Morgunblaðið - 06.12.1981, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1981
12401
Opið 1—4
í dag
Valshólar
Mjög snotur ný 2 herb. íbúö á 2.
hæö Suöursvalir. Bein sala.
Vallargeröi Kóp.
Góö 2ja herb. íbúö á 2. haeö,
bílskúrsréttur. Laus 1. febr.
1982.
Langabrekka
Góö 3ja herb. hæð í tvíbýli.
Nýstandsett hús, bílskúrsréttur.
Lundarbrekka
Sérstaklega vönduö 3ja herb.
íbúö á 3. hæö.
Hafnarfjöröur
Höfum mjög góöan kaupanda
aö 3 herb. íbúö í Hafnarfirði.
Vesturbær Rvík
4ra—6 herb. sérhæö óskast.
Bilskúr æskilegur. Skipti mögu-
leg á minni hæö í Vesturbæn-
um.
Óskum eftir fasteignum
á söluskrá, skoöum og
verömetum samdæg-
urs.
Fasteignir sf.
Tjarnargötu 10B, 2. h.
Friörik Sigurbjörnsson, lögm.
Friöbert Njálsson, sölumaður.
Kvöldsími 53627.
31710
31711
Opið í dag
1—3
HRAFNHÓLAR
4ra herb. ♦ bílskúr
á 3ju hæó i lyftuhúsi. Snyrtilega um-
gengin ibúó.
SELJAVEGUR
4ra herb. — 3. hæö
Ibúöin skiptist í 2 stofur og 2 svefnherb.
Ný innrétting i eldhúsi. Lagt fyrir þvotta-
vél i eldhúsi Verö 600 þús.
MARKLAND
3ja herb. — Ca. 85 fm
gullfalleg íbúó meó sérstaklega góóum
og smekklegum innréttingum á 2. hæö.
Gott útsýni.
LINDARGATA
Sérhæö — 3ja herb. — 1. hæö
i góöu járnklæddu timburhúsi, einstak-
lega snyrtileg og rúmgóö ibúð, ca. 72
fm. Lagt fyrir þvottavél í eldhúsi Bein
ákveöin sala. Verö 500 þús. Laus strax.
SELFOSS
Einbýlishús
fokhelt aö hluta. Verö: tilboö.
VANTAR
ALLAR STÆRDIR OG TEGUNDIR
FASTEIGNA Á SOLUSKRA GÓDIR
KAUPENDUR MED MIKLA ÚTBORG-
UN OG í SUMUM TILFELLUM ALLT
GREITT ÚT. KOMUM OG SKODUM
SAMDÆGURS.
T.d. vantar okkur eftirfarandi:
FOSSVOGUR
Einbýlishús óskast
fyrir fjársterkan kaupanda Þacf ekki aö
'osna fyrr en í vor.
BREIÐHOLT
2ja herb. óskast
HAFNARFJÖRÐUR
2ja herb. óskast.
ÁRBÆR
4ra herb. óskast.
SÉRHÆÐ
Vestan Elliöaáa
meö þremur til fjórum svefnherbergj-
um. með eöa án bilskúrs.
Fasteigna-
Seíid
Fasteignavidskiptí:
Sveinn Scheving Sigurjónsson
Magnús Þóröarson hdl.
Heimasímar sölumanna: 31091 og
75317.
Grensásvegi 11
Kjarvalsstaðir:
Musica
Nova með
tónleika
Nk. mánudag, 7. des., kl.
20.30 mun Musica Nova
gangast fyrir tónleikum að
Kjarvalsstöðum.
Á efnisskránni eru fimm
verk: Nýtt tónverk, „Mansön-
var — Kantata nr. 4“, eftir
Jónas Tómasson sem hann hef-
ur samið fyrir Háskólakórinn
að tilhlutan Musica Nova.
Þetta er litríkt verk og viða-
mikið, samið við 12 kvæði
Hannesar Péturssonar. Fjórir
hljóðfæraleikarar taka þátt í
flutningi verksins auk kórsins.
Stjórnandi er Hjálmar Ragn-
arsson.
Nýtt tónverk eftir norska
tónskáldið Lasse Thoresen,
„Interplay" fyrir flautu og pí-
anó. Þetta verk er samið fyrir
Manuelu Wiesler sem mun
frumflytja það á tónleikunum
ásamt Þorkeli Sigurbjörnssyni.
„Variations 111“ eftir John
Cage (1963). Flytjandi: Óskar
Ingólfsson.
„Variations IV“ eftir John
Cage (1963). Flytjandi: Snorri
S. Birgisson.
„Glopplop" (hljóðverk fyrir
kór) eftir Magnús Guðlaugs-
son.
Að auki verða kynnt nokkur
verk Magnúsar Guðlaugssonar
m.a. fyrir myndbönd.
Flytjendur auk þeirra sem
fyrr er frá greint eru: Nora
Kornblueh og Michael Shelton.
