Morgunblaðið - 11.02.1982, Qupperneq 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
30. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGIJR 11. FEBRÚAR 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Harðir bardag-
ar í Sf rlandi
Amman, Jórdaníu, 10. febrúar. AP.
HARÐIR bardagar hafa geisað undanfarna viku í borginni
Hama í Sýrlandi milli stjórnarhermanna og stjórnarandstæð-
inga undir forystu strangtrúaðra múhameðstrúarmanna, að
því er diplómatískar heimildir í Amman greindu frá í dag.
Talið er að allt að 500 manns
hafi fallið og særzt, en herflokk-
ar stjórnarinnar hafa nú ein-
Á mettíma
frá London
til New York
London, 10. febrúar. AP.
Tryggingasalinn David
Springbett segist hafa sett nýtt
hraðamet á leiðinni frá miðri
London til miðborgar New York.
Hann segist hafa farið sl. mánu-
dag í þyrlu frá City í London til
Heathrow-flugvallar, þaðan með
('oncorde-þotu til Kennedy-
flugvallar við New York og loks
með þyrlu á ný tii Wall Street,
allt á aðeins 3 stundum 59 mín-
útum og 44 sekúndum.
Fyrra met á þessari leið var
4 tímar 10 mínútur og 44 sek-
úndur og var það sett í nóv-
ember 1980 af öðrum brezkum
verzlunarmanni. Vanalegur
flugtími þotu milli London og
New York er um 7 tímar.
Springbett sneri aftur til
London á þriðjudag á sama
hátt og var þá aðeins 3 stundir
40 mínútur og 40 sekúndur á
leiöinni að eigin sögn. Enginn
hefur áður gert tilkall til þess
að eiga metið á bakaleiðinni í
austur yfir Atlantshafið.
Springbett er á skrá í heims-
metabók Guinness fyrir að
hafa farið hringinn í kringum
heiminn á stytztum tíma, 44
stundum og 6 mínútum.
angrað borgina. Hama er í um
195 kílómetra fjarlægð frá höf-
uðborginni, Damaskus.
Að sögn ferðalanga, sem kom-
ið hafa frá Hama, hafa margir
lagt niður vinnu í borginni og
verzlanir eru lokaðar. Spítalar
annars staðar í landinu hafa
tekið við sárum mönnum frá
Hama. Að sögn jórdanskra emb-
ættismanna hafa stjórnarand-
stæðingar notað eldflaugar og
ýmis þung vopn gegn sýrlenzka
hernum.
Alexander Haig:
fíál* í VliorfOO ÁríCk*Á ~ Henry Kissi"ger> fyrrum Utanríkisráðherra
’d 1 HJdl IddUg vl U Bandaríkjanna, gekkst undir hjartaskurðaðgerð á
sjúkrahúsi í Boston í gærmor£un. Aðgerðin Iók fjóra tíma, en gekk vel að sögn lækna. Á myndinni sést
Kissinger ræða við blaðamenn á þriðjudag ásamt lækni sínum, dr. Gerald Austen og greina þeim frá
fyrirhugaðri aðgerð. Símamynd ap.
Alger samstaða um Pól-
landsmálið innan NATO
Madrid, Moskvu, 10. febrúar. AP.
ALEXANDER HAIG, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag, að aldr
ei áður hefði verið jafnmikil samstaða innan Atlantshafsbandalagsins og
væri um Póllandsmálið. Haig sagði, að alger samstaða væri innan bandalags-
ins um eðli atburðanna þar í landi, sem og um ábyrgð Sovétmanna á
ástandinu.
Haig sagði einnig á blaðamannafundi í Madrid, að samkomulag hefði
verið innan NATO varðandi pólitískar og efnahagslegar aðgerðir vegna
atburðanna í Póllandi og um slíkar aðgerðir væri stöðugt fjallað á vettvangi
ríkisstjórna aðildarlandanna.
Haig sagðist á fundinum vonast
til þess, að vestræn ríki falli frá
áformum um að byggja með Sov-
étmönnum gasleiðslu frá Síberíu,
Pólland:
Næstæðsti maður Samstöðu
færður fyrir herdómstól
<•dan.sk, Kóm, 10. febrúar. AP.
MIROSLAW KRUPINSKI, sem verid hefur næstæðsti maður
Samstöðu, samtaka hinna frjálsu pólsku verkalýðsfélaga, mun
verða færður fyrir herdómstól fyrir að skipuleggja verkfalls-
nefnd eftir að herlög voru sett, að því er embættismenn hér hafa
greint frá. Krupinski, sem var staðgengill Walesa, er hæstsetti
ráðamaður Samstöðu sem ákærður hefur verið fyrir brot á her
lögunum.
