Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981
45
Sá sem besta þjónustu veitir
hann fær mín viðskipti öll
„Utivinnandi kona“ skrifar:
„Mig langar til að leggja orð í
belg um lokun verzlana. Það sem
kom mér af stað, var spurning og
svar um það hverjir hefðu verið
með frjálsum opnunartíma í
borgarstjórn í sunnudagsblaði.
Þá fór ég að velta fyrir mér hvar
Neytendasamtökin eru í þessu
máli og ekki síður Húsmæðrafé-
lagið gamia, sem barðist svo vel
fyrir hagsmunum neytenda hér í
Reykjavík fyrr á árum. Einhvers
staðar stóð að báðir þessir aðilar
hafi verið samþykkir því að
þessari reglugerð um lokunar-
tíma verzlana yrði komið á. Ég
trúi þessu varla. Ég skil vel að
Neytendasamtökin hafi lítið
bolmagn, þar sem við neytendur
styðjum ekki betur við bakið á
þeim en raun ber vitni, en ég get
ekki skilið að þau fallist á mál
sem er svo augljóslega gegn
hagsmunum neytenda. Aðrir að-
ilar gæta hagsmuna verzlunar-
fólks og kaupmanna, en þau hafa
neytendur á sinni verkefnaskrá.
Sama er að segja um Hús-
mæðrafélagið. Kannski hefur
það ekkert bolmagn lengur. En
varla hefur það farið að fallast á
lokunartíma verzlana, eins og
ástatt er hjá húsmæðrum nú til
dags, sem flestar vinna úti.
Húsmæðrafélagið var hér áður
fyrr baráttuglatt félag, sem kom
mörgu góðu til leiðar þegar
ganga átti á rétt reykvískra
húsmæðra, eins og t.d. í
mjólkurslagnum forðum. En það
er kannski orðið alveg máttlaust
líka, af því að við styðjum ekki
nógu margar við bakið á því.
Varla hefur það þó farið að
samþykkja þrengdan opnunar-
tíma.
Líklega erum við íslenzkir
neytendur alltof linir í þessu
mikla kröfuþjóðfélagi, þegar sá
hópur verður undir sem ekki
heldur sjálfur á sínum málum.
En eitt geri ég þó alltaf. Ég styð
kaupmanninn minn á horninu
með því að verzla við hann. Og
ég kaupi aldrei annars staðar í
búð daglegar nauðsynjar. Þá
aðeins getur hann veitt mér
þessa aukaþjónustu, sem kemur
sér vel fyrir mig, að ég verzli við
hann. Og aldrei verzla ég hjá
þeim, sem bæði loka föstudags-
kvöld og laugardaga. Þeir sem
veita mesta þjónustu fá mín
viðskipti öll.
Lækkað sjónvarpsgjald?
Guðmundur Hrrmannsson
skrifar:
Sjónvarpsnotandi nokkur hefir
sagt frá því, að hann hafi látið
innsigla sjónvarpstæki sitt þann
1. júlí sl. og láti rjúfa innsigli sitt
aftur 8. ágúst og borgi þar af
leiðandi ekki fuilt afnotagjald. Af
þessu tilefni, því ég trúi mannin-
um, bið ég þig Velvakandi að fá
svar við eftirfarandi spurningu:
Hvernig stendur á því að sá sem
lætur innsigla tæki sitt þann tíma
sem lokað er, borgar lægra afnota-
gjald en hinir þegar engin útsend-
ing er, hvort sem er.
Mér finnst skammarlegt hvað
við íslendingar erum aftarlega á
merinni eða lengi að taka við
okkur í tækniöldinni, en það er
önnur saga.
Velvakandi, ef þú gætir sent
fyrir mig óskalag til stjórnenda
Sjónvarps, þá mundi ég biðja um
lagið með Ladda „Og skammastu
þín svo“.