43466
Furugrund — 2 herb.
60 fm i skiptum fyrir 3ja herb.
íbúö meö aukaherb. í kjallara.
Hamraborq — 3 herb.
95 fm ibúð á 2. hæö. Suður
svalir. Verö 630 þús.
Goöatún — 4 herb.
efri hæö i parhúsi, ásamt stór-
um bilskúr.
Engjasel — 5 herb.
117 fm ásamt bílskýlí.
Engihjalli 4ra herb.
108 fm verulega góö íbúð á 5.
hæö í lyftuhúsi, þvottahúsi á
hæð. Verö 700 þús.
Lóó — Garðabær
1200 fm lóð í landi Hraun-
gerðls fyrir einbýii. Veró 80
þús.
Heiöarás — einbýli
á fveimur hæöum 135 fm aö
grunnfleti, skilast fokhelt.
Teikningar á skrifstofunni.
Klapparberg — einbýli
stórglæsilegt 190 fm hús á 3
pöllum, innbyggður bílskúr,
selsf fokhelt, járn á þaki,
plast í gluggum, grófjöfnuð
lóö, teikningar á skrifstofunnl.
Iðnaðarhúsnæði
500 fm efrihæö viö Skemmu-
veg. Verö 3.500—4.000 pr.
fm.
Fasteignasalan
EIGNABORGsf.
Hma«| 1 100 Kðpavogur . Sm Ulw 1 43605
Sölum.: Vilhjálmur Einartson
Sigrún Kroyer.
Lögm.: Ólatur Thoroddsen.
Heimasimi solumanns 41190.
llmsjónarmaður Gísli Jónsson________________127. þáttur
Það er mátulegt á okkur,
sem þykjumst þess umkomn-
ir að vanda um málfar ann-
arra, þegar aðrir fá færi á að
vanda um við okkur. Mér
þótti vænt um að fá bréf frá
Hauki Eggertssyni í Reykja-
vík. Hann setur að vonum
spurningarmerki við þessa
klausu í 125. þætti mínum
um íslenskt mál í þessu
blaði:
„Og nú spörum við prent-
kostnað Morgunblaðsins, les-
endur góðir,“ o.s.frv.
Haukur hefur svo næmt
málskyn, að hann sér hve
hæpið það er, svo ekki sé
meira sagt, að tala um að
spara kostnað. Ég hef borið
þetta undir ýmsa málvísa
menn, og við erum sammála
um að þetta sé ekki fallegt,
og þar að auki rökvilla. Engu
væri heldur bjargað, þótt
talað væri um að spara út-
gjöld, og þó svo merking
sagnarinnar að spara væri
þanin til hins ýtrasta. Niður-
staða: Athugasemd Hauks
Eggertssonar er rétt. Við
spörum ekki kostnað. Við
getum minnkað kostnað og
dregið úr útgjöldum og spar-
að með því peninga eða önn-
ur verðmæti.
Úr Tímanum sendir Hauk-
ur einnig klippu, en þar hefst
grein á þessum orðum:
„Það er ekki ósjaldan að
hnýtt er í yngri kynslóðina á
opinberum vettvangi."
Að sjálfsögðu undirstrikar
Haukur þarna málvilluna
ekki ósjaldan, en hún er
býsna algeng. Ósjaldan
merkir oft, svo sem þarna á
að vera. Ekki ósjaldan þýðir
auðvitað þveröfugt.
Þá hefst melluþáttur. Af
einhverjum dularfullum
ástæðum hófust hinir og að-
rir upp við mig um daginn,
spyrjandi um uppruna og
frummerkingu orðsins mella.
Skal nú reynt að leysa úr
þessu. í orðabók Sveinbjarn-
ar Egilssonar yfir skálda-
málið forna (Lexicon poetic-
um) segir að orðið mella
merki tröllkona. Engin önn-
ur merking er gefin. Guðinn
Þór hafði það hlutverk að
berja á tröllum og verja Mið-
garð fyrir ágangi þeirra.
Dolgr (dólgur) merkti að
fornu óvinur. í kenningum
hefur Þór verið nefndur
mellu dolgr. Nú er mellu-
dólgur ekki aldeilis það
sama. Orðið mella virðist
ekki koma fyrir í óbundnu
máli fornu. Þess finnst ekk-
ert dæmi í Fritznersorðabók.
Um uppruna orðsins er allt
á huldu, en árennilegast þyk-
ir mér að setja orðið í sam-
band við mala og mölva.
Tröllkonur höfðu alla burði
til þess.
Af hverju fær orðið löngu
síðar niðrandi merkingu =
hóra? Alkunna er að ýmis
orð, sem upprunalega tákn-
uðu tröll, fengu síðar niðr-
andi merkingu af einhverju
jtagi. Ég læt nægja að nefna
orðin ftfl og api. Frummerk-
ing beggja er tröll. Hitt er
varla annað en tilfyndni í
gamni gerð, þegar menn
hugsa sér þetta sem franska
orðið mademoiselle, sem
stundum er skammstafað
Mlle. Er svo útrætt um
mellu.
