsambönd
Skáksambands Norðurlanda,
Skáksamband Færeyja, Skáksam-
son, „Skollaleikur“ eftir Böðvar
Guðmundsson og „Óvitar" eftir
Guðrúnu Helgadóttur.
Úrval ljóða Matthíasar Johann-
essen í þýðingu sænska ljóðskálds-
ins Cristers Eriksson kemur út í
bókaflokki sem Raben & Sjögran
Bokförlag í Stokkhólmi gefur út
og heitir „Dikte i Norden". Ljóða-
úrval Matthíasar, sem kemur út i
haust, heitir „Harpekol er dine
vinge“.
Þær bækur sem þýddar verða á
íslensku með styrk frá sjóðnum
eru „Krumme pá ski“ eftir Thöger
Birkeland, sem Steinholt hf. gefur
út, „Claus og Lena og Nina og ...“
eftir Hans Hansen, sem Lystræn-
inginn Sf. gefur út, „Den indre by“
eftir Dea Trier Mörch, sem gefin
er út af Iðunni, „Otto er et
næsehorn" eftir Ole Lund Kirke-
gaard og gefin út af Iðunni,
„Island set sádan“ eftir Hans
Mölbjerg, gefin út af höfundi í
Kaupmannahöfn, „Vár ære og vár
magt“ eftir Nordal Grieg, gefin út
af Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar og „Hvíslað að kett-
inum“ eftir samíska höfunda, út-
gefandi er Bókaútgáfa Menn-
ingarsjóðs.
Sveinbjörn Árnason, umsjónarmaður laxeldisstöðvarinnar í Ólafs-
firði. Sjö þúsund seiði eru höfð í tveimur körfum.
Laxeldi í Ólafsfirði
EFTIR viku stendur tii að sleppa seiðum úr laxeldisstöð i ólafsfirði
sem Veiðifélag ólafsfjarðarár hefur komið á fót i tilraunaskyni i
samráði við Fiskifélag Íslands. Ingimar Jóhannsson frá Fiskifélagi
íslands hefur stjórnað tilraununum en Sveinbjörn Árnason er
umsjónarmaður með fiskeldisstöðinni.
saltvatnið ef þau eru alin upp við
þessar aðstæður," sagði Svein-
björn.
„Skilyrði til laxaræktar eru
talin mjög góð hér fyrir neðan
Ólafsfjarðarána vegna þess að um
2 til 2Vfe metri af fersku vatni er
efst í sjónum, en saltvatnið fyrir
neðan er um fimm gráðum heit-
ara,“ sagði Sveinbjörn í samtali
við Mbl. „Dr. Unnsteinn Stefáns-
son og dr. Björn Jóhannesson
rannsökuðu vatnið hérna og kom-
ust að þessari niðurstöðu. Sjórinn
sem er heitari en ferskvatnið hitar
það og auk þess venjast seiðin við
„Seiðunum verður nú sleppt og
þau verða síðan veidd í gildrur við
ósbrúna næsta vor og þá verður
ljóst hvað mikið af seiðunum
skilar sér. Enn sem komið er er
ekki hægt að segja til um hvernig
þessi tilraun tekst eða hvort
framhald verður á laxeldi hér,“
sagði Sveinbjörn.
,Gott að hafa
_ essa ályktun
til að róa með“
„ÞAÐ ER auðséð á yfirlýsingum Karpovs að honum finnst sér misboðið,
en hann virðist ekki átta sig á þvi að hann er alls ekki sjálfur inni í þessu
da mi. heldur lendir hann í þessari stöðu fyrir kaldhaálni örlaganna og
ég hef aldrei ætlað að beina spjótum minum að honum.“ sagði Friðrik
Ólafsson forseti FIDE i samtali við Mbl. i gærkvöldi um þau ummæli
Karpovs að brotin hefði verið hefð i sambandi við ákvörðun
staðsetningar heimsmeistaraeinvigisins í skák. Friðrik sagði hins vegar
að engin hefð hefði rikt í þeim efnum siðan FIDE var stofnað. Friðrik
sagðist ekki vilja tjá sig frekar um orðahnippingar Sovétmanna i hans
garð. en hann kvað þessi mál verða rædd á þingi FIDE i Atlanta í
Bandarikjunum. en það hefst þar að ioknum fundi framkvæmdaráðs
FIDE 21. júli nk.
band íslands, Skáksamband Nor-
egs og Skáksamband Svíþjóðar,
skírskota til einkunnarorða FIDE
„Gens Una Sumus“ (Við erum öll
ein fjölskylda).
í ljósi þess að einvígið um
heimsmeistaratitilinn i skák
stendur fyrir dyrum og reglugerð
þess kveður skýrt á um að aðstaða
keppenda skuli vera jöfn í öllum
greinum, lýsa stjórnir þessara
skáksambanda yfir því, að þær
álíta að fullt jafnræði sé ekki með
keppendum, á meðan yfirvöld ann-
ars keppandans hefta fjölskyldu
hins í að fara frjáls ferða sinna.
