Morgunblaðið - 04.03.1982, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
Heba hekdur
viðheilsunni
Nýtt námskeið að heíjast
Dag- og kvöldtímar tvisvar eða
íjórum sinnum í viku.
Megrunarkúrar - Nuddkúrar
Leikfimi - Sauna - Ljós - Megrun
Sól-bekkir- Nudd - Hvíld - Kaíli -
o.íl.
Innritun í síma 42360 - 40935
Heilsurœktin Heba
Auðbrekku 53, Kópavogí.
NÝJA HCISQVARNA 6690
TOLVCIVÉUN
„Hún er svo ótrúlega einföld
- bara aðýta á hnapp”
Munurinn á „venjulegri” saumavél og Husqvama 6690
er, að í Husqvama 6690 er lítil ör-tölva. Pessi ör-tölva getur í raun og veru
hjálpað þér að búa til eigin mynstur,
skrifað orð og setningar og saumað af mikilli nákvæmni.
AUt sem þarf að gera, er að ýta á hnapp! Þetta er saumavél sem hefur hlotið
margar viðurkenningar um heim allan.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurtandibramn 5»tí5i 3ó20C
Akurvík, Akureyrí
Eigum nú fyrirliggandi flestar geröir af hinum viöurkenndu v-þýsku
vegg- og gólffltsum, fyrsta flokks vara á viöráöanlegu veröi.
Ath. aö Buchtalflísarnar eru bæöi frostheldar og
eldfastar.
Ótrúlega hagstæöir greiðsluskilmálar, allt niður í 20% út-
borgun og eftirstöðvar til allt að níu mánaða.
Opið mánud.—fimmtudaga 8—18.
Opiö föstudaga 8—22.
Opið laugaraga 9—12.
B B [BYI Gl G I N G N l/O IR 1 I R J
HRINGBRAUT119, SÍMAR10600-28600.
VINNUVERNDARÁR
V innu verndarlögin
Á 34. þingi Alþýðusambands Is-
lands, sem haldid var í nóvember
1980, var samþykkt aó gera árid
1982 að sérstöku vinnuverndarári.
Tilgangur þess er að örva umræð-
ur um aðbúnad, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum. Einn af
grundvallarþáttum þeirrar um-
ræðu verður án efa að byggja með-
al annars á lögunum frá 1. janúar
1981, sem gjarnan eru kölluð
Vinnuverndarlögin. I>að væri ekki
úr vegi að rifja upp, áður en lengra
er haldið, hver forsaga þessara
laga er.
Það var í tengslum við kjara-
samningana vorið 1977, svokall-
aða sólstöðusamninga, að aðilar
vinnumarkaðarins lögðu fram
sameiginlegar tillögur um að-
gerðir í vinnuverndarmálum.
Tillögurnar voru lagðar fyrir þá-
verandi ríkisstjórn og síðan
samþykktar af öllum aðilum
þann 19. apríl 1977. Það útaf
fyrir sig er eftirtakanlegt, að
þessi lög skuli eiga rætur að
rekja til samningaþófs aðila
vinnumarkaðarins, sem okkur
hættir til að líta fyrst og fremst
á sem átök um launakjör.
Það væri fullmikið sagt að
þessi lög hafi verið samin kafla
fyrir kafla og grein fyrir grein á
samningafundum. Báðir aðilar
voru sammála um að leggja til
við ríkisstjórnina, að hún hlut-
aðist til um, að skipuð yrði
nefnd, sem fengi það verkefni, að
endursemja lög um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stöðum og um vinnuumhverfi
verkafólks almennt. í tillögun-
um var gert ráð fyrir að í nýrri
löggjöf um þetta efni yrði ákveð-
ið, að ein eftirlitsstofnun sæi um
framkvæmd laganna í stað
þeirra, sem þá heyrðu undir ým-
is ráðuneyti. Á þessum tíma
voru helstu eftirlitsstofnanirnar
Öryggiseftirlit ríkisins og Heil-
brigðiseftirlit ríkisins. Öryggis-
eftirlitið heyrði undir dóms-
málaráðuneytið en Heilbrigðis-
eftirlitið heyrði hinsvegar undir
heilbrigðisráðuneytið. Það þótti
augljóst hagræði að því ef ein
stofnun færi með eftirlit aðbúð-
ar, hollustu og öryggis vinnu-
staða meðal annars til þess að
koma í veg fyrir tvíverknað í eft-
irliti. Þess utan þótti eðlilegt, að
þar sem nánast öll málefni, sem
snertu vinnumarkaðinn, önnur
en eftirlit með vinnustöðum og
vinnuumhverfi, tilheyrðu félags-
málaráðuneytinu, að þeir mála-
flokkar heyrðu einnig undir fé-
lagsmálaráðuneytið.
