Morgunblaðið - 04.06.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982
3
Aðalfundur Hafskips hf. 1 dag:
Hagnaður 4,8 milljónir
veltuaukning 93%
AÐALFUNDUR Hafskips hf. er
haldinn í dag og í tilefni þess hefur
Morgunblaðið aflað sér nokkurra
upplýsinga um stöðu og fjárhagsaf-
komu fyrirtækisins árið 1981, en á
fundinum verða reikningar þess árs
lagðir fram. Samkvæmt þeim kemur
í Ijós að hagnaður þess nam 4,8
milljónum króna, eða 2,8% af rekstr-
artekjum félagsins, en veltuaukning
nam 93% og síðastliðin fjögur ár er
hún 1.098%.
Samkvæmt upplýsingum Ragn-
Þrjár sölur ytra
ÞRJÚ íslenzk skip seldu afla í Eng-
landi og í Þýzkalandi í gærmorgun.
Álsey seldi 40,3 tonn í Fleetwood
fyrir 298 þúsund krónur og var með-
alverð á kíló kr. 7,39. Þá seldi Helga
II RE 74,8 tonn í HUll fyrir 698.300
krónur og var meðalverð á kíló kr.
9,33.
Snæfugl frá Reyðarfirði seldi síð-
an 132,6 tonn í Cuxhaven fyrir
1.006.300 þúsund krónur og var með-
alverð á kíló kr. 7,59.
ars Kjartanssonar, framkvæmda-
stjóra Hafskips hf., hefur rekstr-
arhagnaður fyrir afskriftir, fjár-
magnsgjöld og skatta árið 1981
numið 22,7 milljónum króna eða
12,94% af rekstrartekjum. Með til-
liti til gengismála, meðal annars,
var árið 1981 fyrirtækinu fremur
óhagstætt þar sem meginhluti
rekstrartekna var í Evrópugjald-
miðlum en tæplega helmingur
rekstrargjalda og stærstur hluti
fjármagnsgjalda í Bandaríkjadoll-
urum. Hækkun dollarsins gagnvart
íslenzku krónunni var á umræddu
ári um 31%, en hækkun Evrópu-
gjaldmiðla sáralítil og verðlags-
þróun í landinu langt umfram þau
mörk. Vegna þessa hækkuðu
gjaldaliðir mun meira en tekjuliðir.
Árið 1981 sýndu verðlagsyfirvöld
kaupskipaútgerðinni meiri skilning
en undanfarin ár með tilliti til
flutningsgjalda og nam vegin með-
altalshækkun flutningsgjalda þá
um 26% og nægði það nær til
rekstrarjafnaðar, en áður höfðu
skuldabaggar safnazt upp vegna
lágra flutningsgjalda. Þá varð
nokkurt tap á vöruafgreiðslu fé-
lagsins, eða 9,4 milljónir króna,
sem nemur 65,8% af tekjum vöru-
afgreiðsiunnar og séu afskriftir
teknar inn í dæmið er hlutfallið
85,4%. Þetta má að nokkru skýra
með kostnaði af flutningi í Austur-
höfnina, en ljóst er þó að ná verður
samkomulagi við rétta aðilja um
eðlilegar forsendur fyrir gjaldskrá
vöruafgreiðslu svo til rekstrarjöfn-
uðar verði stefnt í stað tapreksturs
eins og nú á sér stað.
Eigið fé í árslok nam 13.1 milljón
samkvæmt efnahagsreikningi og
hafði aukizt um 55% frá fyrra ári,
en endurmetin eiginfjárstaða nam
25,9 milljónum króna eða 97,7%
hærri upphæð en efnahagsreikn-
ingur sýnir. Á árinu 1981 störfuðu
að meðaltali 224 starfsmenn hjá
fyrirtækinu og námu beinar launa-
greiðslur til þeirra 29,2 milljónum
króna. Þar að auki störfuðu um 70
manns að meðaltali á árinu við
starfsemi erlendis og á öðrum skip-
um.
Davið Oddsson ræðir við Grétar R. Haraldsson, en hann var sá fyrsti sem
óskaði eftir viðtali við borgarstjóra. Ljósm. Mbl. Emíli*.
Mikið að gera í fyrsta við-
talstíma borgarstjóra
FYRSTA móttaka nýkjörins borgar-
stjóra i Reykjavík, Davíðs Oddsson-
ar, var sl. miðvikudag og hófst hun
kl. 10.30.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá skrifstofu
borgarstjóra var mikið að gera á
meðan á viðtalstímanum stóð og
varð að loka biðstofu borgarstjóra
kl. 11.05, en þá höfðu 23 óskað eftir
viðtali. Viðtalstíma borgarstjóra
lauk ekki fyrr en laust fyrir klukk-
an 15.00 og sagði starfsfólk
skrifstofu borgarstjóra að langt
væri síðan svo mikið hefði verið að
gera í viðtalstíma borgarstjóra.
ROYAb
Royal er sigild veggsamstœða með mismunandi uppstillingar
möguleikum.
Lýsing er í öllum yfirskápum. Pólerað gler i glerskápum.
Allar hurðir og skrautlistar á framstykki skápsins eru massifri eik.
• jtHiUÚ >>
y m
,! >! í I
Kmy0
* í 4 3 J « jj -í
Í i
é g
handverk
sérflokki
húsgögn Ármúla 44 — Símar 85153 og 32035