Morgunblaðið - 11.02.1982, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMM'HfÖÁ'íítíft1!-!: FEBRÚAR 1982
Forsetinn í opinbera heimsókn tii Bretlands:
Hittir björgunarmenn
áhafnar Tungufoss
„FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, mun dveljast í Bretlandi
dagana 17. til 19. lebrúar næstkom-
andi í opinberri heimsókn í boði
bresku ríkisstjórnarinnar," segir í
fréttatilkynningu er Morgunblaóinu
barst í gær frá skrifstofu forscta Is-
lands. I tilkynningunni segir enn-
fremur:
„í heimsókninni mun forseti
m.a. eiga viðræður við forsætis-
ráðherra Breta, frú Margréti
Thatcher, og sitja hádegisverðar-
boð Elísabetar II Bretadrottn-
ingar í Buckinghamhöll. Þá mun
hún skoða minjar um norræn-
bresk menningartengsl og fleira í
breska þjóðminjasafninu. Heim-
sóttur verður skóli fyrir börn sem
skara fram úr, komið í breska
þingið svo og þjóðleikhúsið í
Lundúnum þar sem forseti verður
við leiksýningu.
Að ósk forseta mun hún einnig
hitta björgunarmenn áhafnar m/s
Tungufoss og eiginkonur þeirra.
Forseti fer einnig til Oxford,
þar sem m.a. verða kynntar vís-
indarannsóknir á sviði læknis-
fræði, og til Stratford-on-Avon að
heimsækja Shakespeare-leikhúsið.
Aðalveislu heimsóknarinnar
heldur yfirborgarstjóri, Lord
Mayor, Lundúna.
Forseti mun fara utan hinn 16.
þ.m. og daginn eftir að hinni
opinberu heimsókn lýkur mun hún
taka þátt í þorrablóti Islendinga-
félagsins í Lundúnum.
I fylgdarliði forseta íslands í för
þessari verða dr. Ólafur Jóhann-
esson utanríkisráðherra og Dóra
Guðbjartsdóttir, Hörður Helgason
ráðune.vtisstjóri utanríkisráðu-
neytisins og Sarah Helgason,
Ólafur Egilsson sendiherra og
Ragna Ragnars."
Sjálfstæðisflokkurinn:
Haldnir hafa verið
20 atvinnumálafundir
HALDNIR hafa verið 20 fundir
Sjálfstæðisflokksins um atvinnumál
víðs vegar um landið. Níu fundum
hefur orðið að fresta vegna veðurs
og færðar, en þeir verða haldnir
mjög fljótlega. Fundirnir hafa yfir
leitt verið mjög vel sóttir.
Þeir fundir sem orðið hefur að
fresta og haldnir verða fljótlega
eru á eftirtöldum stöðum: Patr-
eksfirði, Isafirði, Bolungarvík,
Sauðárkróki, Siglufirði, Húsavík,
Egilsstöðum, Reyðarfirði og í
Vestmannaeyjum. Fundir verða
sérstaklega auglýstir.
Patreksfjörður:
Lögreglumcnn leita hér í sorpi úr einum sorpbfla Reykjavíkur, en sá grunur vaknaði að þýfi væri í sorpinu.
Sorpbfllinn var tæmdur og leituðu lögreglumenn að hinu hugsanlega þýfi.
Ljósm. Júlíus.
Leituðu
þýfis
í sorp-
bflnum
VIÐ sorphreinsun í Reykjavík
í gær fannst fyrir tilviljun úr í
sorptunnu og var lögreglunni
gert við vart um fundinn.
Lögreglumenn skoðuðu úrið og
var talið að þarna gæti verið
komið úr, eitt af mörgum, úr
þýfi. Var sorpbíllinn tæmdur
og leituðu lögreglumenn af sér
allan grun og fannst ekkert
frekar í sorpinu sem gat verið
hluti af þýfi.
Afhentu trúnaðarbréf
Nýskipaður sendiherra Vatikanrfkisins, Luigi Bellotti erkibiskup og nýskipaður sendiherra ísraels, Gad Elron,
afhentu hinn 3. febrúar sl. forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, trúnaðarbréf sín að Bessastöðum að
viðstöddum Ólafi Jóhannessyni, utanrfkisráðhcrra. Að afhendingunni lokinni þágu sendiherrarnir boð forsetans
að Bessastöðum ásamt fleiri gestum. Sendiherra Vatikanríkisins hefur aðsetur í Kaupmannahöfn og sendiherra
Israels í Osló.
Vedur hamlar aðföngum og
farið að bera á vöruskorti
l'alreksfirði, 9. febrúar.
SAMGÖNGUR við Patreksfjörð
hafa verið mjög erfiðar að undan-
förnu og er því farið að bera á vöru-
skorti á staðnum. Flug hefur aðeins
verið einu sinni hingað í þessum
mánuði og vörur hafa ekki borizt
hingað sjávarleiðina. Ekki er um
vöruflutninga á landi að ræða.
