Morgunblaðið - 11.02.1982, Page 14

Morgunblaðið - 11.02.1982, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982 Þegar báknið bregst Vandræðin með grásleppuhrognasölu Sambandsins eftir Óttar Yngvason Vandræðin með grásleppuhrogna- sölu Sambandsins Birgðastaða og sölumál grá- sleppuhrogna hafa vissulega verið mörgum framleiðendum áhyggju- efni undanfarna mánuði eins og Ólafur Jónsson, varafram- kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar Sambandsins, segir í grein sinni í Mbl. 5. febrúar sl. Þar staðfestir hann jafnframt, að sjávarafurðadeildin hafi alla tíð verið í hópi stærstu útflytjenda þessarar vöru. En einnig hafi að jafnaði 5—10 aðrir aðilar haft út- flutning grásleppuhrogna með höndum. Er það vitað, að Sambandið hef- ur oft verið með 5—6.000 tunna útflutning. af 14—18.000 tunna heildarframleiðslu. Lágmarksverðið Um langt árabil hefur sú regla gilt, að í upphafi hverrar vertíðar hefur viðskiptaráðuneytið ákveðið lágmarksútflutningsverð á grá- sleppuhrognum og var það ákveðið í byrjun vertíðar 1981 $ 330 á tunnuna. Hafa ailir útflytjendur fram til þessa selt á þessu lág- marksverði, sem telja má prýði- legan árangur í hálfgerðu kreppu- ástandi í viðskiptaheimi síðustu missera. Birgðirnar Enn eru þó óseld grásleppu- hrogn frá síðustu vertíð í verulegu „Á sama tíma og litlu útflytjendurnir hafa þó getað selt verulegt magn á fyrirfram til- skyldu lágmarksverði, situr Sambandið uppi með meginhlutann af framleiðslu sinna við- skiptavina.“ magni eða 6—7.000 tunnur, en all- mikið magn hefur skemmst í lé- legum geymslum og hefur verið Ueygt. En hver á nú óselt megnið af þessum birgðum? Varafram- kvæmdastjórinn upplýsir það í áð- urnefndri grein, að Sambandið hafi enn til sölumeðferðar um 4.500 tunnur af birgðum frá sl. vertíð eða með öðrum orðum meg- inpartinn af því sem óselt er. Jafnframt staðfesta þessar upp- lýsingar varaframkvæmdastjór- ans, að Sambándið hefur nánast ekki selt neitt, sem heitið getur, af grásleppuhrognaframleiðslu sl. árs, það hefur sem sagt „gleymt" söluhlutverki sínu á þessu sviði. Á sama tíma og litlu útflytjend- urnir hafa þó getað selt verulegt magn á fyrirfram tilskildu lág- marksverði, situr Sambandið uppi með meginhlutann af framleiðslu sinna viðskiptavina. U nd ir boðstillagan Við þessar aðstæður segir vara- framkvæmdastjórinn: „Það er hægt og létt verk að breyta um stefnu nú, í stað þess að sigla skútunni í strand ... Ég hef mín fyrirmæli um að vinna að lausn þessa máls. Hér er mín tillaga." Já, vissulega er það hægt og létt verk að framkvæma tillögu vara- framkvæmdastjórans, sem er að lækka söluverð fyrirliggjandi birgða úr $ 330 í $ 255 tunnuna (dkr. 1.950,00 og DM 595,00) eða lækka verð birgðanna, sem Sam- bandið hefur gleymt að selja um 22,7%. Með því að lækka verðið svo stórkostlega niður fyrir verð litlu útflytjendanna, mun Sambandið ekki aðeins skaða sína framleið- endur innanlands, heldur um leið skaða verulega þá erlendu kaup- endur íslenskra grásleppuhrogna, sem hafa skipt við litlu útflytjend- urna og grei.tt hið fyrirfram ákveðna lágmárksverð vertíðar- framleiðslunnar, þar sem nú koma erlendir keppinautar upp að hlið fyrri kaupenda með langtum lægra innkaupsverð á hráefni, en þeir síðarnefndu urðu að greiða til litlu útflytjendanna. Verðlækkun aðeins fyrir SÍS Það er hálfhjákátlegt að lesa Gæti jafnvel þýtt að öllu verði skotið á frest - segir Ingvar Gíslason um ákvörðun Dana að vera ekki með í NORDSAT „ÉG TEL NÚ ofsagt, að þetta séu endalok NORDSAT, en auðvitað hefur þetta veruleg áhrif á framkvæmdina og gæti jafnvel þýtt að öllu verði skotið á frest“, sagði Ingvar Gíslason menntamálaráðherra, er Mbl. spurði hann álits á hver áhrif ákvörðun Dana um að taka ekki þátt í hugsanlegri samvinnu Norðurlanda um sjónvarpshnött, en hann hefur gengið undir nafninu NORDSAT. Eiður Guðnason fulltrúi íslands í menn- ingarmálanefnd Norðurlandaráðs sagði að auðvitað setti þetta stórt strik í reikninginn og ylli það sér vonbrigðum, en að honum kæmi á óvart, ef þetta yrðu endalok málsins. Ingvar og Eiður sögðu báðir, að mál þetta yrði til umfjöllunar á þingi Norðurlandaráðs, sem hald- Þykkvibær: EKKI er gert ráð fyrir, að kartöflu- verksmiðjan í Þykkvabæ taki