Morgunblaðið - 29.11.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1981
Útitaflið dæmi um
slaka áætlanagerð
segir Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar
Vigri í Reykjavíkurhöfn, en togarinn hefur nú verið lengdur um 8,40 metra.
Ljósm. Mbl.: RAX
„ÞEGAR vid upphaflega tókum
ákvörðun um byggingu útitaflsin.s var
dregin fram gömul kostnaðaráætlun,
sem ekki hafði verið framreiknuð og
var frá upphafi röng. Það er ekki tafl-
ið sem slíkt, sem hefur kostað svona
mikla peninga, heldur endurbætur á
brekkunni. Nú, svo virðist sem áætl-
anagerð hafi verið mikið vanreiknuð
á öllum stigum. Þessi kostnaður kem-
ur okkur ekki síður á óvart en öllum
Ríkisstjórnin hefur ekki hafið raunhæfan
undirbúning stóriðju sem grundvöll virkjana
öðrum,“ sagði Sigurjón Pétursson,
forseti borgarstjórnar, í samtali við
Mbl., þegar hann var spurður um
hinn mikla kostnað við byggingu úti-
taflsins, en kostnaður nú nemur lið-
lega 1,9 milljónum króna.
— Má ekki segja að þetta sé lýs-
andi dæmi um slaka stjórn?
„Að minnsta kosti dæmi um
slaka áætlanagerð. Það getur vel
verið að stjórnunarákvarðanir
hefðu verið teknar öðru vísi, hefði
þessi áætlanagerð legið fyrir í upp-
hafi.“
— Hefðir þú látið ráðast í þessar
framkvæmdir ef kostnaðaráætlun
upp á 1,9 milljónir króna hefði leg-
ið fyrir?
segir borvaldur Garðar Kristjánsson alþingismaður
„ÞEGAR við sjálfstæðismenn lögðum fram frumvarp um ný orkuver í
marsmánuði síðastliðnum, gagnrýndi iðnaðarráðherra aðallega, að frumvarp-
ið kvað ekki á um röð virkjanaframkvæmda," sagði Þorvaldur Garðar
Kristjánsson alþingismaður í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var
spurður álits á niðurstöðum ríkisstjómarinnar á virkjanaröð. „Frumvarp
okkar fjallaði um raforkuver í Fljótsdal, í Blöndu, við Sultartanga og stækk-
un Hrauneyjafossvirkjunar," sagði Þorvaldur Garðar ennfremur.
,Gert var ráð fyrir heildaráætl- Röðun virkjunarframkvæmda
un um þessi verkefni, sem að yrði
stefnt að lokið yrði á einum ára-
tug, og framkvæmdaröð réðist af
hagkvæmnissjónarmiðum, eftir
því sem nauðsyn krefði til að ná
þessu marki. Þessi áætlun, sem fól
í sér tvöföldun á uppsettu afii í
vatnsvirkjunum landsmanna, var
byggð á þeirri forsendu, að komið
yrði á fót stóriðju til að hagnýta
orkuna frá þessum virkjunum.
hlaut því að verða ákveðin með
hliðsjón af framvindu stóriðju-
mála. Með tilliti til þessa lögðum
við sjálfstæðismenn fram á síð-
asta þingi tillögu til þingsályktun-
ar um stefnumótun í stóriðjumál-
um.
Þegar ríkisstjórnin lagði fram á
þingi í maímánuði sl. frumvarp
sitt til laga um raforkuver, var
þar ekki heldur að finna ákvæði
Ingólfur Falsson endur
kjörinn forseti FFSÍ
INGOLFUR Falsson var endurkjör
inn forseti Farmanna- og Tiski-
mannasambands fslands til tveggja
ára í gærmorgun og varaforseti var
kjörinn Helgi Laxdal.
