Morgunblaðið - 11.02.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982
25
sömuleiðis Ásgeir Þór Árnason,
sem á góða vinningsmögulcika
gegn Mednis. í fyrrakvöld slapp
Mednis fyrir horn með þráskák
gegn Magnúsi Sólmundarsyni og á
ótrúlegan hátt náði hann jafntefli
gegn Ásgeiri í gær. Jóhann Hjart-
arson átti örlítið betra, riddara
gegn peði, gegn Shamkovic.
Það er sérstakt andrúmsloft á
Kjarvalsstöðum þessa dagana. Er
skámennirnir 54, sem taka þátt í
mótinu, en um 15 manns forfölluð-
ust, setjast að borðunum klukkan
16.30 dag hvern er allt með friði og
spekt. Lengi vel gerist lítið spenn-
andi, en síðan allt í einu, eins og
hendi sé veifað, fara hlutirnir að
gerast. Skákirnar þróast, einn
sækir, meðan annar flækir, marg-
ir verjast og allir eru menn þarna
til að berjast. Um klukkan 21 fer
tímaskortur að hrjá menn fyrir
alvöru, en sumir eru þannig, að
þeir eru alltaf í tímahraki. Nokkr-
ar skákir vekja alltaf meiri at-
hygli en aðrar og þá einkum skák-
ir íslenzku titilhafanna, en úr
þessu fer hópurinn trúlega að
grisjast, toppur að skera sig frá
botni.
X. REYKJAVIKUR
SKÁKMOTIÐ
Úrslit í
gærkvöldi
Skákskýringar verða á Kjar-
valsstöðum þá daga, sem teflt er,
en trúlega verður að skipuleggja
þær betur en gert hefur verið. I
gærkvöldi brá einn skákmann-
anna sér á salerni og kom þá að
skákskýrendum. Þá var einmitt
verið að athuga skák hans og sagði
hann að skákinni lokinni, að þar
hefði hann séð góðan leik í einni
stöðunni og þannig sparað sér
tíma.
í kvöld er Viktor Korchnoi
væntanlegur til landsins og mun
að öllum líkindum skýra skákir að
Kjarvalsstöðum þegar í kvöld.
Hann kemur hingað í boði Skák-
sambands Islands og dvelur hér
fram á þriðjudag. Upphaflega ætl-
aði Korchnoi að tefla á mótinu, en
kemur því ekki við vegna þátttöku
á móti á Italíu. Korchnoi mun þó
örugglega hafa ýmislegt til mál-
anna að leggja er hann kemur.
Friðrik Ólafsson, forseti FIDE,
var spurður að því í gær hvort
hann myndi hitta Korchnoi til að
ræða fjölskyldumál hans. Friðrik
sagði að um slíkt hefði ekki verið
rætt og enginn fundur þeirra
ákveðinn. Aðspurður um stöðu
þeirra mála sagði Friðrik, að ekk-
ert nýtt væri að frétta. Hann hefði
fengið yfirlýsingar Sovétmanna á
sínum tíma varðandi Igor son
Korchnois og Bellu konu hans og
sagðist vona, að lausn fengist á
þessu máli í maí eða júní næst-
komandi.
Þriðja umferð Reykjavíkur-
skákmótsins hefst að Kjarvals-
stöðum klukkan 16.30 í dag.
