Morgunblaðið - 04.03.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
13
Sýning Steinunnar
Þórarinsdóttur
Ung listakona heldur þessa
dagana aðra einkasýningu sína á
vesturgangi Kjarvalsstaða. Hér er
á ferð eftirtektarverð listakona,
sem numið hefur listgrein sína
bæði með Bretum og hjá ítölum.
Steinunn hefur lagt fyrir sig
skúlptúr og notar í verk sín alls
konar efni, er hún setur saman á
sérlega skemmtilegan hátt. Það
má nefna sem efnivið brenndan
leir, plast, gler, járn, gips og lér-
eft. Af þessu má greinilega sjá, að
hun sækir víða til fanga í verkum
sínum, og samt vinnur hún nokk-
uð þröngt, hvað viðfangsefni
snertir, það er að segja, flest
verka hennar eiga rætur sínar að
rekja til mannsins og mannlegra
viðhorfa.
Það er eitthvað sérlega aðlað-
andi við þessi ellefu verk á sýn-
ingu Steinunnar sem bera mjög
persónulegan svip, sem virðist
hafa þróast nokkuð, frá því er
Steinunn sýndi á Suðurgötu 7
fyrir einum þrem árum. Ég hafði
ánægju af þeirri sýningu, en ég
verð að játa, að þau verk, sem nú
eru til sýnis hafa miklu meiri
áhrif á mig en hin fyrri. Þetta er
ánægjulegt og sýnir, að um
áframhald er að ræða hjá þessari
listakonu og að hún vinnur af alúð
og festu að því, er hún hefur til-
einkað sér bæði í námi og af sjálfu
mannlífinu. Hugmyndir hennar
komast ágætiega til skila og verk
Steinunnar skilja eftir hjá manni
vissa tilfinningu, sem skapast við
kynningu við þau. Það er gott
handbragð á þessum skúlptúr.
Það verður að nota þetta orð, þótt
óíslenskulegt sé, þar sem okkur
vantar tilfinnanlega orð yfir slíka
hluti, og ekki bætir það málið að
kalia siíka list plastíska. En hér
eiga þessi orð við og öðruvísi kann
ég ekki að nefna slíka hluti.
Sýning Steinunnar Þórarins-
dóttur er ekki mikil að vöxtum, en
hún er nægilega víðfeðm til að
bera góðan vott um hæfiieika
hennar og iistræn tök, sem henni
Myndlíst
virðast eiginleg. Það má segja um
þessi verk, að þau séu í takt við
timann og gefi okkur innsýn í
þann hugarheim, er skapast af
þeirri vélmenningu nútímans og
þvl umhverfi, sem þau hafa orðið
til í. Okkur verður það stundum á,
að gleyma að svipast um í hinu
daglega lífi og tengja verkin því
því umhverfi sem þau eru sprottin
úr. Ekkert er eins fjarlægt veru-
ieikanum, því að list er svo ná-
tengd umhverfi sínu, að ekki verð-
ur að skilið. Þetta er ef til vill sá
boðskapur, sem þessi verk Stein-
unnar Þórarinsdóttur flytja
okkur. Maðurinn verður aðeins að
miðli til að koma okkur í skilning
um þá tilveru, sem svo mörgum er
lokuð bók. Þrátt fyrir nærveru
staðreyndanna.
Ég er ánægður með þessi verk
og hafði skemmtun af að skoða
þessi verk Steinunnar. Það er
ferskur blær yfir þeim, og á þeim
er gott handbragð. Það má hvetja
fólk til að sjá þessi verk. Þakkir
fyrir góða stund.
Valtýr Pétursson
Þeir hjá
Heilsuræktinni
I Kjörgarði
VÖIÖU Scan-fH
líkamsræktartæki
frá Heimilis-
tækjum hf.
Þeir sem vilja stunda
líkamsrækt sér til ánægju
og aðhlynningar geta valið
um hvers konaræfinga-
tæki hjá Heimilistækjum hf.
enda fjölgar þeim sífellt
sem fara að dæmi Heilsu-
ræktarinnar Kjörgarði,
sem valdi æfingatæki frá
SCAN-FIT.