Því leggja stjórnir skáksam-
bandanna fast að FIDE og Skák-
sambandi Sovétríkjanna að þau
geri allt sem í þeirra valdi stendur
til þess að tryggja að áskorandan-
um verði leyft að fá fjölskyldu
sína til sín þangað sem þau kjósa,
og gera heimsmeistaranum þann-
ig kleift að mæta áskorandanum
við sanngjarnar og jafnar aðstæð-
ur.2
Boris Gulko hefur naumast
fengið að tefla frá því er hann
óskaði að flytjast úr landi
OPNA mcistaramótið í
skák í Moskvu, sem lauk
íyrir skömmu, fór fram á
venjuhundinn hátt með
ræðuhöldum og léttu
spjalli um skák unz
stórmeistarinn Boris
Gulko kvaddi sér hljóðs.
Dauðaþögn sló á salinn,
það vissu allir að skák-
meistari Sovétríkjanna
árið 1977 hafði ekki teflt
á stórmóti síðan hann og
kona hans sóttu um að fá
að fara til ísraels í des-
ember árið 1978.
Gulko talaði hratt og var
taugaóstyrkur. Kvaðst hann
hafa skrifað opið bréf til Skák-
sambands Sovétríkjanna þar
sem hann krafðist þess að
sambandið hefðist eitthvað að
hvað varðaði framtíð eiginkonu
og sonar Korchnois, sem myndi
næstkomandi haust tefla um
heimsmeistaratitilinn við
Karpov. Eftir að Gulko hafði
lokið máli sínu var þögnin rofin
með efablöndnu tuldri: „Þetta
er pólitískt." Þá flýtti forseti
Sovéska skáksambandsins sér
að gefa næsta manni orðið.
Eftir þetta tóku margir
þátttakendur og áhorfendur í
höndina á Gulko.
Roskinn maður heyrðist
segja: „Þú þekkir mig ekki, en
mig langar til að óska þér til
hamingju, fyrst fyrir það hvað
þú sagðir, og svo fyrir sigur
þinn.“
Gulko sagði að seinna um
kvöldið hefðu fleiri hringt og
Boris Gulko stórmeistari.
tjáð lík viðhorf. Þessi mismun-
andi viðbrögð, sem orð Gulkos
ollu sýndu að mál Korchnois er
viðkvæmnismál innan sovéska
skákheimsins og frammistaða
Gulkos, sem lengi hefur verið
frá keppni, kom mönnum mikið
á óvart.
Boris Gulko er 34 ára að aldri
og sigraði á mótinu tólf stór-
meistara þar á meðal núver-
andi Sovétmeistara, Lev Psak-
his, og kvennaheimsmeistar-
ann, Maya Chiburdanidye.
Blöðunum í Moskvu fannst
þetta svo mikið hneyksli að
þeim láðist að birta nafn sigur-
vegarans.
Blaðamaður hafði samband
við Guðmund Sigurjónsson sem
hefur haft nokkur kynni af
Boris Gulko og spurði hann
nánari deila á honum.
Sagðist Guðmundur hafa
kynnst Gulko árið 1%6 í Stokk-
hólmi þar sem þeir hefðu teflt
tvær skákir. Kvaðst Guðmund-
ur hafa unnið aðra skákina, en
hinni hefði lyktað með jafn-
tefli.
Guðmundur sagði að Aver-
bach hefði verið með þeim
þarna í Stokkhólmi, en hann
væri núna meðal fremstu
manna í sovéska skáksamband-
inu og hefði hann sagt við sig
að þar sem Gulko hefði staðið
sig svona illa, þá yrði hann
sendur til Síberíu. „Og það má
eiginlega segja,“ hélt Guð-
mundur áfram, „að hann sé í
hálfgerðri Síberíuvist núna.
Það kæmi bara fram svona
seinna.
Nú, þessi maður, Boris
Gulko, sló nú aldrei neitt sér-
staklega í gegn,“ sagði Guð-
mundur, „fyrr en eftir 1970. Þá
fór hann að standa sig mjög vel
á skákmótum.
Síðan verður hann skák-
meistari Sovétríkjanna árið
1977. Gulko hefur oft teflt með
góðum árangri," sagði Guð-
mundur, „en eftir að hann sótti
um að fá að flytjast til ísrael,
þá hefur honum eiginlega verið
haldið í skáksvelti. Eg hitti
Gulko aftur tíu árum eftir
þetta í Stokkhólmi," sagði Guð-
mundur, „og þetta er mjög
geðugur maður. Á þeim tíma
yann hann dálítið með Karpov,
en þó ekki í seinni tíð. Ég hélt
þeir hefðu verið ágætis vinir,
en eitthvað virðist nú vinskap-
urinn ná stutt. Ekki hjálpar
Karpov honum í það minnsta
að komast úr landi."