Morgunblaðið - 29.04.1982, Síða 22

Morgunblaðið - 29.04.1982, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982 Njósnarar Rússa reknir frá Spáni Madrid. 2«. apríl. Al*. FORSTÖÐUMANNI Spánarskrif stofu sovézka flugfélagsins Aeroflot, F.N. Nikolayevich, og öðrum starfsmanni félagsins á Spáni, V.L. Tirtishnikov, var visað úr landi fyrir Blöð lofa Bergman New Vork, 28. apríl. Al*. GAGNRÝNENDUR stórblað- anna „New York Times“ og „Daily News“ hældu sænsku leikkonunni Ingrid Bergman á hvert reipi í dag fyrir leik hennar í sjónvarpskvikmyndinni um Goldu Meir fyrrum forsætis- ráðherra ísraels. Fyrri hluti myndarinnar „Kona er nefnd Golda" var sýndur í sjónvarpi á mánu- dagskvöld og birtu blöðin gagnrýni sína í dag. Eiga þau vart nógu sterk lýsingarorð um leik Bergman, en einnig fá höfundar handrits mikið lof. Blöðin segja Bergman ef til vill aldrei hafa leikið jafn vel og að þessu sinni. Henni farist hlutverkið sérstaklega vel úr hendi, og sé túlkun hennar á persónu Goldu Meir raunsæ og eftirminnileg. Gengur Daily News svo langt að segja að nánast sé um að ræða fu! 1 komna endurholgun forsætis- ráðherrans fyrrverandi. njósnir, að sögn spænskra embætt- ismanna. Frá því Rússar og Spánverjar tóku að nýju upp stjórnmálasam- band 1977 hefur tíu Rússum verið vísað úr landi á Spáni fyrir njósn- ir. Að sögn blaða í Madrid stundaði annar Rússinn hernaðarnjósnir en hinn iðnaðarnjósnir, einkum á sviði rafeindatækni. Nikolayevich og Tirtishnikov voru sendir með flugvél til Zúrich í dag, en þaðan halda þeir til Moskvu. Nikolayevich hafði veitt Spánarskrifstofu Aeroflot for- stöðu frá því í febrúar 1980. Þá tók hann við starfi Oleg Suranovs, sem vísað hafði verið úr landi fyrir njósnir. Flugvelli lokað er kviknar í eldhúsi Bríissel, 28. apríl. Al*. LOKA varð flugvellinum í Briissel í sex klukkustundir þar sem flugstöð- in fylltist af reyk. Eldur kviknaði í eldhúsi Sab- ena-flugfélagsins og komst reykur í loftræstikerfi flugstöðvarinnar með þeim afleiðingum að biðsalir, skrifstofur og gangar flugstöðvar- innar fylltust af kæfandi reyk. Einnig barst reykurinn í turn flugumferðarstjóranna, sem urðu að flýja af vettvangi. Öllu flugi til Brussel var beint til Amsterdam, Parísar og annarra borga. Heilsudrykkur- inn Kína-Cola IVking, 27. apríl. Al*. KÍNVERJAR hafa þróað sinn eigin cola-drykk, heilsudrykk, sem unn- inn er úr rótum bóndarósarinnar. Gera þeir sér vonir um að drykkur þessi nái vinsældum um heim allan. Hafa um 18.000 ferðamenn bragð- að á þessu Kína-Cola og fundist það vera keimlíkt því, sem gerist á Vesturlöndum. Dagblað Kommúnistaflokks- ins í Kína sagði svo frá að ef þeirra drykkur næði, þó ekki væri nema tíunda hluta þeirrar sölu, sem Coca-Cola hefur um allan heim, myndi það hafa í för með sér mikla útflutningsverð- mætaaukningu fyrir Kínverja. Að því er blaðið segir er eftir- spurnin eftir hinum nýja cola- drykk þeirra Kínverja slik að henni er engan veginn annað. Hrydjuverkamenn ETA handteknir Bayonne, 28. apríl. Al*. FRANSKA lögreglan handtók i dag 12 menn, sem grunaöir eru um að vera félagar i vopnuðum sveitum ETA, samtökum spænskra baska. Hafa þá 20 menn, þ.