Gunnar Konráðsson á Ak-
ureyri hringdi til mín og
þótti undarlega til orða tekið
í veðurfregnum sjónvarpsins,
þegar sagt var, að hiti hefði
hvergi náð frostmarki. Ég
tek undir þetta með Gunnari
og vísa málinu til Veðurstof-
unnar.
Spurður hef ég verið um
kvennanöfnin Bergljót og
Brimrún. Um hið fyrra hef ég
að vísu áður fjallað, en skal
endurtaka aðalatriði. Ljótur
í mannanöfnum merkir
bjartur, samanber Ijós og
enska orðið light. Berg- í
þessu sambandi stendur hins
vegar í sambandi við bjarga
og björg. Oft er erfitt að
„þýða“ samsett mannanöfn,
en hér er naumast mikill
vandi á höndum. Bergljót
merkir björt bjargvættur
eða eitthvað í þá áttina. Gott
nafn, sem enginn þarf að
fráfælast, enda alltaf haldið
velli, þótt sumir hafi misskil-
ið það, sem von er. Að lokum
skal þess getið um Bergljótar
nafn, að það kemur fyrir í
norskum stórhöfðingjaætt-
um fornum.
í Sigurdrífumálum eru
taldar upp margvíslegar rún-
ir sem mönnum var nytsam-
legt að kunna. Þar segir:
Brimrúnar skaltu rísta,
ef þú vilt borgid hafa
á sundi seglmörum.
Á stafni skal þær rísta
og á stjórnarblaði
og leggja eld í ár.
Era svo brattur breki
né svo bláar unnir,
þó kemstu heill af hafi.
Þessi vísa merkir í stuttu
máli, að engar öldur geti
grandað skipum (seglmör-
um), ef menn kunna að rista
brimrúnir á stefni þess og
stýri.
Ekki þekki ég orðið í ein-
tölu að fornu og hvergi nema
í þessu kvæði. I elsta mann-
tali á íslandi er engin Brim-
rún, og engin kona heitir svo
enn í allsherjarmanntalinu
1910. Eftir 1920 er mér kunn-
ugt um örfá dæmi. En nafnið
er ekki vont, þó að sjaldgæft
sé, og hljómar fallega í eyr-
um mér.
A A A A AAAAAAAAAAA AAA AAA AA AAA AAíiiíiAiíiAAiAnSiiíúicS
A
A
26933
26933
VANTAR
2ja—3ja herbergja ibúð i Miðbæ eða Vesturbæ. Góðar greiösl-
ur i boði. Langur afhendingarfrestur.
VANTAR
3ja herbergja íbúð í Miðbæ eöa Austurbæ. Góðar greiðslur og
rýming eftir samkomulagi.
VANTAR
4ra herbergja íbúð t.d. í Kópavogi eöa Austurbæ. Góðar
greiðslur í boði.
VANTAR
sérhæðir víðsvegar um borgina. o
VANTAR
4ra—5 herbergja íbúð i blokk eða sérhæö. Bílskúr æskilegur.
Mjög góðar greiðslur í boði. Rýming eftir samkomulagi.
VANTAR
80—100 fm skrifstofuhæð fyrir fjársterkan kaupanda.
Vantar 150—200 fm skrifstofuhæö fyrir mjög
fjársterkan kaupanda.
markadurinn
3
A
A
A
A
A
A
&
£
v
Hafnarstræti 20, simi 26933 (Nýja húsinu vió Lækjartorg)
Jón Magnússon hdl., Sigurður Sigurjónsson hdl.
v\
V
v\
¥
«
V
V
kv
A
a,
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Bresk-
bandarísk-
ur leikhóp-
ur sýnir í
Hafnarbíói
BKESK-bandaríski leikhóp-
urinn „Theater of all possi-
bilities“ hefur stutta við-
komu hér á landi á leið sinni
til Bandaríkjanna og mun
sýna í Hafnarbíói á mánu-
dagskvöld kl. 20.30.
Leikritið sem hópurinn sýnir
nefnist „The tin can man“, og
fjallar á kíminn hátt um hina yf-
irvofandi hættu á útrýmingu
mannsins. Leikurinn er kryddaður
með dansi, söng og hljóðfæra-
slætti. Aðeins verður um þessa
einu sýningu að ræða.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
T2
M AICI.VSIR I M U.I.T I.AXD PFCAR
M AICI.VSIR I M0RCI NBLAÐIXl'
Leikhópur þessi var stofnaður
1967 í Santa Fe í Bandaríkjunum
og hefur leikið óslitið síðan og
ferðast víða um heim. Þetta er
ekki í fyrsta sinnið sem hópurinn
gistir ísland.
V^-