Morgunblaðið - 12.02.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
Verður það verkalýðsfé-
laginu til framdráttar?
- eftir Auði
Guðjónsdóttur
Eins og þið vitið, lesendur góðir,
stendur fyrir dyrum kosning í
stjórn og trúnaðarmannaráð í
Verkalýðsfélaginu Einingu.
Fyrir 2—3 árum fluttist hingað
ungur maður frá höfuðborgar-
svæðinu, sem þrátt fyrir menntun
sem hann hafði aflað sér, gerðist
hér „öskukarl" eins og hann hefur
sjálfur kallað sig. Sagt er að hann
hafi reynt að koma sér í stöður í
Verkalýðsfélaginu Dagsbrún og
einnig í Kommúnistaflokknum, en
þeir, sem þar réðu ríkjum, ekki
kært sig um hans þjónustu sem
frammámanns.
Fyrir rúmu ári, eða í janúar
1981, fór hann að undirbúa það
sem nú er fram komið, þ.e. að
komast í formannsstöðu í verka-
lýðsfélaginu okkar. Þá þóttist
hann fá eina mikla lýðræðishug-
sjón, samdi tillögur um lagabreyt-
ingar, sem (ef fram hefðu náð að
ganga) hefðu gert honum mun
auðveldara að bjóða fram nú. En
þær fæðingarhríðar þess lista,
sem nú er fram kominn frá honum
og stuðningsmönnum, hafa verið
bæði strangar og erfiðar. Meira að
segja hefur þurft að leita til löjg-
fræðings Alþýðusambands Is-
lands, sem úrskurðaði að fram-
kvæmd sú, sem Guðmundur Sæ-
mundsson ætlaði að viðhafa,
stangaðist á við lög. Já það er ekki
alltaf nóg að hafa menntun á bak
við sig. Framkvæmd sú var á þann
veg að hann ætlaði að leggja fram
lista með eingöngu stjórn, vara-
stjórn og endurskoðendum, síðan
að skikka okkur, sem erum í trún-
aðarmanna- og varatrúnaðar-
mannaráði, til að vinna áfram í
því með sér, ef hann ynni kosning-
una og þá án þess að hafa fengið
til þess samþykki neins okkar.
Finnst ykkur ekki, kjósendur
góðir, að þetta stangist á við það,
sem G. Sæm. þykist vilja, þ.e.
meira lýðræði. Og ég spyr: „Er lík-
legt, að jafn róttækur maður og G.
Sæm. er í pólitík muni í reynd
koma á meira lýðræði?" Mitt svar
er: „Þetta er kosningabrella og yf-
irskyn." G. Sæm. heldur því fram í
skrifum sínúm að sú stjórn, sem
nú situr, vinni á einræðislegan
hátt. Hvernig vill G. Sæm. að unn-
ið sé, ef ekki eftir lögum félagsins,
þ.e. þannig að málin séu lögð fyrir
félagsfundi og hinn almenni fé-
lagsmaður samþykki eða hafni að
vild, en svoleiðis eru málin af-
greidd og hafa alltaf verið. G.
Sæm. vill halda því fram að sér
finnist skrifstofan vera líkari
stofnun en skrifstofu fyrir hinn
almenna félaga. Ég hefi orðið að
leita til þess fólks, sem þar vinnur,
í fjölmörgum tilfellum, þar sem ég
hefi, síðan þessi stjórn tók við,
verið trúnaðarmaður á mjög fjöl-
mennum vinnustað, og alltaf í
hvert einasta skipti hefur verið
reynt eftir bestu getu, að mínu
mati, að íeysa úr málunum.
Núverandi formaður er mikið
gagnrýndur fyrir að vera í stjórn
Útgerðarfélags Akureyringa. Ég
verð nú að viðurkenna að mér hef-
ur þótt þetta óeðlilegt þar til ný-
lega að ég rak mig á það að það
getur haft jákvæðar hliðar. Það
19
kom upp mál í frystihúsi ÚA þar
sem mér og þeim trúnaðarmanni,
sem með mér vinnur þar, fannst of
langt gengið gagnvart fólkinu af
ráðamönnum ÚA. Ég hringdi í Jón
Helgason, formann félagsins, og
skýrði málin. Þá sagði hann: „Það
verður stjórnarfundur í ÚA bráð-
lega og ég bara legg þetta fyrir
þar,“ sem hann og gerði. Það hafði
áhrif til hins betra.
