Morgunblaðið - 03.10.1981, Side 34

Morgunblaðið - 03.10.1981, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981 ÆSKAN erS6 síður • • Markús Orn Antonsson við umræður í borgarstjórn: Æskan Nýir áskrífendur fá einn eldrí érgang í kaupbœti. Það borgar sig aO gerast áskrrfandi. Afgreiðsla Laugavegi 56, sími 17336. HlLfli.NiiMiE * 415 umsóknir fólks með tæp 400 börn bíða hiá Félagsmálastofnun „ÞAÐ ER ótrúleg einföldun af hálfu Kristjáns Benediktssonar aö halda því fram aö hér sé ekki um alvarlegan húsnæðisvanda að ræða. Tilburðir hans i þessum efnum eru gott dæmi um það þeg- ar menn stinga höfðinu i sandinn og vilja ekki viðurkenna vandann.“ sagði Markús örn Ant- onsson, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins við umræður i borgar- stjórn i gærkvöldi. Markús tók til máls vegna þeirra ummæla Kristjáns Benediktssonar, borg- arfulltrúa Framsóknarflokksins, að í horginni væri ekki um hús- næðisvanda að ræða, heldur hefðu Morgunblaðið og Visir hlaupið upp i sumar og reynt að sýna fram á að um algert öngþveiti væri að ræða f húsnæðismálum, sem núverandi meirihluti bæri ábyrgð á, þegar ljóst hefði verið að mörgum námsmönnum utan af landi hafði ekki tekist að útvega sér húsnæði fyrir veturinn, eins og Kristján komst að orði. Krist- Dæmi um að átta manns búi í einu herbergi ján sagði að nú væri búið að koma námsmönnunum i hús og þvi væri Ijóst að upphlaup blaðanna hefði verið vindhögg og vottur um takmarkaðan skilning á pólitik. Markús sagði að sýnt hefði verið fram á að undanförnu hver skort- urinn á húsnæði almennt væri. Hann sagði, að hinn 25. ágúst síð- astliðinn hefðu legið fyrir hjá Fé- lagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar samtals 415 umsóknir um húsnæði hjá borginni. Hefði verið um að ræða 162 einstaklinga, 161 einstæða foreldra með 271 barn, 74 umsóknir frá hjónum eða sambýl- isfólki með rúmlega eitt hundrað börn, 12 umsóknir frá fólki þar sem þrír fullorðnir voru í heimili og 6 aðrar umsóknir. Þá sagði Markús að fyrir hefðu legið í september 77 umsóknir ein- staklinga, einstæðra foreldra, hjóna eða sambýlisfólks með sam- tals 91 barn á sínu framfæri, sem heyrðu svonefndum forgangslista til. Aðstæður þessa fólks væru jafnan mjög slæmar. Þetta fólk byggi hjá ættingjum, hjá kunn- ingjum, á gistiheimilum, í leigu- íbúðum öryrkja, í heilsuspillandi húsnæði, í lélegum leiguíbúðum borgarinnar, í óíbúðarhæfum herbergjum, á stofnunum á vegum Félagsmálastofnunar Reykjavíkur, í sumarbústöðum, á hóteli með börn á kostnað Félagsmálastofn- unar, á flækingi eða á vistheimili. Eitt dæmi væri um að átta manns byggju í einu herbergi, sem Magn- ús sagði minna á húsnæðiskerfið í Austantjaldsríkjum. í einu tilviki væru börn vistuð á vistheimili við Dalbraut vegna húsnæðisleysis fjölskyldu og að nokkrir foreldrar hefðu komið börnum fyrir hjá ætt- ingjum vegna þess sama. Snigildælur, henta vel til aö dæla fiskúrgangi, sem lensi- dælur fyrir skip og báta