Morgunblaðið - 07.07.1981, Side 35

Morgunblaðið - 07.07.1981, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981 35 Flugumýri með einkunnina 8,06. Annar í röð var Örvar frá Hömr- um með 8,00 í einkunn. Þriðji efstur var svo Þyrill frá Hvoli með 7,94 í einkunn. I flokki fimm vetra stóðhesta var efstur Ýmir frá Ysta-Bæli með einkunnina 7,95. Annar varð Eldur frá Stóra-Hofi með einkunnina 7,85, og þriðji Kolskeggur frá Lækjarbotnum með 7,80. Af fjögurra vetra folum var í efsta sæti Röðull frá Hvoli með 7,66, annar varð Sleipnir frá Bólstað með 7,60 og þriðji varð svo Valur frá Bræðratungu með 7,53. Eins og oft vill verða, þá var hryssusýningin öllu skemmtilegri á að horfa heldur en sýningin hjá stóðhestunum. Ástæðan er ekki sú að hryssurnar séu betri en stóð- hestarnir, heldur hitt að stóðhest- arnir sýnast miklu verr á þessum tíma. I flokki hryssna sex vetra og eldri stóð efst Perla 4889 frá Kaöalstöðum og hlaut hún hæstu einkunn af öllum kynbótahrossum á sýningunni, 8,11. Önnur varð Kolfinna 4758 frá Kröggólfs- stöðum með 8,08 í einkunn. Þriðja var svo Elding 4382 frá Kröggólfs- stöðum með 8,05 í einkunn. I fimm vetra flokki stóð efst Spes 5090 frá Kirkjubæ með 7,94, önnur varð Snerra 5092 einnig frá Kirkjubæ með 7,86. Þriðja var svo Lofn 5123 frá Laugarvatni með 7,83. í fjög- urra vetra flokknum voru það einnig Kirkjubæarhryssurnar sem röðuðu sér í efstu sætin. Efst varð Hylling 5089 með 8,00 í einkunn sem er frábær árangur hjá aðeins fjögurra vetra gömlu trippi. önn- ur varð Brynja 5093 með 7,97 og þriðja Frigg með 7,89 i einkunn. Eins og áður sagði eru allar þessar hryssur frá Kirkjubæ, og verður þetta að teljast frábær árangur að hross sama aðila skuli raða sér í efstu sætin í fjögurra og fimm vetra flokki. Athyglisverð nýjung var reynd í tengslum við kynbóta- sýninguna, en það var kynning hrossaræktarbúa. Urðu þessi bú að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá að sýna afrakstur ræktunar- starfsins. Voru þetta fimm hópar sem voru sýndir, en þeir voru frá Antoni Guðlaugssyni í Vík, sem Úrslit í kappreiðar- veðmálum kunn ÚRSLIT eru nú kunn i kapp- reiðarveðmálum LH og Fjórð- ungsmótsins á Suðurlandi. 1 250 m skeiði er röðin þessi á fyrstu hestum, i fyrsta sæti er Skjóni, i öðru sæti er Þór og i þriðja sæti er Fannar. Röð i 350 m stökki er þessi: t fyrsta sæti er Stormur, i öðru sæti er Blakkur <>g í þriðja sæti er Skessa. Á fimmtudag verður seðlum safnað saman og á föstudag verður haft samhand við þá sem hafa sex rétta eins og sagt er á getraunamáli. Vitað er um nokkra sem hafa sex rétta, þannig að vafasamt er að vinningur fáist á fimm rétta. - )<■ Efstur af stóðhcstum með afkvæmum var Kolbakur 730 frá Gufunesi. í dómsorði um afkvæmi Kolbaks segir meðal annars: „Reiðhestakostir eru miklir, brokkið og skeiðið vel rúmt og afkastamikið. Kolbakur fær í einkunn 7,93 og hlýtur því fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.“ sýndi fimm afkvæmi undan stóð- hestinum Fönix 903 frá Vík. Kirkjubæjarbúið sýndi tíu hross öll undan Þætti 722, að einu undanskildu. Þriðji hópurinn var frá Laugarvatni og voru þar á ferðinni hross undan og út af Fjöður 2826 frá Tungufelli. Fjórði hópurinn var Skollagróf og voru þar sýnd hross ræktuð út af Hremmsu 2777 frá Brandsstöðum í Húnavatnssýslu. Síðasti hópur- inn var frá stofnræktarfélaginu Fjallablesa, sem hefur það mark- mið að stofnrækta hross sem eiga stóðhestinn Óðin frá Núpakoti að ættföður. Fjallablesi sýndi tíu hross úr þessari stofnrækt. Mæltist þessi sýning vel fyrir meðal áhorfenda og er vonandi að framhald verði á slíkum sýning- um. VK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.