Morgunblaðið - 22.01.1982, Page 24

Morgunblaðið - 22.01.1982, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1982 Fyrir nokkrum árum söng eitt af átrúnaðargoðum æskunnar lag sem hann nefndi: „Allt sem við viljum er friður á jörðu." Þetta lag varð geysivinsælt, og margir ungir sem aldnir stöldruðu við og hugs- uðu um þann texta er tengdist lag- inu. An nokkurs vafa hefur hann ekki orðið til án þess að ástæður lægju að baki. Poppsöngvarinn og bítillinn John Lennon gerði sér grein fyrir, að það ástand, sem væri að skapast í heiminum, gæti leitt af sér stríð, sem án efa yrði engu öðru líkt, fæli í sér tortím- ingu á öllu lífi. Nokkrum árum síðar var söngvarinn ungi og vin- sæli skotinn til bana á götu úti. Nokkrum árum áður töluðu tveir þekktir menn um það, að friður yrði að komast á, á milli þjóða og einstaklinga, á milli svartra og hvítra, ríkra og fátækra. Þessir tveir menn voru þeir Marteinn Lúther King og John F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseti. Þeir voru skotnir til bana. Margir hafa síðan fetað í fótspor þeirra og ófáir hlotið sömu örlög. Rifja má upp örlög frelsishetjunnar •Dubsek í Tékkóslóvakíu og nú ör- lög Lech Walesa í Póllandi, sem að vísu eru ekki ráðin enn, eða hvað? I dag eru ekki aðeins einn og tveir að ræða um það, að friður þurfi að verða að staðreynd í okkar litla heimi. Þúsundum og jafnvel millj- ónum er það Ijóst, að þjóðirnar í vestri og austri verða að setjast við samningaborðið og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir ófrið, sem án nokkurs vafa gæti eytt öllu lífi á jörðu. Ef til vill vegur hún þyngst á metunum sú staðreynd, að í austri og vestri eru til staðar vopn, sem gætu eytt öllu lífi hér á jörðu, allt að tólf sinnum. Friðarhreyfingar Vegna þessara staðreynda hafa fjölmargir, úr öllum stjórnmála- flokkum, frá vinstri til hægri, ris- ið upp og sagt við leiðtogana, sem þeir víðast hvar hafa sjálfir valið, hingað og ekki lengra. Mjög marg- ir hafa gert sér grein fyrir því, að til þess að gagnrýnin hafi raun- veruleg áhrif, þá þurfi að gagn- rýna vopnaframleiðslu, bæði í eftir sr. Vigfús W>r Arnason vestri og austri. Til að markinu verði náð, verður ávallt að fjalla um stórveldin bæði og vopnafram- leiðslu þeirra beggja. Ef einhver fellur í þá gröf að ætla að gagn- rýna og deila á t.d. aðeins Vestur- veldin og þeirra þátt í vígbúnaðar- kapphlaupinu, er sú gagnrýni dæmd til að mistakast. Eins er því farið, ef stórveldin ætla að not- færa sér það hugarástand, sem hefur skapast vegna ótta við eyð- ingu á öllu lífi, þá kann svo að fara að allt friðartal verði gagnslaust hjal. Ymsir atburðir síðustu vikur og mánuði gætu leitt það af sér, að einlægur vilji fjöldans, fyrir friði, gæti orðið að engu. Misnotkun hreyfinga og samtaka á þeim frið- arvilja fólksins, sem margt býr í löndum, þar sem milljónir og aft- ur milljónir hafa látið lífið vegna styrjalda, verður að koma í veg fyrir. Friðarvilji kirkjunnar Það er ljóst, að kirkjan hefur látið sig málið skipta. Hvað er hún að blanda sér í mál stórveldanna? gæti einhver spurt. Og svar við þeirri spurningu er til reiðu. Svör- in eru reyndar mörg, þó að þau eigi sitt upphaf í Guði einum og lifandi orði hans. í öðru Korintu- bréfi ávarpar Páll postuli söfnuð- inn með eftirfarandi orðum: „Ver- ið fullkomnir, áminnið hver ann- an, verið samhuga, verið friðsamir. Þá mun Guð kærleikans og friðar- ins vera með yður.