Morgunblaðið - 03.10.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981
39
>
Minning:
Lilja Snœbjömsdótt-
ir frá Patreksfirði
Fædd 25. apríl 1906.
Dáin 25. september 1981.
I dag, laugardaginn 3. október
1981, veröur jarðsungin frá Eyr-
arkirkju á Patreksfirði Lilja Snæ-
björnsdóttir húsmóðir, Aðalstræti
53 þar í bæ.
Hún andaðist á Borgarspítalan-
um í Rvík aðfaranótt föstudagsins
25. september eftir fremur stutta
en erfiða sjúkdómslegu.
Lilja fæddist á Vindheimum í
Tálknafirði 25. apríl 1906. Foreldr-
ar hennar voru hjónin Margrét
Guðbjartsdóttir og Snæbjörn
Gíslason. Lengst af bjuggu þau
Margrét og Snæbjörn á Tannanesi
og síðar í Höfðadal við Tálkna-
fjörð og þar ólst Lilja upp, elst í
stórum, glaðværum systkinahópi.
Snemma byrjaði hún að aðstoða
móður sína við bústörfin, og þar
sem faðir hennar var löngum að
heiman vegna sjósóknar kom það
sér vel að Lilja var óvenju vel gerð
stúlka. Hún gekk að öllum störf-
um sem hamhleypa og fórst allt
jafn vel úr hendi, hvort heldur var
að slá með orfi og ijá, eða sauma
föt á yngri systkini sín. Ekki naut
hún skólagöngu umfram það sem
almennt gerðist í þá daga.
Árið 1928 giftist Lilja Friðþjófi
Þorsteinssyni sjómanni frá Kvíg-
indisfelli í Tálknafirði og hófu þau
búskap í Vigdísarhúsi á Patreks-
firði, en keyptu fljótlega Arahús, á
Klifinu svokallaða, sem nú er Að-
alstræti 53, og bjuggu þar til ævi-
loka, en Friðþjófur lést árið 1973.
Hjónaband þeirra Lilju og Frið-
þjófs var einstaklega ástríkt og
hamingjusamt og þau hjónin með
eindæmum vinsæl. Varð fljótlega
gestkvæmt á heimili þeirra og
„Klifið" kjörinn staður fyrir vini
og vandamenn til að hittast og
ræða málin.
Friðþjófur stundaði sjósókn á
eigin bátum alla ævi og höfðu þau
oft aðkomumenn í vist; var þá oft
glatt á hjalla í eldhúsinu hjá Lilju
þegar ekki gaf á sjó og gesti bar að
garði.
Undirritaður var svo lánsamur
að fæðast og vaxa úr grasi í næsta
húsi við þetta heiðursfólk, og
kynnast því andrúmslofti sem það
skapaði með glaðværð sinni og
góðvild. Það var því engin tilviljun
að mín fyrstu spor út í lífið voru
gegnum girðinguna milli húsanna
og yfir til frænku sem ávallt tók
manni á sinn hátt.
Lilja og Friðþjófur eignuðust
tvö börn, Þorstein og Guðbjörgu,
sem bæði eru gift og búsett á
Patreksfirði.
Ég vil að leiðarlokum þakka
Lilju fyrir það veganesti sem hún
lét mér í té og sendi samúðar-
kveðjur til barna hennar og ann-
arra ættingja sem munu geyma
minningu um góða konu um ókom-
in ár.
Grétar Ólafsson
Júlíus Ragnar
Júlíusson - Minning
Vegna mistaka við prentun
þessarar minningargreinar i
blaðinu i gær, birtist hún aftur
hér.
„kallió er komió.
komin er nú stundin.
vinaskilnaóur viókva'm stund.
Vinirnir kveója
vininn sinn látna.
er seíur hér hinn síósta hlund.“
í dag er kvaddur hinstu kveðju
frá Dómkirkjunni mágur minn
Júlíus Ragnar Júlíusson,
Krummahólum 2, hér í bæ, sem
lést í bílslysi í Luxemborg 24.
september sl.
Fyrir rétt rúmum mánuði var
sár harmur kveðinn að aldraðri
móður og fjölskyldu Júlíusar heit-
ins, þá lést elsti bróðir hans í bíl-
slysi, Einar Björn Júlíusson, f.
1928.
I kjölfar aukinnar tækni fjölg-
aði öflugum vélknúnum ökutækj-
um. Hraðinn heillar marga. Hugs-
unin beinist að því hve sé hægt að
komast langa vegalengd á sem
skemmstum tíma.
