Morgunblaðið - 11.02.1982, Side 11

Morgunblaðið - 11.02.1982, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982 11 inga en við berum ábyrgð á manns- lífum,“ sagði Ingibjörg Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítalan- um. „Ofan á lág laun bætist svo mik- ið vinnuálag og erfiður vinnutími, en við þurfum að vinna á kvöldin, á næturnar um helgar og á helgi- dögum, þegar aðrir eiga frí.“ Hefur þú verið lengi óánægð með laun þín? „Já, í eitt og hálft ár eða síðan ég kom frá Noregi þar sem ég starfaði sem hjúkrunarfræðingur en þar hafði ég mun hærri laun en hér.“ Mývatnshettan er góð flík í vetrarveðrum. Þessi mynd er úr Hugur og hönd, sem segir frá þessari hettu eins og var um 1920. Hugur og hönd Heimilisiðnaðarfélagsins Komið er út ritið Hugur og hönd, sem Heimilisiðnaðarféíag Islands gefur út. Litprentað og mikið myndskreytt að vanda. í þessu hefti er mikið af prjónauppskriftum af ýmsu tagi, m.a. af húfum og vettlingum. Greinar eru um litun og um græði- smyrsl úr jurtum. Myndir eru af fallegum listiðnaði. En ein aðal- greinin er um höfðaletur eftir Gunnlaug S.E. Briem, mynd- skreytt, og er forsíðumyndin af höfðaletursstafrófi eftir útskurði á stól séra Ólafs Þorleifssonar frá Söndum. Aftasta greinin er um káfíu og fieira, en það mun vera gömul reiðflík karla. Ritið er 55 síður að stærð, prent- að í Eddu og Ritgreint í Prent- myndastofunni. Ritnefnd þess skipa: Auður Sveinsdóttir, Fríða Kristinsdóttir, Gerður Hjörleifs- dóttir, Hallfríður Tryggvadóttir og Vigdís Pálsdóttir. Hverja telur þú ástæðuna fyrir lágum launum hjúkrunarfræð- inga? „Hér er um kvennastétt að ræða enda þótt nokkrir karlmenn hafi orðið hjúkrunarfræðingar á síð- ustu árum. Einnig kemur það til að starfið er vanmetið." Ert þú vongóð að takist að semja um sérkjarasamninga ykk- ar, þar sem byrjunarlaun hækka úr 11. launaflokki upp í 16. laun- aflokk? „Ég vona það besta, en það er ekki gott hljóðið í samningamönn- unum okkar.“ Hafið þið einhvern sjóð, sem þið getið sótt fjármagn til ef til fjöldauppsagna kemur? „Já það höfum við en hér er um að ræða samnorrænan sjóð hjúkr- unarfræðinga. „Þurfti að fresta skurðaðgerðum vegna skorts á hjúkrunar- fræðingum“ Rætt við Ingveldi Haralds- dóttur hjúkrunarfræðing á Landspítalanum „Kaupid er allt of lágt og starfið lítið metið ef miðað er við þá mennt- un, sem við höft ' auk þess er vinnuálag gífurlegt, til dæmis þá þurfti að fresta skurðaðgerðum í dag vegna þess að hjúkrunarfræðinga vantaði til starfa, því þær urðu að fá að hvíla sig í dag,“ sagði Ingveldur Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur i skurðlækningadeild Landspítalans. Hvert telur þú útlitið á að samningar takist? „Ekki gott enda þótt við teljum kröfur okkar sanngjarnar en við erum nú lægst launaða heilbrigð- isstéttin í dag fyrir utan sjúkra- liða.“ Hvað telur þú að gerist næst? „Ég veit ekki, en ég vona að það komi ekki til fjöldauppsagna, en ef til slíks kemur munum við standa saman að kröfum okkar," sagði Ingveldur Haraldsdóttir. Kosið f Einingu um næstu helgi KOSNINGAR til stjórnar og trúnað- armannaráðs Verkalýðsfélagsins Ein- ingar á Akureyri fara fram í deildum félagsins næstkomandi laugardag og sunnudag. Tveir listar eru í kjöri, a-listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs með Jón Helgason, núverandi formann Einingar í formannssæti, og b-listi, sem borinn er fram af Jóni Sigurði Þorsteinssyni og fleinim, en þar er Guðmundur Sæmundsson í formanns- sæti. Kjörfundir standa frá klukkan 9—18 báða dagana. Á Akureyri verð- ur kosið í Alþýðuhúsinu, á Dalvík, Ólafsfirði og í Hrísey í skrifstofum félagsins og á Grenivík í samkomu- húsinu. í stjórn og varastjórn Ein- ingar sitja 12 manns, en aðal- og varamenn í trúnaðarmannaráði eru 50 talsins. ÞREFALT TIL FICFFAIT / / • • R EI H 01 sn D U M EFTIR UMSAMINN SPARNAÐ / Útvegsbankanum býdst þér nú aö semja um lán sem þrefaldar handbært fé þitt, jafnvel fjórfaldarþaö. Þú safnar einhverri umsaminni upphæö inn á viöskiptareikning á umsömdum tíma og bankinn bætir láni viö hana til útborgunar aö söfnunartíma liönum, auk þeirra vaxta sem þú hefur áunniö þér. Þessi nýi lánaflokkurheitir Þlúslán, því lániö bætist viö þaö fé sem þú safnaöir. Unnt eraö semja um Þlúslán á öllum afgreiöslustööum bankans. Jafnframt liggja þar frammi bæklingar sem veita nánari upplýsingar. Öllum er frjálst aö opna Plúslánareikning hvort sem þeir hafa skipt viö Útvegsbankann hingaö til eöa ekki og Plúslán hafa engin áhrifá aöra fyrirgreiöslu sem lántaki kann aö njóta í bankanum. Erekki Útvegsbankinn einmitt bankinn fyrir þig? ÚTVEGSBANKANS ÞÚ SAFNAR OG BANKINN BÆTIR VIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.