— »U
í Reykjavíkurskákmótinu urðu úr
slit sem hér segir í 2. umferðinni í
gærkvöldi:
K. Helmers - Friðrik Ólafsson 'Æ-'/z
Jóhann Hjartarson -
L. Shamkovich, 'h - 'h
Helgi Ólafsson - A. Kuligowski 1-0
G. Sahovic - Margeir Pétursson 'h-'h
A. Abramovic - G. Forintos lh-‘h
L. Schneider - M. Bajovic 1-0
L. Alburt - T. Horvath 1-0
A. Adorjan - K. Kaiszauri 1-0
K. Bischoff - R. Byrne 0-1
B. Ivanovic - Magnús Sólmundarson,
biðskák
Haukur Angantýsson - K. Frey 1-0
R. Grunberg - D. Gurevich 0-1
Elvar Guðmundsson - B. Kogan,
biðskák
Jón L. Árnason - D. Goodman 1-0
Róbert Harðarson - Kindermann 0-1
Jónas P. Erlingsson - C. Höi, biðskák
K. Burger - G. Krahenbuhl 'h-'h
Dan Hansson - T. Wedberg 0-1
Stefán Briem -
Guðmundur Sigurjónsson, 0-1
Leifur Jósteinsson - H. Westerinen
E. Mednis - Ásgeir Þ. Árnason, 'h-‘h
N. de Firmian - Sævar Bjarnason 1-0
Júlíus Friðjónsson - V. Zaltsman 0-1
G. Iskov - Hilmar Karlsson 'h-'h
Jóhannes Gísli Jónsson -
Benedikt Jónasson 'h-'h
Jóh. Örn Sigurjónsson - Savage 'h-'h
Jóhann Þórir Jónsson -
Karl Þorsteins 'h-'h
Þremur þeirra skáka, sem fóru í
bið í fyrrakvöld í 1. umferðinni
lauk ekki þegar skákmennirnir
settust aftur að borðinu, en í hin-
um fjórum skákunum úrslit sem
hér segir:
Magnús Sólmundarson - Mednis 'h-'h
G. Krahenbuhl - Jón L. Árnason 'h-'h
T. Wedberg - Stefán Briem 'h-'h
Benedikt Jónasson -
Jóhann Hjartarson 0-1
Skák Jóhanns Hjartarsonar og Shamkovics var skemmtileg.
íslensku
arnir
titilhaf-
vel
Enginn íslensku titilhafanna á al-
þjóðamótinu hefur enn sem komið
er tapað skák og hafa þeir þó flestir
teflt við öfluga útlendinga. í gær
kvöldi bar landinn sigur úr býtum í
þremur skákum við útlendinga.
Haukur Angantýsson vann alþjóða-
meistarann Frey frá Mexíkó, Helgi
Ólafsson vann pólska stórmeistar
ann Kuligowski og Jón L. Árnason
vann enska FIDE-meistarann Good-
man.
Ilaukur Angantýsson náði
snemma öruggum tökum á Frey og
hagnýtti sér síðan afleik Mexikan-
ans í tímahraki til þess að gera end-
anlega út um skákina:
Svart: Frey (Mexíkó)
HvítL* Haukur Angantýsson
Síðasti leikur svarts var 35. He8
— d8, sem gefur hvítum kost á að
ná örlagaríkri leppun:
36. Dd4! — I)h4 Örvænting. Svart-
ur fær ekki varist hótuninni 37. e6.
37. e6 — Bxe6, 38. Dxd8 — Df2+
39. Rg2 — Dxb2, 40. Dxc7 — Dxb3,
41. Hd8 — Dxc4, 42. De7 og Frey
gafst upp.
Fyrstur til að vinna skák í ann-
arri umferðinni var sænski oal-
þjóðameistarinn Lars-Áke
Schneider, sem fléttaði stórglæsi-
lega gegn júgóslavneska FIDE-
meistaranum Bajovic. Staðan kom
upp eftir 19. leik svarts:
Svart: Bajovic ( Júgóslavíu)
Hvítt: Schneider (Svíþjóð)
20. Rxe6! — fxe6, 21. Dxe6+ — Bf7,
22. Hxd8+ — Hxd8, 23. Hxd8+ —
Dxd8. Ef 23. - Rxd8? þá 24. De8
mát.
24. Dxd8+ — Kh8 og Júgóslavinn
gafst upp um leið, án þess að bíða
eftir því að hvítur hirti þriðja peð-
ið með 25. Dxb7.
Það er vissara að trekkja klukkurn-
ar áður en skákirnar hefjast, en
Guðmundur Arnlaugsson, yfirdóm-
ari, sér um að allt fari fram eins og
bezt verður á kosið.
byrja
lilliu
Svart: Helmers (Noregi)
Hvítt Hilmar Karlsson
20. — Bf4! og hvítur gafst upp, því
eftir 21. Dxf4 — Bd3+ tapar hann
drottningunni.