Gengið var til kosninga á
FFSÍ-þinginu um kl. 10 í gær-
morgun og voru þeir Ingólfur
Falsson fráfarandi forseti og
Baldur Halldórsson í kjöri til for-
seta. Fyrir kosninguna var talið
mjög tvísýnt hvernig atkvæði
myndu falla. Ingólfur Falsson
fékk 40 atkvæði, en Baldur Hall-
dórsson 30 atkvæði. Helgi Laxdal
var síðan kjörinn varaforseti án
mótframboðs.
Ingólfur Falsson sagði í samtali
við Morgunbiaðið í gærmorgun, að
það sem framundan væri væru
samningamálin og einnig væru
eðlilega mörg önnur mál sem biðu
nýkjörinnar stjórnar. „Eitt veiga-
mesta atriðið, sem bíður okkar nú,
Ingólfur Falsson
er að fá leiðréttingu á fiskverðinu.
Það er mál sem við setjum á
oddinn nú,“ sagði Ingólfur.
um röðun virkjanaframkvæmda,
enda lá þá enn ekkert fyrir um
fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar í
stóriðjumálum. Hér var um að
ræða sömu virkjanir og í frum-
varpi okkar sjálfstæðismanna, og
skyldi málið koma aftur til kasta
Alþingis til að ákveða fram-
kvæmdaröðina.
Iðnaðarráðherra hefir nú upp-
lýst á Alþingi, að mál þetta hafi
verið á borði ríkisstjórnarinnar
síðan um miðjan október sl. En
ætla má, að ríkisstjórnin hafi
skenkt málinu einhverja hugsun
að minnsta kosti allt frá því að við
sjálfstæðismenn fluttum frum-
varpið um ný orkuver í mars sl., ef
ekki hefir öriað á hugsun um þetta
efni fyrr. En alla vega hefur ríkis-
stjórnin átt að hafa ærinn tíma til
að fást við þau viðfangsefni, sem
sérstaka áherslu skyldi leggja á
samkvæmt stjórnarsáttmálanum.
Það hefði því mátt vænta full-
burða niðurstöðu, þegar ríkis-
stjórnin nú hefur sig loks upp í að
kveða upp úr um framkvæmdaröð
þeirra virkjana, sem hér um ræð-
ir.
En því er ekki að heilsa vegna
þess að ríkisstjórnin hefur ekki
sýnt raunhæfa tilburði til undir-
búnings því að koma upp stóriðju
til að skapa grundvöll fyrir þess-
um virkjunum. Þess vegna hefði
ríkisstjórnin eins getað ákveðið
röðun virkjanaframkvæmda á síð-
astiiðnum vetri þó að hún hefði þá
ekkert aðhafst í stóriðjumálum.
Sú ákvörðun hefði að vísu verið
byggð á sandi, en það er einmitt
það, sem nú hefur skeð.
í fréttatilkynningu iðnaðar-
ráðherra sl. föstudag um röðun
virkjanaframkvæmda er tekið
fram að hraða skuli hagkvæmnis-
athugunum á hugsanlegri stór-
iðju. Ekki er vanþörf á að hraða
slíkum athugunum. En auðvitað
hefðu einhverjir möguleikar til
nýrrar stóriðju þurft að vera
komnir af vettvangi frumathug-
unar á hagkvæmni þeirra á um-
ræðustig um eignaraðild, orku-
sölu, staðsetningu iðjuvera o.fl.
Það er að vísu til bóta, að ekki
virðist lengur þráast við staðsetn-
ingu stóriðju á Reyðarfirði, en það
lögðu sjálfstæðismenn til á síð-
asta þingi.
Undirbúningur að stóriðju
skiptir höfuðmáli, ef ætlunin væri
að viðhafa álíka framkvæmda-
hraða á þeim virkjunum, sem hér
um ræðir, og við sjálfstæðismenn
höfum reiknað með. En ekki verð-
ur neitt slíkt ráðið af frétta-
tilkynningunni, því að þar segir
ekkert um að hvaða framkvæmda-
hraða skuli stefnt. Ber það vott
um tvískinnung ríkisstjórnarinn-
ar við það verkefni, sem nú er öðr-
um brýnna.