Við bjóðum:
Æfingakort og töflur,
Multi-træner þjálfunar-
vélar, Mammut lyftinga-
tæki, hlaupabönd, þrek-
hjól, róðrarbáta, mæli-
tæki, saunaklefa, Philips
sólbekki, prótein- og
vítamín blöndur.
Sem sagt allt, sem þarf til
líkamsræktar bæði heima
og í íþróttastöðvum.
Scan-Ht
Hæfileg þjálfun með
réttum tækjum.
heimilistæki hf.
SÆTÚNI 8 -15655
sjálfum hlutunum, en Karl Júlí-
usson notar hlutina sem einn lið í
margslungnara verki, og mætti ef
til vill nefna slíkt hlutasamsetn-
ingu. Hvað um það, þá eru hér á
ferð áhugaverð vinnubrögð, sem
ég veit ekki, hve nákvæmlega
þjóna tilgangi sínum. Mér er sem
sé ekki algeriega ljóst, hvaða
boðskap þessi verk eiga að flytja,
ef hann þá er einhver. Fegurð
efnis og forms er fyrir hendi og
kemst áleiðis, en eins og ég hef
sagt þegar, boðskapur er mér hul-
inn.
Þetta er i alla staði nokkuð
óvenjuleg list, sem Karl Júlíusson
stundar, og ég held því fram, að
hér sé nýjung á ferð, ekki síður en
á vesturganginum að Kjarvals-
stöðum. Það er ánægjulegt að
geta sagt slíkt um ungar mann-
eskjur, sem eru að hefja listferil
sinn. An efa erum við hinir eldri í
faginu stundum álitnir nokkuð
íhaldsamir í skoðunum, en ekkert
er eðlilegra, við erum nefnilega
mennskir eins og fleiri og eld-
umst og breytumst með árunum,
en samt er það svo, að stundum
sér maður glætu, eins og í þetta
sinn.
Sýning Karls Júlfussonar
Á austurgangi Kjarvalsstaða
er sýning á verkum Karls Júlíus-
sonar, en hann vinnur verk sín á
sérstæðan hátt. Það er að segja,
hann fer nokkuð aðrar leiðir en
venja er til. Karl tekur allskonar
hluti, sem eru síðan settir saman
í eina heild, og má nefna, að skíði
koma til að mynda mikið við sögu
í þessum verkum. Það verður
einnig útkoman, að sum af verk-
um Karls líta út eins og vélsleðar
eða einhver farartæki í þeirri
fjölskyldu. Ég nefni aðeins skíði
til að gefa einhverja hugmynd um
hvað hér er á ferð, en nefna
mætti margt annað, af því er
Karl notar til að koma hugmynd-
um sínum á framfæri.
Á þessari sýningu eru sextán
verk, sem nefnast til dæmis: Tot-
emfar, Plógfar, Krossfar. Öll
þessi nöfn gefa hugmynd um far-
artæki, og eftir að hafa séð þessi
verk, er það fyrst og fremst
hreyfiaflið og vélasamstæður,
sem koma í hugann. Þetta er
skemmtilegir efniviður, sem er
afar snyrtilega saman settur.
Handbragðið er listamanninum
til hins mesta sóma og minnir
nokkuð á frágang þann, er Ingi
Örn sýndi á sinni sýningu á sama
stað, ekki fyrir löngu. Ef ég geri
tilraun til að koma þessum verk-
um á framfæri við lesendur, dett-
ur mér helst í hug Ready-made
verk eftir Marcel Duchamp, en
munur á verkum Karls og þess
gamla meistara, er sá að Duch-
amp tók klósettskál, hengdi sem
skúlptúr á vegg og dró þannig
fram fegurð forms og efnis í
verðinu
Lamba
kjöt-
1/1 dilkar
401?
Leyft verð 44.95
Læri oghryggir
C7.20
Leyft verð 57.30
Lærissneiðar
A170
Prk8-
Leyft verð 67.65
Kótilettur
56-
Leyft verð 61.80
Smjör Vi kg.
28“
Leyft verð 32.45
Nýegg
* AÐEINS
39»
Leyft verð 57.00
Unghænur
'2Q.50
Leyft verð 57.00
AUSTURSTRÆTI 17
STARMÝRI 2