Morgunblaðið - 06.12.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.12.1981, Blaðsíða 48
TUDOR rafgeymar „já þessir me<5 9 lif” SKORRi HF Laugavegi 180, slmi 84160 tvgmifclfifetfr (18 dagar til jóla^ 6uU v'l* &ilfttr Laugavegi 35 SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1981 VEGNA sölutregðu hafa álbirgðir hlaðist upp við steypuskála Álversins í Straumsvík. Talið er að 16—18 þúsund tonn hafi safnast þar upp um ára- mótin. Myndin var tekin *í Straumsvík í gær og sýn- ir stafla af álhleifum við verksmiðjuna. Ljósm. Mbl. Kmilía. Yfir 10 milljarða gkr. tap á Álverinu 1981 „ÞAÐ LÍTIJR út fyrir mettap á þessii ári hjá Álverinu, eða eitthvað á 2. hundrað milljónir kr. (liðlega 10 milljarðar gkr.), vegna stöóunnar á álmarkadnum,“ sagði Kagnar Hall- dórsson, forstjóri íslenzka álversins, í samtali við Mbl. í gær, en mikil hirgðasöfnun á sér nú stað hjá Ál- verinu og er reiknað með að 16—18 þúsund tonn af áli verði hér á landi um áramótin, en það er þrisvar sinn- um meira magn en eðlilegt er talið. Umrætt tap er þrisvar sinnum hærra en áður_ hefur verið á einu ári í rekstri Álversins, en fyrr á árinu kom fram í samtali við Ragnar Hall- dórsson að ef ekki hefði komið til orkuskömmtunar til Álversins á undanförnum árum hefði staða fyrii— Þrisvar sinnum meira tap en á einu ári áður - 18 þús. tonn af áli hrannast upp tækisins verið mun betri og halla- rekstri snúið við. Álbirgðir í heiminum í dag eru tvöfalt meiri en á sama tíma í fyrra, eða 2,8 milljónir tonna mið- að við 1,4 millj. tonna sl. ár. Þá hefur heimsmarkaðsverð á áli hrapað niður úr 92 sentum pundið í 52 sent, en skráða verðið er þó enn 80 sent. Staðan í álbirgðum og verði er nú mjög svipuð og var árið 1975 sem var mesta kreppuár- ið sem orðið hefur í rekstri ál- verksmiðja. Af þeim 18 þúsund lestum, sem verða í birgðastöflum hér á landi um áramótin, mun Ál- verið selja Alufinance um 10 þús- und tonn, sem þó munu verða geymd hér áfram um sinn. En Alufinance er í eigu Alusuisse og fleiri álfyrirtækja og er eins konar dreififyrirtæki, en að sögn Ragn- ars þarf Álverið ekki að bera skaða af vaxtakostnaði af þessum birgðum þegar búið er að selja. 15 ára stúlka stór slösuð eftir hrotta- lega líkamsárás FIMMTÁN ára stúlka liggur stór slösuð á Korgarspítalanum í Keykja- vík eftir hrottalega líkamsárás á föstudagskvöld. Að sögn reyndra löggæzlumanna er um að ræða eina hrottalegustu líkamsárás sem þeir vita um hér á landi. Árásarmaður Síðdegis í gær voru yfirheyrslur að hefjast yfir árásarmanninum og var því ekki nánar vitað um aðdraganda þessa hörmulega at- burðar. Árásarmaðurinn hefur áð- ur komið við sögu hjá lögreglunni. Fjármálaráðherra á hádegisfundi í fyrradag: dagar til jóla Byggingasjóð og stofnlána- sjóð vantar 10 milljarða gkr. Boðar aukna bindingu á fé banka og sparisjóða — kaupskyldu lífeyrissjóða og refsiákvæði og hækkun raforkuverðs KYGGINGARSJOÐ ríkisins og stofnlánasjóði atvinnuveganna vantar um 105 milljónir króna eða rúmlega 10 milljarða gkr. til þess að endar nái saman á þessu ári. Ríkisstjórnin hefur gripið til þess ráðs að taka erlend lán vegna stofnlánasjóðanna og jafnframt hefur hún leitað til Seðlabank- ans um bráðabirgðalán til þess að bjarga stöðu Kyggingarsjóðs. Þessar upplýsingar komu fram í máli Ragnars Arnalds, fjármálaráð- herra, í hádegisverðarboði, sem hann efndi til í fyrradag með forráða- mönnum lífeyrissjóðanna. I ræðu fjármálaráðherra á fund- inum kom m.a. fram eftirfarandi: • Stofnlánasjóði atvinnuveganna vantar 65 milljónir króna eða 6,5 milljarða gkr. til þess að endar nái saman á þessu ári. • Byggingarsjóð ríkisins vantar 40 milljónir króna eða 4 milljarða gkr. til þess að endar nái saman á þessu ári. • Fyrirsjáanleg er vaxandi fjárþörf þessara sjóða á árinu 1982. • Raforkuverði hefur verið haldið niðri og taxtar þar af leiðandi of lágir, afleiðingin er sú, að orku- fyrirtæki hafa orðið að taka er- lend lán