Morgunblaðið - 29.04.1982, Side 31

Morgunblaðið - 29.04.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982 31 Áhugamenn í V-Hún. um stjórnarskrármálið: Olafi G. Einarssyni svarað Ólafur G. Einarsson alþm. ritai grein í Morgunblaðið þann 15.4. sl og varpar fram nokkrum spurn- ingum til „áhugamanna í V-Hún. um stjórnarskrármálið". I upphafi greinar sinnar lýsir Ólafur undrun sinni yfir því að málflutningur okkar skuli „bein- ast í svo einkennlegan farveg þ.e.a.s. að hvetja til andstöðu við þau sjálfsögðu mannréttindi að þegnar þessa lands skuli hafa sem jafnastan kosningarrétt". Við frekari lestur greinarinnar virðist Ólafur alþm. aðeins telja jöfnun atkvæðavægis hið eina sem máli skiptir í jafnréttismálum þegnanna. Ef lýðræði sem jafn- réttishugsjón á að standa undir- nafni, verður að taka tillit til fleiri þátta jafnréttis svo sem aðstöðu til atvinnuvals, heilbrigðisþjón- ustu, menntunar, samgangna svo eitthvað sé nefnt. Þar sem þetta grundvallaratriði virðist ekki vera fyrir hendi hjá þingmanninum verða fyrrnefndar spurningar hans nokkuð froðu- kenndar. Svör vid 1., 2., 3., 4., 5. og 9. spurningum Ólafs. Áhrif íbúa stór-Reykjavíkurs- væðisins á löggjafar- og fram- kvæmdavaldið eru ákaflega mikil einmitt fyrir nærveru Alþingis, þar eru og höfuðstöðvar embætt- ismannakerfisins, stjórnmála- flokkanna, fjölmiðlanna, hags- munasamtaka og verkhönnuða. Þetta er mjög svo einfalt mál og viðurkennt af öllum þorra manna. ; Það telst því algjörlega óréttlæt- anlegt að bæta ofan á því „kosn- ingaréttlæti" að hafa jafnt at- kvæðavægi, þar og annars staðar, enda þekkist slíkt ekki í ýmsum þeim löndum, þar sem lýðræði þykir vera hvað mest til fyrir- myndar, enda þótt höfuðstöðvar þeirra sé langt frá því að vera slíkt „stórveldi" í viðkomandi ríki og Reykjavík og nágrenni er í ís- lenska ríkinu. Svar við 6. spurningu: Við teljum að alþingismenn geri sér ekki leik að því að valda íbúum annarra kjördæma óþægindum, — alþingismenn Reykjavíkur og Reykjaness ekki undanteknir í því efni. Hins vegar eru alþingismenn umbjóðendur kjósenda sinna og hljóta því að draga taum þeirra. Sé dæmi tekið um skiptingu fjármagns til atvinnuuppbygg- ingar eða þjónustustarfa, er ekki hægt að nota sömu krónuna nema einu sinni. Þannig má segja að þeir séu beittir órétti, sem undir verða. Dæmi um misrétti er t.d. þegar ríkinu var gert skylt að fjármagna 80% af byggingu 1000 íbúða í Breiðholti og víðar á höfuðborg- arsvæðinu meðan að slík fyrir- greiðsla fyrirfinnst hvergi á landsbyggðinni. Er þetta einnig dæmi um aðgerðir stjórnvalda til búseturöskunar í landinu. Svar við 7. spurningu: Hlutfallið % af heildartölu þingmanna, sem hámark er ekki fundið með tölfræðilegum aðferð- um, heldur er það sú niðurstaða að nú sé mælirinn fullur hvað snertir síaukin völd og óeðlilega mikil áhrif Reykjavíkur og Reykjanes á stjórnun landsins. Á líkan hátt og múhameðstrú- armenn snúa andlitum sínum í bæn í átt að Mekka snýr mikill hluti íslensku þjóðarinnar andlit- um sínum í átt til USA. Þar ríkir hið fullkomna lýðræði að þeirra mati. En hvernig er það lýðræði í reynd? Kjósandinn í Alaska hefur 50 sinnum meiri atkvæðisvægi til Öldungardeildar Bandaríkjaþings heldur en kjósandinn í New York. Aldrei höfum við heyrt aðdáendur vestræns lýðræðis rjúka upp gegn slíkum „himinhrópandi órétti", sem vesalings kjósendurnir í New York og fleirum stórborgum USA eru beittir af Alaskabúum. Og Washington, höfuðborgin sjálf, hefur engan öldungadeild- armann á þingi. Hvers vegna hafa íslenskir boðberar réttlætisins í kosningarréttarmálum og elsk- endur hins eina sanna lýðræðis og frelsis ekki reynt að hafa áhrif á alþjóðavettvangi til jöfnunar at- kvæðisréttar í USA t.d. við mannréttindadómstól S.