Morgunblaðið - 29.11.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.11.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1981 21 Laufdal og kona hans Kristín Ketilsdóttir stigu fyrsta dansinn á nýja skemmtistaðnum. Ljósm. Emilía. Baldur Brjánsson og Laddi grínuðust við gestina. Þeir sjá um tónlistina, talið frá vinstri Vilhjálmur, Gísli og Ásgeir. v/»v ' m * át m * „ *mm**um Það hafa margir lagt hönd á plóginn við að gera þennan skemmtistað sem best úr garði. Ekki má gleyma Banda- ríkjamanninum Goldie Golden, sem stjórnaði því er glimmeri var sprautað á grófhraunaða veggi Broadway eftir að búið var að lakka þá svarta. Af þeim lýsingum, sem þegar hafa verið gefnar af staðnum, getur fólk ímyndað sér að hér er bæði um glæsi- legan og tæknilega vel búinn skemmti- stað að ræða. En það eitt er víst ekki nóg til að laða að fjölda fólks en gert er ráð fyrir að staðurinn taki 1300 manns. Ólafur Laufdal og hans fólk hafa því lagt höfuðið í bleyti og margar hug- myndir um hvernig best megi skemmta gestunum orðið til. Á næstu kvöldum verður gestum Broadway boðið upp á ýmis skemmtiatriði en á þessu fyrsta opnunarkvöldi Broadway spilaði hin frábæra hljómsveit Mezzoforte, dans- flokkur Sóleyjar sýndi nýjan dans til- einkaðan Broadway og Baldur Brjána- son og Laddi grínuðust við gestina. Þegar blaðamaður kvaddi Broadway þetta fyrsta opnunarkvöld voru plötu- snúðarnir Ásgeir, Gísli og Vilhjálmur að spila lagið „Hold on Tight to Your Dreams" með ELO og honum var hugs- að til þess að líklega hefði það einmitt verið staðföst trú Ólafs Laufdal á drauminn um svo glæst diskótek, sem gerði hann að veruleika. HE. Alls eru 8 barir á Broadway. Mezzoforte spiluðu fyrsta kvöldið. JIH Niðjatal Guörúnar Þóröardóttur og Björns Auöunssonar Blöndals sýslumanns í Hvammi I Vatnsdal SKUGGSJA LárusJóhannesson: BLÖNDALSÆTTIN Niöjatal Bjöms Auðunssonar Blöndals, sýslumanns í Hvammi í Vatnsdal, og Guörúnar Þórðardóttur, konu hans. Lárus heitinn Jóhannesson, hæstaréttardómari, tók aó fást vió ættfræói á efri árum og safnaói saman óhemju fróóleik. Blöndalsættin ber þess merki, hún er eitt mesta ættfræóirit, sem gefió hefur verió út hér á landi, og nær fram til ársins 1977 og í sum- um tilfellum lengra. Þetta niójatal er að ýmsu frábrugóiö öórum slíkum ritum, m.a. eru ættir þeirra, sem tengjast Blöndalsættinni, oft raktar í marga liói og víóa eru umsagnir um menn frá höfundi sjálfum eóa eftir öórum heimildum. Blöndalsættin er á sjötta hundraó þéttsettar blaósíóur og í ritinu eru á áttunda hundr- aó myndir, eóa á annað þúsund myndir af einstaklingum, ef þannig er talið. ítarleg nafnaskrá er í bókinni og einnig er þar prentuð æviminning Björns Biöndals eftir séra Svein Níelsson á Staóastaö, sem og ættartala hans handskrifuó. SKUGGSJÁ BÓKABÚÐ OUVERS STEINS SE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.