Nú í tillögunum var einnig
stungið uppá, að í væntanlegum
lögum yrðu ótvíræð ákvæði um
skyldu eftirlitsstofnunar, til
þess að banna vinnu verkafólks á
þeim vinnustöðum, sem ekki
væru búnir í samræmi við lög,
reglugerðir eða fyrirmæli eftir-
litsstofnunar. En í þágildandi
lögum þóttu ákvæði þessa efnis
ekki nægjanlega afgerandi.
Nefnd var síðan skipuð til þess
að vinna að gerð nýrra laga. í
henni áttu sæti fulltrúar frá Al-
þýðusambandi íslands, Vinnu-
veitendasambandi íslands,
Vinnumálasambandi samvinnu-
félaganna auk sérfróðra manna.
Samtals sátu í nefndinni 9 menn.
I tillögunum var enn fremur lagt
til, að gerð yrði sérstök allsherj-
arathugun og úttekt á ástandi
aðbúnaðar og hollustuhátta á
vinnustöðum. Þessi könnun var
síðan framkvæmd af Öryggiseft-
irlitinu og Heilbrigðiseftirlitinu.
Farið var yfir 260 skoðunaratriði
á vinnustöðunum. Niðurstöðurn-
ar voru síðan gefnar út í litlu
kveri, sem fékk auðkennið Vinnu-
vernd II.
Ný dönskukennslu-
bók fyrir 9. bekk
KOMIN er út hjá Námsgagna-
stofnun ný dönskukennslubók
handa 9. bekk „Kontakt —
temahæfte om hvordan vi har det
med hinanden". Höfundur bók-
arinnar er Hörður Bergmann,
námsstjóri.
í frétt frá Námsgagnastofn-
uninni segir m.a.:
„Efninu er skipt í tvo hluta. í
fyrri hlutanum, Det andet kon,
eru samskipti á barns- og ungl-
ingsárum tekin til meðferðar. í
seinni hlutanum, Mennesker
imellem, er meginviðfangsefnið
samskipti ólíkra hópa í þjóðfé-
laginu, fjölskyldutengsl og
samskipti í hópum og klíkum á
unglingsárunum.
Textarnir eru af ólíku tagi:
Smásögur, brot úr skáldsögum,
ljóð, endurminningabrot, við-
töl, blaðagrein, glefsur úr dálk-
um vikublaða fyrir fólk sem
auglýsir eftir félagsskap eða
bréfaskiptum, lesendabréf og
söngtexti. Einn af textunum er
á sænsku og annar á norsku.
Meðal höfunda sem eiga efni í
bókinni má nefna Bjarne Reut-
er, Dan Turéll, Else Breen,
Kertin Thorvall og Ursula
Wölfel." 30 ljósmyndir eru í
bókinni, sem er 72 blaðsíður í
stóru broti.
Viö bjóðum
gott úrval af
leðurhorn-
settum og leð-
ursófasettum,
(fyrsta flokks
leður króm-
sútað og
gegnumlitað)
á verðum sem
eru lægri en
sambærileg
sett kosta í
venjulegum
áklæðum.
Það borgar sig að líta inn
í stærstu húsgagnaverzl-
un iandsins.
húsgagnaEhöllin
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK LZUillTc^l SÍMAR: 91-81199 -81410