Morgunblaðið - 29.11.1981, Page 1
9*6 SIÐUR
262. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Reidi í Póllandi út
af hækkun á vodka
Yarsjá, 2H. nóv. AP.
LKÍ'II WALESA, leiðtogi Samstöðu,
hvatti í dag til stillingar vegna mik-
illar hækkunar sem er fyrirhuguð á
vodkaverði og kallaði hækkunina
„grimmilega ögrun", til þess ætlaða
að kalla fram verkioll „og gera
okkur að athlægi í augum heims-
Walesa sagði að mótmæli út af
vodkaverði gætu riðið verka-
lýðshreyfingunni að fullu.
„Nú mun umheimurinn segja:
þannig endar þetta — ef þeir fara
verkföll út af vodka ... Síðasta
hækkunin er grimmileg ögrun.
Hún þjónar þeim tilgangi að gera
okkur að athlægi í augum heims-
Mjótt á munum
á Nýja-Sjálandi
Wcllington, 2H. nóvember. Al*.
UINGKOSNINGAR fóru fram á
Nýja-Sjálandi í dag, laugardag, en
vegna tímamismunar hófust þær á
föstudegi að ísl. tíma. Talningu er að
mestu lokið og gefa þær til kynna, að
stjórnarflokkurinn, Þjóðlegi flokkur
inn undir forsæti Roherts Muldoons,
hafi fengið 46 þingsæti af 92, Verka-
mannaflokkurinn 44 og Sósíalkredit-
flokkurinn tvö. 250.000 Nýsjálend-
ingar greiddu atkvæði erlendis, í öll-
um heimshornum, og því kunna end-
anleg úrslit ekki að verða Ijós fyrr en
að nokkrum viknum liðnum.
Á kjörskrá voru tvær milljónir
manna og með tilliti til þess geta
atkvæði greidd erlendis vegið
þungt. Forystumenn Verkamanna-
flokksins spá öðrum kosningum
innan tíðar en Muldoon er bjart-
sýnn á áframhaldandi setu sinnar
stjórnar. Nýsjálendingar eiga við
efnahagserfiðleika að etja, verð-
bólgan er 15%, greiðslujöfnuður
óhagstæður og atvinnuleysið nem-
ur 5% meðal þriggja milljóna
manna, sem eyjarnar byggja.
Brjálaði Mike handtekinn
eftir Seychelleseyjaárásina
Jóhannt'sarborg, 28. nóvember. Al’.
„BRJÁLAÐI MIKE“, Michael Hoare
ofursti, málaliðaforinginn frægi frá
Kongó fyrr á árum, var í hópi 43 ann-
arra málaliða sem voru teknir hönd-
um í Suður Afríku fyrir að ræna
flugvél indverska flugfélagsins eftir
byltingartilraunina á Seychelles-eyj-
um á Indlandshafi á dögunum og
særðist ekki, samkvæmt staðfestingu
heimildar í suður afrísku ríkisstjórn-
inni á frétt blaðsins „Beeld“ í dag.
Samkvæmt heimildinni er talið
að Hoare, sem er 62 ára og býr í
Durban, hafi aðeins tekið þátt í
byltingartilrauninni, en ekki skipu-
lagt hana. Á sínum tíma stjórnaði
Hoare málaliðum, sem björguðu
2.000 hvítum gíslum í Kongó, nú
Zaire, og komu Mobutu forseta til
valda, í 18 mánaða herferð á árun-
um 1964—65.
Pik Botha, utanríkisráðherra
Suður-Afríku, sagði í dag að full-
trúar andófshópa hefðu nokkrum
sinnum beðið um aðstoð. Botha
sagði að þessum hópum hefði alltaf
verið tjáð að það væri ekki stefna
Suður-Afríkustjórnar „að skipta
sér af slíkum ævintýrum“.
Ævintýri Hoares í Kongó voru
kveikja kvikmyndarinnar „Villi-
gæsirnar", með Richard Burton og
Richard Harris í aðalhlutverkum.
Hoare samdi einnig bókina
„Kongó-málaliðar". Menn Hoares
sóttu 1.120 km gegnum frumskóga
Kongó, nú Zaire, í herferðinni gegn
„Simba“-uppreisnarmönnum.
Upphaflegu „villigæsirnar" voru
frægustu málaliðar sögunnar,
19.000 írar sem vildu ekki lúta er-
lendum yfirráðum á 18. öld, leituðu
hælis í Frakklandi og urðu kjarni
hers málaliða, sem börðust í Evr-
ópu í áratugi, einkum í þágu aust-
urrísku krúnunnar.
Hoare sagði í viðtali 1966 að upp
væri runnin ný „gullöld" málaliða.