o.fl. Snigill úr ryöfríu stáli. Þessar dælur eru kjörnar fyrir frysti- hús og vinnslustöövar. Vest- ur-þýsk úrvalstæki. Atlas hf GROFINNI 1 - SÍMI 26755 Jón Sigurðs- son og sjálf- stæðisbaráttan NÁMSGAGNASTOFNUN hefur í samvinnu við menntamálaráðu- neytið, skólarannsóknadeild, gefið út nýtt námsefni í samfélagsfræði: Jón Sigurðsson og sjálfstæðisbar- áttan. Höfundur er Lýður Björns- son sagnfræðingur. Efnið, sem er gefið út í bráða- ^ birgðaútgáfu og einkum ætlað 8. bekk grunnskóla, skiptist i átta kafla og heita þeir: Aðfari, Skyggnst um heima og heiman, Foringjaefni kynnir sig, Dagur er upp kominn, Hugað að atvinnulífi og menntun, Eigi víkja, Heima hjá forseta og Að leiðarlokum. Lögð er rík áhersla á að nemendur kynnist ýmsum sögulegum heimild- um um sjálfstæðisbaráttuna, m.a. eru birtar fjölmargar tilvitnanir í rit Jóns Sigurðssonar og samtíma- manna hans auk annarra heimilda um sjálfstæðisbaráttu og samfélag á seinni hluta 19. aldar. Bókin Jón Sigurðsson og sjálf- stæðisbaráttan er 56 bls. að stærð, 1 prýdd um 60 ljósmyndum. Efninu fylgja kennsluleiðbeiningar og verk- efni. fyrir FIB félaga Ljósaskoöun fyrir félagsmenn FÍB fer fram laugar- dagana 3. og 10. október nk. hjá Bifreiöaverkstæö- inu Topp hf., Auöbrekku 46, Kópavogi, ekið inn frá Nýbýlavegi. Félagsmenn fá 20% afslátt gegn framvís- un fullgilds félagsskírteinis. Félag íslenzkra bifreióaeigenda, Nóatúni 17. Dunká í Hörðudals- hreppi gaf góða veiði NÚ ER lélegu laxveiðisumri lok- ið, einu hinu lélegasta í áraraðir. Margar frægar ár hafa gefið afar litla veiði, miðað við síðustu árin, og er gleggsta dæmið um það Laxá i Aðaldal. sem allajafnan hefur verið ein fengsælasta áin á landinu. Hins vegar gengu marg- ar ár i Húnavatnssýslu þokka- lega og sumar stórvel, einkum Laxá á Ásum. Þá má einnig nefna Laxá í Kjós, cn veiðin í henni var ágæt í sumar. Upplýsingar um afla í veiðivötn- um lax og silungs, eru ætíð vel þegnar, ekki síst ef um lítt þekktar ár er að ræða, því alltaf er fróðlegt að fá fréttir af ræktunarstarfi í veiðiám. Morgunblaðinu hafa bor- ist upplýsingar um veiðina í frem- ur lítt þekkrtri veiðiá, Dunká í Hörðudalshreppi, og birtast þær hér, þó nú sé veiðitíminn úti. Dunká í Hörðudalshreppi er lítil en skemmtileg laxveiðiá og gekk veiðin í henni óvenjulega vel í sumar. Gekk laxinn snemma í ána og veiddust í henní á annað hundr- að fiskar í sumar. Er það mun betri veiði en í fyrra, en þá komu 58 fiskar á land. Árið 1979 veidd- ust í Dunká 142 laxar. Áin hefur verið ræktuð upp með seiðasleppingum og alúð hefur verið lögð í það verk og hófs gætt í veiðinni. Á meðfylgjandi mynd er María Gunnarsdóttir með tvo fal- lega laxa úr ánni, en þessi stærð laxa er algengust. Hér er að vísu ekki um Maríulaxa að ræða, því veiðimaðurinn, faðir Maríu, Gunn- ar Þorláksson, hefur lengi stundað lax- og silungsveiði. -ój Blaóburðarfólk óskast Uthverfi Drekavogur Nökkvavogur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.