Þ. Svar við 8. spumingu: Okkur virðist spurning alþing- ismannsins merkja í stuttu máli, hvort bætt þjónusta úti á lands- byggðinni gæti leitt til breytingar á „tölu þingmanna milli kjör- dæma“. Því er þá til að svara, að þegar landsbyggðinni hefur verið tryggt að búa við sömu kjör og þjónustu og höfuðborgarsvæðið hvað varðar s.s. atvinnumái, heilbrigðismál, menntamál og samgöngumál, þannig að íbúum hennar haldist á fólki sínu í heimahéraði, þá er sjálfsagt og eðlilegt að allir kosn- ingabærir þegnar landsins búi við sama atkvæðavægi hvar sem þeir eru búsettir. Meðan svo er ekki, og frekara alræði íbúa Stór-Reykjavíkur- svæðisins yfir öllu landinu blasir við fái þeir atkvæðavægið jafnað, 60% íbúa landsins býr þar, þá er það hreinasta ósvífni að krefjast slíks, ekki síst þegar tekið er mið af því að létt atkvæðavægi þeirra, samanborið við fámennustu kjör- dæmin, stafar af mismunandi lífskjörum og fólksflótta til höfuð- borgarsvæðisins af þeim sökum. Og mismunun sú er afleiðing stjórnmálalegrar aðgerða eða að- gerðaleysis. Strax og Ólafur G. Einarsson hefur leiðrétt þetta, sem virðist smámunir í hans augum, erum við reiðubúnir til að jafna atkvæða- vægi. „Ahugamenn í V-Hún.“ „Áhugamenn í V-Hún. um stjórnarskrármálið" eru: Örn Björnsson, bóndi, Gauksmýri, Aðalbjörn Benediktsson, ráðu- nautur, Hvammstanga, Egill Gunnlaugsson, dýralæknir, Hvammstanga, Karl Sigurgeirsson, verls.stjóri, Hvammstanga, Vilhelm V. Guðbjartsson, málara- meistari, Hvammstanga, Baldur Ingvarsson, verls.m., Hvammstanga, Matthías Guðmundsson, læknir, Hvammstanga, Bjöm Sigurvaldsson, bóndi, Ás- geirsá. Sumarbústaðaland í Fljótshlíð Smíöum vönduö sumarhús í þrem stæröum. Getum útvegaö land á fallegum staö í Fljótshlíð. Rangá hf., sími 99-5859. Konungleg máltíd úr kindahakki Kjötbakstur tsk haframjöl mjólk kindahakk egg salt 1/4 tsk pipar 2 msk tómatkraftur eða 4 msk saxaðar rauðrófur 1. Stillið ofninn á 180° C. 2. Blandið öllu saman sem á að fara í kjöt- baksturinn nema rauðrófunum og hrærið vel. Blandið rauðrófunum í síðast ef þær eru notaðar. 3. Látið kjötdeigið í smurt ofnfast mót og bakið í 45-50 mín. Borið fram með hrærðum kartöflum, maískorni og hrásalati. Verð aöeins 29,90 kr/kg FRAMLEIOENDUR BENIDROM1982:11. MAI 1.& 22.JUNI 13.JULI 3.& 24 AGUST w * 14SEPT. 5.0KT0BER BEINT FUJG I SOLINA OG SJOINN Umboðsmenn: Sigbjörn Gunnarsson, Sporthúsiö hf.. Akureyri — sími 24350. Helgi Þorsteinsson, Asvegi 2, Dalvík — simi 61162. Feröamiöstöö Austurlands, Anton Antonsson. Selás 5. Egilsstööum — simi 1499 og 1510. Viöar Þorbjörnsson, Noröurbraut 12. Höfn Hornafiröi — simi 8367 Friöfinnur Finnbogason, c/o Eyjabuö, Vestmannaeyjum — simi 1450. Bogi Hallgrímsson, Mánageröi 7. Grindavik — simi 8119. Bjarni Valtýsson, Aöaistööinni Keflavik, Keflavík — sími 1516 Gissur V. Kristjánsson, Breiövangi 22, Hafnarfiröi — simi 52963. Ólafur Guöbrandsson, Merkurteig 1, Akranesi — simi 1431. FERÐA.. MIÐSTOÐKIM AÐALSTRÆTI 9 S. 28133

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.