Viðfangsefnið nú er að gera röð-
un virkjanaframkvæmdanna
raunhæfa. Leiðina til þess er að
finna í tillögu til þingsályktunar,
sem sjálfstæðismenn munu nú
enn flytja um hagnýtingu orku-
linda landsins til stóriðju," sagði
Þorvaldur Garðar Kristjánsson að
lokum.
REYKJAPRENT hf. — útgáfufyrir
tæki það er áður gaf út dagblaðið
Vísi, hafði fyrir nokkru keypt nýja
pressu til að prenta Vísi, dagblaða-
pressu af gerðinni Goss, sömu teg-
und og þá sem notuð er í Blaða-
prenti hf., er prentar nú Alþýðublað-
ið, Tímann og Þjóðviljann. Ákvörð-
un hafði því verið tekin um að Vísir
drægi sig út úr Blaðaprenti — eins
og raunar hefur verið orðrómur um
— en Hörður Einarsson fram-
kvæmda- og útgáfustjóri Dagblaðs-
ins og Vísis sagði í samtali við Mbl.
að í Ijósi nýrra aðstæðna væri alls
endis óvíst, hvort pressan nýja komi
til landsins.
„Nei, ég hefði ekki gert það. Ég
býst við að undir þeim kringum-
stæðum hefði ég reynt að meta það
hvort þetta væri eina leiðin til
byggingar taflsins. í öðru lagi,
hvort ástæða væri til að fram-
kvæma allt samtímis og í þriðja
lagi endurmetið hvort yfir höfuð
ætti að byggja útitaflið. En ég vek
athygli á því, að taflið sjálft, skák-
mennirnir, taflborðið og sjálf
geymslan er lítill hluti kostnaðar.
Mikill hluti kostnaðar felst í endur-
byggingu brekkunnar og þeim
gönguleiðum sem iagðar voru. En
ennþá á eftir að ganga endanlega
frá geymslunni."
— Á kostnaður eftir að hækka
enn?
„Já, hann á eftir að hækka, en
það verður eitthvað sáralítið."
— Hefur bygging útitaflsins
bitnað á öðrum framkvæmdum
borgarinnar en fyrirhuguðum
framkvæmdum við Tjörnina, sem
frestað var?
„Hún hefur ekki beinlínis bitnað
á öðrum framkvæmdum, en þessi
umframkostnaður er hluti af þeim
yfirdrætti, sem við höfum nú í
bankakerfinu."
Hörður kvaðst þó búast við að
ákvörðun um framhald málsins
yrði tekin innan tíðar. Ekki hefði
verið búið að ákveða hvenær
pressan kæmi til landsins, aðeins
hefði átt eftir að taka ákvörðun
um tíma, og enn yrði nokkur bið á
ákvörðun í málinu. Hörður sagði
pressuna vera af Goss-gerð, álíka
stóra og þá sem nú er notuð í
Blaðaprenti, aðeins nýrri og full-
komnari. Að öðru leyti kvað Hörð-
ur ekki tímabært að ræða hugs-
anleg pressukaup, það yrði að bíða
uns ákvörðun yrði tekin af hinu
nýja útgáfufélagi, er nú gefur Vísi
og Dagblaðið út í einu lagi.
Vísir hafði keypt nýja pressu
Ákvörðun bíður um framhaldið segir Hörður Einarsson
Guðmundur Benediktsson
fv. borgargjaldkeri látinn
GUÐMUNDUR Benediktsson, fyrr
verandi borgargjaldkeri, er látinn í
Reykjavfk, 83 ára að aldri. Guð-
mundur fæddist á Stóra Hálsi í
Grafningi þann 29. janúar 1898. For
eldrar hans voru Benedikt Eyvinds-
son bóndi og Margrét Gottskálks-
dóttir.
Guðmundur lauk stúdentsprófi
frá Reykjavík 1922 og lögfræði-
prófi frá Háskóla íslands 1926.
