Morgunblaðið - 04.03.1982, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
45
Hugmynd um skipulag umferdargatna í Miðbænum:
Einstefnuakstur níður
Laugaveg og Hverfisgötu
Eins og við vitum öll er orðið
ófært að komast eftir Laugarveg-
inum niður í bæ eins og sagt er.
Strætisvagnar verða langt á eftir
áætlun og sífelt eru ökumenn að
leyta sér að bílastæðum, sem allt-
af eru þéttsetin að deginum, auk
þess sem einkabílar þurfa líka að
komast leiðar sinnar eftir Lauga-
veginum. Hverfisgatan, sem ekin
er til austurs eða úr bænum er
yfirleitt greiðfærari.
Borgaryfirvöld og allskonar
umferðasérfræðingar hafa verið
að reyna að leysa þennan vanda
en hefur til þessa lítið orðið
ágengt. Það þýðir ekki að berja
hausnum við steininn, fólkið vill
komast niður í Miðbæinn og þá
helzt eftir Laugaryeginum alls
konar erinda, t.d. til að verzla,
fara í opinberar stofnanir o.fl.
Strætisvagnar þurfa að halda
sinni tímaáætlun sem oftsinnis
fer algerlega úr skorðum.
Það sem mér hefur helzt dottið
í hug að gera mætti til að bæta úr
þessu, er að Laugarvegurinn
verði ekinn niður í bæ eins og
verið hefur en einstefnuakstrin-
um á Hverfisgötunni verði hins
vegar snúið við og ekið eftir
henni niður í bæ.
Til að koma umferðinni til
baka úr bænum væri upplagt að
breikka Skúlagötuna um helming
eftir þörfum, með því að fylla
meira upp út í sjóinn. Þá myndi
gatan sem nú er þar fyrir verða
öll einstefnuakstursgata með
3—4 akreinum. Líka gæti sá
möguleiki verið fyrir hendi að
það þyrfti að breikka Lækjargöt-
una um eina akrein, og einnig
Tjarnargötu og Kalkofnsveg.
Þetta mætti gera með því að
breikka Tjarnargötu út í Tjörn-
ina og jafnframt að taka af Torf-
unni, Stjórnarráðstúninu og Ht-
illega af Arnarhólstúninu.
Vanda sem myndi skapast við
gatnamót og fleira þess háttar
yrði örugglega hægt að leysa með
góðu móti. í sambandi við stræt-
isvagna hef ég hugsað mér að
þeir færu hvort sem væri Laugar-
veginn eða Hverfisgötuna niður í
bæ, en úr bænum færu þeir
Skúlagötuna og einnig Lindargöt-
una að hluta til austurs, og eins
færu þeir suður Lækjargötuna
gegn um Vesturbæinn eins og
verið hefur. Auðvitað yrði stjórn
SVR að leysa umferðarleiðir
strætisvagnanna í samræmi við
þessa breytingu.
Ég geri ráð fyrir að margar
smærri hliðarráðstafanir yrði að
gera vegna þessara breytinga, t.d.
að breyta umferðinni um Hafnar-
stræti, Tryggvagötu og Lindar-
götu. Ég tel víst að kostnaður við
allar þessar breytingar yrði tölu-
verður, en hvað á að gera þegar
öll umferð virðist vera að komast
í einn hnút með vaxandi bíla-
fjölda á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu og auðvitað á öllu landinu, því
mikill fjöldi bíla utanaf landi er
að öllu jöfnu í borginni!
Jón Þorgeirsson
í»essir hringdu . . .
