Morgunblaðið - 29.04.1982, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982
47
„Ömurlegasti leikurinn“
Krá l’órarni Kagnars.syni i Kdinborn.
„Þetta er ömurlegasti leikur
sem íslenskt körfuknattleiks-
landslið hefur leikið undir minni
stjórn," segir Einar Bollason
landsliðsþjálfari eftir tapið gegn
Austurríki. „Liðið getur ekki
annað en spilað betur og ég á von
á því að strákarnir rífi sig upp í
næstu leikjum. Styrkleiki aust-
urríska landsliðsins var svipaður
og ég átti von á og þeir komu
okkur alls ekki á óvart," bætti
Einar við, vonsvikinn í bragði.
- O -
Torfi Magnússon lék sinn 75.
landsleik gegn Austurríki. Hann
sagði: „Það benti allt til þess
fyrir leikinn að okkur myndi
ganga vel, það var mikil og góð
stemmning í öllum leikmönnum
og hreint ótrúlegt hve illa okkur
gekk er líða tók á leikinn. Við
náðum alls ekki saman, það var
ekkert sem gekk upp og hittnin
alveg ótrúlega léleg." Torfi bætti
við að ekki væri hægt að kenna
þreytu um, leikmenn væru allir í
góðri æfingu, þetta var einfald-
lega bara einn af þessum slæmu
dögum.
Það er ekki hægt að segja að
lánið leiki við íslenska liðið í
körfuknattleik, miðherji og
hæsti maður liðsins, Jónas Jó-
hannesson, meiddist í Hollandi
og getur ekki leikið með í Skot-
landi. Þá meiddist Torfi Magn-
ússon á læri og hefur það háð
honum nokkuð. Og þegar sjö
mínútur voru eftir af leiknum
gegn Austurríki, meiddist Jón
Sigurðsson á baki og varð að yf-
irgefa völlinn. Ekki er ljóst
hversu slæm meiðsl hans eru, og
óvíst hvort hann getur leikið
með gegn Ungverjum í dag. Jón
sagði eftir leikinn að þetta væru
gömul meiðsli sem væru að taka
sig upp og lýstu sér eins og væg
einkenni að brjósklosi.
- O -
Þrír leikir fara fram í
C-keppninni í dag. ísland mætir
Ungverjalandi, sem að margra
mati er með eitt sterkasta lið í
keppninni. Sigurlíkur Islands
eru ekki taldar miklar í þeim
leik. Austurríki leikur gegn Ir-
landi og Skotar mæta Egyptum.
Símon Ólafsson lék vel gegn Austur-
ríki.
Stórtap í fyrsta leiknum
gegn Austurríkismönnum
Krá l'órarni KagnarsMyni í Kdinborg.
ÍSLENSKA landsliðið í körfuknatt-
leik mátti sætta sig við að tapa með
14 stigum gegn Austurríki, 77—91, í
fyrsta leik sínum í C-riðli Evrópu-
keppninnar í körfuknattleik í Edin-
borg í gærdag. Það verður að segjast
eins og er, að leikur íslands lofaði
ekki góðu um framhaldið i keppn-
inni og allir íslensku leikmennirnir
að Símoni Olafssyni undanskildum
léku langt undir getu.
Framan af leiknum leit út fyrir
að íslenska liðið ætlaði að spjara
Knattspyrnumarkvörðurinn
kunni, Páll Pálmason frá Vest-
mannaeyjum, hefur nú ákveðið að
leggja ekki hanskana á hilluna eins
og hann hafði ákveðið áður. Mun
hann leika með ÍBV i sumar eins og
síðustu 19 knattspyrnuvertiðir, en
Páll er aðeins 36 ára gamall og á því
PEKÚ sigraði Frakkland í vináttu-
landsleik í knattspyrnu sem fram fór
i París í gærkvöldi. Lokatölurnar
urðu 1—0 fyrir Perú og skoraði Juan
Önnur úrslit
Onnur úrslit i C-keppninni í körfu-
knattleik í Skotlandi í gær urðu þau,
að Pngverjar sigruðu Egypta 94—84
og Skotar sigruðu íra 54—43 (!).
Fyrsta golfkeppn-
in hjá GR
Fyrsta keppni sumarsins hjá
Golfklúbbi Reykjavíkur verður á
Korpúlfsstaðagolfvelli nk. laug-
ardag, 1. maí.
Þetta er einnar kylfu keppni
með og án forgjafar. Ræst verður
útkl. 10-11.30 og 13-14.30.
Golfverzlun Nolans í Grafar-
holti verður opnuð formlega á
laugardaginn klukkan 9.