Þrátt fyrir margítrekaðar að-
varanir til ökumanna eiga sér stað
svö hörmuleg bílslys að orð fá ei
lýst. Við stöndum harmi lostin
frammi fyrir þeirri staðreynd að
enginn á morgundaginn vissan hér
á jörð. Kallið gerir sjaldan boð á
undan sér og er okkur öllum ör-
uggara en nokkuð annað.
Júlíus var fæddur 17. desember
1932 á Akranesi, fimmta barn (af
sjö) hjónanna Ragnheiðar Björns-
dóttur og Júlíusar Einarssonar (d.
Minning:
Pétur Þ.
Einn af leikfélögum mínum frá
björtum vordögum bernskunnar,
Pétur Þ. Knútsen, er dáinn eða
eins og skólaskáldið segir í einu
kvæði sínu: „Vinir mínir allir, allir
eins og skuggar liðu þeir inn í
rökkurhljóðar hailir, hallir dauð-
ans einn og tveir, einn og tveir."
En bak við þessi orð skáldsins býr
samt trúarvissa, því hans síðustu
orð í ljóðaformi voru á þessa leið:
„Yfir djúpi dauðans ljómar sól.“
Þegar ég nú á hljóðri stund rifja
upp minningar bernskuáranna
1973). Þau bjuggu lengst á Bakka-
túni 24, þar í bæ.
Árið 1955 giftist Júlíus eftirlif-
andi konu sinni Jónínu S. Þor-
steinsdóttur, fædd í Rvík. 7. mars
1936, dóttir Þórdísar Fjólu Guð-
mundsdóttir (d. 1981) og Þorsteins
R. Bjarnasonar.
Úlli og Ninna, eins og þau voru
kölluð, eignuðust 4 börn: Hrafn-
hildi Fjólu, gift Gústaf Bergmann
Sverrissyni, þau eiga einn dreng,
Júlíus, Ragnheiður og Bjarna Þór.
Þau eru öll í framhaldsskólum og
búa i foreldrahúsi. Áður en Úlli
giftist átti hann 2 börn: Guð-
mundu, búsett í Flatey og Hjörtur,
giftur Kristínu Magnúsdóttir, bú-
settur á Akranesi. Barnabörnin
eru fjögur.
Úlla var í blóð borin glaðværð
og frískleiki. Hann var hrókur alls
fagnaðar, eftirsóttur á mannfagn-
aði og í góðra vina hóp. Frásagn-
arsnilli hans, ívafin góðlátlegri og
græskulausri. kímni stækkaði
vinahóp hans. Honum var einkar
lagið að fá aðra til að sjá broslegu
hliðar umræðuefnisins.
Eins og nærri má geta var*Úlli
Akurnesingur, þróttmikill og fjöl-
hæfur íþróttamaður, hvort heldur
til andlegra eða líkamlegra
íþrótta. Hann var slyngur skák-
maður, eftirsóttur makker í
bridgeklúbbum, stálgott minni
hans og rökréttar ályktanir leiddu
ósjaldan til sigurs.
Af útiíþróttum hreif golfið hann
mest, ef til vill vegna sérstöðu
þeirrar hollu íþróttar, þar eru
engin aldurstakmörk, fjölskyldan
getur sameinast í skemmtilegum
Knútsen
sem við Pétur áttum saman, þá sé
ég blasa við sjónum bjartan morg-
un og friðsælt kvöld út við bernsk-
unnar strönd. Á Grímsstaðaholt-
inu og út við Skerjafjörðinn áttum
við ásamt öðrum leikfélögum
áhyggjulausa daga og litríkar
stundir þar sem vonleysi og kvíði
var óþekkt fyrirbæri. En árin líða
og allt er breytingum háð. Leiðir
skilja, vinir koma og vinir fara.
Eftir því sem ég best veit var Pét-
ur heitinn sæmilega vel á vegi
staddur. En það eitt er ekki
leik. Sagt er að enginn sé sannur
íþróttamaður nema hann virði
leikreglur og fari eftir þeim, að
hann geti tekið ósigri jafnt sem
sigri. Úlli gekk alltaf einarðlega
til leiks og bar virðingu fyrir
keppinautum sínum.
Úlli var glæsimenni í sjón,
frjálsmannlegur í allri framkomu.
Hann geislaði af hreysti og lífs-
þrótti. Skýru góðlegu augun ljóm-
uðu af kátínu.
Úlli var mannlegur og hafði
sína kosti og ókosti, rétt eins og
við hin. Það sem einn hefur annan
skortir.
