Morgunblaðið - 03.10.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.10.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981 17 Listasafn Islands: Yfirlitssýning á verkum Kristjáns Davíðssonar í DAG, laugardaginn 3. október, kiukkan 14.00 verður opnuð yfir- litssýninK á verkum Kristjáns Ilavíðssonar listmála i Lidtasafni Islands. Á sýningunni eru 209 verk, valin af Jóhannesi Jóhann- essyni. o>? eru elstu myndirnar frá 1932, en nýjustu myndirnar eru hinsvejíar frá þessu ári. Flestar myndirnar eru i eigu safnsins, um 10 myndir eru eii?n listamannsins »k afKangurinn er i einkaeÍKn. Kristján Davíðsson þarf vart að kynna, því hann er einn af kunn- ustu listmálurum landsins. Hann byrjaði ungur að mála, og elstu myndina sem á sýningunni er málar hann aðeins 15 ára gamall, en hann er fæddur 28. júlí í Reykjavík. 1932—33 og 1935—36 stundar hann myndlistarnám í einkaskóla Finns Jónssonar og Jó- hanns Briem. Að lokinni siðari heimsstyrjöldinni heldur Kristján utan til náms í Bandaríkjunum, og nemur á árunum 1945—47 við Barnes Foundation í Merion, Pennsylvania, og University of Pennsylvania. Fyrstu sérsýningu sína heldur Kristján í Internat- ional Student House Philadelphia árið 1946. 1949 heldur hann síðan utan aftur til framhaldsnáms í París og London. Fyrstu sérsýn- ingu sína á Íslandi í Listamanna- skálanum heldur hann síðan 1950. í veglegri sýningarskrá sem Listasafnið hefur látið gera í til- efni sýningarinnar segir Selma Jónsdóttir m.a.: „Yfirlitssýning þessi á verkum Kristjáns Davíðssonar ber með sér sköpunargáfu og sköpunar- gleði hans, fjölbreytni viðfangs- efnanna og ólík viðbrögð við þeim. Það er ævintýri að ferðast með listamanninum um þann heim, sem hann hefur skapað í verkum sínum og hér blasir við í sölum Listasafns íslands. Það sem fyrir augun ber gefur til kynna margt í senn: hárvissa meðferð og næmi í beitingu litar, og tækni sem oftast er létt og leikandi, eins og pensill- inn dansi yfir léreftið. Eftir ferð- ina má ljóst vera að Kristján er sannur málari." Alúðarþakkir fyrir heimsóknir, gjafir og hlý- hug mér sýndan á 70 ára afmæli mínu 21. september. Kær kveðja, Stefán G. Sigurðsson. Vinningar í happdrætti Hjartaverndar 1981 Vinningar eru: 1. Lancer Gl. 1600 á miöa nr. 95656. 2. Mazda 323 á miöa nr. 49999. 3.-6. 4 myndsegulbandstæki á miöa nr. 8504, 25625, 37056 og 95889. 7.-11. 5 utanlandsferðir á miöa nr. 4771, 19095, 36514, 62335 og 81107. 12.-26. 15 reiðhjól á miöa nr. 7353, 11500, 13687, 16120, 33940, 42419, 45036, 56589, 62048, 68753, 74780, 75128, 87983, 89354 og 92367. Vinninga má vitja á skrifstofu Hjartaverndar aö Lág- múla 9, 3. hæö. Húsbyggjendur Verkfræðingar Pípulagningamenn Tæknifræðingar Viö kynnum MELTAWAY snjóbræöslukerfi, gólf- hitakerfi og pexplaströr aö Smiðjuvegi 28 D, Kópavogi í dag laugardaginn 3. október kl. 13—18. Pípulagnir sf. Sími 77400. Söfnun til safnaðar- heimilis í Kársnessókn Kársnesprestakall I Kópavogi hefur gert samning um kaup á íbúðarhúsi, sem stcndur i ná- ígrenni kirkjunnar, i þvi skyni að nota það sem safnaðarheimili. Stofnuð hefur verið húsakaupa- nefnd á vegum safnaðarins og er ætlunin að hefja fjársöfnun um þessa helgi til kaupanna. Hér fer á eftir fréttatilkynning, sem Morgunblaðinu hefur horizt frá sóknarnefnd Kársnessafnaðar um kaupin og söfnunina: Nú á tíu ára afmæli Kársnes- prestakalls erum við sóknarbörnin að sjá langþráðan draum rætast um bætta félagslega aðstöðu. Lengi hefur staðið til að hefja byggingu safnaðarheimilis í ná- grenni kirkjunnar en lóð undir húsið hefur ekki fengist. í sumar bauðst sóknarnefndinni að kaupa það íbúðarhús sem næst er kirkjudyrum og stendur við Kastalagerði. Með smávægilegum breytingum má gera húsið að hentugu safnaðarheimili, þar sem bílastæði kirkjunnar nýtast vegna nálægðar húsanna. Nú hefur kaupsamningurinn verið gerður og fyrsta útborgunin, kr. 300 þús- und, var tekin að láni. Kaupverð hússins er kr. 1.200 þúsund. Um leið og við færum þér, kæra sókn- arbarn, þessar gleðifréttir, leitum við eftir fjárstyrk þínum við hús- kaupin. Safnaðarheimili er auðvitað eign allra sóknarbarna og kemur til með að þjóna þeim á ýmsan hátt. Auk funda fyrir félagsstarf safnaðarfólks á öllum aldri má hugsa sér að húsið verði leigt út, m.a. til sýninga- og tónleikahalds, til brúðkaupsfagnaða, til erfisveit- inga og margs annars. Stofnuð hefur verið húsakaupa- nefnd á vegum safnaðarins og mun hún bera hita og þunga fjár- söfnunarinnar. Nefndina skipa Sveinn A. Sæmundsson formaður, Vallargerði 2, sími 41260, og aðrir nefndarmenn eru: Daði E. Jóns- son, Ásbraut 15, sími 40190, Stef- anía Pétursdóttir, Þinghólsbraut 60, sími 41706, Vilhelmína Þor- sími 40551, Þorvarður Áki Eiríks- son, Skólagerði 31, sími 42537. Ætlun húsakaupanefndar er að hefja fyrsta söfnunarátakið helg- ina 3.-4. október nk. og biðjum við þig að taka vel á móti þeim sóknarmanni er heimsækir þig þá með beiðni um fjárstuðning. Við erum svo bjartsýn að búast við að hvert heimili leggi þá af mörkum að minnsta kosti kr. 200. Þessa sömu helgi bjóðum við öllum að koma og skoða safnað- arheimilið laugardag og sunnudag kl. 14—18 og þiggja þar molasopa. Húsgagnasýning Málverkasýning 3. okt.—11. okt. Opið báðar helgar og öll kvöld til kl. 10 e.h. MIKIÐ ÚRVAL HÚSGAGNA Eldhúsborð og stólar í úrvali. Hvít málað. Bæsuð Eik. Birki og Fura. Veggeiningar mikið úrval. Hvít/málaðar. Brúnbæsaðar. Ólitaöar. HÚSAGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKURVEGI 68 HAFNARFIRÐI. SÍMI 54343. Kópavogskirkja og hið nýja safnaðarheimili Kársnessóknar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.