Sagt er, að Walesa, sem
hefur verið í einangrun frá
því herlögin voru sett 13.
desember sl., hafi boðið yfir-
völdum upp á samningavið-
ræður, en að sögn heimildar-
manna innan verkalýðsfé-
laganna hafa engar slíkar
viðræður farið fram enn sem
komið er. Walesa hefur ekki
sætt neinum ákærum af
hálfu yfirvalda, að því er
bezt er vitað.
Það var saksóknarinn í
Gdansk, sem greindi blaða-
mönnum frá því að Krup-
inski yrði ákærður, í fyrstu
opinberu ferð blaðamanna
til Gdansk síðan herlögin
voru sett. Saksóknarinn gat
ekki veitt upplýsingar um
það hvenær búast mætti við
því að mál Krupinskis yrði
tekið fyrir.
Krupinski og aðrir verk-
fallsleiðtogar hafa verið í
haldi frá 14. desember sl.,
þegar lögregla braut verkfall
þeirra í Lenín-skipasmiðj-
unum í Gdansk á bak aftur.
Jóhannes Páll páfi II, sem
undanfarna daga hefur átt
viðræður við yfirmenn
kaþólsku kirkjunnar í Pól-
landi, sagði í dag í vikulegum
boðskap sínum, að aldrei
væri hægt að taka mannlega
reisn frá fólki.
sem sjá mundi Evrópuríkjum
fyrir miklu magni af gasi. Sagði
ráðherrann, að Bandaríkin myndu
leggja til að þessi ríki yrðu sér úti
um orkugjafa með öðrum hætti.
Utanríkisráðherra Sviss, Pierre
Aubert, gagnrýndi pólska fundar-
stjórann á öryggismálaráðstefn-
unni í Madrid harðlega í dag fyrir
að hafa stytt umræður á upp-
hafsfundi ráðstefnunnar í gær.
Aubert gagnrýndi einnig ástandið
í Póllandi og sagðist telja, að rétt
væri að fresta ráðstefnunni í
Madrid hið fyrsta og kalla hana
ekki saman að nýju fyrr en eftir
nokkra mánuði.
Búizt er við, að Sviss leggi fram
formlega tillögu þessa efnis á
föstudag og að hún hljóti stuðning
vestrænna og hlutlausra ríkja.
Svenn Stray, utanríkisráðherra
Noregs, flutti ræðu á Madrid-
ráðstefnunni í dag og fór hörðum
orðum um ástandið í Póllandi.
Skoraði hann á pólsk stjórnvöld
að virða ákvæði Helsinki-sam-
komulagsins, sem þau hefðu sam-
þykkt, og veita umbótaöflunum í
landinu svigrúm. Stray sagði það
harmsefni, að allan þann tíma,
sem endurnýjun hafi átt sér stað í
Póllandi, hafi Sovétríkin beitt
Pólverja miklum og augljósum
þrýstingi.
Málgögn Sovétstjórnarinnar
áttu ekki nógu sterk orð í morgun
til að lýsa andúð sinni á fram-
komu vestrænna ríkja á Madrid-
ráðstefnunni. Sökuðu blöðin vest-
ræna ræðumenn á ráðstefnunni
um að fara með hreinan óhróður
og fella krókódílatár vegna Pól-
lands.
Byrjar Laker að nýju
með eina flugvél?
London, 10. febrúar. AP.
TV/ER ferða-skrifstofur Freddie Lak-
ers voru í dag seldar fyrir 4,5 milljónir
sterlingspunda (um 80 milljónir
króna). Kaupendur voru annars vegar
ölgerðarfyrirtæki í Lancashire en hins
vegar ferðaskrifstofan Saga Holidays
í Kent.
Að sögn skiptaráðenda í þrotabúi
Lakers var allt kapp lagt á að selja
ferðaskrifstofurnar sem fyrst, áður
en farþegar, sem með þeim ættu
bókað, flyttu viðskipti sín annað.
Ferðaskrifstofurnar hafa gengið vel
og skilað Laker nokkrum arði.
Flugfélag Lakers skuldar 210 millj-
ónir punda (um 3,7 milljarðar
króna).
Aðstoðarmenn Lakers sögðu í
dag að hann sæti nú á stöðugum
fundum með fjármálaráðgjöfum
sínum og fjallaði um það hvort og
hvernig sér mundi kleift að hleypa
af stokkunum nýju „flugfélagi al-
mennings". Talsmaður flugfélags
Lakers sagðist í dag búast við að
Laker gæfi frá sér yfirlýsingu um
mál þetta á morgun, fimmtudag.
Talið er líklegt að Laker muni
freista þess að festa kaup á a.m.k.
einni og hugsanlega fjórum af 20
flugvélum þrotabúsins og hefja
flugrekstur að nýju á einhverjum af
þeim leiðum, sem hann hefur flogið
á að undanförnu.
\