Hann var ekki einn í lífsbarátt-
unni, konan hans stóð svo sannar-
lega ódeig og ósérhlífin við hlið
hans í blíðu og stríðu.
Nú þegar Úlli er genginn sinn
veg, vottum við hjónin aldraðri
móður hans og vandamönnum
hugheilar samúðarkveðjur. Minn-
umst þess að vís er endurfundur.
Einnig biðjum við fyrir erlenda
ökumanninum unga, sem ók bíln-
um í hinstu ökuferð Úlla.
Elsku Ninna mín. Orð mín eru
fátækleg og lítilsmegandi, en frá
því í bernsku höfum við (þú og ég)
leitað í bæn til Hans í gleði og
sorg. Því bið ég Hann á þessari
þungbæru tregastund að gefa þér
kraft, styrkja þig og leiða áfram á
lífsins braut í fylgd elskulegu
barnanna ykkar. Trúin og birta
eilífðarljóssins varðveitir minn-
inguna um góðan dreng, sem far-
inn er yfir vegamótin miklu.
(■rátnir til tjraíar
KönKum vér nú hóöan.
fylKjum þór. vinur. Far vol á braut.
GuA oks þaö koíí.
KlaÖir vór mcKum
þór síöar fylKja’ í friöarskaut
(V. Briom.)
Guðmunda Þorsteinsdóttir
nægjanlegt. Við stöndum öll
raunverulega veik og varnarlaus
gagnvart lögmálum og áhættum
tilverunnar. Það er eitt sem verð-
ur ekki umflúið. Mín kveðja og ósk
til hins framliðna bernskpfélaga
verður sú að við honum muni
blasa nýtt og bjart tilverusvið þar
sem rökkurmóða jarðlífsins er
ekki lengur til samhliða því.
Votta ég eftirlifandi aðstand-
endum hans mína samúð og hlut-
tekningu.
Af oilífúarljósi hjarma hor
som hrautina þunvru Kroióir.
Vort líf som svo stutt ok stopult or
það stofnir á a*óri loiðir
ok upp himinn foKri on auKaó sór
mót öllum oss faóminn hroióir.
(Einar Bonodiktsson)
þorKeir Kr. MaKnusson
Minning:
Asgeir Þórarins-
son bifreiðastjóri
Fæddur 4. september 1924.
Dáinn 28. september 1981.
í dag, laugardag, verður Ásgeir
Þórarinsson bifreiðastjóri hvadd-
ur hinstu kveðju í Selfosskirkju,
en hann lést mánudaginn 28. sept-
ember sl. Við lát míns yndislega
tengdaföður sló mig hljóðan og
ípp í huga minn kom sú spurning,
íversvegna þeir sem elskaðir eru
>g ávallt eru ástríkir og vingjarn-
legir, — hvers vegna þeir eru kall-
aðir svo ungir til drottins. En
skrifað stendur, þeir sem guðirnir
elska deyja ungir.
Ásgeir var sonur hjónanna Þór-
arins Guðmundssonar og Jónu
Torfadóttur, en þau bjuggu að
Sandprýði á Stokkseyri. Þórarinn
lést 10. septemmber sl. og er nú
mikill harmur kvaddur að fjöl-
skyldunni.
Ásgeir var yngstur sex systkina
og í bernsku hans barðist fjöl-
skyldan við mikil veikindi. Móðir
þeirra varð að fara á Vífilsstaði og
einnig elsta systirin, en við það
tvístraðist hópurinn. Ásgeiri var
komið fjögurra ára til þeirra
sæmdarhjóna Ketils Arnoddsson-
ar og Guðlaugar Sigfúsdóttur að
Brúnastöðum í Hraungerðishreppi
og ólst hann þar upp.
Árið 1949 urðu mikil og ham-
ingjurík þáttaskil í lífi Ásgeirs en
þá gekk hann að eiga eftirlifandi
konu sina Margréti Karlsdóttur.
Voru þau hjón mjög samhent um
allt og alltaf gott að koma á þeirra
yndislega heimili. Búskap sinn
hófu þau að Selfossi II, en fluttu
síðar að Sunnuvegi 6, Selfossi, þar
sem þau höfðu byggt sér einbýlis-
hús. 1974 keyptu þau svo Stekk-
holt 7.