til fjárfestingar umfram það sem eðlilegt væri. Til þess að ráða bót á þessum fjárskorti sagði fjármálaráðherra að eftirfarandi hugmyndir væru m.a. til umræðu innan ríkisstjórn- arinnar: • Að auka bindiskyldu á innistæð- ufé banka og sparisjóða um 3%. • Að auka skyldukaup lífeyrissjóða úr 40% í 45%. • Að fela Seðlabankanum að ann- þess að leggja á þá sérstakar kvaðir yrði mætt af fullri hörku af eigend- um þeirra, sem væru þeir er hefðu greitt fé til þeirra. Einn af forráðamönnum lífeyr- issjóðanna, sem jafnframt er einn af trúnaðarmönnum Sjálfstæðis- flokksins, bað fyrir sérstakar kveðj- ur til Gunnars Thoroddsen, forsæt- isráðherra, í tilefni af þeim áform- um ríkisstjórnarinnar að lögfesta refsiákvæði gagnvart lífeyris- sjóðunum í þessu sambandi. ast „innheimtu" á skuldabréfa- kaupum lífeyrissjóða og lögfesta sérstök refsiákvæði í því sam- bandi. • Að hækka raforkuverð í landinu til þess að auka eigin fjármögnun orkufyrirtækja. „Getur almannavaldið látið það afskiptalaust hvernig fé lífeyris- sjóða er ráðstafað?", spurði fjár- málaráðherra. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins um þetta hádegisverðarboð fjármálaráðherra mótmæltu tals- menn lífeyrissjóðanna þessum áformum harðlega og vísuðu til samþykkta samtaka lífeyrissjóða þar sem kaupskyldu þeirra er mót- mælt. Munu þeir hafa lagt áherzlu á frelsi lífeyrissjóðanna til þess að ávaxta sitt fé, enda hefðu þeir flest- ir keypt skuldabréf af byggingar- sjóði og stofnlánasjóðum í samræmi við áætlanir þar um. Það kom ennfremur fram í máli talsmanna lífeyrissjóðanna, að fyrsta skylda lífeyrissjóðanna væri við félags- menn sína og að öllum tilraunum til inn, 28 ára gamall Reykvíkingur, náóist í fyrrinótt og mun Kannsókn- arlögregla ríkisins gera kröfu um gæzluvarðhald yfir honum. Árásin var gerð í Þverholti í Reykjavík og þar fannst stúlkan fyrir tilviljun um tvöleytið í fyrri- nótt, liggjandi í blóði sínu. Talið er að hún hafi legið þar í nokkrar klukkustundir. Stúlkan var strax flutt á slysadeild Borgarspítalans, þar sem hún var á skurðarborði undir umsjón færustu lækna svo klukkustundum skipti. Var stúlk- an með mörg og ljót sár víða um líkamann, sem árásarmaðurinn hafði veitt henni með eggvopni og steini. Stúlkan var í bráðri lífs- hættu í fyrrinótt en líðan hennar var betri í gær. „VIÐ ætlum að halda Ameríku- fluginu áfram og þá fyrst og fremst vegna þess að afkoman hefur batnað og við höfum náð þeim mörkum sem við settum okkur og reyndar heldur betur, þannig að það er jákvætt og Flugleiðir verða ekki með halla- rekstur á þessu ári,“ sagði Sig- urður Helgason, forstjóri Flug- leiða, í samtali við Mbl. í gær um stöðu félagsins á Atlants- hafinu og í heild. „Jú, það má segja, að þetta sé talsverður árangur miðað við al- mennt ástand í flugheiminum og stöðuna milli ára, en þar ræður miklu, að við gripum svo skjótt til aðgerða og vorum á undan öðrum flugfélögum sem nú fyrst eru að grípa til ýmis konar hagkvæmni- og samdráttaraðgerða, en við von- umst til þess að komast í gegnum þetta miðað við þá aðstoð sem við fáum í endurgreiðslu ýmissa gjalda frá íslenzkum stjórnvöld- um og einnig ríkisstjórn Luxem- borgar." Blaðamaður spurði Sigurð að því hvort ekki væri bagalegt fyrir rekstur Flugleiða að geta ekki endurnýjað nú þegar flugvélakost félagsins á Norður-Atlantshafinu og tekið breiðþotur í notkun. „Það er aðeins tímaspursmál hvenær endurnýjunin verður, það er gífurlegt framboð af breiðþot- um og verðið fer heldur lækkandi á þeim, en okkar hugmyndir mið- ast við óbreyttan rekstur á DC-8 næsta sumar, þannig að notkun á breiðþotu gæti hugsanlega komið inn í myndina árið 1983, en við munum áfram sem hingað til fylgjast mjög náið með þróuninni í þessum málum." Hallalaus rekstur Flugleiða í ár „Vonumst til að komast f gegnum þetta með þeirri að- stoð sem við fáum,“ segir Sigurður Helgason forstjóri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.