Þakkir fyrir
leiksýningu í
Hátúni 12
Haukur Friðriksson hringdi:
„Mig langar til að þakka fyrir
leiksýningu sem var hér í Hátúni
12 síðastliðið mánudagskvöld,"
sagði hann. „Þá sýndu Guðmund-
ur Magnússon og Edda Þórarins-
dóttir „Uppgjörið" og þótti þeim
takast mjög vel upp. Þetta var
mjög skemmtileg og kærkomin til-
breyting, og þykir mér því ómaks-
ins vert að þakka leikurunum
fyrirhöfn sína.“
Byrjið aftur med
framhaldssögu í
Morgunblaðinu
Bókaormur hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: „Fyrir nokkru
las ég póst í Velvakanda frá ein-
hverri konu og fannst henni sjón-
arsviptir af framhaldssögunni
sem Morgunblaðið lagði niður
fyrir nokkrum árum. Ég get ekki
annað en verið henni sammála og
tel hiklaust að neðanmálssaga eigi
að vera í svona stóru blaði eins og
Morgunblaðinu — það mundi gera
efni þess fjölbreyttara og ekki
þyrfti hún að taka ýkja mikið
pláss.
Ur því að ég er á annaö borð
komin af stað langar mig til að
reifa hugdettu sem ég hef fengið.
Væri ekki skoöandi að einhver ís-
lenzkur rithöfundur yrði fenginn
til að skrifa framhaldssögu í
Morgunblaðið — það held ég að
hlyti að teljast gott efni sem að
margir hefðu áhuga fyrir."
Sölumennskunámskeið
veröur haldið í fyrirlestrarsal félagsins aö Síöumúla
23, dagana 8.—10. mars kl. 14—18.
Leiðbeinandi: Ágúst Ágústsson rekstrarhagfræð-
ingur.
Birgðastýring
Námskeiöiö veröur haldiö í fyrirlestrarsal félagsins
aö Síöumúla 23, dagana 11., 12. og 15. mars kl.
15—19.
Etni: Orsakir birgöasötnunar. markmlö, aöferölr tll aö mlnnka blrgölr, fjár-
hagsflokkun birgða, undlrstööureglur í blrgöastýringu, blrgölr á mlsmun-
andi framleiöslustigum, nokkur dæml um Ifkön i birgöastýringu, aögeröa-
rannsóknir og birgöastýring. birgöabókhald, tölvukerfi. spjaldskrárkerfi,
skortur og afleiöingar hans. A námskeiölnu veröa kynnt nokkur tölvukerfi,
sem eru á boöstólum hér á landi fyrir birgöahald.
Leiöbeinendur: Halldór Friögeirsson verkfræðingur
og Pétur K. Maack verkfræöingur.
Vinnuvistfræði
Námskeiöiö veröur haldiö í fyrirlestrarsal félagsins aö
Síöumúla 23, dagana 16.—18. mars kl. 14—18.
Fjallaö veröur um:
— gerö og eiginlelka mannslíkamans, aölögun vlnnustaöarlns aö
manninum. áhrif varhugaveröra efna, hávaöa o.fl. þátta, slysa-
hættu.
— aöteröir tll aö auka vellíöan starfsmanna, bæta aöbúnaö og
hollustuhætti og auka öryggi á vinnustööum,
— löggjöf um vlnnuumhverflsmál, skyldur stjórnenda, starfsmanna
o.fl. aöila, uppbygglng Innra starfs I fyrlrtæk|um. hlutverk oplnberra
aöila.
Sýndar veröa litskyggnuraöir og kvikmyndir um afmörkuö efni.
Námskeiöiö er einkum ætlaö starfsmannastjórum,
trúnaðarmönnum, starfsmönnum og forystu-
mönnum launþegafélaga, framkvæmdastjórum
fyrirtækja og öðrum þeim sem vinna aö endurbót-
um vinnuumhverfis.
Leiöbeinandi: Eyjólfur Sæmundsson efnaverkfræö-
ingur.
ÞATTTAKA TILKYNNIST TIL STJÓRNUNAR-
FÉLAGSINS í SÍMA 82930.
SUÓRNUNARFÉUG fSIANDS
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930
Bóka
mark
aðuim
Góöar
bækur
Gamalt
lik veró
Bokamarkaóurinn
SÝNINGAHÖLLINNI
ÁRTÚNSHÖFÐA