“ Mörgum öld- um áður sagði Jesaja spámaður: „Og hann mun dæma meðal heið- ingjanna og skera úr málum margra þjóða. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sinum og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal reiða að annarri þjóð og ekki skulu þær temja sér hernað framar." Og síðar barst okkur fyrsta jólakveðjan er segir: Dýrð sé guði i upphæðum og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hann hefur velþóknun á.“ Allt frá upphafi hefur kirkjan lagt áherslu á að breiða út þann frið, sem boðaður var á hinni fyrstu jólanótt. Það hefur hún gert með því að boða guðsríkið og komu þess. Boða það ríki, sem er ekki í óra fjarlægð, heldur er til staðar hér og nú. Þetta guðsríki er „ekki matur né drykkur heldur réttlæti og friður og fögnuður í Sr. Vigfús Þór Arnason, sóknarprest- ur í Siglufirði. heilögum anda“. (Róm. 14:17.) Friðarboðskapur jólanna er boðaður um allan heim, frá jólum til jóla. Fyrir þeim, áem láta hann sig skipta, gegnir hann mikilvægu hlutverki. Hann skiptir máli fyrir hvern og einn einstakling. Hver og einn, sem tekur við honum og ger- ir hann að raunveruleika í lífi sínu, finnur að hann skiptir máli. Hann finnur, að hann eignast frið, hið innra með sér, en um leið felur þessi friður í sér, sem er ekki óvirkt afl í lífinu, sáttargjörð við guð og menn. Sáttargjörðin er þáttur í allri friðarumleitan, bæði á meðal einstaklinga og á meðal þjóða. „Ef þú ert að bera gáfu þína fram á altarið og þú minnist þess þar, að bróðir þinn hefir eitthvað á móti þér, þá skil gáfu þína þar eftir fyrir framan altarið og far burt, sæstu við bróður þinn, og kom síðan og ber fram gáfu þína. Vertu skjótur til sætta við mót- stöðumann þinn, meðan þú ert enn á veginum með honurn." (Matt.: 5, 24-25.) „Sæstu við bróður þinn,“ segir ritningin. Sá sem helgar jólin og gefur þeim tilgang, gerði þó enn strangari kröfu til okkar mann- anna. Hann boðaði og sagði: „Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður.“ Erfitt er að framfylgja þessari kröfu, svo algjör er hún og óviðráðanleg okkar mannlega mætti. Eða hvað? Fundir kirkjunnar um mannréttindi og frið Ef til vill eru kirkjunnar menn um allan heim, í austri og vestri, að reyna að elska þann sem sagður er óvinur, og að reyna að bera sáttarorð á milli bræðra, sem ósáttir virðast vera. Nú fyrir stuttu sótti undirritað- ur ráðstefnu Alkirkjuráðsins, sem haldin var í Croydon á Englandi, en meginverkefni hennar var að fjalla um mannréttindi og frið í heiminum. Þar var leitað eftir því, hvað kirkjan gæti gert til að auka mannréttindi, koma í veg fyrir brot á þeim og hvað kirkjan getur gert til að auka friðarhorfur í heiminum. Það er ljóst, að hún er megn mikils. Hún gerir ekki mun á hvítum og svörtum, skiptir ekki heiminum upp í afmörkuð svæði. Um er að ræða einn heim eða eins og segir í hinni helgu bók: „Hér er ekki Gyðingur né grískur, hér er ekki þræll né frjáls maður, hér er ekki karl né kona, því að þér eruð allir einn maður í samfélaginu við Krist Jesúm.