til starfa fyrr en eftir 4—6 vikur. Magnús Sigurlásson, fréttaritari Morgunblaðsins í Þykkvabæ, sagði þegar rætt var við hann, að ástæðan fyrir því að verksmiðjan væri ekki enn tekin til starfa, væri að vélar, ið verður í Finnlandi í byrjun marz. Menntamálaráðherra sagði einnig: „Ég verð þó að segja að sem hefðu átt að vera komnar til landsins um miðjan nóvember, væru ekki enn komnar. Sagði hann, að megnið af vélun- um væri komið í verksmiðju Kart- öfluverksmiðjunnar hf., en það væru 2 vélar, sem allt strandaði á. þessi ákvörðun Dana kom mér ekki á óvart. Þetta hefur verið ákaflega óljóst hjá þeim. Þegar menntamálaráðherrar landanna komu saman í endaðan nóvember sl., þá stóðu fyrir dyrum kosn- ingar í Danmörku og bar mennta- málaráðherra Dana það fyrir sig og vildi ekkert segja um hver stefna þeirra yrði í málinu." Um áhrif ákvörðunar Dana sagði hann: “Þetta getur haft veruleg áhrif á afstöðu manna. Þetta er mikið högg fyrir framtíðina og fyrir þátttökuhugmyndir okkar, þó ekki væri af öðru en kostnaðar- ástæðum." Hann sagði í lok, að málið myndi skýrast á Norður- landaráðsþinginu, en þetta breytti myndinni mikið. Eiður Guðnason sagði, að þetta gæti auðvitað skaðað málstaðinn, en þess bæri að gæta, að framfarir á þessu sviði væru svo örar að það væri nánast óljóst frá degi til dags hvað við tæki. Hann sagðist ein- göngu vona, að þessi afstaða Dana yrði ekki til að drepa hugmyndina, sem hann sagði geta orðið upphaf- ið á einstæðri samvinnu Norður- landanna. , Kartöfluverksmiðjan á stad eftir 4—6 vikur Tvær benzínhækkanir á liðlega viku: Benzfnkostnaður hringinn úr 1240 krónum í 1390 LjÓHm. Mbl. ÓI.K. Magnússon. Fulltrúar ASÍ ásamt vísitölunefndarmönnum við upphaf fundar í ráð- herrabústaðnum á þriðjudag. Næstu fundir vísi- tölunefndar í dag Vísitölunefnd ríkisstjórnarinnar hélt tvo fundi á þriðju- dag, annan með fulltrúum Alþýðusambands íslands og hinn með fulltrúum Vinnuveitendasambandsins og Vinnu- málasambandsins. Voru fundirnir, samkvæmt heimiidum Mbl., almennir viðræðufundir, og sögðu vísitölunefndar- menn, að þeim væri ætlað að kanna viðhorf og hugmyndir fulltrúa hagsmunaaðilanna til hugsanlegra breytinga á vísitölugrundvellinum. Ekki voru kynntar neinar hug- myndir ríkisstjórnarinnar, aðrar en þær sem fram koma í skýrslu hennar um aðgerðir í efnahagsmálum. Næstu fundir vísitölu- nefndarinnar verða að sögn formanns nefndar- innar, Þórðar Friðjóns- sonar, haldnir í dag, fimmtudag, en þá koma til funda fulltrúar frá BSRB, BHM, Sambandi bankamanna, Stéttarsam- bandi bænda og Far- manna- og fiskimanna- sambandinu. Fundum þessum verður síðan hald- ið áfram í næstu viku. á bfl, sem eyðir um 10 lítrum benzíns á 100 km HAFI hringvegurinn verið ekinn á bfl, sem eyðir um 10 lítrum benzíns, fyrir tíu dögum, var benzínkostnaðurinn liðlega 1240 krón- ur. Fyrir viku hækkaði benzínkostnaðurinn upp í liðlega 1315 krón- ur þegar benzín hækkaði um 5,9% í verði og í gær kom svo enn einn glaðningurinn, þegar ríkið hækkaði benzínið um 5,6%, sem gerir það að verkum, að umræddur benzínkostnaður er kominn upp í 1390 krónur. Ilringvegurinn er talinn vera um 1470 km. Benzínkostnaðurinn við að aka hringveginn á meðalstórum bíl, sem eyðir um 15 lítrum benzíns, var fyrir fyrri hækkun um 1860 krónur. Á laugardaginn fyrir viku hækkaði talan í lið- lega 1970 krónur og í gær var kostnaðurinn kominn í tæplega 2100 krónur. Kostnaðurinn vL hringveginn á <eydsl3rwítiíuííl sem eyðir um 20 lítrum benzíns á 100 km, var fyrir hækkunina um síðustu helgi tæplega 2500 krónur, en fór í liðlega 2630 krónur á laugardag fyrir viku og í gær komst þessi kostnaður svo upp í tæplega 2800 krónur. Það kostaði um 93 krónur, að km, og ekið var til Þingvalla frá Reykjavík og til baka, fyrir fyrri hækkun. Sá kostnaður fór í 98 krónur og um síðustu helgi og í liðlega 104 krónur í gær. Hafi umræddur bíll eytt um 15 lítrum benzíns á 100 km var kostnaðurinn fyrir fyrri hækk- unina um 140 krónur, en fór í tæplega 150 krónur um síðustu helgi og í 156 krónur í gær. Loks var kostnaðurinn fyrir bíl, sem eyðir um 200 lítrum benzíns á þessari ieið um 186 krónur fyrir fyrri hækkunina, en fór í um 197 krónnr ujji síð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.