Hann sagði að 30 til 40 velvopnaðir
og harðsnúnir menn gætu steypt
hvaða ríkisstjórn sem væri og smá-
ríkjum stafaði mikil hætta frá slík-
um mönnum. >
Einn þeirra, sem þekktust í hópi
Verdens Gang stærsta blaðið
Oslo, 2H. nóv. Al\
NORSKA daghlaðið Verdens Gang
hefur nú skotið Aftenposten ref fyrir
rass sem stærsta hlaðinu í landinu og
er því spáð, að upplagið verði komið í
235.000 eintök á dag í lok ársins.
Uppgangur Verdens Gang hófst
árið 1964 þegar sniði þess var
breytt og það gert líkara því, sem
stundum er kennt við gula pressu.
Þá var upplagið aðeins 38.000 en
síðan hefur það rúmlega sjöfaldast
og kemst um helgar vel yfir 350.000
eintök. Að sögn framkvæmdastjóra
blaðsins eru ýmsar ástæður fyrir
velgengninni en þó einkum tvær:
Með markvissu starfi hefur blaðið
ins og sýna að við séum þjóð
drykkjurúta."
Samstaða þakkar árangurinn í
verkfallinu í ágúst 1980 banni sem
þá gilti við áfengissölu, bæði að
tillögu stjórnvalda og verklýðsfé-
laga.
Walesa kvað það enga tilviljun
að verð á vodka og bjór yrði hækk-
að um 70% og benti á að jólin
væru í nánd. En hann sagði að
Samstaða ætti ekki að láta teyma
sig út í átök. „Vodka mun ekki
ráða örlögum þjóðarinnar og þjóð-
félagsins," sagði hann.
Hann sagði að vodkahækkunin
yrði rædd á fundi leiðtoga Sam-
stöðu á þriðjudaginn og bætti við:
„Við eigum sjálfir að velja okkur
tilefni til árekstra og baráttuleiðir
og ástæðan ætti sízt af öllu að
vera áfengi."
Jafnframt er miðstjórn komm-
únistaflokksins komin saman til
fundar til að ræða efnahagsvand-
ann og ólgu á landsbyggðinni.
Flokksleiðtogar hafa greinilega
ákveðið að leggja fram frumvarp á
þingi um bann við verkföllum.
Verkföll slökkviliðsmanna,
bænda, olíuverkamanna og
námsmanna halda áfram.
málaliðanna á Seychelles-eyjum á
dögunum, var Peter Duffy höfuðs-
maður, félagi Hoares ofursta frá
Kongó-árunum.
Annar félagi Hoares, Georg
Schröder majór, sagði í útvarpsvið-
tali í gær að hann og Hoare hefðu
verið beðnir að stjórna aðgerðinni.
Schröder kvaðst hafa hafnað boð-
inu.
Hoare settist í helgan stein fyrir
nokkrum árum. Hann barðist í
brezku skriðdrekaherdeildinni í
Burma í síðari heimsstyrjöldinni.
verið gert aðgengilegra til lestrar
og dreifingarkerfi þess stórbætt.
Starfsmenn Aftenposten eru
sagðir dálítið stúrnir yfir því að
hafa misst forystuna á blaðamark-
aðnum en útgefendunum er það
hins vegar mikil huggun harmi
gegn að þeir eiga bæði blöðin.
Elsta
hof í
sögu
manna
Washinglon. 2H. nóv. Al\
VÍSINDAMENN segjast hafa
fundið elsta hof eða helgistað í
sögu mannkynsins í helli nokkr
um á NorðurSpáni. Þar hefur ver
ið komið fyrir einhverju, sem lik-
ist altari, og einnig fannst mjög
sérkennilegt steinhöfuð, sem talið
er 14.000 ára gamalt. Við uppgröft
komu líka í Ijós vopn, búsmunir
og dýraleifar.
Það voru tveir mannfræð-
ingar við Chicago-háskóla, sem
hofið fundu og segja þeir, að
ekki sé vitað um annan eldri
helgistað, sem því nafni geti
nefnst. Elstu menjar um ein-
hvers konar trúariðkun eru allt
að því 50.000 ára gamlar, t.d.
hellaristurnar og fórnargjafir í
gröfum Neanderthalsmanna, en
þær „snúast allar um dauðann,
sem er aðeins einn þáttur trú-
arlífsins", sagði annar mann-
fræðinganna. „Þessi staður er
almennara eðlis og er til marks
um aðrar hliðar á trúarhug-
myndum steinaldarmanna,"
sagði hann.
Steinhöfuðið þykir merki-
legur fundur því að það er að
hálfu með mannsmynd og að
hálfu í kattarlíki og á engan
sinn líka frá þessum tíma. Ann-
að vakti líka athygli þeirra.
Vopnum og búsmunum, t.d.
saumnálum, var haldið aðskild-
um í hellinum og þykir það
benda til, að verkaskipting kynj-
anna hafi þá þegar verið farin
að endurspeglast í trúarlífinu.