Síðast var flogið hingað síðast-
liðinn föstudag, en þar áður var
flogið hingað mánudaginn í vik-
unni þar áður. Flutningaskipið
Vela komst ekki hingað inn á leið
sinni frá Reykjavík í síðustu viku
vegna illviðrishams og skipaði því
vörum, sem hingað áttu að koma,
upp á Tálknafirði auk þess sem
einn vörugámur lenti í sjónum.
Ekki tókst betur til er Vela átti að
koma með vörur hingað frá Akur-
eyri, skipið komst ekki hingað inn
og lentu vörurnar til Reykjavíkur.
Þetta hefur valdið kaupmönnum
talsverðum erfiðleikum og vöru-
skorti í bænum, aðallega brauð-
skorti.
Bátar voru á sjó hér í gær og
öfluðu vel, allt upp í 19 lestir. Eng-
inn bátur er á sjó í dag og gæftir
hafa verið afar stirðar að undan-
förnu, en aflazt vel þegar gefið
hefur.
Páll
Eldstöðvar á Reykjanesskaga:
F’JÖLRIT nr. 12 í ritröð Náttúru-
verndarráðs fjallar um eldstöðvar á
Reykjanesskaga, ritað af Jóni Jóns-
syni, jarðfræðingi. Segir í inngangi
að þetta sé hugsað sem bráðabirgða-
yfirlit, og tilgreindar 3 ástæður fyrir
útgáfunni.
1) Þar sem þetta er þéttbýlasta
svæði landsins er þörf fyrir og
ásókn mikil í nýtanleg jarðefni og
eykst sú sókn stöðugt. 2) Segja má
að algert skipulagsleysi hafi und-
anfarna áratugi ráðið varðandi
efnistöku og að umgengni um
námurnar hafi verið eftir því.
Þetta hefur í för með sér óþarfa
umrót til lýta í landslaginu og um
leið slæma nýtingu á efninu. Þetta
kallar á skipulagningu og stjórn
þessara mála. 3) Loks er svo
ástæða til þess að gera sér fulla
grein fyrir því hvers vegna æski-
legt er að friða algerlega eða að
nokkru ákveðna hluta þessa svæð-
is svo langt sem auðið verður.
í upphafi rekur Jón Jónsson
jarðsögu Reykjanesskaga. Þá eru
gerðar tillögur um friðun. Birt yf-
irlit yfir svæði sem vert er að friða
og uppdrættir með tillögum að
friðun. Fjórði kafli fjallar um
námur og ástand þeirra. Þar er
yfirlit yfir námur og uppdráttur
sem sýnir námur. Fimmti kaflinn
er um námur sem nýta mætti og í
lokaorðum segir m.a. að í ritinu
hafi einkum verið rætt um vernd
eldstöðva og það af þeirri einföldu
ástæðu að þær eru margar álitleg-
ar til efnistöku. En ýmislegs fleira
sé þó vert að geta á þessum skaga,
sem taka ber tillit til. Megi í því
sambandi t.d. nefna hella, svo sem
Stromphella við Bláfjöll, Dauða-
dalshella norðan við Grindaskörð
o.fl. Loks megi minna á að eftir
endilöngum skaganum er röð há-
hitasvæða og að þegar til virkjana
jarðhitans komi verði að fara
mjúkum höndum um þetta merki-
lega og sérstæða svæði, sem býður
upp á einstæða möguleika til al-
hliða jarðvísindalegra rannsókna.
Vilja stofna iðn-
garða í Eyjum
„ÞAÐ ER mikill áhugi fyrir því hjá
okkur að auka fjölbreytni í atvinnu-
lífinu hér og í því sambandi er
hugmyndin ad stofna iðngarða fyrir
aðrar greinar en fyrir eru og það er
hlutverk bæjarsjóðs að útvega lán til
slíkra bygginga og koma þeim upp,
annaðhvort til leigu á góðum kjörum
eða til kaupa,“ sagði Sigurður Jóns-
son, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyj-
um, í samtali við Morgunblaðið, en
hann er formaður undirbúnings-
nefndar iðngarða.
„Það eru ákaflega fáir þættir í
iðnaði sem eru starfræktir í Vest-
mannaeyjum," sagði Sigurður, „en
ótal möguleikar. Við höfum því
áhuga á að leita til athafnamanna
sem vilja byggja upp hjá okkur og
koma til móts við þá ef um nýjar
greinar hér er að ræða. Samgöng-
ur milli lands og Eyja eru nú svo
stöðugar og tryggar, bæði sjóleið-
ina og loftleiðis, að Eyjar eru í
rauninni við bæjardyr Stór-
Reykjavikur, þannig að flutningar
til dreifingar á iðnaðarvöru liggja
mjög vel við.“
Fræðslunefnd
Sjálfstæðisflokksins:
Blaðanámskeið-
inu frestað
AUGLÝSTU blaðanámskeiði sem
fræðslunefnd Sjálfstæðisflokksins
stendur fyrir og halda átti á morg-
un, föstudag 12. þ.m., og laugar-
daginn 13. hefur verið frestað
fram yfir mánaðamótin. Nám-
skeiðið verður nánar auglýst síð-
ar.