á m. tveir Frakkar, verið teknir til fanga í her- ferð lögreglunnar gegn starfsemi baska innan frönsku landamær- anna. Reagan breytir nafni á kafbát Wa.shinj»(on, 28. apríl. Al*. REAGAN Bandaríkjaforseti hefur skipað sjóhernum að skíra upp kafbátinn „Corpus Christi" en heiti hans hefur valdið töluverðum mótmælum vestra. Á latínu merkir þetta „líkami Krists" og hefur mönnum ekki fundist það við hæfi þar sem hér er um að ræða kafbát, sem búinn er kjarnorkuvopnum. Hér eftir á báturinn að heita „The City of Corpus Christi" en það út- leggst „Borg líkama Krists". I áhlaupi lögreglunnar í dag fannst mikið magn vopna og alis kyns skjala og prentaðs áróðurs. Jafnframt var mikið magn fals- aðra persónuskilríkja gert upp- tækt, og prentsmiðja, þar sem fölsuð skjöl og skilríki voru fram- leidd. Fróðir menn segja handtökurn- ar og vopnafundinn vera áfall fyrir ETÁ og veikja starfsemi samtakanna í Frakklandi. Hins vegar er sá armur ETA, sem starf- að hefur innan frönsku landamær- anna, minnsti og hófsamasti hóp- ur baska. Talið er að Frakkarnir tveir séu ekki viðriðnir starfsemi baska, heldur styðji þeir aðeins málstað baska, sem krefjast aðskilnaðar og sjálfstæðis baskasvæðanna. Fulltrúar Spánverja hjá Evr- ópuráðinu í Strasbourg gagnrýndu frönsk yfirvöld harðlega í dag fyrir að skjóta skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn úr röðum baska, og leyfa þeim að athafna sig innan frönsku landamæranna. Sögðu þeir það mundu lama sam- tökin ef starfsemi þeirra í Frakk- landi yrði upprætt. AP-simamynd HUNGURVERKFALL í IÐRUM JARÐAR Þrjú hundruö námamenn, sem hafa verið i hungurverkfalli í námu í Huelva á Spáni, hættu því í gær þegar forsætisráðherrann hafði fallist á að eiga við þá orðastað. Með verkfallinu vildu mennirnir mótmæla því, að námunni hafði verið lokað og má hér sjá nokkra þeirra í fletjum sínum. Engar friðarhorfur í Persaflóastríði Kuwait, 28. apríl. Al*. TILRAIJNIR múhameðstrúarríkja og hlutlausra til að binda enda á striðið milli írana og íraka hafa „alls engan árangur borið“ að því er haft er eftir háttsettum manni i byltingarstjórninni í írak. Á fundi í Bagdad með ritstjór- um frá Kuwait sagði Tariq Aziz, aðstoðarforsætisráðherra íraks, að klerkastjórnin í Iran væri svo forhert í afstöðu sinni, að hún vildi ekki einu sinni ræða þá hugmynd að sest yrði að samn- ingaborði í deilu ríkjanna. Hann tók þó fram, að þótt írakar hefðu fagnað boði Alsírs um milligöngu, myndu þeir aldrei viðurkenna Als- ír-samkomulagið frá 1975, en með því fengu íranir hið umdeilda svæði beggja vegna E1 Arab-sunds eftir að hafa lagt það undir sig með hervaldi. Aziz sagði ritstjórunum, að samskipti Iraka og Sovétmanna færu nú aftur batnandi „eftir nokkurn misskilning" og að Rúss- ar hefðu á ný tekið upp vopna- sendingar til Iraks. Einnig sakaði hann Bandaríkjamenn um að styðja Khomeini og klerkana með ráðum og dáð og að tóm vitleysa væri, að þeir væru hlutlausir um