Hann rak málflutningsskrifstofu í
Reykjavík og varð borgargjaldkeri
í Reykjavík 1. júlí 1930. Guðmund-
ur gegndi fjölda trúnaðarstarfa
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Var
formaður Heimdallar 1932, for-
maður landsmálafélagsins Varðar
1935—1940, formaður fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
1935—42. Guðmundur var ritstjóri
vikublaðsins íslands í Reykjavík
1927—1930 og meðútgefandi
1938—39 að tímaritinu Þjóðinni í
Reykjavík.
Guðmundur kvæntist Þórdísi
Vigfúsdóttur árið 1942 og varð
þeim þriggja barna auðið.
ATKVÆÐASEÐILL
I PRÓFKJÖm SJÁtfSTÆDISMANNA I REYKJAVlK 29 —30 NÓVEMBER 1981
Afbert Guðmundsson, stórkaupma&jr, UufAavegi 6$
Andcrs H»o»en, bla«5am»dur Dvergtóakk* 22.
Ann« K. Jónadóttir, 8ð8toði»rtyfjafr««ðingur, Lenghoitavegi 92.
Aml Bwgur EMkSKXi, fr«nkv*i™if»tj0H, Gnoasrvoel 74
Davíð Oddeeon. fremkvíeoxUítjóri, Lynghage 5.
Eliwr HSkowson, li«!mi!*-l, Voa*»«ll t.
Ern* R.gnsrxkittlr, lniiSnl»J»««rklt»kt, Osr4ulr«»tl 15.
Guðmundur Ar«»n. for«tj<Srl. f|«rS«rá«l t.
GuArouodur i. óakereson. kjuipmeður, 8jerm*f«ndi 12.
Hlimer Guðiaug**on. múrart, Háaieíttabraut 16.
Huida Vaftýacióttir, bfadamaður, Sdiheimum 5.
ingibjðrg Rafnar, hðraðsdónisiðgmaður, Brúnaiandi S.
Jöna Gróe Sígurðafdóttir. akrffatcfumaður. Búlandi 28
iúHua Hafatein, framkvaemdaatjóri, Engjaaeii 23.
Kcibeinn H. Paiaacn. sðiufulítrúí, Eyjabakke 24.
Magmía L. Sveinaeon, formaður V. R . Geltaatakk 8
Mtihlidur Ang«ntý«d0ttir. «Júkr.liaf, 8ú«t»ðm»9l 55.
Mkrgrft S. Eliw»dðttlr, .Júkndldl, G.r«»»tr*tí 47.
Marfcua Örn Antonaaon. rttatjórl. Krummahóium 6.
óiafur Haukur ólaieaon. I»knlr, Auaturgerði 1.
Pill GI»l4«on, l»knir, Huldul«ndl *.
Regnai Júliuaaon. akólaatjófl. Héaleitiabraut 91.
Slgrfður A.9.ir«16nir, h*r»í«d4m.lð*n«ður. Fldlnl.vosl 16
Sígurður Sígurðaraon. rltatjóri, Æaulelll 4.
Siourlðo A. .kðlwtjdrf. 8r.kku..ll t.
8k«hl lf«rð»r«un. *.r»km«rm«ður. 8oð«gnmda 5.
Sveinn BJörnaaon, verkfr*ðif>gur, Gfundarlandt 5.
Sveinn Bjómaaon, kaupmaður, Laifagötu 27.
"vHhjélntur 1» Vithjáimaaon. framkvremdaatjóri, Auaturbergi \2.
Pórir t.érusaon. rafverktakl, Mlíðargerði \.
ATHUGIO: Kjóta *kal fan 8 frambjðOendur og flest 12 Skal þa« gert
með þvl a» setja kross* f reitíne fyrir framan nöfn trambjóSenda, sem
ósk*8 er að skípi endanlegan framboðslista
FÆST 8 FLEST 12.
Prófkjör um skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík við borgarstjórnarkosningarnar á komandi vori
fer fram í dag og á morgun. Hér ad ofan er sýnishorn af atkvædasedli en allar upplýsingar um reg ur og tilhögun eru
á baksídu blaðsins í dag.