Morgunblaðið - 11.02.1982, Side 20
2 0 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
Kennedy-spólurnar:
Athygli beint að
gamalli frétt
AÐDÁENDUR John F. Kennedys, fv. Bandaríkjaforseta,
eiga nú í vök að verjast. Athygli aimennings hefur verið
beint að þeirri staðreynd að hann tók samtöl sem hann átti
í Hvíta húsinu upp á seguibönd án vitundar viðmælenda
sinna. I»etta hefur verið vitað í þó nokkur ár, en í síðustu
viku birti Washington Post lista sem John F. Kennedy-
bókasafnið hefur gert yfir samtölin í uppsláttarfrétt og
aðrir fjölmiðlar fylgdu á eftir. Leiðara- og dálkahöfundar
höfðu sitt að segja en verst hefur þetta komið við kaunin á
frjálslyndum.
Kennedy heitinn Bandaríkjaforseti á skrifstofu sinni í Hvíta húsinu.
Hann lét taka upp alls 325 samtöl, sem hann átti, og að viðmælanda
sínurn forspurðum.
Vitað er að fimm forsetar
Bandaríkjanna hafa tekið samtöl
í Hvíta húsinu upp á segulband.
Franklin D. Roosevelt gerði það
fyrstur, siðan Dwight D. Eisen-
hower, John F. Kennedy, Lyndon
B. Johnson og loks Richard M.
Nixon. Fyrst komst upp um Nix-
on og allt ætlaði um koll að
keyra. Upptökutæki Nixons fóru
af stað í hvert sinn sem einhver
talaði í skrifstofu forseta. Hann
var svo óvarkár í samræðum sín-
um að hægt var að nota spólurn-
ar gegn honum í Watergate-
málinu og á endum varð hann að
segja af sér embætti.
Nú hlakkar í stuðnings-
mönnum Nixons. Aðdáendur
Kennedys passa sig á að gagn-
rýna upptökurnar en minnast þó
á sagnfræðilegt gildi þeirra. Þeir
benda einnig á að Kennedy tók
ekki upp öll samtöl sem hann
átti, heldur lét einkaritara sinn
vita þegar hann átti símtal sem
Jiann taldi þess virði að eiga á
spólu.
Hann tók meðal annars upp
samtöl við MacArthur hershöfð-
ingja, Adlai Stevenson, Richard
Daley, Tito og Robert Kennedy.
Þeir sem enn eru á lífi og hann
tók upp samtöl við hafa yfirleitt
látið sig fréttina litlu skipta.
Dean Rusk, fv. utanríkisráðherra,
sagði að fundir með forsetanum
hefðu oft verið teknir upp á spólu
og allir hefðu vitað af því. Hann
sagði að það væri í lagi sín vegna
þótt samtöl hefðu einnig verið
tekin upp að honum forspurðum.
Frederick G. Dutton, fv. aðstoð-
arutanríkisráðherra, sagði hins
vegar að sér þætti slæmt að
heyra að samtöl hans hefðu verið
tekin upp. „Mér finnst forsetar
ekki hafa rétt til að taka upp
einkasamtöl frekar en aðrir,"
sagði hann.
Archibald Cox, saksóknari í
Watergate-málinu, sem barðist
fyrir því að komast yfir spólur
Nixons, vildi ekki tjá sig um tæki
Kennedys. Arthur Schlesinger,
sagnfræðingur og fv. ráðgjafi
Kennedys, hefur heldur ekki vilj-
að segja neitt um þau. Hann
sagði á sínum tíma að það væri
„óhugsandi" að Kennedy hefði
tekið upp samtöl eins og Nixon
gerði.
Edward Kennedy brást við
fréttum fjölmiðla af spólunum
með því að leggja til að efni
þeirra verði birt sem allra fyrst.
Hann sagðist vera viss um að
„bandaríska þjóðin yrði áfram
hreykin af John F. Kennedy" eft-
ir að hún fengi að sjá það sem
spólurnar hafa að geyma. Dálka-
höfundurinn Carl T. Rowan er
hins vegar ekki eins viss um það.
Hann spyr: „Vill nokkur í raun-
inni heyra segulbandsspólur sem
sýna að J.F.K. gat verið orðljótari
en Nixon, hafði meiri áhuga á að
heyra sögur um viðhald forseta
Finnlands en vandamál Banda-
ríkjanna í Finnlandi og reyndi að
rugla um fyrir blaðamönnum sér-
staklega varðandi harða stefnu
sína í Indókína?" Sagnfræðingar
líta á spólurnar sem gullnámu en
skuggi mun falla á mannorð
margra.