Þess má geta að Grafarholts-
völlur kemur óvenju vel undan
vetri að þessu sinni og að öllu
óbreyttu verður byrjað að leika
golf á honum mun fyrr en venja er
á vorin.
sig. Þegar tíu mínútur voru liðnar
af fyrri hálfleik hafði liðið náð
forystu í leiknum, skorað 20 stig
gegn 17. Á þessum fyrstu mínút-
um var vörn íslenska liðsins all-
sterk og góður hraði var í sóknar-
leiknum. En er líða tók á síðari
hluta fyrri hálfleiks fór að ganga
verr og austurríska liðið seig fram
úr. í hálfleik var staðan 39—33
fyrir Austurríki, sex stiga munur.
Það háði íslensku leikmönnunum
nokkuð hversu fljótt þeir lentu í
villuvandræðum og bitnaði það
enn eitthvað af árum eftir í knatt-
spyrnubransanum. Eyjamenn verða
því ekki í markvarðarkröggum, því
unglingaiandsliðsmaður þeirra,
llreggviður Ágústsson, kemur heim
á ný, en hann lék síðasta tímabil i
marki FII. hkj./gg.
('arlo Oblitas sigurmarkið úr níð-
þröngu færi á 81. mínútu leiksins.
Perúbúar komu Frökkum oft í opna
skjöldu i leiknum með frammistöðu
sinni.
í Vínarborg sigruðu Austurrík-
ismenn landslið Tékkóslóvakíu
2—1. Walter Schachner skoraði
tvívegis fyrir heimaliðið í fyrri
hálfleik pg var það skárri hluti
leiksins. í leiðinlegum síðari hálf-
leik minnkuðu Tékkar muninn
með marki Danek á síðustu mín-
útunum. Hansi gamli Krankl lék
Tékka oft grátt í leiknum og lagði
upp bæði mörkin hjá Schachner.
Belgar sigruðu Búlgari 2—1 á
sínum heimaslóðum, en urðu fyrir
því áfalli, að Rene Van Der Eyck-
en slasaðist og hugsanlegt er að
hann verði af lokakeppni HM fyrir
vikið. Erwin Van Der Bergh skor-
aði fyrra mark Belga, Mladenov
jafnaði, en hinn 37 ára gamli
Wilfried Van Moer skoraði sigur-
markið. Leikurinn þótti lélegur.
Spánn sigraði Sviss örugglega
2—0 á heimavelli sínum, Satrust-
egui skoraði bæði mörkin. I Dyfl-
inni mættust írland og Alsír. Al-
sírbúarnir unnu afar óvæntan sig-
ur, 2—0, og fyllast eldmóði fyrir
lokakeppni HM.
nokkuð á varnarleik liðsins. Sem
dæmi má nefna, að eftir fjórar
mínútur var íslenska liðið komið
með fimm villur. Og Jón Sigurðs-
son var kominn með 3 villur eftir
aðeins tíu mínútna leik. Hittni ís-
lenska liðsins í fyrri hálfleik var
mjög slök utan af vellinum og
mikið var um að sendingar mis-
tókust.
Slakur síðari hálflcikur
Síðari hálfleikur var mjög slak-
ur af hálfu íslensku leikmann-
anna, þeir léku mun verr en í fyrri
hálfleik og austurrísku leikmenn-
irnir voru fljótir að auka muninn í
11 stig strax í upphafi hálfleiks-
ins. Sá munur hélst út allan leik-
inn, ísland náði aldrei að ógna
sigrinum. Það má segja að allt
hafi mistekist hjá íslenska liðinu í
síðari hálfleik, vörnin var slök,
hittni léleg og leikkerfi gengu ekki
upp. Sem dæmi um það hve hittn-
in var slök hjá íslenska liðinu, var
nýtingin í leiknum 32 prósent, sem
telst afar slakt.
íslenska liðið
Símon Ólafsson var eini maður-
inn sem eitthvað kvað að í ís-
lenska liðinu, hann var stigahæsti
maðurinn í leiknum, skoraði 29
stig. Þá náði Símon 13 fráköstum í
leiknum. Skotnýting hans var 48
prósent. Torfi Magnússon, sem lék
sinn 75. landsleik, átti allþokka-
legan leik, var með 50 prósent
skotnýtingu og skoraði 14 stig.
Aðrir leikmenn voru mjög slakir
og náðu sér aldrei á strik. Austur-
riska liðið lék þokkalega vel, en
með góðum leik hefði íslenska lið-
ið ekki verið í vandræðum. Stiga-
hæstur Austurríklsmannanna var
Hasselbacher með 27 stig og var
hann driffjöðurin í leik liðsins. Þá
var Bandaríkjamaðurinn Moldy
mjög sterkur í vörn og sókn, skor-
aði 24 stig og tók 11 fráköst.
Skotnýting hans var 85 prósent.
Stig íslands: Símon Ólafsson 29,
Torfi Magnússon 14, Valur Ingi-
mundarson 8, Ríkharður Hrafn-
kelsson 6, Guðsteinn Ingimarsson
6, Axel Nikulásson 5, Jón Sigurðs-
son 2, Jón Kr. Gíslason 2 og Viðar
Vignisson 1 stig.
