Morgunblaðið - 29.04.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982
23
Sex Rússar
leita ásjár í
sendiráði
Moskvu, 28. apríl. AP.
SEX sovézkir hvítasunnumenn
þustu fram hjá rússneskum vörð-
um við lóð brezka sendiráðsins í
Moskvu í gærkvöldi og leituðu
ásjár í sendiráðinu í þeirri von að
fá leyfi til að flytjast úr landi.
Hvítasunnumennirnir, sem
sögðust hafa verið ofsóttir að
undanförnu vegna trúarbragða
sinna, yfirgáfu sendiráðið af
fúsum og frjálsum vilja er þeim
hafði verið tjáð að þar væri enga
hjálp að finna.
Þegar hvítasunnumennirnir
yfirgáfu sendiráðið biðu þeirra
20 óeinkennisklæddir lögreglu-
menn. Voru hvítasunnumenn-
irnir teknir fastir við sendi-
ráðshliðið, þeim troðið inn í
lögreglubíla og ekið á brott.
Sexmenningarnir heyrðu
Balak-fjölskyldunni í borginni
Krasnodar til. Þeir óskuðu eftir
að fá að flytjast til Englands.
Talið er að um 300 þúsund
hvítasunnumenn séu í Sovét-
ríkjunum, en þar í landi er iðk-
un trúarbragða bönnuð með lög-
um.
Sigri fagnað — Vestur-þýzka söngkonan Nicole fagnar sigri í Eurovis-
ion-söngkeppninni i Harrogate á Englandi um helgina. Lagið sem hún
söng, „Ein Bisschen Frieden“, eða „Dulítill friður“, varð hlutskarpast í
söngkeppninni. Ásamt Nicole er á myndinni höfundur lagsins, Ralph
Siegel.
20 myrtir í
Guatemala
(.ualt-mala-borg, 28. apríl. Ar.
HRYÐJUVERKAMENN myrtu 19 karlmenn og eina konu í þorpinu Shipiac-
ul, sem er í 70 kílómetra fjarlægð frá höfuðborg Guatemala, að sögn lög-
reglu. Brenndu þeir siðan lík hinna myrtu.
Tuttugumenningarnir voru
myrtir á sunnudag, er þeir stóðu
vörð við þorp sitt, en þorpsbúar
tilkynntu ekki um verknaðinn fyrr
en á þriðjudag af ótta við hefndar-
aðgerðir.
Einnig voru hjón, sem voru í
varðsveitum óbreyttra borgara,
myrt á götu í höfuðborginni á
þriðjudag. Eins árs son hjónanna,
sem konan bar í fangi, sakaði ekki.
Morðingjarnir komust undan í
hraðskreiðri bifreið.
Jafnframt réðust hryðju-
verkamenn á tvo búgarða 215 kíló-
metra norður af höfuðborginni á
mánudag og myrtu tvo sam-
starfsmenn hersins.
Að jafnaði týna 300 manns lífi í
pólitískum ofbeldisverkum í .
Guatemala, en þar hafa fjórar
hryðjuverkahreyfingar sagt her-
stjórninni stríð á hendur. Stjórnin
hefur hótað að útrýma dauða-
sveitunum. Dauðasveitum hægri
manna hefur verið kennt um flest
morðanna.
Ætlaði að ráða
Thatcher af dögum?
I>ondon, 28. apríl. Al*.
RÚMLEGA fertugur maóur, vopnaður tveimur hnífum og loftriffli, var
tekinn fastur fyrir utan brezka þinghúsið skömmu eftir að Margaret
Thatcher forsætisráðherra flutti ræðu um Falklandseyjadeiluna.
Maðurinn var leiddur fyrir að ráða Thatcher af dögum.
dómara í morgun, og kærður Blaðið sagði manninn hafa verið
fyrir ólöglegan vopnaburð. Blað- handtekinn þegar hann reyndi
ið „The Sun“ sögðu manninn inngöngu í þinghúsið um gesta-
hafa verið viðriðinn samsæri um dyr.
Barist á götum
Berlínarborgar
Borlin, 28. april. Al*.
