Morgunblaðið - 29.04.1982, Síða 39
COSPER
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982
39
fclk í
fréttum
Hringjarinn
+ Meö nokkurra ára millibili ráöast kvikmyndamenn í þaö stórvirki aö gera kvikmynd um hina
miklu sögu Hugos „Hringjarann frá Notre Dame“. En þaö er ekki á færi allra aö bregða sér í líki
hringjarans, því sem betur fer eru örfáir í heimi vorum fæddir meö ósköpum hans. Hér sjáum
við hvernig leikarinn Anthony Hopkins tekur smám saman á sig gervi hringjarans, en fyrir
hverja myndatöku þarf hann aö sitja rólegur í meira en klukkustund á meðan tæknimenn alls
konar afskræma andlit hans, svo sem þykir hæfilegt í þetta hlutverk. Viö birtum hér myndir af
þeirri aögerö og ennfremur tvær myndir úr kvikmyndinni, þar sem Lesley-Ann Down fer með
eitt aöalhlutverkið, en hún lék sem kunnugt er Georgínu í Húsbændur og hjú á sínum tíma ...
Mitterrand
og
Hirohito
+ Francois Mitterrand,
Frakklandsforseti, var ný-
veriö í opinberri heimsókn
í Japan. Hirohito keisari
mætti út á flugvöll og tók
á móti forsetanum og
konu hans og fylgdarliði.
Þaö rigndi ákaflega og brá
Hirohito þá upp regnhlíf,
sem og Danielle, forseta-
frú í Frakklandi, en það
þykir Japönum óalgeng
sjón aö sjá keisara sinn
halda sjálfan á regnhlíf.
Kall lét sig semsé hafa
þaö í þetta sinniö aö bera
sjálfur sína eigin regnhlíf,
en Frakklandsforseti gekk
berhöföaður til bifreiðar
sinnar...
N ýtt Nýft
Sumarbolir, peysur, blússur, pils. Glæsilegt úrval.
Glugginn,
Laugavegi 49.
Innilegt þakklæti til fjölskyldu minnar, systkina, vensla-
fólks og annarra góöra vina sem sýndu mér hlýhug og
vinsemd á sjötugsafmæli mínu, 11. apríl sl., meö gjöfum,
skeytum og góðum oröum.
GuÖ blessi ykkur öli
Sigrídur Sigurðardóttir,
Sviðugörðuni.
Sportjakkar
Aldrei glæsilegra úrval af sportjökkum, blaz-
erjökkum og stökum buxum, m.a. yfirstæröir.
Hagstætt verö.
QEísíP
íf EFÞAÐERFRÉTT- V NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐENU