Morgunblaðið - 04.06.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ1982
Borgarstjóm:
Kosið í 32
nefndir
— Kosningu í hafnar-
stjórn frestað
NEFNDARMENN í 32 nefndir
borgarinnar voru kosnir á borgar-
stjórnarfundi í gærkveldi, en kosn-
ingu í hafnarstjórn var frestað. Þá
voru og varamenn kosnir. Hér fara á
eftir nöfn formanna heistu nefnda,
en i blaðinu á morgun verða nöfn
nefndarmanna birt.
Magnús L. Sveinsson var kjör-
inn formaður Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar, Ragnar Júlí-
usson formaður útgerðarráðs,
Magnús L. Sveinsson formaður at-
vinnumálanefndar. í þessar
nefndir var kosið til eins árs.
í eftirfarandi nefndir var kosið
til fjögurra ára og eru eftirtaldir
formenn: Katrín Fjeldsted for-
mgður heilbrigðisráðs, Markús
Örn Antonsson formaður félags-
málaráðs, Sigurjón Fjeldsted
formaður stjórnar veitustofnana,
Sveinn Björnsson formaður
stjórnar Strætisvagna Reykjavík-
urborgar, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson formaður skipulags-
nefndar, Valgarð Briem formaður
umferðarnefndar, Kolbeinn Páls-
son formaður Æskulýðsráðs, Júlí-
us Hafstein formaður íþróttaráðs,
Hulda Valtýsdóttir formaður um-
hverfismálaráðs, Einar Hákon-
arsson formaður stjórnar Kjar-
valsstaða og Ragnar Júlíusson
formaður veiði- og fiskiræktar-
ráðs.
Flugleiðir
fara fram á
undanþágu
FLf'GLEIÐIR munu fara fram á
unuanþágu fyrir að flug verði með
eðlilegum hætti dagana 10. og 11.
júní en þá hefur Vezlunarmannafé-
lag Suðurnesja boðað vinnustöðv-
un. Félagið hefur einnig farið fram
á undanþágur frá og með 18. júní
þegar verkfall félaga í Verzlunar-
mannafélagi Suðurnesja hefst og
frá og með 21. júní þegar verkfall
félaga í Verkalýðs- og Sjómannafé-
lagi Suðurnesja hefst. Fordæmi eru
fyrir því, að slíkar undanþágur hafi
verið veittar.
Þá munu Flugleiðir fara fram
á undanþágur á Reykjavíkur-
flugvelli vegna verkfalla félags-
manna í Dagsbrún og Verzlun-
armannafélagi Reykjavíkur.
Hvalveiðiflotinn er nú tilbúinn til veiða, en vegna fyrirhugaðra verkfalla
verður sennilega töf á að flotinn leggi úr höfn, að því er Kristján
Loftason, forstjóri Hvals hf., upplýsti Morgunblaðið.
hvalveiðiflotinn léti úr höfn á sunnudag.
Fyrirhugað var að
Ljósm. Mbl. Emilía.
Borgarstjómarfundur 1 gærkveldi:
Tillögur sjálfstæðismanna
um skipulagsmál samþykktar
BORGARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum í gærkveldi tillögur frá borgar-
ráðsmönnum Sjálfstæðisflokksins um að falla frá fyrirhugaðri byggð við
Suðurlandsbraut austan Skeiðarvogs, þ.e. við Gnoðarvog. Einnig var sam-
þykkt að nema úr gildi allar samþykktir skipulagsnefndar varðandi íbúðar-
byggð í Laugardal. Þá var einnig samþykkt að hætta við byggingu bryggja i
Tjörninni og samþykkt var að leggja framkvæmdaráð borgarinnar niður.
Alþýðubandalagið bar fram frá-
vísunartillögu við tillögu sjálf-
Fulltrúar Alþýðubandalags,
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks lögðu fram frávísunartil-
lögu við þá tillögu sjálfstæð-
ismanna að leggja niður fram-
kvæmdaráð, en frávísunartillagan
var felld með 12 atkvæðum gegn 7.
Fulltrúar Kvennaframboðs sátu
hjá. Hins vegar var samþykkt til-
laga um að skýrslur frá bygginga-
deild og gatnamálastjóra, sem
hingað til hafa verið lagðar fram í
framkvæmdaráði, verði sendar
öllum borgarfulltrúum. Þá óskuðu
fulltrúar Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og Framsóknarflokks
eftir því að tillögu um að falla frá
byggð við Gnoðarvog yrði frestað,
en sú frestunartillaga var felld
með 12 atkvæðum gegn 9.
stæðismanna um að falla frá
hugmyndum um byggð í Laugar-
dal, og var sú tillaga felld með 12
atkvæðum gegn 6 og sátu fulltrúar
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks hjá við þá atkvæðagreiðslu.
Loks lögðu alþýðubandalagsmenn
til, að frá yrði vísað tillögu sjálf-
stæðismanna um að hætt verði við
Tjarnarbryggjur, og var frávísun-
artillagan felld með 12 atkvæðum
gegn 5. Fulltrúar Framsóknar-
flokks og Kvennaframboðs sátu
hjá.
Davíð Oddsson borgarstjóri,
gerði grein fyrir áðurgreindum
tillögum sjálfstæðismanna og
sagði að engum þyrfti að koma á
óvart að þær væru lagðar fram,
þær væru í samræmi við málflutn-
ing sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn. Sagði hann að sjálfstæð-
ismenn hefðu verið andvígir stofn-
un framkvæmdaráðs, það hefði
einungis verið til þess að gera
stjórnkerfi borgarinnar seinvirk-
ara og dýrara en verið hefði. Þá
þyrfti mönnum ekki að koma á
óvart sú afstaða flokksins að vilja
hverfa frá hugmyndum um byggð
í Laugardal, það svæði ætti að
vera íþrótta- og útivistarsvæði.