Páll hættur við að hætta
Perú sigraði Frakkland
Siaurlás farinn
til Lierse
Sigurlás Þorleifsson, landsliðs-
maöur í knattspyrnu frá Vestmanna-
eyjum, er staddur í Belgíu um þessar
mundir þar sem hann er að athuga
aðstæður hjá 1. deildar félaginu
Lierse. Hélt hann utan í fyrradag, en
hann mun dvelja i viku hjá belgiska
félaginu.
Mál þetta hófst raunar í vetur,
er forráðamenn Lierse buðu Lása
að koma til sín. Taldi hann á sín-
um tíma ýmis vandkvæði á því að
þekkjast boðið, en er Belgarnir
ítrekuðu áhuga sinn fyrir skömmu
sló Sigurlás til. Félagið mun hafa
boðið honum samning, en útilokað
er að segja til um á þessu stigi
hvort hann tekur honum eða hvað
gerist. Ótrúlegt er þó að eitthvað
af viti gerist fyrr en með haustinu,
því samkvæmt reglum KSÍ hefði
Sigurlás þurft að vera búinn að
tilkynna félagaskipti fyrir 1. apríl
síðastliðinn. hkj./gg.
Sigurlás Þorleifsson dvelst nú hji
Lierse í Belgiu.
Bent Nygaard t.v. ásamt félaga sínum Anders Dahl Nielsen, sem mun
þjálfa KK næsta vetur.
Framarar réöu
Bent Nygaard
Handknattleiksdeild Fram hef-
ur gengið frá ráðningu nýs þjálfara
fyrir næsta keppnistímabil. Fyrir
valinu varð danski þjálfarinn Bent
Nygaard, hinn sami og þjálfaði ÍR
á nýloknu keppnistímabili. Náði
ÍR öðru sætinu í 2. deild undir
hans stjórn og því sæti í 1. deild.
Fyrir nokkru höfðu samnings-
aðilarnir næstum náð saman, er
snurða hljóp á þráðinn og slitn-
aði upp úr. Var allt í óvissu um
tíma og má geta þess, að Vals-
menn voru farnir að ræða málin
við Nygaard er samstaða náðist
hjá stjórn og leikmönnum Fram
um að ráða hann. Fóru Framar-
ar þá á fjörurnar við Nygaard á
nýjan leik og í gær var gengið
frá síðustu smáatriðum. Ny-
gaard mun halda fund með leik-
mönnum Fram í næstu viku og
undirbúningurinn undir næsta
keppnistímabil mun væntanlega
hefjast fljótlega. Mun sá danski
einnig sjá um þjálfun yngri
flokkanna hjá Fram. —gg.
Stórsigur Leeds
LEEDS sigraði Aston Villa mjög
óvænt og mjög stórt i 1. deildar
keppninni ensku í gærkvöldi. Leikið
var á Villa Park og sigraði Iæeds
4—1. Eygir liðið nú möguleika á því
að bjarga sér frá falli. llrslit leikja í
ensku knattspyrnunni í gærkvöldi
urðu annars sem hér segir:
1. deild:
Aston Villa — Leeds 1—4
Tottenham — Birmingham 1 — 1
2. deild:
Charlton — Bolton 1—0
Derb.v — Barnsley 0—1
3. deild:
Oxford — Plymouth 1—0
Bayern enn í slagnum
BAYERN sigraði Duisburg 3—2 á
útivelli í þýsku deildarkeppninni í
knattspyrnu í gærkvöldi og hélt í
möguleikann á því að hreppa titilinn
þrátt fyrir allt. Dieter llöness, Udo
Horsman og Karl Heinz Kumenigge
skoruöu mörk liðsins. Urslit leikja
urðu sem hér segir:
Stuttgart — Bielefeldt 2—3
Dortmund — Karlsruhe 4—0
Köln — Bremen 4—2
Duisburg — Bayern 2—3
Mönch. — Bochum 4—2
Frankfurt — Darmstadt 2—1
Ilamburger — Leverkusen 0—0
Núrnberg — Dusseldorf 2—2
Kaiserslautern — Braunschw. 5—3
Fischer, Woodcock, Konopka og
Steiner skoruðu mörk Kölnar gegn
Bremen og liðið hefur nú 41 stig eins
og llamhurger, en HSV hefur betri
markatölu. Bayern hefur 39 stig í
þriðja sætinu.
Met Guörúnar
GUÐRÚN Ingólfsdóttir setti í gær-
kvöldi nýtt íslandsmet í kringlukasti
á innanfélagsmóti KR. Kastaði (fuð-
rún kringlunni 52,24 metra en gamla
metið átti hún sjálf, það var 51,86
metrar.