Morgunblaðið - 04.03.1982, Page 23
im.
Veður
víða um heim
Akureyri -7 skýjaó
Reykjavík -4 lóttskýjað
Amsterdam 10 rigning
Aþena 12 skýjað
Barcelona 15 mistur
Berlín 8 rigning
BrUssel 10 rigning
Chicago 1 snjókoma
Dyftinni vantar
Feneyjar 13 léttskýjað
Frankfurt 10 skýjað
Færeyjar 6 skýjað
Genf 7 heiðskfrt
Helsinki 0 skýjað
Hong Kong 15 skýjað
Jerúsalem 11 rigning
Jóhannesarborg 29 heiðskýrt
Kaupmannahöfn 6 rigning
Kairó 17 skýjað
Las Palmas vantar
Líssabon 19 heiðskýrt
London 11 skýjað
Los Angeles 19 helðskýrt
Madrid 18 heiðskfrt
Malaga 19 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Mexíkóborg 17 skýjað
Miami 21 skýjað
Moskva -2 skýjað
New York 9 skýjað
Nýja Delhi 20 skýjað
Osló 7 skýjað
París 13 skýjað
Perlh vantar
Ríó de Janeiró 31 skýjað
Rómaborg 16 rigning
San Francísco 13 heiðakýrt
Stokkhólmur 4 snjófcoma
Sydney vantar
Tel Aviv 16 rigning
Tókýó 11 hefðskýrt
Sovézkur kaf-
bátur á sveimi
við flotastöð
Róm, 3. marz. AP.
STJÓRNMÁLAMENN á Ítalíu hafa
krafizt þess að ríkisstjórnin leggi
fram nánari upplýsingar um njósnir
sovézks kafbáts í námunda við Tar
anto á S-ftalíu, en sl. miðvikudag
urðu menn í flotastöðinni þar varir
við kafbát sem var NATO óviðkom-
andi.
ítalskur kafbátur, herþotur og
þyrlur úr flotastöðinni flykktust
að hinum óþekkta kafbát og
flæmdu hann á brott, en yfirvöld
hafa ekki viljað skýra frá því
hvaðan hann hafi verið. ítölsk
biöð telja engan vafa leika á því að
hér hafi verið á ferð sovézkur
kjarnorkukafbátur af Viktor-gerð.
Tveir þingmenn Sósíalista-
flokksins og formaður varnar-
málanefndar fulltrúadeildar
ítalska þingsins, sem er úr Frjáls-
lynda flokknum, gagnrýna tregðu
stjórnarinnar til að skýra frá
málsatvikum og telja það í þágu
þjóðaröryggis að málið verði gert
opinbert.
Elzti lávarður
lávarðadeild-
arinnar látinn
London, 3. marz. AP.
GAGE greifi, elztur fulltrúa í brezku
Lávarðadeildinni, er látinn í London,
86 ára að aldri. Times skýrði frá láti
hans og sagði að Gage hefði setið í
Lávarðadeildinni í sextíu og fimm
ár. Hann sótti þingfundi samvizku-
samlega og tók oft til máls, síðustu
ræðu sína flutti hann fyrir vikutíma,
þá í umræðum um Suður-Afríku.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
23
Otti innan OPEC-ríkjanna
vegna verðiækkunar Breta
London, 3.mars. AP.
Sú ákvörðun Breta að lækka verð
á Norðursjávarolíu sinni um 4 doll-
ara hverja tunnu hefur komið miklu
róti á fulltrúa aðildarríkja OPEC,
samtaka olíuútflutningsríkja. Mana
lltaiba, forseti samtakanna, lýsti
því yfir í dag að hann myndi boða
til fundar með aðildarríkjunum,
sem allra fyrst og beindi um leið
þeim tilmælum til Breta, að þeir
færu sér hægt í verðlækkunum.
Raddir eru nú uppi um að dagar
OPEC kunni að vera taldir ef ekki
komi til samræmdar aðgerðir af
hálfu samtakanna.
