Morgunblaðið - 22.01.1982, Qupperneq 11
i
ins bestu merkingu, afstaða hans
til mála var hlutlæg og afdráttar-
laus. Blaðamennska hans ein-
kenndist af staðgóðri þekkingu á
þeim málefnum sem hann fjallaði
um.
Skúli hefur hlotið margvíslega
viðurkenningu fyrir störf sín.
Hann var á sínum tíma kjörinn
heiðursfélagi Blaðamannafélags
íslands svo og Ferðafélags Is-
lands. Hann hlaut verðlaun úr
Móðurmálssjóði Björns Jónssonar
ritstjóra vegna framlags síns til
íslenskrar blaðamennsku. Verð-
laun fékk hann einnig úr sjóði Ax-
els Wennergrens í ritgerðasam-
keppni um norræna samvinnu.
Hann var sæmdur stórriddara-
krossi íslensku Fálkaorðunnar,
einnig hlaut hann frelsiskross Há-
konar 7. Noregskonungs fyrir
frábær störf í þágu Noregs á
stríðsárunum.
Kona Skúla, Nelly Tora, var
norskrar ættar, dóttir Hallgríms
Mjölid sýsluskrifara í Nesbyen.
Hún var mikilhæf og glæsileg
kona, kennari að menntun og
starfi. Hún lést á síðastliðnu ári,
86 ára að aldri. Börn þeirra eru:
Ingibjörg Sigríður, gift Karli Ei-
ríkssyni forstjóra í Reykjavík,
Guðrún Þórhildur, kennari í Osló,
gift Knut Berg verkfræðingi og
Hallgrímur Skúli, vélvirki í
Nesbyen, kvæntur Gro Gaustad.
Síðustu þrjú árin átti Skúli við
vanheilsu að stríða. Honum var
ljóst að skeið hans var á enda
runnið og nóg lifað. Karlmennska
hans og æðruleysi fylgdu honum
til ioka. Hann dó glaður og sáttur
við lífið.
Mér hefur oft fundist að afstaða
Skúla Skúlasonar til dauðans hafi
hlotið að vera í ætt við þau viðhorf
sem birtist í þessum línum Jóns
Helgasonar:
I'pp undir hvelfing MelgaMls
hlyU'iJum ^eislum stafar,
fra nda st m þangað fór í Itvöld
fagna hans liðnir afar,
silur að teiti sveitin öll,
saman við langeld skrafar,
Ekki er hægt að ljúka þessum
orðum án þess að minnast á þá
miklu ástund og umhyggju, sem
Skúli naut í langri sjúkdómslegu
að lokum, og ber þá sérstaklega að
nefna Guðrúnu Þórhildi dóttur
hans. Segja má að þar hafi hann
notið sinna eigin mannkosta, sem
gengið hafa í arf.
Sá sem ritar þessi fátæklegu orð
kveður Skúla Skúlason þakklátum
huga. Það er gott að minnast slíks
manns.
Sigurður Hafstað
tilfellum kúgað og láglaunað fólk.
Bókmenntir þess eru athyglisverður
og ólíkur annar kostur, gagnvart
hinum evrópska hugsunarhætti. Hjá
þessu fólki kemur fram önnur af-
staða til tímans, náttúrunnar, fjöl-
skyldunnar og vistfræðilegrar
ábyrgðar mannsins en við sjáum til
dæmis í verkum danskra eða ís-
lenskra höfunda.
Það koma út margar góðar bækur
á Norðurlöndum á hverju ári. Síð-
ustu árin hef ég eytt töluverðum
tíma í að lesa finnskar og íslenskar
bækur, þá jafnan í sænskum þýðing-
um. Af yngri höfundum íslenskum,
er það einkum Guðbergur sem hefur
verið þýddur. Það þykir mér gott val.
Það er skortur á rithöfundum sem
geta þýtt af íslensku og á dönsku.
Þýðingar eru afskaplega vandasam-
ar, sérstakiega þegar um Ijóð er að
ræða. Það vantar bækur sem eru
endurortar fremur en þýddar. Og
það verð ég að segja, að enda þótt
mér líki vel að margir yrki, þá fara
lélegar þýðingar mjög í taugarnar.
Ég held að allir norrænir höfund-
ar, líka sænskir, hafi mjög gott af
því að verða fyrir áhrifum frá hinum
Norðurlöndunum og þeim þjóðum
sem þar búa, þótt þær séu ólíkar
okkur, Grænlendingum og Sömum.
Það er nákvæmlega engin ástæða til
þess að styðja ekki norræn sam-
skipti á þessum vettvangi.