Nokkrir íslendinganna mættust
innbyrðis í fyrstu umferðinni og
það vakti einnig athygli að Ung-
verjunum Adorjan og Horvath var
raðað saman.
Svart: Jóhann Örn Sigurjónsson
Hvítt: Margeir l'étursson
27. Hxe7! — Bxe7, 28. d6 — Bxe6,
29. Bxe6 og svartur gafst upp án
þess að bíða eftir svarinu við 29.
— Bf6, sem yrði 30. Bd5+! og hvít-
ur vinnur heilan hrók.
Ásgeir Þ. Árnason tefldi að
venju sinni stíft til sóknar gegn
bandaríska alþjóðameistaranum
Burger. Eftir byrjunina kom til
skemmtilegra sviptinga:
Svart: Burger (Bandaríkjunum)
Hvítt: Ásgeir Þ. Árnason
14. 0-0-0! - exf4, 15. Bc4 - Ra5,
16. Bxd5 — Bxd5, 17. e4 — Bxa2!,
18. Hxd8, 19. Rd2 - c4, 20. Da4 -
Rb3+, 21. Rxb3 — Bxb3, 22. Db5 -
Bxg5, 23. Dxg5 - f3, 24. h5! Hvítur
verður að hafa hraðan á, því
svartur hótar að tvöfalda hrókana
á d-línunni.
24. — fxg2, 25. Dxg2 — Hd7, 26.
hxg6 — fxg6, 27. Dg4 og hér sætt-
ust keppendur á jafntefli, því eftir
27. — Hfd8, 28. De6+ þráskákar
hvítur.
Skemmtilegustu skák fyrstu
umferðarinnar má hiklaust telja
viðureign bandaríska stórmeistar-
ans Shamkovich og Danans Iskov.
Iskov beitti hinni þekktu Mar-
shall-árás í spænska leiknum og
fórnaði peði, en Shamkovich bætti
um betur, fórnaði skiptamun og
náði óstöðvandi sókn.
Hvíth Shamkovich (Bandaríkjunum)
Svart: Iskov (Danmörku)
Spænski leikurinn
I. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5 —
a6, 4. Ba4 — Rf6, 5. 0-0 — Be7, 6.
Hel — b5, 7. Bb3 — 04), 8. c3 — d5.
Þessi peðsfórn ber heitið Mar-
shall-árásin.
9. exd5 — Rxd5, 10. Rxe5 — Rxe5,
II. Hxe5 — c6, 12. d4. Skák þeirra
Robert Byrnes og Hauks Angan-
týssonar í fyrstu umferðinni tefld-
ist þannig: 12. d3 — Bd6, 13. Hel
- Bf5, 14. Rd2 — Bxd3, 15. Rf3 —
Bg6, 16. Bg5 - Dd7, 17. Re5 -
Bxe5, 18. Hxe5 — Hfe8, 19. Hxe8
- Hxe8, 20. Dd2 - h6, 21. Bf4 -
Hd8, 22. Hdl og hvítur hefur
nokkru betri stöðu, en Hauki tókst
að halda sínu.
12. — Bd6, 13. Hel — Dh4, 14. g3
- Dh3, 15. He4!? Hugmynd
Mikhails Tal, fyrrum heimsmeist-
ara. Hótunin er nú 16. Hh4.
15. — g5, 16. Df3 En auðvitað ekki
16. Bxg5? — Df5 og svartur vinnur
mann.
16. — Bf5, 17. Bc2! — Hae8, 18.
Bxg5.18. Hxe8 - Hxe8,19. Bxf5 er
svarað með Hel mát.
18. — Bxe4, 19. Bxe4 — He6? Betra
var að draga í land með 19. — De6.
20. Rd2 — f5, 21. Bxd5 — cxd5, 22.
I)xd5 — f4, 23. Hel — Hfe8
24. Bf6! — KI8, 25. Be5 — Bxe5, 26.
dxe5 - Hh6, 27. Rf3 — He7, 28.
Dd8+ — He8, 29. Dd4 — fxg3, 30.
fxg3 — Hh5, 31. He4 — Hf5, 32.
Hh4 og svartur gafst upp.