Morgunblaðið - 03.10.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.10.1981, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 220. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sjóirnir gengu stanzlaust yfir Máv i gær, þar sem skipið stóð nokkurn veginn á réttum kili i sandfjórunni fyrir botni Vopnaf jarðar. Skipið er aðeins um 100 metra frá landi, en menn á Vopnafirði segja að ef norðaustanáttin haldi áfram þá sé þess ekki langt að biða að Mávur hverfi að mestu i sandinn. i.jósm. Mbi. rax. Walesa endurkosinn formaður Samstöðu (■dansk. 2. okt. AP. LECH Walosa, leiðtogi Samstöðu, var í dag endurkjörinn formaður samtakanna á þingi þeirra í borg- inni Gdansk. þar sem þau fæddust fyrir rúmu ári i kjöifar verkfall- anna i Lenin-skipasmiðastöðinni. Walesa hlaut strax i fyrstu umferð 162 atkvæði af 851 eða 55,2%. Sigur Walesa er talinn mikill sigur fyrir þá tiltölulega hófsömu stefnu, scm hann hefur beitt sér fyrir, og að sama skapi ósigur hinna róttækari innan verkalýðssambandsins. Washinjfton. 2. okt. AP. RONALD Reagan forseti tilkynnti í dag að minnst 100 MX-eldflaugum yrði komið fyrir 1 vesturhlutum Bandaríkjanna og smíðuð yrði ný kynslóð B-l-sprengjuflugvéla til að hamla gcgn „skefjalausri her- gagnaaukningu~ Rússa. Kostnaðurinn við þessa áætlun er metinn 180,3 milljarðar dollara og áætlunin mun móta varnarmála- stefnu Bandaríkjanna í marga ára- tugi. Sagt er að „líklegast" sé að Mikill fögnuður varð í þingsalnum þegar tiikynnt var um úrslit at- kvæðagreiðslunnar en í for- mannskjörinu var kosið á milli fjög- urra manna. Næstur Walesa að fylgi var Marian Jurczyk, forystumaður Samstöðu í Szczecin-skipasmíða- stöðinni, en hann fékk 201 atkv. eða 24%. Sá þriðji var Andrzej Gwiazda, sem næstur gengur Walesa að völd- um innan Samstöðu, með 74 atkv., 8,8%, og Jan Rulewski, róttækastur mótframbjóðenda Walesa, rak lest- ina með 52 atkv. eða 6,2%. fyrstu 36 MX-eldflaugunum verði komið fyrir í stöðvum Titan-11- eldflauganna í Arizona, Arkansas og Kansas. Arkansas fær líklega fyrstu flaugarnar. í áætluninni er hvatt til smíði „af- brigðis" af B-l-sprengjuflugvélinni, sem Jimmy Carter forseti hætti við smiði á 1977, en haldið verður áfram rannsóknum á svokallaðri „Stealth“-sprengjuflugvél, sem á að geta smogið fram hjá ratsjám Rússa. „Við skulum halda áfram á sigur- brautinni,“ sagði Walesa þegar hann fagnaði sigrinum, „og við skulum gera það að venju að koma með formanninn í poka en ekki í skjala- tösku," bætti hann við. Með því átti hann við, að það hefur verið háttur embættismanna kommúnistaflokks- ins að ráða sjálfir vali verkalýðsfor- ingja og koma nöfnunum á framfæri við verkamenn í skjalatösku, ein- kennismerki skriffinnskunnar. Pok- inn er hins vegar táknrænn fyrir óbreyttan almúgann. Nýjustu B-52-sprengjuflugvélun- um, sem B-1 og „Stealth" munu leysa af hólmi að lokum, verður breytt þannig að þær geti borið stýriseld- flaugar og eldri B-52-flugvélar verða teknar úr notkun 1982 og 1983. Samkvæmt áætluninni er einnig stefnt að því að fyrsta B-l-flugsveit- in verði tekin í notkun 1986. Loka- ákvörðun um staðsetningu MX-flauganna verður tekin 1984. Trident lll-eldflaugum verður komið fyrir í kafbátum frá og með 1989. En í áætluninni segir að rann- Þingi Samstöðu lauk með því að þingfulltrúar sungu pólsk ættjarð- arlög og Walesa hélt höndum hátt á loft. í annarri hélt hann á rauðum og hvítum rósum, í pólsku fánalitunum, og i hinni hafði hann pokann tákn- ræna. Talið er, að pólsk stjórnvöld muni fagna þessum úrslitum enda höfðu sumir mótframbjóðenda Wal- esa gengið svo langt að leggja til úr- sögn Pólverja úr Varsjárbandalag- inu og krefjast frjálsra kosninga, sem stjórnin hefði aldrei getað sam- þykkt. sóknir verði einnig gerðar á öðrum „langtima valkostum sem lofa góðu“ og þar er m. a. átt við að koma eld- flaugunum fyrir í flugvélum, í djúp- um neðanjarðarbyrgjum og nota MX-flaugar á landi til „virkra varna", að því er virðist til að mynda gagnflaugakerfi. Samkvæmt áætlun Reagans er einnig stefnt að eftirfarandi: Smíði Trident-eldflaugakafbáta verður haldið áfram. Smíðuð verður stærri og nákvæmari sjóeldflaug, sem gæti næstum tvöfaldað núverandi kjarn- orkugetu Tridents. Efling ratsjáa, gervihnatta og fjarskipta á að auka stjórn forsetans yfir herliði til að hrinda sovézkri árás. Smíðaðar verða nokkrum hundruðum fleiri stýrisflaugar en ráðgert hefur verið. Smíðaðar verða sex til níu fleiri AWACS-ratsjárflugvélar. Forsetakosn- ingar í þriðja sinn í íran Itcirut. 2. októhcr. AP. FORSETAKOSNINGAR fóru fram í íran í dag. þær þriðju frá því að hylting var gerð i landinu og kcisarinn hrakinn frá völd- um. Að sögn stjórnarinnar var kosningaþátttakan strax mikil og er fullvist talið. að Ali Kham- enei. formaður ísiamska lýð- veldisflokksins. verði kosinn með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða. Endanleg úrslit verða þti ekki kunngerð fyrr en i næstu viku. - Svo virðist sem kosningarnar hafi farið fram með friði og spekt en að undanförnu hefur næstum daglega komið til átaka á götum Teheran-borgar milli skæruliða Mujahedeen Khalq- hreyfingarinnar og islamskra byltingarvarða. í íran er kosn- ingaaldurinn 15 ár og er búist við, að allt að 20 milljónir manna af 36 neyti kosningaréttarins. Stjórnvöldum er enda í mun að þátttakan verði sem mest til að geta túlkað hana sem stuðning við stjórnarstefnuna. Auk Khamenei eru þrír aðrir i kjöri í forsetakosningunum, en að flestra dómi er framboð þeirra mest til málamynda. Khamenei, sem er klerkur, varð fyrst kunnur fyrir mergjaðan ræðuflutning við föstudagsmessur í Teheran, þar sem hann tók ein- dregna og öfgafulla afstöðu til flestra mála, sem um var rætt. Reynt var að ráða hann af dögum 27. júní sl. Reagan heimilar smíði hundrað MX-eldflauga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.