Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981 Akureyrarblaðið: Nýtt vikublað hefur göngu á Akureyri . .AKUREYRARBLAÐIÐ - ópóli- tiskt fréttablað“ hóf göngu sina i gær og var selt i lausasolu á Akureyri þar sem ráðgert er að það komi út vikulega á mánudög- um. Útgefandi er Blaðið hf., ritstjóri Guðbrandur Magnússon, en aðrir í ritstjórn Einar Pálmi Árnason og Ragnar Þorvaldsson. I blaðinu gerir rit9tjórnin nokkra grein fyrir stefnu og hlut- verki blaðs síns og segir m.a. að blaðið skuli hafa það verkefni að fylgjast með störfum bæjarstjórn- armanna, vera málsvari almenn- ings gagnvart þeim og fylgjast með því að þeir misnoti ekki vald sitt og aðstöðu. „Við munum leggja okkur fram um að skýra frá öllu því helsta sem gerist í bæn- um, stóru og smáu og leggja áherslu á að koma á framfæri ólíkum skoðunum um ýmis mál- efni,“ segir ritstjórnin og einnig: „Við teljum að tími sé til kominn að reyna eitthvað nýtt í blaðaút- gáfu hér á Akureyri og kjörorð okkar er: Vandað og hressilegt blað!“ Forsíða fyrsta tölublaðs Akur- eyrarblaðsins, sem út kom 1 gær. Mývatnssveit: Köld tíð og næturfrost Mývatnssvcit. 6. júlt. ENN ER frekar köld tíð hér og hefur raunar verið svo lengst af í sumar. Þó hefur komið einn og einn hlýr dagur, grasspretta þvi verið hæg lengst af, þó komu nokkrir dagar um næstsiðustu helgi. Þá spratt líka vel. Síðan kólnaði á ný og hefur stundum legið við frosti um nætur. Þrátt fyrir þessa óhag- stæðu sprettutíð er sums staðar þegar orðið allvel sprottið. Slátt- ur hófst hér á einum bæ í Vogum fyrir síðustu helgi og hefði ef- laust getað hafizt nokkru fyrr ef þurrkar hefðu verið betri. Mér er ekki kunnugt um hvenær sláttur hefst almennt hér í Mývatnssveit, en trúlega getur það eitthvað dregizt ef ekki bregður fljótlega til betri og hagstæðari tíðar. Kristján. Frá viðræðufundi i utanrikisráðuneytinu i síðustu viku. Á myndinni eru taldir frá vinstri: Bill Cairns, fyrsti sendiráðsritari Breta i Reykjavik, Hannes Hafstein, skrifstofustjóri í utanrikisráðuneytinu, William McQuillan, sendiherra Breta á íslandi, Ewen Fergusson, aöstoðarutanrikisráðherra Breta um Evrópumálefni, og Hörður Helgason, ráðuneytisstjóri i utanrikisráðuneytinu. Viðræður við Breta um alþjóðamál EWEN Fergusson, aðstoðarut- anrikisráðherra Breta um Evr- ópumálefni, var hér á landi i siðustu viku og ræddi við Hörð Helgason ráðuneytisstjóra i utanríkisráðuneytinu og aðra embættismenn ráðuneytisins. Að sögn Harðar Helgasonar snerust viðræður þeirra um stöðu alþjóðamála. Gerði Ewen Fergusson sérstaklega grein fyrir för Carrington lávarðar, utanríkisráðherra Breta, til Moskvu, þar sem hann reynir að fá ráðamenn til að fallast á tillögu Efnahagsbandalags Evr- ópu, sem samþykkt var fyrir frumkvæði Breta, um friðar- ráðstefnu um Afganistan. Þá ræddu embættismennirnir um stöðu mála i Póllandi og þróun- ina á Madrid-ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu. í stuttu viðtali við Morgun- blaðið sagði Ewen Fergusson, að hugmyndinni um friðarráð- stefnu um Afganistan hefði ver- ið vel tekið víða um heim, bæði meðal múhameðstrúarríkja og ríkja þriðja heimsins. Hefði hún alls staðar hlotið góðar undir- tektir utan kommúnistaríkjanna og væri það einlæg von Breta og Efnahagsbandalagsins að Sovét- menn tæku henni vel og vildu ræða hana. Þess má geta, að Ewen Ferg- usson var einkaritari Anthony Crosslands, þegar hann var utanríkisráðherra Breta og gerði síðustu landhelgissamningana við íslendinga í maí 1976. Mörgum þykir jarðvinnan við Lækjargötu orðin umfangsmeiri en góðu hófi gegnir. Ljósm. Emilía. Stöðvast framkvæmd- irnar á Torfunni? - endanlegt leyfi byggingarnefndar verður að fást innan skamms, segir Magnús Skúlason Verða Norðurlönd- in kjarnorkuvopna laust svæði? _Það er ekkert bogið við þessa framkvæmd — ekki enn sem komið er að minnsta kosti,“ sagði Magnús Skúlason formaður bygg- ingarnefndar er Mbl. spurðist fyrir