“ (Gal.: 3, 28.) A ráðstefnunni voru menn sam- mála um, að sérstaklega væri mik- ilvægt að vinna að því, að með þjóðunum tækist friður sem byggja mætti á. Mikil áhersla var lögð á, að allt yrði að gera til að slaka á spennunni, sem hefur skapast vegna hins ægilega víg- búnaðarkapphlaups. Þátttakendur lögðu áherslu á, en þeir komu frá austri og vestri, að skora á stór- veldin að setjast við samninga- borðið og gera Helsinkisáttmál- ann að raunveruleika. Nú hafa stórveldin þegar sest að samningaborðinu, en vonandi leið- ir það af sér slökun á spennu, og frið, þó að atburðir síðustu daga kunni að draga dilk á eftir sér. Að því, þ.e. slökun á spennu, vill kirkjan vinna heils hugar, óháð og óbundin öllum nema þeim eina, sem kom með frið og gaf frið. Þennan möguleika kirkjunnar Minningar Lárusar í Grímstungu eftir sr. Pétur Þ. Ingjaldsson Á síðasta áratug hafa ævisögur góðbænda í Vatnsdal verið færðar í letur og gefnar út. Má þar til nefna ævisögu Ágústar Jónssonar á Hofi í 2 bindum, Hannesar Páls- sonar á Undirfelli og Bókina um Jón Pálmason á Akri í Þingi í næstu sveit og nú nýverið ævi- minningar Lárusar Björnssonar í Grímstungu í Vatnsdal. Er þetta á heppilegum tíma, því margir munu minnast hugðnæms sjón- varpsþáttar úr Vatnsdal, er sýnd- ur var á jólaföstu 1980, er hávax- inn halur hærugrár hleypti hesti sínum á skeið eftir þjóðveginum á leið í Vatnsdalsrétt. Var þar á ferð Lárus 91 árs að aldri og blindur, en hestur hans var Blesi, 27 vetra, og hafði oft borið húsbóndann um sveitina og fram á heiðar. Lárus var ekki einn á ferð, meðreiðarmaður hans var Grímur Gíslason frá Saurbæ, áður oddviti í Vatnsdal, nú starfandi ' við kaupfélagið á Blönduósi. Þess má geta að önnur útgáfa á ævisögu Björns Eysteinssonar kom út 1980. — Faðir Lárusar var Björn Eysteinsson, sonur Eysteins Jónssonar, bróður Einars i Flekkudal í Kjós. Er margt dugn- aðarmanna og mikilhæfra meðal þeirra ættmanna, svo sem sr. Guð- mundur Einarsson á Mosfelli. Móðir Lárusar var Helga Sigur- geirsdóttir, dóttir Sigurgeirs Pálssonar og Vigdísar Halldórs- dóttur, Bjarnastöðum í Bárðardal. Meðal systkina Helgu voru Karl á Bjargi í Miðfirði og Bárðdalarnir í Ameríku er voru mikilhæfir menn þar vestra. Minningar Lárusar gefa fólki kost á að kynnast nánar hinum þjóðkunna bónda er margur hefur þekkt að orðspori. Er bók þessi gefin út af bókaforlagi Odds Björnssonar á Akureyri og er 280 síður auk fjölda mynda. Gylfi Ás- mundsson bjó bókina til prentun- ar. Eru þetta minningar Lárusar auk annarra nákunnugra honum. Aftast í bókinni er gerð grein fyrir ættum þeirra hjóna, Lárusar Björnssonar og konu hans Pétur- ínu Jóhannsdóttur. Þá er kort af A-Húnaþingi, byggðum og öræf- um ásamt örnefnaskrá' af helsta sögusviði bókarinnar. — Hefur verið vandað til frásagnarinnar sem best má verða og hún lesin Lárusi sem nú er blindur orðinn. Lárus er hér líkt farið og föður hans, sem tók saman minningar sínar á efri árum, er margt líkt með þeim feðgum um líkamlega hreysti, þrautseigju og glöggsýni að gæta hagsins. Þeim fellur hjarðbúskapur best í geð, áhuga- samir til veiðiskapar á landi og í vötnum. Eru þessar veiðiferðir þeim líkamleg þjálfun og andleg hressing frá hinu hefðbundna striti búskaparins. Ratvísir um heiðalöndin sem eru þeirra ríki, er gefur þeim arð í peningum og bús- ílag. Enda mótaðist Lárus af þess- um lífsháttum þegar í föðurgarði. Báðir hefja sig frá allsleysi til velmegunar, ná háum aldri, reka búskap undra lengi umfram aðra menn. Lárus á góða frásagnar- gleði án málskrúðs eða mælgi. Frásögn hans er gædd lífi og fræðslu og eins er því farið hjá þeim feðgum að báðum er það lag- ið að bregða upp skýrum ógleym- anlegum