Morgunblaðið - 04.03.1982, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
21
Norðmenn veiði ekki loðnu
frekar en við næsta sumar
- segir Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ
„ÞAÐ LIGGUR nú fyrir, að ólíklegt er að loðnuveiðar verði ákveðnar fyrr en
eftir mælingu sem gerð verður á loðnustofninum í október næstkomandi.
Miðað við þær aðstæður, sem við búum við nú og hvað menn eru sammála
um, að lítið af loðnu hafi gengið til hrygningar, þá virðist ástandið vera mjög
alvarlegt og raunar er það mjög varhugavert að hefja veiðar fyrr en við
vitum, hver styrkleiki næsta árgangs verður," sagði Kristján Ragnarsson,
formaður LÍÚ, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. „Aðstæður til
mælinga voru að vísu slæmar síðastliðið haust, en við verðum þó að mínu
mati að bíða og sjá hvort mælingin í haust takist ekki, það er að aðstæður
verði það góðar, að mælingin gefi rétta mynd. Vegna þess hve mikið er í húfí
um framtíð þessa fiskistofns, sem loðnan er, verðum við að fara að öllu með
gát.“
Þá sagði Kristján að hann
harmaði grein þeirra Hjálmars
Vilhjálmssonar fiskifræðings og
Páls Reynissonar mælingamanns í
Morgunblaðinu á dögunum.
„Þeir tala um gagnrýni útgerð-
armanna og sjómanna á þeirra
mælingar. Það er miður ef þeir
geta ekki tekið gagnrýni, svo
fremi sem hún byggist á málefna-
legri umræðu. Þessi vísindi eru
ekki það langt á veg komin, að þau
séu ekki gagnrýnisverð. Hitt er
svo annað mál, að fiskifræðin er
okkar besta vitneskja og við verð-
um að taka tillit til niðurstaðna
fiskifræðinga, sérstaklega þegar
við höfum nú nokkur ár til saman-
burðar.
Mér finnst líka, að fiskifræð-
ingar eigi ekki að firra sig allri
ábyrgð vegna þessa ástands, sem
hefur skapast. Undanfarin ár höf-
um við að öllu leyti farið eftir
þeirra tillögum. Við úthlutun
kvóta haustið 1980 var algjörlega
farið að ósk fiskifræðinga. Kvót-
inn var þá skorinn niður um 30%
að ósk fiskifræðinga. Við stöðvuð-
um veiðarnar í desember síðast-
liðnum samkvæmt ósk fiskifræð-
inga.
Fiskifræðingar lögðu til 700
þúsund tonna kvóta síðastliðið vor
og var honum úthlutað til okkar
og Norðmanna, þannig höfum við í
einu og öllu farið eftir tillögum
fiskifræðinga. Núverandi ástand
er skipbrot okkar allra og sjómenn
og útgerðarmenn verða ekki einir
sakaðir um hvernig komið er. Við
verðum allir að læra af þeirri
reynslu, sem nú hefur fengist,"
sagði Kristján. Kristján Ragn-
arsson var spurður að því hve
mikið væri í húfi ef ekkert yrði
veitt af loðnu það sem eftir væri
ársins.
„Undanfarin þrjú ár hafa ís-
lendingar veitt að meðaltali um
800 þúsund tonn af loðnu á ári. Að
útflutningsverðmæti eru 800 þús-
und tonn um 980 milljónir ný-
króna (98 milljarðar gkróna). Af
þessari upphæð hefðu 420 milljón-
ir farið í hlut útgerðarmanna og
sjómanna. Þannig að hér eru gíf-
urleg verðmæti í húfi, ef illa fer.
Allt sést þetta best á því, að áætl-
að er að útflutningsverðmæti
sjávarafurða verði 9—9,5 millj-
arðar kr. á yfirstandandi ári,
þannig að meðaltalsverðmæti
loðnuafurða síðustu þriggja ára.
er um 10% af áætluðum heildar-
útflutningi sjávarfangs á þessu
ári,“ sagði Kristján.
„Þótt það sé slæmt að engar
loðnuveiðar fari nú fram eða verði
á næstunni, þá er það betri kost-
urinn sem er valinn með því að
taka áhættuna og fresta veiðum
og það þurfa allir að leggjast á eitt
með að tryggja framtíð loðnu-
stofnsins.
Mér finnst of mikið hafa verið
gert úr viðræðunum við Norð-
menn. Það kemur hreinlega ekki
til greina, að Norðmenn fái að
veiða loðnu í sumar frekar en við.
