Morgunblaðið - 29.11.1981, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1981
Ólafur og kona hans ásamt foreldrum sínum.
Dansflokkur Sóleyjar sýndi nýjan dans, sem tileinkaður var Broadway. Ljósm. Kmilía.
Baldvin Jónsson var kynnir kvölds-
ins.
Sérstakir búningar voru hannaðir fyrir starfsfólkið
af IVlaríu Lovísu og eru laufblöóin á búningunum
tileinkud eiganda staðarins. Ljósm Kmíif*.
BROADWAY OPNAR:
stjömubjörtum
glerhimni
UNDIK stjörnubjörtum glerhimni og á ít-
ölsku marmaragólfi dönsuðu Olafur
Laufdal og kona hans Kristín Ketilsdóttir
fyrsta dansinn í hinum glæsilega
skemmtistaó sínum Broadway, sem
opnaður var í fyrsta sinn síðastliðið
fimmtudagskvöld. Lagið sem þau döns-
uðu við var „THIS WAS A VERY GOOD
YEAR“, sem Frank Sinatra gerði frægt á
sínum tíma. Uau ár, sem Ólafur Laufdal
hefur rekið diskótekið Hollywood, hafa
verið honum afar góð, þannig að nú getur
hann opnað einn stærsta og fullkomnasta
skemmtistað sinnar tegundar hérlendis
og þó víðar væri leitað.
Það var margt um manninn, líklega
urri 800 manns þetta fyrsta kvöld á
Broadway. Allir sem þangað komu voru
fullir forvitni og eftirvaentingar og ég
held að ég megi fullyrða að enginn hafi
orðið fyrir vonbrigðum. Staðnum, sem
hannaður er af Jóni Robert hjá teikni-
stofu Arko, er þannig fyrirkomið að
stórt dansgólf er í miðju hans en við
enda þess er aðstaða fyrir hljómsveitir.
í kringum dansgólfið eru svo stólar og
borð og þægilegir sófar þar sem hægt
er að hreiðra um sig. Hvar sem setið er
í sölum Broadway má sjá á dansgólfið,
þar sem hinir margvíslegustu skemmti-
kraftar eiga eftir að troða upp, bæði
innlendir og erlendir.
Að sögn forráðamanna Broadway, þá
verður nii mun ódýrara að flytja inn
erlenda skemmtikrafta en verið hefur
hingað til vegna þess að á Broadway er
mjög fullkomið hljómburðarkerfi,
þannig að skemmtikraftarnir þurfa
ekki að flytja slíkt kerfi hingað til
lands eða fá það leigt hérlendis. Fyrstu
erlendu skemmtikraftarnir koma í
janúar, en enn er ekki ákveðið hverjir
þeir verða.
Það voru tveir Bandaríkjamenn, sem
settu hljómburðarkerfið upp ásamt
ljósakerfinu, þeir heita David Coats og
Steve Tuttle og eru færir menn á sínu
sviði. Þeir hafa meðal annars sett upp
svipað kerfi á einum stærsta skemmti-
stað veraldar, sem heitir Billy Bobs og
er í Texas í Bandaríkjunum og í fræg-
um klúbbi á Bermudaeyjum, sem er í
eigu Robert Stigwoods, en í þeim klúbbi
samdi John Lennon mörg af lögum sín-
um, sem voru á síðustu plötu hans og
Yoko Ono.
Hljómburðarkerfið á Broadway er
þríþætt. I fyrsta lagi er það fyrir tón-
list spilaða af plötum, í öðru lagi fyrir
lifandi tónlist og skemmtiatriði og í
þriðja lagi er hægt að hljóðrita tónlist
á staðnum.
Þetta fyrsta kvöld á Broadway, bað
kynnir kvöldsins, Baldvin Jónsson, um
að gestum Broadway yrði sýnt hvaða
möguleika Ijósakerfið gæfi. Þá upp-
hófst hin skemmtilegasta ljósasýning í
takt við tónlistina. Ljósin gefa líka
þann möguleika að breyta algjörlega
öllum litum í salnum eða ákveðnum
hlutum hans með því að breyta um lit-
filmu. Broadway er því hálfgert undra-
land tækninnar. Fyrst við erum að tala
um tæknina í þessu húsi þá má geta
þess að þar eru líka eitt stærsta loft-
ræstikerfi og rafmagnskerfi, sem sett
hafa verið upp í einu húsi hér á landi
auk þess sem þar má finna stærstu
gostækjasamstæðu í Evrópu en 5 kíló-
metrar af gosleiðslum eru innbyggðir í
veggi hússins.
Jakob Jónsson:
FRÁ SÓLARUPPRÁS TIL
SÓLARLAGS
Bók, sem þú lest í einni lotu!
Þessi bók sameinar á sérstæöan hátt
skemmtun og alvöru. Sá lesandi er
vandfundinn, sem ekki les hana í einni
lotu, ýmist hugsi og veltandi vöngum,
eöa meö bros á vör, — jafnvel kunna
sumir aö hlæja dátt yfir hinum stór-
fyndnu sögum af samferöamönnum
séra Jakobs. Stutt lýsing hans á atburði
eöa smámynd af persónu gefur oft betri
hugmynd um lífsferil en langar lýsingar.
Jón Auðuns: TIL HÆRRI HEIMA
Fögur bók og heillandi.
Bókin hefur aó geyma 42 hugvekjur, úr-
val úr sunnudagshugvekjum séra Jóns,
sem birtust í Morgunblaðinu. Þaó voru
ekki allir sammála honum í túlkun hans
á sannindum kristindómsins, en flestir
voru sammála um snilld hans í fram-
setningu sjónarmióa sinna, ritleikni
hans og fagurt mál.
Þaó er mannbætandi að lesa þessar
fögru hugvekjur og hugleiða í ró efni
þeirra og nióurstöður höfundarins.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OUVERS STEINS SE
SKUGGSJÁ
BÓKABÚO OUVERS STEINS SF