myndum. Það skilur á milli þeirra feðga að Björn Eysteinsson hafði tíð bústaðaskipti. En Lárus býr ávallt í Grímstungu og þó hún sé talin stór jörð nægði hún ekki ávallt at- hafnaþrá hans, en hann var talinn um skeið meðal stærstu bænda landsins, hann hafði þá afnot ann- arra jarða með er hann hafði keypt. Lárusi Björnssyni er sem góðum syni minnisstæður móðurmissir- inn, en hún andaðist 46 ára. Var Lárus þá 16 ára og látinn tilkynna lát hennar á bæjum. Lárus hefur tekið í arf frá móður sinni hóg- værð i framkomu og hlýleika í dagfari þótt hann væri skapstór og vildi halda hlut sínum þegar í æsku. Þá er ekki síður áberandi er hann sjálfur er kominn á efri ár hve gott er að vera í návist hans. Þá hefur Lárus fengið úr móður- ætt sinni hve söngvinn hann er og lætur vel að kveða rímur á góðri stund ef hann er hýr, enda er hann sjór í kvæða- og vísnafróðleik. Lárus hlaut gott kvonfang er hann kvæntist Péturínu Jó- hannsdóttur, dugnaðarkonu er var heimilisrækin en heimili þeirra þurfti mikils við er þar var margt hjúa. Voru þau hjón hjúasæl, en stjórn þeirra hvíldi mjög á Pétur- ínu er Lárus var af bæ. Lárus seg- ir svo: „Péturína hefur átt erfitt aö hugsa um þetta mannmarga heimili og ég oft frá. Prúð- mennsku hennar og hlýju get ég aldrei fullborgað. Sambúð okkar Péturínu hefur bæði verið löng og góð og gat ég ekki fengið mér hag- kvæmari samfylgd og stuðning en hjá henni.“ Lárus Björnsson í Grímstungu. „Minningar Lárusar gefa fólki kost á að kynnast nánar hinum þjódkunna bónda, er margur hefur þekkt að orðspori.“ Lárus minnist sveitunga sinna ungra sem aldinna, dáinna sem lifandi með hlýjum huga og lofar mjög hjálpsemi þeirra og velvilja ef eitthvað bar útaf um hagi náungans. En sjálfur var Lárus allra manna viljugastur ef þurfti að sækja lækni eða ljósmóður þó ár væru í vexti og illar yfirferðar. Sjálfur hafði hann fengið æfingu í að fara yfir Vatnsdalsá og Álku, er renna fyrir landi Grímstungu. Hins vegar verður eigi séð að hann hafi sóst eftir veraldlegum völdum meðal búenda í Vatnsdal þó hann sæti í hreppsnefnd um skeið. Enda lítið upp úr þeim að hafa svo jafnvel veiðar á hinum víðlendu heiðum og vötnum þeirra gáfu meira í aðra hönd. Enda verður ekki annað séð en það hafi verið honum andleg hressing að ferðast um afréttarlönd Húna- þings með byssu um öxl og net í poka til refa- og silungsveiöa. Lár- us ræðir af þekkingu um eðli refs- ins og kænsku veiðimannsins. Eftir góða veiðiferð kom Lárus heim í Grímstungu með loðdýra- söfnuð sinn á ýmsu aldursskeiði. Þurfti þá mikils við að halda lífinu í þessum yrðlingum svo af þeim nýttist arðurinn. Var Péturína mjög lagin að halda í þeim lífinu, með að hygla að þessum skinnum svo þau döfnuðu vel. Svo segir Lárus um sölu yrðl- inga: „Yrðlingar voru í hæsta verði, minnir mig, rétt fyrir 1930. Þá var mórauður tófuyrðlingur jafn verðhár og snemmbær kýr, sérstaklega læðurnar. Mig minnir 1928 eða ’29, sem það voru seldir yrðlingar fyrir 10.000 kr. sama daginn og það þótt eins og gott jarðarverð þá.“ Lárus Björnsson hefur nú búið í Grímstungu í 70 ár og býr þar enn að nokkru. Hefur hann jafnan ver- ið meðal hrossa- og fjárflestu bænda landsins og búið við reisn og myndarskap. Hann er merki- lega ern til orðs og æðis, sáttur við lífið, þakklátur skapara sínum fyrir ævidagana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.