Velvakandi getur ekki sent
óskalög, en þessi kalda kveðja til
sjónvarpsins hefur samt sjálfsagt
komist til skila. Velvakandi efast
um að rétt sé með farið, að mikill
sparnaður fáist af því að innsigla
sjónvarpið í nokkrar vikur. Enda
haft af því spurnir frá öðrum
sjónvarpsnotanda, sem mikið er
fjarverandi erlendis og ætlaði
fyrir nokkrum árum að draga úr
útgjöldum á heimili sínu hér
þegar hann var ekki á staðnum, að
við því væri séð að fólk hefði
ekkert upp úr því að innsigla
sjónvarpið meðan maður notaði
það ekki, þótt dagskrá væri í
gangi. Því það væri svo dýrt að
láta innsigla það og opna aftur.
Lítill sparnaður væri að loka í
sumarleyfi, ef ekki væri greitt
fyrir það. En gott væri ef Sjón-
varpið sjálft gæti svarað þessu og
útskýrt málið.
Þessir hringdu . . .
Útvarpshlust
andi hringdi
og sagðist aldrei láta fara fram
hjá sér þættina hans Friðriks Páls
á sunnudagsmorgnum, sem ganga
undir nafninu Út og suður. Þarna
segir fólk frá ferðalögum sem það
hefur farið í á svo einstaklega
skemmtilegan hátt.
Sl. sunnudagsmorgun sagði t.d.
kona, Sunneva Hafsteinsdóttir,
frá dvöl sinni í Grænlandi við að
kenna konum að sauma, og kynnt-
ist Grænlandi allt öðruvísi en
þetta ferðafólk sem kemur inn í
hálfdönsku bæina eina dagstund
og heldur að það hafi kynnst
Grænlendingum. Það var einstak-
lega skemmtilegt, sagði útvarps-
hlustandi.
Og hann bætti við: Friðrik Páll
hefur einstakt lag á að fá
skemmtilegt fólk til að segja frá í
þessum þáttum. Hver af öðrum
segir frá ferðalagi í útlöndum eða
á Islandi og frásagnirnar eru svo
eðlilegar og afslappaðar. Þarna er
líklega verið að vekja upp frá-
sagnalist Islendinga, eins og hún
þekktist í baðstofunum og fyrir
tíma sjónvarps. Kærar þakkir til
stjórnandans og allra þeirra sem
komið hafa fram til þessa. Ég
hlakka til að hlusta á næstu
sunnudagsmorgna kl. 10.25.
Tölvuskólinn
Borgartúni 29
sími 25400
Tölvunámskeið
★ Viltu skapa þér betri stööu á vinnumarkaönum?
★ Viltu læra aö vinna meö tölvu?
★ Á námskeiðum okkar lærir þú aö færa þér í nyt
margvíslega möguleika sem smátölvur, (micro-
computers) hafa upp á að bjóöa fyrir viöskipta- og
atvinnulífið.
★ Námiö fer aö mestu fram meö leiðsöqn tölvu og
námsefniö er aö sjálfsögöu allt á íslensku.
Námsefniö hentar auk þess vel fyrir byrjendur.
★ Á námskeiöunum er kennt forritunarmáliö BASIC,
en þaö er langalgengasta tölvumáliö sem notaö er
á litlar tölvur.
Innritun í síma 25400.
«la, sumarið er komið
Fyrirliggjandi smahýsi i eftirtöldum
stærðum:
240x360 á 10.800,-
360x400 á 17.600,-
Amerisk gróðurhús
Fyrirliggjandi bæöi upp að vegg og frístandandi. Húsin eru gerð úr
bronsuöu áli, plasti og gleri og eru óvenju sterkbyggö.
Traustir tjaldvagnar fyrirliggjandi
byggöir á stálramma, þverfjööur, demparar og fólksbíladekk (560x13)
Innifaliö í veröinu sem er kr. 22.600,- er fortjald, 2 innrl tjöld, eldhús og fl
Gísli Jonsson & Co. hf.
Sundaborg 41, sími 86644