Morgunblaðið - 22.01.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.01.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1982 3 (>arðar, þar sem honum hefur verið komið fyrir í botni l’atreksfjarðar. 1-joMii. Jón Maunu.sson. einhverjum þessara húskofa, sem rætt er um að varðveita, og verja fjárhæðunum, sem í það fara, í að varðveita nokkur göm- ul skip,“ sagði Jón þegar Morg- unhlaðið ræddi við hann. „Garðar reyndist mér af- burðavel þau sjö ár, sem ég gerði hann út. Lélegasta vertíð- in var í fyrra, en þá fiskuðum við 830 tonn, en sú bezta var i hitteðfyrra, er við vorum hæstir yfir landið ásamt Jóni á Hofi, með yfir 1100 tonn. Að jafnaði hefur aflinn hjá okkur verið þetta 900—1000 tonn á vertíð," segir Jón. „Garðar var ekki í verra ásig- komulagi nú þegar ég lagði hon- um, en þegar ég keypti hann. Mér var einfaldlega sagt að „Ætla ad gera Garðar að minjasafni“ - segir Jón Magnússon útgerðar- maður sem ber allan kostnað af varðveizlu elsta fiskiskips landsins EITT þekktasta fiskiskip landsins er vafalaust Garðar BA frá Patreksnrði, en Garð- ar var sjósettur í Noregi árið 1912 og er því 70 ára á þessu ari' Jón Magnússon útgerðar maður á Patreksfirði hefur átt t.arðar síðustu 7 árin og gert út þar til í haust, að hann lagði (>arðari og meira en það. Jón hefur nú sjósett Garðar í botni Patreksfjarðar, þar sem hann hefur valið bátnum stað um ókomna tíð, en hugmynd Jóns er að Garð- ar verði varðveittur og notað- ur sem minjasafn. „Ég fór með Garðar á iand þann 13. desember siðastliðinn og í vor ætla ég að mála hann. Ég ber allan kostnað af þessu sjálfur, enda veltur enginn um framlög til geymslu á gömlum skipum á Islandi. Það er ekki að sjá að íslendingar hafi lifað af fiskveiðum og sjófangi frá alda öðli. Það ætti frekar að slátra hann væri orðinn of gamall og það borgar sig víst ekki að endurnýja svona gömul skip og að vissu leyti er aðbúnaður um borð ekki jafn góður og á nýj- ustu skipunum. Hins vegar er það svo að Garðar var orðinn hluti af mér, en það vill oft verða um skip, sem maður hefur verið á um lengri tíma, en ég vona að Garðar eigi eftir að þjóna sínu hlutverki vel á kom- andi árum, þótt á landi verði,“ sagði Jón að lokum. Svædamótid í Randers: Jafnt hjá Guðmundi GUÐMUNDUR Sigurjónsson gerði í gær jafntefli við V-Þjóðverjann Bor ik í 10. umferð svæðamótsins í Kanders í Ilanmörku. Skákir Jóns L. Árnasonar við Kagan, Israel, og Helga Ólafssonar við Lobron, V-Þýzkalandi, fóru í bið. Jón hefur heldur betri stöðu en skák Helga er tvísýn. Guðmundur Sigurjónsson er nú í 3.-4. sæti í B-riðli á svæðamót- inu. Hefur hlotið 5'k vinning, jafnmarga og Lars Karlsson, sem nú hefur unnið fimm skákir í röð. Helgi Ólafsson er í 6.-7. sæti í A-riðli með 4 vinninga og biðskák og Jón L. Árnason 3Vz vinning og biðskák og er í 8. sæti. Pylsuvagn á Grandagarði SAMÞYKKT hefur verið í borgar ráði Reykjavíkur að veita Val Braga- syni leyfi til að starfrækja pylsuvagn á Grandagarði í Keykjavíkurhöfn. Er leyfið veitt sem kvöldsölu- leyfi, og verður hinn nýi pylsu- vagn því aðeins opinn eftir að hin- um almenna opnunartíma versl- ana lýkur. Stóru togararnir: Ein milljón spar- ast við að fækka í áhöfn úr 24 í 19 KINS og komið hefur fram í Morgun- blaðinu þá hefur Landssamband ís- lenzkra útvegsmanna lagt til að fækkað verði í áhöfn stóru togar anna, úr 24 mönnum í 19, en með því móti telur LÍU, að hægt verði að leysa kjaradeiluna vegna stóru togaranna, öðru vísi verði það ekki hægt, þar sem stóru togararnir fiski síst meira en þeir minni, og kostnaður við rekst- ur þeirra meiri. Ágúst Einarsson, hjá Lands- sambandi ísl. útvegsmanna, sagði í samtali við Morgunblaðið að út- gerðarmenn hefðu lagt til að sú 1 milljón króna (100 millj. gkr.), sem sparaðist við að fækka mönnum úr 24 í 19, rynni beint til þeicra sem eftir yrðu í áhöfn, eftir því hvernig um semdist. Ekki sáttafundir í deilu sjómanna á stóru togurun- um eða beitningamanna FIINDUR hafði ekki verið boðaður hjá sáttasemjara í gærkvöldi í deilu útgerðarmanna og sjómanna á stóru togurunum í Reykjavík og Hafnar firði. Þá hefur ekki heldur verið boð- að til fundar í kjaradeilu beitninga- manna í Keflavík