Einnig ætti að vera útivistarsvæði
við Gnoðarvog, þar sem vinstri
meirihlutinn hefði ætlað að setja
niður byggð.
Þá kvað Davíð það einkennilegt
að fyrrverandi meirihluti furðaði
sig á því að sjálfstæðismenn vildu
efna sín loforð. Þessi afstaða
þeirra væri hins vegar ekki und-
arleg ef litið væri á það, að þessir
aðilar væru ekki þekktir fyrir það
að efna sín loforð.
V erkfallsboðunin
heftir mikil áhrif
* r
— segir Asmundur Stefánsson forseti ASI
„ÞAÐ ERU um 50 félög, sem hafa boóað verkföll dagana 10. og 11. og það er
Ijóst að þar eru allflest stórfélögin með, að frátöldum vestfirzku félögunura.
|»ví tel ég að það fari ekkert á milli mála að verkfallsboðunin hefur mikil
áhrif og verður vonandi (il þess að VSÍ verði frekar til viðræðna um lausn
mála. Það er okkar markmið að ná samningum sem fyrst og nú er skammur
tími til stefnu,“ sagði Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, í gær er Morgun-
blaðið innti hann álits á þátttöku aðildarfélaga ASÍ í verkfallsboðunum.
—Telur þú það ekki benda til
brotalamar í samstöðunni, að að-
eins þriðjungur félaganna boðaði
verkfall?
„Það eru ýmis félög, sérstaklega
minni félögin, sem ekki hafa tekið
þátt í þessari verkfallsboðun, en
ég held að samstaðan sé nógu
sterk til þess að það sé sýnt öflugt
andlit og ég treysti því þar af leið-
andi að áhrifin verði jákvæð.
Verkbannsboðun VSI frá og með
18. júní tel ég fyrst og fremst bera
að skoða sem framhald á hinni
hörðu línu, sem VSÍ hefur haft
uppi. Hún kemur mér því ekki
beint á óvart, en hins vegar sé ég
ekki að sú ákvörðun þjóni miklum
tilgangi."
— Er nokkuð að þokast í sam-
komulagsátt þessa dagana?
„Það kemur þá í ljós á fundi á
föstudag eða nú um helgina, ef
einhver bót hefur orðið þar á.
Þetta hefur gengið of treglega,
mér er ekki kunnugt neinn árang-
ur af óformlegum viðræðum í dag.
Mér finnst nú ekki öll teikn gefa
manni vísbendingu um það, að
ástæða sé til að vera vongóður, þó
maður verði að vera það fram á
síðustu stundu. Það er að sjálf-
sögðu mikilsvert að ná samning-
um og það skiptir verulegu máli að
gera það áður en til verkfalla kem-
ur. Það yrði að sjálfsögðu þung-
bært fyrir fólk, ef til langs verk-
falls kæmi og ekki síður fyrir at-
vinnuvegina. Verkfall er aðgerð,
sem ekki er gripið til nema í neyð
þegar útséð er um það að aðrar
leiðir skila ekki árangri," sagði
Ásmundur
Háskóli íslands:
Tillaga um tak-
markanir í bygg-
ingarverkfræði
FYRIR Háskólaráði liggja tillögur
frá læknadeild um fjöldatakmark-
anir stúdenta í læknisfræði, frá
tannlæknadeild um takmörkun
stúdenta í tannlækningum og
fjöldatakmarkanir i sjúkraþjálfun.
Þá hefur byggingarverkfræðiskor
samþykkt tillögu um takmarkanir
á fjölda stúdenta í byggingarverk-
fræði. Háskólaráð tók tillögur
læknadeildar, tannlæknadeildar
og námsbrautar í sjúkraþjálfun
fyrir á fundi sinum í gær, en af-
greiðslu var frestað um viku.
í tillögum þeim sem liggja
fyrir ráðinu felst, að fyrsta árs
stúdentar í sjúkraþjálfun verði
ekki fleiri en 18 en voru 20 í
fyrra; að ekki fleiri en átta stúd-
entar komist á annað ár í tann-
lækningum; að ekki fleiri en 36
stúdentar í læknisfræði komist á
annað ár. Um er að ræða sömu
takmarkanir í læknisfræði og
tannlækningum og samþykktar
voru til eins árs á fundi Háskóla-
ráðs í fyrra.
Á fundi byggingarverkfræði-
skorar var tillaga um fjölda-
takmörkun nemenda í bygg-
ingarverkfræði samþykkt með
öllum atkvæðum kennara gegn 2
atkvæðum stúdenta, en tillagan
hljóðar svo: „Byggingarverk-
fræðiskor ályktar að miðað við
núverandi aðstæður sé ekki
hægt að sinna fleiri nemendum
en 16—18 á 3. og 4. námsári.
Húsnæði er ekki fyrir hendi til
þess að kenna stærri hóp. Enn-
fremur er ekki til reiðu nægur
fjöldi kennara til þess að annast
þá kennslu, sem fylgir stærri
árgöngum á 3. og 4. ári.“
Þing BSRB hefst í dag
32. ÞING Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja hefst að Borgartúni
6 síðdegis í dag. Þingið setur
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, klukkan 16.30, en að lokn-
um ávörpum erlendra gesta og
annarra hefjast þingstörf. Ráð-
gert er að þinginu verði slitið á
þriðjudag. 193 fulltrúar 32 félaga
og 16.231 einstaklinga sitja þingið.