Nú er unnið að úrvinnslu efnis-
ins á spólunum. Kennedy tók alls
um 325 samtöl. Talsmaður bóka-
safnsins sagði að um 60% efnis-
ins sem tekið var upp á fundum
kynni að verða birt en aðeins um
10% simtalanna. Annað efni
kann að flokkast undir ríkis-
leyndarmál.
Erfitt er að segja til um hversu
mikill áhugi almennings á sam-
tölum Kennedys eða annarra for-
seta í rauninni er. Fólk er ekki
eins uppveðrað og hneykslað af
fréttum af upptökum í Hvíta hús-
inu nú og fyrir 9 árum síðan. Nú
veltir það því fyrir sér hvort Ron-
ald Reagan taki ekki einnig upp
samtöl sín svo hann geti skrifað
endurminningar og sagnfræð-
ingar hafi eitthvað að vinna úr í
framtíðinni. Hann segist aðeins
taka upp fundi sem hann á með
fréttamönnum. En hver veit, fjöl-
miðlar geta kannski slegið sér
upp á frétt af því eftir 10 ár.
Listamannalaun 1982:
Níu listamenn flytjast
UTHLUTUNARNEFND listamannalauna hefur lokið störfum.
A þessu ári hljóta 149 manns listamannalaun, en það er 6 færri
en í fyrra. Að þessu sinni hafði nefndin 1115 þús. kr. til
ráðstöfunar en 765 þús. í fyrra. Var 94 listamönnum nú úthlut-
að tíu þúsund krónum hverjum, en fjörutíu var úthlutað fimm
þúsund krónum hverjum. Fjölgaði því í efri flokki um fjóra frá
því í fyrra en fækkaði um þrettán í neðri flokki. Af þessum 149
listamönnum sem nú hlutu laun eru fimmtán í heiðurslauna-
flokki, nema þau laun kr. 33.750 kr. á mann og eru þau veitt af
Alþingi sérstaklega, en ekki af úthlutunarnefnd listamanna-
launa.
Þrír menn bættust á
þessu ári í hóp þeirra er
hljóta heiðurslaun, þeir
Ólafur Jóhann Sigurðsson,
Stefán Islandi og Svavar
Guðnason, en frá því hefur
áður verið skýrt í Mbl.
Níu manns bættust nú í
efri flokk þeirra er hljóta
listamannalaun. Þau eru:
Gísli Magnússon píanóleik-
ari, Gísli Sigurðsson list-
málari, Gréta Sigfúsdóttir
rithöfundur, Jónas Guð-
mundsson rithöfundur og
listmálari, Karen Agnete
Þórarinsson iistmálari,
Kristinn Reyr skáld, Óskar
Aðalsteinn rithöfundur,
Sveinn Björnsson listmál-
ari og Vilborg Dagbjarts-
dóttir skáld.
Hvað varðar neðri flokk,
samþykkti úthlutunar-
nefndin að þann flokk
skyldu að þessu sinni fylla
þeir einir sem ekki hefðu
verið þar í fyrra og hefur
nefndin hug á að fylgja
þeirri reglu í framtíðinni
hvað þennan flokk varðar.
Hins vegar hefur sú hefð
skapast að komist lista-
menn í efri flokk, skuli þeir
halda sæti sínu þar ár frá
ári.
Úthlutunarnefnd lista-
mannalauna er þannig
skipuð: Bolli Gústavsson
sóknarprestur, formaður,
Jón R. Hjálmarsson,
fræðslustjóri, ritari, Bessí
Jóhannsdóttir kennari,
Gunnar Stefánsson bók-
menntaráðunautur, Halldór
Blöndal alþingismaður,
Magnús Þórðarson fram-
kvæmdastjóri og Sverrir
Hólmarsson menntaskóla-1
kennari.
Hér fer á eftir listi yfir
þá sem hljóta listamanna-
laun á þessu ári:
ÁÐUR VEITT AF ALÞINGI
33.750 KRÓNUR HVER:
Ásmundur Sveinsson,
Finnur Jónsson,
Guðmundur Daníelsson,
Guðmundur G. Hagalín,
llalldór Laxness,
Indriði G. Þorsteinsson,
Kristmann Guðmundsson,
María Markan,
Olafur Jóh. Sigurðsson,
Snorri lljartarson,
Stelán Islandi,
Svavar Guðnason,
Tómas Guðmundsson,
Valur Gíslason,
Þorvaldur Skúlason.