og víðar á Suður nesjum. Samkvæmt upplýsingum Mbl. er unnið að því að finna flöt á lausn Harður árekstur á Ártúnshöfða IIARÐUR árekstur varð um tiuleytið í gærmorgun á gatnamótum Höfða- bakka og Bfidshöfða. Volkswagen- sendibifreið var ekið eftir Höfða- bakka og hugðist ökumaðurinn, sem var kona, beygja vestur Bíldshöfða. Konan uggði ekki að sér, því l)ats- un pallbifreið var ekið eftir Höfða- J“kka og ók hún í veg fyrir bifreið- ina. Bifreiöarnar skullu saman af miklu afli og eru báðar stór- skemmdar. Konan var flutt í Slysadeild og var óttast að hún hefði hlotið beinbrot. málsins, hvað varðar stóru togar- ana, án þess að um formlega sátta- fundi sé að ræða. Rætt hefur verið um að fækka í áhöfn þessara skipa, en sjómenn telja það vart koma til greina. Eins og fram hefur komið voru það aðeins sjómenn á stóru togurunum, í Reykjavík og Hafnar- firði, sem greiddu atkvæði sér- staklega um samningana á stóru togurunum og felldu þá. Annars staðar á landinu, þar sem togarar af stærri gerðinni eru gerðir út, var fjallað um samningana á stóru tog- urunum og bátakjarasamninga sameiginlega. Beitningamenn í Keflavík og víð- ar eru ráðnir í ákvæðisvinnu, en víða annars staðar eru þeir ráðnir upp á hlut. Krafa beitningamann- anna, sem eru í verkfalli, er m.a. sú, að þeir fái tryggingu fyrir þriggja daga vinnu í viku hverri. Þessari kröfu hafa vinnuveitendur hafnað, en hafa boðið beitninga- mönnum að fá hlut, en þeir ekki viljað samþykkja slíkt. Þá fóru beitningam“"n'rn*r ^ram á sam- ræmingu, en sums staðar laun beitningamanna í samræmi við fiskverð meðan annars staðar er miðað við vísitölu. VERÐBOLGA1960-1981 VIÐREISN VINSTRI VINSTRI 61 '63 65 67 '69 '71 '73 '75 '77 '79 '81 Verðbólguþróunin í tvo áratugi Verðbólguvöxtur var um og innan við 10% á ári, að meðaltali, öll 12 ár viðreisnarstjórnarinnar 1959—1971, þegar Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn vóru utan ríkisstjórnarinnar, þó einstaka tímabundnir verð- bólgutindar sköguðu upp úr því meðallali. Hinn raunveru- legi hönnuður íslenzkrar óðaverðbólgu var fyrri vinstri stjórn Olafs Jóhannessonar (1971 —1974), sem kom árleg- um verðbólguvexti yfir 50% í lok tímabils síns. Kíkisstjórn Geirs Hallgrímssonar tókst að koma verðbólguvexti niður í 27% á miðju ári 1977, er síga tók aftur á ógæfuhlið vegna óraunhæfra kjarasamninga. Síðan hefur verðbólgan verið um og yfir 50%, eins og línuritið sýnir, sem talar skýru máli um íslenzka verðlagsþróun í rúmlega 20 ár. Knýjum á með uppsögnum nái sérkröfur okkar ekki fram - segir Valgerður Jónsdóttir formaður kjararáðs hjúkrunarfræðinga „FYKST og fremst leggjum við áherzlu á grunnkaupshækkanir með flokkatil- færslum í kröfum okkar um sérkjara- samning," sagði Valgerður Jónsdóttir, formaður kjararáðs Hjúkrunarkvenna- félags íslands. Hún sagðist reikna með að kröfur félagsins yrðu kynntar fyrir fulltrúum ríkisins í byrjun næstu viku og þar til það hefði verið gert væri ekki rétt að greina frá innihaldi sérkrafna. í fyrrakvöld var haldinn tjoi- mennur íú’.ldur hjúkrunarfræðinga á Hótel Sögu og mættu bár um eða yfir 250 hjúkrunarfræðingar aö söen Valgerðar. „Það var mikill hugur í fólki á þessum fundi og á honum voru tillögur kjararáðs um sérkröfur samþykktar og nokkrum öðrum kröfum var bætt við. Tónninn á þessum fundi var sá, að standa fast saman um kröfurnar og knýja á um framgang þeirra með uppsögnum ef nauðsyn krefur. Við gerð sérkjara- samnings höfum vjð ekki verkfalls- rétt og verðum því að grípa til ann- verði þess þörf,“ sagði Val- gerður. Aðspurð um gerð aðalkjarasamn- ings við Reykjavíkurborg vegna hjúkrunarfræðinga á Borgarspítal- anum sagði Valgerður að fyrsti fundur deiluaðila yrði á mánudag hjá sáttasemjara, en eins og fram hefur komið felldu hjúkrunarfræð- ingar á Borgarspítalanum samning svipuðum þeim, sem ríkið gerði við BSRB. Á fundinum á mánudag sagði Valgerður, að hjúkrunarfræðingar myndu kynna þær kröfur úr kröfu- gerð BSRB, sem þær legðu mesta áherzlu á. „Það er ýmsu ábótavant í samningi BSRB og ríkisins og því af nogú’ QÍ' ta^a e^ er a uPPhaflegu kröfugerðina," sagoi v«.'*!/r*ur'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.