Morgunblaðið - 11.02.1982, Síða 43

Morgunblaðið - 11.02.1982, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1982 43 Ein plágan tekur við af annarri Hvítauga, nýr ógnvaldur ávaxta- bænda í Kaliforníu San I)iego. Al*. YKIRMKNN landbúnadarmála f Kaliforníufvlki standa nú rádþrota- gagnvart nýrri plágu þar um slóðir. Kkki var fyrr búið að kveða ávaxta- fluguna skæðu að mestu í kútinn er önnur plága skaut mönnum skelk í bringu. Er hér um að ræða örsmáa fuglategund, ættaða frá SA-Asíu og nefnist hvítauga. Fuglarnir vinna gíf- urlegar skemmdir á ávöxtum og grænmeti með því að höggva göt á ytra byrði þeirra. Fugl þesesi hefur ekki gert mönnum gramt í geði þar um slóðir fyrr en tiltölulega nýlega. Talið er að þeir fuglar, sem nú herja á plantekrur Kaliforníumanna, séu afkomendur hvítaugapars, sem slapp úr dýragarðinum í San Diego fyrir átta árum. Gífurleg „spreng- ing“, eins og það er orðað, virðist hafa orðið í fjölgun fuglanna, sem nú eru orðnir hreinasta plága. Undanfarið hafa fuglafangarar Kaliforníufylkis verið á þönum vítt og breitt með segulbönd þar sem þeir eru með upptökur af hljóðum fuglanna á fengitímanum. Hefur þeim tekist að veiða 100 fugla með þeirri aðferð og gera sér vonir um að stemma megi stigu við plágunni er líða tekur á árið. Það varð ekki ljóst fyrr en 1980, að þessi fuglategund léki lausum hala í fylkinu. Reyndar hafði grun- ur læðst að mönnum eftir að hafa séð ummerkin á ávöxtunum, en það var ekki fyrr en fuglaskoðari kom auga á þá í sjónauka að staðfesting fékkst á tilvist þeirra. Ekki eru neinar tölur til um hugsanlegan fjölda hvítaugafuglanna, en þeir eru ofarlega á lista bandaríska landbúnaðarráðuneytisins yfir plágur. KOR LANCHOLTSKIRKJU GATUR Hefur sölufólk Sunnudagsgátunnar komiö til þín? Ef svo er ekki þá geturðu átt von á því hvenær sem er. Og ef svo ólíklega færi að þú hittir ekki sölufólk okkar - þá er að fara á næsta sölustað - þeir eru fjölmargir - allir merktir. Sölufólk okkar er flest úr íþróttafélögunum og sölulaun þess renna þeint í félagssjóð. Sláið margar flugur í einu höggi - takið þátt í skemmtilegum leik þar sem þið getið unnið stóran vinning - styrkið kórinn til áfram- haldandi öflugs menningarstarfs - og styðjið félagsstarfsemi hverfisinsog bæjarfélagsins.. Bingo i Sigtuni i kvöld fimmtudagskvöld kl. 20.30 Húsið opnað kl. 19.30. 16 umferöir, verömæti allt aö 150.000 kr. Aðalvinningur: 4ra dyra Suzuki-bifreið. Utanlandsferðir - Örbylgjuofn - Seikó-úr - Metabo hand- verkfæri - Síldarveizla á Hótel Loftleiðum - Grohe vatnsnuddtæki o.fl. Stjórnandi Hermann Gunnarsson Hver ekur heim á glænýjum Suzuki? HQTEL LOFTLEIÐIR f-FRDASKRIFS TOhAN URVAL Magnús Ó. Ólafsson, heildverslun. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. G. Albertsson hf. Breiðholtskjör Olíufélagid Skeljungur nlis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.