TVÖ hundruð ungmenni efndu til óeirða í Kreuzberg-hverfi í Vestur-Berlín í
nótt sem leið, aðra nóttina í röð. Átta lögregluþjónar hafa slasast í átökunum,
24 óeirðaseggir verið handteknir og að sögn lögreglunnar hafa verið unnar
skemmdir fyrir tugþúsundir marka.
Talsmaður lögreglunnar segir,
að uppþotin hafi hafist sl. þriðju-
dagskvöld þegar 3000 manns söfn-
uðust saman til að mótmæla
brottflutningi svokallaðra hús-
næðisleysingja, sem sest höfðu
upp í mannlausum íbúðum. í
fyrstu fór allt friðsamlega fram
en brátt réðust ungmennin að
lögreglunni, rændu úr verslunum,
veltu um bílum og kveiktu elda á
götunum með eldsprengjum. Ekki
er vitað nákvæmlega hve mikið
tjón var unnið en rúður í 60 versl-
ERLENT
unum voru brotnar, 27 lögreglubíl-
ar og, einkabílar skemmdir og
götuljós eyðilögð.
Þessar óeirðir eru þær mestu
frá því í fyrra þegar ungmenni í
Vestur-Berlín lögðu undir sig 200
hús í borginni og efndu til uppþota
þegar reynt var að fjarlægja þau.
Heinrich Lummer, þingmaður úr
flokki kristilegra demókrata, sem
ber ábyrgð á iöggæslunni í borg-
inni, hefur hvatt til aukins eftir-
lits með mótmælagöngum. Segir
hann, að „róttækir ofbeldisseggir"
notfæri sér frjálslyndar reglur i
þessum efnum til að ná sér niðri á
lögreglunni og öllum almenningi.
Stjórn Vestur-Berlínar er í
höndum jafnaðarmanna og
frjálsra demókrata og til þessa
hafa þeir staðið í vegi fyrir
strangari löggjöf, einkum hvað
varðar leyfi fólks til að grímubú-
ast í mótmælagöngum til að síður
megi bera á það kennsi.
Telja sig hafa fund-
ið vírus valdan að
heila- og mænusiggi
New York, 27. apríl. Al*.
LÆKNAR í Texas hafa fundið vírus i sjúklingum, sem þjást af heila- og
mænusiggi (multiple schlerosis). Telja þeir að rekja megi sjúkdóminn að
einhverju leyti til þessa víruss. Þá hefur þessi sami vírus einnig fundist i
sjúklingum, sem eru með tvenns konar aðra taugasjúkdóma.
í nýlegri grein í breska lækna- hvort þessi vírus er valdur að
tímaritinu Lancet segir frá því
að rannsóknir hafi staðið yfir
undanfarin tvö og hálft ár.
Mörgum kenningum af svipuð-
um toga hefur verið hrundið
undanfarin ár. Þá er þess einnig
látið getið að umfangsmiklar
rannsóknir verði gerðar áfram
áður en hægt verður að fyllyrða
sjúkdómnum.
Sjúkdómur þessi leggst á heil-
ann og miðtaugakerfið. Eyði-
leggur hann himnu utan um
taugafrumurnar. Rannsóknir á
þessum sjúkdómi hafa leitt líkur
að því að vírus kunni að vera
valdur að honum.
(Zasidjf þvottavélin:
Stálvélm sem stenst
tímanstönn
Nýju Candy þvottavélarnar eru með pott úr ryðfríu
stáli og utan um hann er sterk grind, sem tekur
átakið af pottinum.
CANDY þvottavélar fyrir kalt vatn
CANDY þvottavélar fyrir heitt og kalt vatn
CANDY þvottavélar með 400,500 eða 800 snúninga
vinduhraða.
Einnig bjóðum við Candy þurrkara, svo nú getið
þér þurrkað allan þvottinn í einu á meðan þvotta-
vélin er að þvo. Þannig sparast mikill tími.
CANDY GÆÐI CANDY ÞJÓNUSTA
PFAFF
Bodgartúni 20 Sími 26788