átökin. Utanríkisráðherra írans, Ali Akbar Velayati, sagði í Nýju- Delhi í dag, að ef írakar vildu frið milli þjóðanna yrðu þeir ekki að- eins að hverfa á braut með her sinn af írönsku landi, heldur einn- ig að greiða stríðsskaðabætur. Velayati sagði, að upphaflega hefðu Iranir aðeins farið fram á brottflutning Irakshers en vegna þess gífurlega tjóns, sem hann hefði unnið mönnum og mann- virkjum, nægði það skilyrði eitt ekki lengur. Líbanon: Trúflokkar sameinast í allsherjarverkfalli Beirúl, 28. apríl. Al*. MÍJHAMEÐSTRIJARMENN í Líbanon og kristnir landar þeirra tóku í dag saman höndum í allsherjarverkfalli, sem boðað var til vegna morösins á einum helsta klerki múhameðstrúarmanna af sunni-trúflokknum. Þykir þessi samstaða nokkrum tíðindum sæta og jafnvel vera fyrirboði óvæntrar þróunar í líbönskum innanlandsmálum. Skólar, bankar, stjórnarstofn- anir, verslanir og kvikmyndahús voru lokuð í öllum helstu borgum Líbanons í dag og úr mínarettum moskanna bárust kveinstafir og tilvitnanir í kóraninn, hina helgu bók íslams, þegar Ahmed Assaf var borinn til grafar, en hann var myrtur sl. mánudag af einhverjum óþekktum mönnum. Leiðtogar kristinna manna skoruðu á fylgj- endur sína að taka þátt í verkfall- inu til að mótmæla þessum „glæp gegn hinni líbönsku þjóð“. Þetta er í fyrsta sinn sem trúflokkarnir sameinast um eitthvert mál síðan þjóðin klofnaði í tvær fylkingar í borgarastríðinu 1975. Assaf vakti á sér athygli og að- dáun fyrir nokkru þegar hann barðist gegn tilraunum herskárra vinstrimanna til að ná undir sig allri öryggisgæslu í Líbanon, sem ríkisstjórnin á með réttu að hafa á sinni hendi. Hann var ákafur stuðningsmaður Shafik Wazzan, forsætisráðherra og múham- eðstrúarmanns, sem er mjög and- vígur vopnaskaki vinstrimanna, og nú við dauða Assafs virðist sem æ fleiri Líbanir láti sér umhugað um að koma á einhverri ríkismynd í landinu. Hneykslunum fjölgar Oslóarlögreglunni í Osló, 28. apríl. Frá fréttaritara VI bl LÍTT linnir hneykslismálunum innan lögreglunnar í Ósló. Tveir lögreglu- þjónar eru nú grunaðir um að hafa brotið þau lög, sem þeim er ætlað að standa vörð um, og hafa þá alls sjö verið sakaðir um spillingu í opinberu starfi síðasta hálfa árið. í gær, þriðjudag, var iögreglu- maður handtekinn fyrir að hafa á ólöglegan hátt útvegað kín- verskri konu dvalarleyfi í Nor- egi. Það gerði hann með því að falsa undirskriftir á tilheyrandi plöggum og er sagt, að hann hafi þegið stórfé fyrir. Deginum áður var hafin rannsókn í máli ann- ars lögreglumanns, sem grunað- ur er um að hafa svikið út trygg- ingarfé, 50.000 n.kr., fyrir annan mann með fölskum framburði. Að launum á hann að hafa feng- ið eldavél en ekki hefur enn tek- ist að sanna, að hann hafi tekið við henni. I vetur varð mikið uppistand í Noregi þegar maður nokkur, sem á sér langan afbrotaferil að baki, bar háttsettan mann í lögregl- unni í Osló þungum sökum en nú virðist sem enginn fótur hafi verið fyrir þeim ásökunum. Rannsókn málsins er þó ekki enn alveg lokið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.