um ummæli hans i útvarpi um helgina. þess efnis að svo gæti farið að framkvæmdir á við útitafl á Torfunni við La kjargotu hlytu að stöðvast innan skamms ef endanlegt leyfi byggingarnefndar fengist ekki fyrir þeim. Borgarráð samþykkti á sínum tíma að gert yrði útitafl á þessum stað og í tengsium við það lítið jarðhýsi þar sem hægt væri að geyma taflmennina og fleira er taflinu tilheyrði. Nú er ekki annað sjáanlegt en framkvæmdin sé orðin umfangsmeiri en ætlað var í upp- hafi ef marka má uppgröftinn við Lækjargötu. „Til þess að vinna tíma var leyft að hefja þessar framkvæmdir þó endanlegt leyfi byggingarnefndar væri ekki fengið eins og oft er gert í hliðstæðum tilvikum," sagði Magnús. „Málið þarf hins vegar að leggjast fyrir byggingarnefnd fljótlega ef framkvæmdir eiga ekki að stöðvast. Nú eru það sumir sem bera brigður á að byggingarnefnd eigi að fjalla um jarðvinnu af þessu tagi en ég tel hins vegar skýlaust að í þessu tilfelli heyri málið undir byggingarnefnd. Málið hefði ekki verið nógu vel kynnt og það er von að það komi mönnum á óvart þegar farið er að grafa burt mestallt gras á þessu svæði. Það verður að sjálfsögðu gengið frá þessu aftur og verður þarna áfram mikið af grasi — ég er reyndar á þeirri skoðun að of mikið af grasflötinni hverfi og mun beita mér fyrir því í nefndinni að rheira pláss verði tekið undir gras,“ sagði Magnús. „Ég boðaði þennan blaða- mannafund til þess að gera grein fyrir þvi að á Norðurlönum eru i gangi mjög viðtækar umræður um Norðurlönd sem kjarnorku- vopnalaust sva'ði,“ sagði ólafur Ragnar Grimsson alþingismaður á blaðamannafundi sem hann hoöaöi til í gær i sambandi við friðarráðstefnu sem hann sat á Álandseyjum fyrir skömmu og haldin var að frumkvæði nokk- urra einstaklinga. „I skilgreiningu á því svæði sem formlega á að gera kjarnorku- vopnalaust eru oft einungis talin upp Norðurlöndin fjögur, Noreg- ur, Danmörk, Svíþjóð og Finnland, en ísland er gagngert ekki talið með,“ sagði Ólafur Ragnar og kvað það vera af ýmsum ástæðum, m.a. vegna áhugaleysis um þessi mál hér heima og vegna þess að ísland hefði gert samning um herstöð í landinu, og þá er ekki heldur minnst á Færeyjar og Grænland. í fréttatilkynningu sem Ólafur Ragnar ritaði segir m.a.: „I ljósi þeirrar umræðu sem fram fer innan ríkisstjórna, þjóð- Budda tapaðist I G/ER tapaðist stór budda með 3.000 krónum i, notuðum flugfar- seðlum og kvittun. Á farseðlunum og kvittuninni var kvenmannsnafn. Eigandi buddunnar týndi henni á leiðinni frá Ingólfsapóteki að verzluninni Mirru. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að koma buddunni til lögreglunnar. þinga, stjórnmálaflokka og fjölda- samtaka á öðrum Norðurlöndum um að gera Norðurlönd formlega að kjarnorkuvopnalausu svæði og einkum með tilliti til þess að fjölmargir aðilar í þessari nor- rænu umræðu telja að ísland geti ekki orðið aðili að slíku samkomu- lagi, er brýn nauðsyn að íslend- ingar taki þessi mál til ítarlegrar umræðu. Stjórnmálaflokkarnir þurfa að hefja viðræður um þessa þróun í því skyni að ná sameigin- legri afstöðu. Utanríkismálanefnd Alþingis og stjórnvöld þurfa að undirbúa, að íslendingar tilkynni formlega þjóðþingum og stjórn- völdum annarra Norðurlandaríkja að við gerum kröfu til að vera aðilar að viðræðum um og síðan gerð slíks samnings um norrænt kjarnorkuvopnalaust svæði." Ekið á hjól- reiðafólk STÚLKA á reiðhjóli varð fyrir bil á Lönguhlið á laugardaginn. en bíllinn ók aftan á hana. Stúlkan er hrufluð og marin, en óbrotin. Hjólið er skemmt en lítið sér á hílnum. Þá var ekið á stúlku á reiðhjóli á gatnamótum Langholtsvegar og Elliðavogs á sunnudagskvöld. Stúlkan var á leið eftir Langholts- vegi og hjólaði í veg fyrir bifreið sem var á leið vestur Elliðavoginn. Stúlkan viðbeinsbrotnaði og skrámaðist, en fékk að fara heim af sjúkrahúsi eftir að gert hafði verið að meiðslum hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.