Því vil ég benda þér á, kjósandi
góður, að við dæmum oft ranglega
fyrir vanþekkingu hverju sinni og
það er mikið vandaverk að vera í
forustu fyrir jafn stóru verkalýðs-
félagi og félag okkar er, ekki síst
nú í okkar kröfuþjóðfélagi þar
sem nánast hnefarétturinn ræður
hvernig þjóðarkökunni er skipt.
Og ég bið þig, kjósandi, að spyrja
þig þessarar spurningar áður en
þú gengur að kjörborðinu: Verður
það verkalýðsfélaginu mínu tii
góðs og málefnum okkar til fram-
dráttar að allt það fólk, sem hefur
verið og er nú í forsvari fyrir fé-
lagið, hætti og við taki það fólk,
sem er á lista Guðmundar Sæ-
mundssonar?
Opið prófkjör Alþýðu-
flokksins helgina:
Tólf frambjóð-
endur í borgar-
stjórnar-
profkjon
UM NÆSTU helgi verður opið
prófkjör um skipan 6 efstu sæta á
framboðslista Alþýðuflokksins við
borgarstjórnarkosningarnar í
Keykjavík í vor. Allir sem lögheimili
eiga í Reykjavík og orðnir verða 18
ára á kjördag í vor, 22. maí, og ekki
eru flokksbundnir í öðrum flokkum
en Alþýðuflokknum, geta greitt at-
kvaeði.
Prófkjörið fer fram á laugardag
kl. 13—18 og á sunnudag kl.
10—19. Kjörstaðir verða tveir,
Sigtún við Suðurlandsbraut fyrir
þá sem búa austan Snorrabrautar
í Reykjavík og Iðnó, fyrir íbúa við
og vestan Snorrabrautar. Til að
kosning verði bindandi verður
frambjóðandi að fá meira en 20%
af atkvæðatölu Alþýðuflokksins
við síðustu borgarstjórnarkosn-
ingar eða 1250 atkvæði. Atkvæði
verða talin á sunnudagskvöld í
Sigtúni og verður þar opið hús á
meðan.
Frambjóðendur í prófkjörinu
eru 12. Þátttakendur verða að
velja frambjóðendur í öll 6 sætin
og sama frambjóðanda aðeins í
eitt sæti. Annars er kjörseðillinn
ógildur. í 1,—6. sæti eru í kjöri:
Bjarni P. Magnússon, Bragi Jós-
efsson, Marías Sveinsson, Sigurð-
ur E. Guðmundsson, Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, Skjöldur Þorgríms-
son og Snorri Guðmundsson, í
2. -6. sæti Grétar Nikulásson, í
3. -6. sæti Guðríður Þorsteins-
dóttir og Jón Hjálmarsson, í 4.-6.
sæti Guðmundur Haraldsson og í
5.-6. sæti Ásta Benediktsdóttir.
I síðustu borgarstjórnarkosn-
ingum fékk Alþýðuflokkurinn 2
borgarfulltrúa kjörna. Vegna
fjölgunar borgarfulltrúa úr 15 í 21
fengi flokkurinn 3 menn með
sömu skiptingu atkvæða.
(Kréttatilkynnins W prófkjörsnefnd.)
9^
3MM
A i<;i. yWTf—
I \
\
v»«
■
V tt' ^fl
,v<
«w
e\>Me-
se^
<je'
.ii.noa "Sióif mlí/iiyiP. g) (H) Istinálil eij&wnol ,dd bboi(>r. I iunnv<>
.ibia,'tsSiT:i:»il utlYSidé
„ • : i i { «»-t • j •• v? i I •.