Það er grundvallaratriði, að Norð-
menn hætti öllum veiðum við Jan
Mayen og banni öðrum þjóðum
veiðar þar. Öðru vísi verður erfitt
að ná tökum á málinu. Norðmenn
fóru stórlega fram úr sínum kvóta
síðastliðið sumar, þannig að ís-
lendingar eiga verulega inni hjá
þeim til að jafna metin,“ sagði
Kristján Ragnarsson að lokum.
Léleg sala
hjá Ingólfi
TOGARINN Ingólfur frá Garði seldi
99,1 tonn af karfa í Cuxhaven í gær
fyrir 557,9 þúsund krónur. Meðal-
verð á kíló var aðeins krónur 5,63,
sem er lang lægsta meðalverð, sem
fengist hefur fyrir físk af íslands-
miðum í Þýskalandi um nokkurt
skeið. Þess má geta að 28 tonn af
afla Ingólfs voru dæmd ónýt.
Gefendur tækjanna úr Lionsklúbbi Reykjavíkur við afhendinguna, ásamt tveimur
læknum Kevkjalundar. Frá vinstri: Magnús B. Einarson læknir, Magnús Guð-
laugsson, Hallgrímur Jónsson, Björgvin Schram, Einvarður Hallvarðsson, Eyjólf-
ur K. Sigurjónsson og Haukur pórðarson yfirlæknir, sem tók við gjöfunum fyrir
hönd Hjarta- og æðaverndarfélags Reykjavfkur og Reykjalundar.
Gefendur tækjanna úr Lionsklúbbnum Tý við afhendinguna ásamt tveimur lækn-
um. Frá vinstri Magnús B. Einarson læknir; Jón G. Sveinsson, Teitur Símonar
son, Finnbogi B. Olafsson formaður, örn Arnason, Matthías B. Sveinsson og
Haukur Þórðarson yfirlæknir.
Lionsklúbbar gefa dýrmætan tækjabúnað
HJARTA- og æðaverndarfélag Reykjavíkur gengst um þessar mundir fyrir
söfnunarherferð til að koma upp endurhæfíngaraðstöðu fyrir hjartasjúklinga
að Reykjalundi. Slíka aðstöðu hefur lengi vantað hér á landi, en nokkrir
hjartasjúklingar hafa farið utan til slíkrar þjálfunar. Lionshreyfingin á Islandi
hefur nýverið gefíð dýrmætan tækjabúnað til starfseminnar.
Hjarta- og æðaverndarfélagið fleiri gjöfum. Segir í fréttatilkynn-
sneri sér m.a. til Lionshreyfingar- ingu frá Hjarta- og æðaverndarfé-
innar á íslandi og fékk þar mjög laginu að ef félagasamtök bregðist
góðar undirtektir. Nú þegar hafa jafn höfðinglega við eins og þessir
Lionsklúbbarnir Ægir, Týr og Lionsklúbbar hafa gert, ætti öll
Reykjavík gefið dýrmætan tækja- nauðsynlegasta aðstaða að vera
búnað til starfseminnar og von er á fyrir hendi á næstu mánuðum.
Leiklistarnámskeið
fyrir áhugafólk
Síöasta námskeiöiö á þessum vetri hefst 8. mars og
stendur aöeins yfir í fjórar vikur (endar 31. mars).
Innritun og nánari upplýsingar í síma 19181 frá kl.
19.00 til kl. 20.00.
Kristín G. Magnús.
SIEMENS
Poppe-
loftþjöppur
Útvegum þessar heims-
þekktu loftþjöppur í öll-
um stærðum og styrk-
leikum, máð*e8a án raf-,
Bensín- eða Diesel-
mótors.
\
SÖMFOaiyigJMD'
©(q)
Vesturgötu 1 6,
Sími 14680.
Einvala lið:
Siemens- heimilistækin
Úrval v-þýskra SIEMENS-heimilistækja þar sem
hvert tæki leggur þér liö við heimilisstörfin.
Öll tæki á heimilið frá sama aöila er trygging þín
fyrir góöri þjónustu og samræmdu útliti.
SMITH & NORLAND HF.
NÓATÚNI 4. SÍMI 28300.
FISHER
toppurmnídag
LAGMÚLA 7
REYKJAVÍK SÍMI 85333
SJÓNVARPSBODIN