Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 38

Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981 + Faöir okkar, ÁSMUNDUR STEINSSON, andaöist aö Hraunbúöum fVestmannaeyjum laugardaginn 4. júlí. Kristín og Olafía Asmundsdœtur. + Faöir okkar, KRISTJAN EYJÓLFSSON, Miöengi, Garöahverfi, lést 4. júlí á St. Jósepsspítala, Hafnarfiröi. Börnin. Konan mín KRISTÍN F. OLAFSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfiröi, andaöist í Borgarspítalanum 4. júlí. F.h barna og barnabarna, Oddur Kristjánsson. Maöurinn minn. + GUDJÓN EINARSSON, Laugateig 40, er látinn. Guörún Böövaradóttir. + Móöir okkar, FANNEY ÞORSTEINSDÓTTIR, Faxabraut 4, Keflavík, vistkona á Hrafnistu andaöist ( Borgarspítalanum 4. júli. Jaröarförin auglýst síöar. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, EGILL KRISTJÁNSSON, lézt í Borgarspítalanum aö morgni 5. júlí. Margrjet Briem, Olafur Egilsson, Kristján Egilsson. + Eiginmaöur minn, faöir og stjúpfaöir okkar, HINRIK NIKULÁS HARALDSSON frá Skagaströnd, Stigahlíö 6, Rvk. lést í Landspítaianum 5. júlí. Guörún Jónsdóttir, Hermann Hinriksson, Halldór Jón Júlíusson. + GUDMUNDUR I. BJARNASON, Hofteigi 12, frá Stykkishólmi, lést í Landspítalanum 4. júlí. Jarösett veröur frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 14. júli kl. 13.30. Ebba Ebenesardóttir, Magni Guðmundsson. + Hjartkær móðir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐRUN ÓLAFSDÓTTIR, Suöurgötu 56, Hafnarfiröi, veröur jarösungin frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi, miövikudaginn 8. júlí kl. 3 e.h. Laufey Jónsdóttir, Vigdis Jónsdóttir, Olafur Jónsson, Anton Jónsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Vilhjálmur Jónsson, og barnabörn. Páll Hannesson, Gunnlaugur Skaftason, Sesselja Zóphóniasdóttir, María Gunnarsdóttir, Jónatan Þórisson, Guórún Ásgeirsdóttir Kveðjuorö: Þórdís Fjóla Guðmundsdóttir „ó. IjMssins (aðir. lof sí þór. að lif ok heilsu irafstu mér ok föður minn ok móður. Nú sezt éx upp, þvi sólin skin. þu sendir Ijós þitt inn til min. :.dl, hvað þú, Guð. ert xóður!:,:" Sb. 1886 - M. Joch. í dag, 7. júlí 1981, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík okkar hjartkæra og elskulega amma og langamma, sem við viljum minnast og þakka fyrir allt það sem hún var okkur í lifanda lífi. Þórdís Fjóla Guðmundsdóttir var fædd 7. júlí 1908 í Reykjavík, og hefði því orðið 73 ára í dag. Voru foreldrar hennar Jónína Jónsdóttir, fædd að Álftanesi í Álftaneshreppi, Mýr., og Guð- mundur Kristinn Jónsson, fæddur að Hurðarbaki í Hvaífjarðar- strandarhreppi. Bróðir hennar, Guðmundur Steinar, andaðist í bernsku. Hún ólst að mestu leyti upp hjá móður sinni í sárri fátækt eins og margt fólk, ekki hvað síst einstæð- ar mæður og ekkjur, sem lifði á fyrstu áratugum þessarar aldar. Lífsreynsla hennar á eymdinni, sem þá ríkti víða hér á landi, speglaðist í frásögnum hennar frá bernskuárunum. Efni sagnanna og túlkun hennar gagntók okkur svo að við gátum ekki tára bundist. Faðir hennar andaðist á Vífils- stöðum 1912, 31 árs að aldri, fjórum árum síðar andaðist bróðir hennar á fimmta aldursári. Minntist hún þeirra feðga ætíð með trega og söknuði. Örbirgð þeirra mæðgna varð þess valdandi að amma dvaldi oft tímabundið fjarri móður sinni. Var henni viðskilnaðurinn við móður sína afar þungbær eins og börnum er eðlilegt. Árið 1935 heitbast hún Þor- steini R. Bjarnasyni, fæddan að Arnarstapa á Snæfellsnesi, en þau slitu samvistum fáum árum síðar. + Móöir okkar, MARTA SIGRÍÐUR HELGA KOLBEINSDOTTIR, veröur jarösungin frá Laugarneskirkju, miövikudaginn 8. júlí kl. 13.30. Rannveig Axelsdóttir, Guörún Axelsdóttir, barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn. + Utför PÁLMA ÞORÐARSONAR, frá Harrisburg, Bandaríkjunum, fer fram frá Fossvogskirkju í dag 