Morgunblaðið - 06.12.1981, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 06.12.1981, Qupperneq 5
Hljóðvarp kl. 14.00: Kúba - land Á dagskrá hljóðvarps kl. 14.00 er þáttur er nefnist Kúba, land, þjóð og saga. llmsjónarmenn: Einar Olafsson og Rúnar Ármann Arth- ursson. Við rekjum sögu landsins frá því um miðja 15. öld, sagði Rúnar, eða frá því að landið er hernumið af Spánverjum, segjum frá ný- lendutímabilinu, frelsisbarátt- þjóð og saga unni gegn Spánverjum og rekjum okkur fram að byltingunni ’59. Við reynum einnig lítillega að bregða upp mynd af því hvernig ástandið er nú, en við Einar vor- um saman á Kúbu í sumar. Á milli efnisatriða er svo leikin kúbönsk tónlist, með þessum sér- staka mambo-takti, sem sækir hefð bæði til Spánar, Afríku og Rómönsku-Ameríku. Svipleiftur frá Su<V ur-Ameríku kl. 10.25: Um Andesfjöll til Santiago Á dagskrá hljóðvarps kl. 10.25 er þátturinn Svipleiftur frá Suður Ameríku. Dr. Gunnlaugur Þórðar son hrl. segir frá. Fimmti þáttur: „llm Andesfjöll til Santiago". Þarna segir frá ferð um Andes- fjöll, sagði Gunnlaugur, m.a. sigl- ingu á Allraheilagravatni. Þá er einnig sagt frá rútuferð til Puerto Mont í Chile og þaðan til höfuð- borgar Chile, Santiago og dvöl þar. Dr. Gunnlaugur í ponjo, sem er Inka- klæðnaður. Nýr breskur myndaflokkur Eldtrén í Þíka nefnist breskur myndaflokkur sem hefst í sjónvarp- inu í kvöld kl. 20.55. Alls eru þættirnir sjö og fjalla um breska fjölskyldu, sem sest að á austur-afríska verndarsvæðinu snemma á öldinni. Myndin er af aðalleikkonunni, Holly Aird. Rauða blómið Kl. 21.35 á mánudagskvöld er á dagskrá sjónvarps japanskt sjónvarpsleikrit, Rauða blómið, eftir Shoichiro Sasaki. Leikritið er frá árinu 1976 og segir frá teiknara, sem lifir í heimi æskuminninga sinna. Myndin er að hluta byggð á sögu Yoshiharu Tsuge, sem er vel kunnur smásagnahöfundur í Japan. Sasaki er mjög vinsæll leikstjóri í Japan og meðal þess, sem hann vill leiða fólki fyrir sjónir í þessari mynd, er, að óljósar minningar og liðnir tímar hafa meiri áhrif á athafnir okkar og atferli frá degi til dags en við gerum okkur grein fyrir. Mynd þessi hefur unnið til verðlauna. JOLAFERDIN er 19. des. krakkarnir í jólafríi og aðeins sex vinnudagar tapast! Jr Við bjóðum skíðaferðir í beinu Ieiguflugi og opnum um leið nýjar dyr að skíðaparadís Austurrísku alpanna Samvinnuferðir-Landsýn flýgur nú í beinu leiguflugi (án þreytandi millilendinga) í skíðalönd Austurríkis. Þannig lækkum við verð og flýtum för, auk þess sem nýir mögu- leikar hafa opnast á hópafslætti, barna- afslætti, greiðsluskilmálum og annarri fyrirgreiöslu Við látum vfirhlaðna ferðamannastaði með allri sinm örtröð liggja á milli hluta „Aðeins þaðallra besta” þótti nógugottog viðvonum að farþegarnir verði sammála þeim skíða- sérfræðingum okkar sem völdu Sölden, Zillertal og Niederau. Parerskiðaaðstaða i senn fjölþreyttog spennandi, skíðakennarar á hverju strái, skíðalyftur i tugatali og siðast en ekki síst einstaklega friðsælt og notalegt. Og þegar skiðaþrekkunum sleppir er tilvalið að þregða sér á gönguskíði, fara í æsispenn- andi þobsleðaferðir, leika sér á skautasvellum eða bregða sér i hestasleðaferðir um fallega dalina Þreytanliðursíðanúrísundlaugumog saunaböðum og á kvöldin biða þin fjölmargir veitinga- og skemmtistaðirmeð ósvikinni Tiróla-stemmningu, þjölluspili og harmonikkuleik Nú er tilvalið að hóa saman vinum og kunningjum, næla sér i myndarlegan hóp- afslátt og láta drauminn um skíðaparadís Austurrikis rætast í góðra vina hópi. Brottfarardagar: Des. 19. (jólaferð, heimkoma 2. jan.) Jan. 16,30. Feb. 13,27. (heimkoma 13. mars) Verð frá ta*. 5.880 Innifalið: Flug til og frá Munchen, flutningur til og frá áfangastað, gisting með hálfu fæði i tvær vikur og íslensk fararstjórn. Hópafsláttur kr. 500, barnaafsláttur kr. 1.000 Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Ritsafn Guómundar Danielssonar Guðmundur Daníelsson, frásagnameistari Í48 ár. Ritsafn Guðmundar Daníelssonar er 10 bækur. öll verkin eru frá árunum 1948-1970 og sum þeirra hafa verið ófáanleg um hríð. í ritsafninu eru skáldsögumar Blindingsleikur, Musteri óttans, Hrafnhetta, Húsið, Turninn og teningurinn. Sonur minn Sinfjötli og Spítalasaga, skáldverk utanflokka í bókmenntunum. Einnig ferðasagan Á langferðaleiðum, veiðisagan Lands- hornamenn - sönn saga í há-dúr og smásagnasafnið Tapað stríð. Viðfangsefnin eru margvíslegog tekin fjölbreytilegum tökum, en þróttmikill stíll og hröð og lifandi frásögn eru samkenni á öllum verkum Guðmundar Daníelssonar. Ritsafninu fylgir ellefta bindið með ritgerð dr. Eysteins Sigurðssonar um verk Guðmundar; ogskrá um útgáfur, ritdóma og heimildir þeirra, sem Olafur Pálmason hefur tekið saman. Góð bókmenntaverk í vönduðum búningi. Lögberg Bókaforlag Þingholtsstræti3, simi: 21960

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.