Verðlækkun bresku olíunnar úr
35 dollurum tunnan í 31 dollara
kom í kjölfar þeirrar ákvörðunar
Dagar samtakanna
allir ef ekki
koma til samræmdar
aðgerðir fljótt
Venezúela, að lækka hráoltuverð
sitt um tvo og hálfan dollara, í
25,29 dollara tunnuna. íranir, sem
þurfa nauðsynlega á áframhald-
andi olíuauði að halda vegna út-
gjaldafrekrar styrjaldar gegn ír*
ökum, sem geisað hefur í 14 mán-
uði, hafa undanfarið lækkað olíu-
verð sitt svo og Mexikanar. Olíu-
málaráðherra Iraka, Tayeh Abd-
el-Karim, fór fram á neyðarfund
OPEC-ríkjanna til að reyna að
sporna gegn þeirri þróun, sem nú
hefur orðið og ógnar samtökunum.
Ekki eru mörg ár síðan þau
sprengdu olíuverð í heiminum upp
úr öllu valdi.
Saudi-Arabar hafa ákaft verið
hvattir af aðildarríkjum OPEC til
að skera framleiðslu sína niður.
Hún nemur um 7 milljónum tunna
á dag.Olíuverð aðildarríkja OPEC
hefur undanfarið verið á bilinu
30,20 til 37 dollarar á hverja
tunnu. Olíumálaráðherra Saudi-
Araba hefur lagt til við aðildarríki
OPEC að þau lækki verðið í 28
dollara, en tillögu hans hefur verið
fálega tekið til þessa. Saudi-
Arabar eru langstærsta olíufram-
leiðsluríkið innan OPEC-samtak-
anna. Þau framleiða nú um 20 \
milljónir tunna á dag, sem er um
helmingur heimsframleiðslunnar.
Framleiðsla ríkjanna náði há-
marki fyrir þremur árum er hún
náði 30 milljónum tunna.
Bretar hafa undanfarinn mánuð
lækkað olíuverð sitt um 11,4% og
þar með boðið lægsta hráolíuverð í
heiminum. Lækkun olíuverðsins
kemur til af því að daglega eru nú
framleiddar um 4 milljónir tunna
umfram neysluþörf. Framleiðsla
Breta er um 1,9 milljónir tunna á
dag. Norðmenn, sem einnig vinna
olíu á svipuðum svæðum og Bretar
í Norðursjó, hafa tilkynnt að þeir
muni einnig lækka olíuverð sitt til
samræmingar verði Breta.
FRÁ EL SALVADOR — Lögregla og læknar standa við Ifk ungs manns sem
féll f átökum við einkalífvörð í höfuðborginni San Salvador. Atburður þessi
gerðist nærri miðborginni fyrir nokkru. (AP-mynd)
Hassi smyglad á
Norðurlandaþing
Helnkinki, 3. marz. AP.
IIANSKI þingmaðurinn Ole Henriksen
olli fjaðrafoki á þingi Norðurlanda-
ráðsins, er hann sagðist hafa keypt hass-
mola í Stokkhólmi og smyglað honum til
Helsinki í áróðursskyni fyrir Kristjaníu.
Henriksen hyggst nota hassmolann
sem sönnunargagn í umræðunum á
fimmtudag, en finnska sendinefndin
hefur þegar krafizt þess af dönsku
sendinefndinni, að komið verði í veg
fyrir að Henriksen veifi þá molanum,
sem er rúmsentimetri að stærð og kost-
aði 40 krónur á götu í Stokkhólmi.
Henriksen, sem er þingmaður Sósíal-
íska þjóðarflokksins, heldur því fram,
að það leysi ekki fíkniefnavandamál á
Norðurlöndum að loka Kristjaníu, sem
kölluð hefur verið miðstöð fíkniefna-
neyzlu á Norðurlöndum.
„Það er hægur vandi að verða sér úti
um hass í öllum höfuðborgum Norður-
landanna. Það leysir engan vanda að
loka Kristjaníu, því þá verður hassið
bara sótt eitthvert annað,“ sagði Hen-
riksen.
Danski sendiherrann í Helsinki var í
dag kallaður á fund finnska utanríkis-
ráðherrans þar sem honum var tjáð, að
Henriksen hefði með framferði sínu
brotið gegn finnskum lögum þótt hann,
stöðu sinnar vegna, nyti friðhelgi dipló-
mata. Sendiherranum var jafnframt
tjáð, að hegðun þingmannsins væri
slæmt fordæmi fyrir æskufólk á Norð-
urlöndum.
!S
Italskar smá vörur
KM
HUSGÖGN
Langholtsvegi 111.
Sími 37010 — 37144.
—
Y -
: A
í'f
á mjög hag-
stæöu veröi