VEITT AF NEFNDINNI
10.000 KRÓNUR HVER:
Agnar l'órðarson,
Alfreð Flóki,
Atli Heimir Sveinsson,
Ágúst Petersen,
Ármann Kr. Einarsson,
Árni Björnsson,
Oskar Nveinn Vilborg
Þessi flytjast í efri flokk
Árni Kristjánsson,
Benedikt Gunnarsson,
Björn J. Blöndal,
Björn Olafsson.
Bragi Ásgeirsson,
Bragi Sigurjónsson,
Einar Bragi,
Finar Ilákonarson,
Eiríkur Smith,
Eyþór Stefánsson,
Gísli Halldórsson,
Gfsli Magnússon,
Gísli Sigurðsson,
Gréta Sigfúsdótlir,
Guðbergur Bergsson,
Guðmunda Andrésdóttir,
Guðmundur L Friðfinnsson,
Guðmundur Frímann,
Guðmundur Jónsson,
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
í efri
Guðrún Á. Símonar,
Gunnar Dal,
Gunnar Eyjólfsson,
Gunnar M. Magnúss,
llallgrímur Helgason,
Hannes Pétursson,
Hannes Sigfússon,
Heiðrekur Guðmundsson,
Hringur Jóhannesson,
Ingimar Erlendur Sigurðsson,
Jakobína Sigurðardóttir,
Jóhann Briem,
Jóhann Hjálmarsson,
Jóhannes Geir,
Jóhannes Ilelgi,
Jóhannes Jóhannesson,
Jón Ásgeirsson,
Jón Björnsson,
Jón Dan,
Jón Helgason,
Jón Nordal,
Jón Oskar,
Jón Þórannsson,
Jón úr Vör,
Jónas Árnason,
Jónas Guðmundsson,
Jórunn Viðar,
Karen Agnete l>órarin.sson,
Karl Kvaran,
Kjartan Guðjónsson,
Kristinn Reyr,
Kristján Albertsson,
Kristján Davíðsson,
Kristján frá Djúpalæk,
leifur Imrarinsson,
Manuela Wiesler,
Matthías Johannessen,
Oddur Björnsson,
Ólöf Pálsdóttir,
Óskar Aðalsteinn,
Pétur Friðrik,
Ragnheiður Jónsdóttir,
Róbert Arnfinnsson,
Rúrik Haraldsson,
Rögnvaldur Sigurjónsson,
Sigfús Daðason,
Sigfús Halldórsson,
Sigurður A. Magnússon,
Sigurður Sigurðsson,
Sigurjón Olafsson,
Skúli llalldórsson,
Stefán llörður Grímsson,
Stefán Júlíusson,
Steinþór Sigurðsson,
Sveinn Björnsson,
flokk
Sverrir Haraldsson,
Thor Vilhjálmsson,
Tryggvi Emilsson,
Valtýr Pétursson,
Veturliði Gunnarsson,
Vésteinn Lúðvíksson,
Vilborg Dagbjartsdóttir,
Þorkell Sigurbjörnsson,
Þorsteinn frá Hamri,
Þorsteinn Ö. Stephensen,
Imroddur Guðmundsson,
Þuríður Pálsdóttir,
Örlygur Sigurðsson.
5.000 KRÓNUR HVER:
Agúst Guðmundsson,
Ásgeir Jakobsson,
Ásgerður Ester Búadóttir,
Áskell Másson,
Baldur Eiríksson,
Benedikt Jónsson,
Björn Guðjónsson,
Davíð Oddsson,
Edda Jónsdóttir,
Elías Halldórsson,
Erlendur Jónsson,
Fjölnir Stefánsson,
Fríða Sigurðardóttir,
Garðar Cortes,
Guðmundur Elíasson,
Gunnar Hjaltason,
Gylfi Gíslason,
Gylfi Gröndal,
Halldór Haraldsson,
llaraldur Zóphaníasson,
Herdís Kgilsdóttir,
Hreiðar Stefánsson,
Jakob Jónsson,
Jakob Tryggvason,
Jón Reykdal,
Kjartan Ragnarsson,
Kristinn G. Jóhannsson,
Lárus Sveinsson,
Magnús Bl. Jóhannsson,
Matthea Jónsdóttir,
Nína Björk Árnadóttir,
Pálmar Þ. Eyjólfsson,
Ragnar Kjartansson,
Sigurður K. Árnason,
Steingrímur Sigurðsson,
Steinunn Sigurðardóttir,
Þorbjörg Höskuldsdóttir,
l*órarinn Eldjárn,
Isirir Guðbergsson,
Örn Ingi Gíslason.