Morgunblaðið - 29.11.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.11.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1981 27 Styttra sumar en nokkur nú- lifandi man Mnausum í Meðallandi, 25. nóvember. NÚ ER hér snjór yfir öllu, þó ekki meira en svo, að hann er til bóta því kalt hefur verid undanfarið. Hér hefur vetur ríkt frá því um miðjan september, að fráteknum hálfum mánuði um og eftir síðustu mánaðamót. Sumarið var því styttra en nokkur núlifandi maður man og ekki kom sauðgróður í vor fyrr en í lok júní. Heyfengur var lélegur því óvenjulega mikið kal var í tún- um. Ekki bætti það úr, að rosi var í ágúst og allt þar til norð- angaddveðrið kom í september. Dilkar reyndust óvenjurýrir sem von var og voru bændur stundum með þá á gjöf í slátur- tíðinni vegna snjóa. í haust var lagfærður vegur- inn yfir Hestlækjargil fyrir norðan Þykkvabæ. Byggð var heilmikil uppfyiling og komu þá í ljós bæir sem menn vissu varla af áður. Annars er Landbrots- vegurinn í ófremdarástandi, vantar þar ofaníburð og er það ömurlegast vegna þess að rauða- möl er þar alls staðar utan við veginn. Þann 15. þ.m. messaði séra Hanna María Pétursdóttir hér í Langholtskirkju í fyrsta sinn. Var fjölmennt við athöfnina sem fór hið bezta fram. Vilhjálmur Ný líkams- ræktarstofa opnuð OPNUÐ hefur verið ný líkams- ræktarstofa í kjallara Kjörgarðs við Laugaveg, Líkamsræktin hf., sem er í 520 fermetra húsnæði. Að sögn þeirra Gústafs Agn- arssonar og Finns Karlssonar, sem eru leiðbeinendur og hlut- hafar þessa nýja fyrirtækis, þá hafa flest tækin aldrei sést hér áður og það sem er ef til vill athygiisverðara að það er hægt að stilla tækin eftir því hvernig fólk er byggt. I líkamsræktinni eru 2 salir annar er með sérstökum tækjum fyrir konur og hinn er fyrir karla. Inn af búningsklefunum er svokallað nuddbað, gufubað, ljósabekkur og sturtur. Líkamsræktin er opin alla virka daga frá 7 á morgnana til klukkan 10 á kvöldin. A laugar- dögum er opið frá 10—5. AtUl.YSlNOASIMINN 22480 NNKR: A 48D Plor0unl)l«btt) Þessa helgi í Blómaval: Aðventukransar aóventu-og jólaskreytingar Nú er aðventan hafin. Margir halda þeim góða sið að skreyta híbýii sín af því tilefni. Komið við í Blómavali við Sigtún. Skoðið hið stórkostlega úrval okkar af aðventukrönsum og aðventuskreyting- um, stórum sem smáum. Eigum jafnframt fyrirliggjandi allt efni til aðventu- og jólaskreytinga. Allskonar jólaskraut jólaskreytingar og efhi til slíks. Fallegt úrval af jólastjömum, rauðum og hvftum. Opið alla daga til kl. 21.00. Hringið í síma 35408 Blaóburóarfólk óskast AUSTURBÆR VESTURBÆR Laugavegur1—33 Miðbær II Tjarnargata I og II Garðastræti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.