Börn þeirra urðu fjögur, allt
dætur. Elst er Jóna Guðlaug, hús-
móðir á Selfossi, gift Júlíusi
Holm, vörubílstjóra. Næst er
Emilía, gift undirrituðum, búsett í
Reykjavík. Þá er Sólrún, gift Ás-
grími Kristóferssyni og búa þau á
Selfossi. Yngst er svo Jóhanna
Gréta, sem er heitbundin Ólafi
Sigurðssyni og búa þau í Kópa-
vogi.
Meginstarf Ásgeirs var bif-
reiðaakstur en vann þó á vinnuvél-
um fyrst eftir að hann fluttist frá
Brúnastöðum. Allir sem kynntust
Ásgeiri í starfi mátu hann sér-
staklega mikils því heiðarlegri og
.betri mann viðskiptis í hvívetna
var ekki hægt að finna. Systkina-
hópurinn var mjög samrýndur
enda þurftu þau að reyna margt
saman. T.d. byggðu þeir bræðurnir
Ásgeir og Engilbert hús sín hlið
við hlið.
Stór hópur drúpir nú höfði við
hið sviplega fráfall Ásgeirs.
Barnabörnin sem horfa á eftir
yndislegum afa svo og dætur hans
og tengdasynir. Stærst er þó sorg
konu hans. Megi algóður guð
styrkja hana og alla syrgjendur í
þeirra miklu sorg.
MFar þú i íriöi.
friöur Guds þÍK blessi.
hafðu þökk fyrir allt ok allt.“
André Bachmann
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag
Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur í einum 16
para riðli og urðu úrslit þessi:
Rafn Kristjánsson
— Þorteinn Kristjánsson 266
Hreiðar Hansson
— Axel Lárusson 252
Hafsteinn.
— Ágúst 247
Kjartan Kristófersson
— Friðjón Margeirsson 243
Einar Guðlaugsson
— Sigríður Rögnvaldsdóttir 228
Meðalskor 210
Á þriðjudaginn kemur hefst
þriggja kvölda hausttvímenning-
ur og er allt spilafólk velkomið
meðan húsrúm leyfir. Keppnis-
stjóri er Hermann Lárusson.
Spilað er í húsi Kjöts og fisks,
Seljabraut 54 og hefst keppni kl.
19.30. stundvíslega.
Bikarkeppni
Bridgesambands
íslands
Nú er tveimur umferðum
ólokið í Bikarkeppni BSÍ,
undanúrslitum og úrslitum. Þær
sveitir, sem eftir eru, komu sér
saman um að heyja einvígi sín á
milli á sama stað og tíma og
hafa aðstöðu fyrir áhorfendur.
Undanúrslitin fara því fram
að Hótel Heklu, Rauðarárstíg 18,
í dag, 3. október, kl. 13. Sveitir-
nar, sem þá eigast við eru:
Guðmundur Sv. Hermannsson
gegn Agli Guðjohnsen og
Tryggvi Bjarnason gegn Erni
Arnþórssyni.
Leikir sveitanna verða 48 spil,
spiluð í fjórum 12 spila lotum.
Sigurvegararnir munu síðan
mætast í úrslitum að Hótel
Loftleiðum, laugardaginn 10.
október.
Bridgefélag kvenna
Tveimur umferðum af þremur
er nú lokið í fyrstu tvímenn-
ingskeppni vetrarins hjá Bridge-
félagi kvenna.
í annarri umferð urðu úrslit
þessi:
A-riðill:
Kristín Þórðardóttir
— Guðríður Guðmundsdóttir 251
Ósk Kristjánsdóttir
— Guðrún Bergsdóttir 243
Katrín Þorvaldsdóttir
— Guðbjörg Jónsdóttir 236
Kristín Jónsdóttir
— Erla Ellertsdóttir 234
B-riðill:
Alda Hansen
— Nanna Ágústsdóttir 272
Ester Jakobsdóttir
— Erla Sigurjónsdóttir 247
Júlíana Isebarn
— Margrét Margeirsdóttir 245
Steinunn Snorradóttir
— Þorgerður Þórarinsdóttir 244
Eftir tva*r umferðir eru þessi
pör efst:
Alda Hansen
—Nanna Ágústsdóttir 541
Guðrún Einarsdóttir
— Guðrún Halldórsson 500
Ester Jakobsdóttir
— Erla Sigurjónsdóttir 500
Júliana ísebarn
— Margrét Margeirsdóttir 485
Steinunn Snorradóttir
— Þorgerður Þórarinsdóttir 476
Kristín Þórðardóttir
— Guðríður Guðmundsdóttir 471
Ólafía Jónsdóttir
— Ingunn Hoffmann 465