7. júlí kl. 13.30. Erna Ármannsdóttir og börn, Geirlaug Jónsdóttir, Þóröur Pálmason. + Útför SVÖVU JAKOBSDÓTTUR, fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 8. júlí kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Sigurlaug Johnson. + Bróöir okkar, ÁSLAUGUR í. STEFÁNSSON, veröur jarösunginn frá Landakirkju ( Vestmannaeyjum miöviku- daginn 9. þ.m. kl. 4 síödegis. Fyrir hönd systkinanna, Helgi Helgason. + Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, TRYGGVI ODDSSON, Skúlagötu 56, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 8. júlí kl. 15. Sesselja Guömundsdóttir, Ester Tryggvadóttir, Síguröur Halldórsson, Þráinn Tryggvason, Anna Gunnarsdóttir, Bylgja Tryggvadóttir, Olafur Höskuldsson og barnabörn. + Þökkum hlýjan hug og vinsemd viö andlát og jaröarför, GUDRUNAR GUÐMUNDSSON, HamrahKö 35. Guðmundur Pétursson, Anna Pétursdóttir, Eiríkur Haraldsson og barnabörn. Þau eignuðust þrjár dætur (mæð- ur okkar), Jónínu Steinunni, gifta Júlíusi R. Júlíussyni, Þórunni Rut, gifta Erlingi Jóhannssyni, og Guð- mundu Kristínu, gifta Jóni Þór Kristjánssyni. Amma varð nú að ala önn fyrir kornungum dætrum sínum og aldraðri móður sinni, sem bjó ætíð á heimili ömmu. Þá háði hún harða lífsbaráttu til þess að komast hjá því að tvístra heimilinu. Oft sagðist hún ekki hafa skilið nema á einn veg, hvernig henni hafi tekist að halda dætrum sínum hjá sér, það er með Guðs hjálp. Hún þakkaði Honum á hverju kvöldi fyrir Hans hjálp, vernd og miskunn um leið og hún bað Hann að blessa börnin sín, styðja sig og styrkja á komandi degi. Hún trúði því að Hann hafi bænheyrt sig, vegna þess að á vegi hennar varð svo gott og hjálpsamt fólk. Mörgu þeirra bast hún ein- lægum vináttuböndum til æviloka. Fyrir nokkrum árum kenndi amma þess sjúkdóms, sem bindur nú enda á lífdaga hennar. Hún gat, að mestu leyti, verið á heimili sínu fyrstu sjúkdómsárin og naut þá einstakrar aðhlynningar og hjálpar Rutar, dóttur sinnar, sem bjó í sama húsi og hún, Hraunbæ 38 hér í bæ. Síðustu mánuðina lá hún á Landspítalanum, deild 3B. Þar naut hún frábærrar læknis- hjálpar og umhyggju Friðþjófs Björnssonar yfirlæknis og hjúkr- unarfólki þeirrar deildar. Minntist hún þeirra ávallt með virðingu, þakklæti og hlýju. Amma var alla tíð snauð af veraldlegum auði, en hjartahlýju, góðvild, ósérhlífni og trygglyndi átti hún í ríkum mæli. Hvergi naut hún sín betur en meðal barna. Þolinmæði hennar var ein- stök enda voru börn mjög hænd að henni, má segja að hún hafi verið amma Fjóla allra barna sem umgengust hana. Við lifum í dag á öld hraðans og streitunnar þegar fólk hefur ekki tíma til neins, síst af öllu til þess að hugleiða mátt bænarinnar. Þess vegna lagði hún ríka áherslu á að kenna okkur kvöldbænir og að leita til Hans með áhyggjur og vandamál daglegs lífs, biðja um Guðs styrk og handleiðslu. Sam- verustundirnar með elsku ömmu eru okkur gott veganesti út í lífið. Kærleiksorð og heilræði fá ei mölur né ryð grandað. Nú, þegar við kveðjum í hinsta sinn okkar hjartkæru ömmu og langömmu þökkum við henni alla góðvild og umhyggju í okkar garð. Við biðjum algóðan Guð að blessa og vernda hennar góðu sál og umvefja kærleiksörmum sínum, líkt og hún umvafði okkur. Megi sólargeislar eilífðarljóssins lýsa upp veginn hennar til nýrra heim- kynna. „Þú. Gu4. Hom Hlýrlr Ktjarnahor i*K Ntjórnar veröldinni. I straumi llfsinN stýr þú mér mrö sterkrí hendi þinni. Stýr minni tunxu' aA tala xutt ox tixnar þinnar minnast, lát aldrei baktal. »kk né spott i oröum mínum finnast. Stýr minum íæti' á frióar vex, nvo fötspor þin éx rekl. Ox sátt OX eininx semji éx, en sundrunx aldrei veki. Stýri minu fari heilu helm I höfn á friAarlandi. þar mix I þinni KN-slu xeym. ó. GuA. minn allHvaldandi." (V.Brlem.) Barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.