Norræna húsið í Reykjavík er
dæmi um það, hvernig þetta á að
vera, að því er mér finnst, en það er
líka eina norræna húsið sem starfar
almennilega, sakir góðs staðarvals
og styrkrar stjórnar. Vonandi verður
Norræna húsið í Þórshöfn í Færeyj-
um líka svona gott.“ SIB.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1982
11
Mark Thatcher bað forláts
London, IK. janúar. Al'.
MARK Thalcher, sonur Margaret
Thatcher, forsætisrádherra Breta, bad
brezku þjóðina forláts á þeim áhyggj-
um sem hann hefði valdið með því að
týnast í sex daga í Sahara-yðimörk-
inni, eins og rækilega hefur verið frá
skýrt.
Mark Thatcher sagði að kannski
hefði verið rangt hjá honum að taka
þátt í rallíinu og hann harmaði að
hafa valdið móður sinni hryggð og
þjóðinni angri. Aðspurður um frek-
ari þátttöku í rallíum sagöist hann
myndu íhuga allt slíkt með gætni og
varðandi Dakar-rallið á næsta ári
sagðist hann væntanlega ekki verða
með, enda trúlegt að móðir hans
Mark Thatcher með franskri vinkonu sinni, Annie Charlotte Verney.
tæki ekki fagnandi neinum slíkum
áformum.
Alsírstjórn greindi frá því í kvöld
að hún myndi bera allan kostnað við
leitina að Mark Thatcher. Hér mun
vera um að ræða um það bil 53
milljónir króna.
í öðrum fréttum AP frá London
nú um helgina, segir að Mark
Thatcher kunni að hafa meiri
áhyggjur af fleiru en því einu að
hafa týnzt i Sahara. Ráðgjafafyrir-
tæki sem hann rekur, Monteagle
Marketing, mun ekki hafa fyllt út
árlegar skýrslur til ríkisstjórnar-
innar síðan fyrirtækið var sett á
stofn, og einhverjar fleiri van-
rækslusyndir kunni forsvarsmenn “
fyrirtækisins að hafa á samvizk-
unni, sem geti bakað forsvars-
mönnum þess svo og til dæmis ríkis-
stjórninni áhyggjur, þótt af öðrum
toga séu.
LAUGARDALSHOLL
22-24. JAK1982
Fyrsta skíöavörusýningin á íslandi opnar í dag
kl. 17 í Laugardalshöll. Þar eru sýndar fjöl-
margar vörutegundir sem tengjast útiveru og
íþróttum aö vetri til. Allir stærstu söluaöilar á
hverskonar skíða- og sportvarningi sýna paö
besta og nýjasta sem fáanlegt er hérlendis.
Á dagskrá sýningarinnar er m.a. tískusýning
par sem Modelsamtökin sýna skíöafatnaö.
ísalp klúbburinn sýnir áhöld og tæki ásamt lit-
skyggnum úr feröalögum þeirra hér heima og
erlendis. Sýnikennsla í viðhaldi og meöferö á
skíðabúnaði. Kvikmyndasýningar frá skíöa-
keppnum meö heimsfrægu skíöafólki.
Föstudagur 22. janúar Laugardagur 23. januar Sunnudagur24. janúar
kl. 16.00 Sýningin opnuð fyrir boðs- kl. 10.00 Opnað. kl. 10.00 Opnað.
gesti. Sveinn Bjðrnsson for- kl. 14.00 ísalp-sýning á klifurbunaöi kl. 14.00 Viðhald á skiöurn (syni-
seti isí opnar sýninguna. kl. 15.00 viðhald á skiðum (syni- kennsla)
kl. 17.00 Opnað fyrir almenning. kennsla). kl. 15.00 isalp-sýning á kllifurbúnaði
kl. 20.00 ísalp-sýning á klifurbunaði. kl. 16.00 Tiskusýning kl. 16.00 Tískusýning.
kl. 20.45 Tískusýning kl. 18.00 ísalp-sýning á klifurbunaði. kl. 18.00 Viðhald á skíðum (syni-
kl. 22.00 Lokað. kl. 20.45 Tískusýning kennsla).
* Milli atriða verður kvikmynda- og lit- kl. 21.00 viðhald á skiðum (syni- kl. 20.45 Tískusýning.
skyggnusýningar. kennsla) kl. 22.00 Lokað.
kl. 22.00 Lokað. * Milli atriða verður kvikmynda- og lit-
* Milli atriða verður kvikmynda- og lit- skyggnusýningar.
skyggnusýningar.
SKÍÐASAMBAND ÍSIANDS