Morgunblaðið - 04.06.1982, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982
Peninga-
markadurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 95 — 3. JÚNÍ1982
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 09.15 Kaup Ssla
1 Bandaríkjadollar 10,928 10,960
1 Sterlingspund 19,627 19,684
1 Kanadadollar 8,782 8,808
1 Dðnsk króna 1,3535 1,3575
1 Norsk króna 1,8009 1,8062
1 Sænsk króna 1,8583 1,8817
1 Finnskt mark 2,3907 2,3977
1 Franskur franki 1,7698 1,7748
1 Balg. franki 0,2441 0,2449
1 Svissn. franki 5,4188 5,4345
1 Hollenskt gyllini 4,1607 4,1729
1 V.-þýzkt mark 4,6168 4,6303
1 itölsk líra 0,00633 0,00636
1 Austurr. sch. 0,6554 0,6573
1 Portug. ascudo 0,1511 0,1516
1 Spénskur pasati 0,1035 0,1038
1 Japansktyen 0,04482 0,04495
1 írskt pund 15,985 16,032
SDR. (Sérstök
dráttarréttindi) 02/06 12,2024 12,2382
z'
GENGISSKRÁNING
FERÐAMANNAGJALDEYRIS
3. JÚNÍ 1982
— TOLLGENGI í JÚNÍ —
Ný kr. Toll-
Eining Kl. 09.15 Sala Gangi
1 Bandaríkjadollar 12,056 10,832
1 Sterlingspund 21,652 19,443
1 Kanadadollar 9,689 8,723
1 Dönsk króna 1,4933 1,3642
1 Norsk króna 1,9868 1,8028
1 Sænsk króna 2,0479 1,8504
1 Finnskt mark 2,6375 2,3754
1 Franskur franki 1,9523 1,7728
1 Betg. franki 0,2694 0,2448
1 Svissn. franki 5,9780 5,4371
1 Hollanskt gyllini 4,5902 4,1774
1 V.-þýzkt mark 5,0933 4,6281
1 itötsk líra 0,00920 0,00835
1 Austurr. sch. 0,7230 0,6583
1 Portug. ascudo 0,1668 0,1523
1 Spánskur peseti 0,1142 0,1039
1 Japansktyan 0,04945 0.04448
1 írskt pund 17,635 16,015
SDR. (Sórstök
dráttarréttindi) 1/06 12,1667
Vextir: (ársvextir)
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóðsbækur............. 34,0%
2. Sparisjóösreikningar, 3 mán.1). 37,0%
3. Sparísjóðsreikningar, 12. mán. 1*.„ 39,0%
4. Verðtryggðir 6 mán. reikningar. 1,0%
5. Avísana- og hlaupareikningar. '9,0%
6. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæður í dollurum...... 10,0%
b. innstæður í sterlingspundum. 8,0%
c. mnstæður i v-þýzkum mörkum. .. 7,0%
d. innstæður i dönskum krónum. 10,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Verðbótaþáttur í sviga)
1. Víxlar, forvextir...... (26,5%) 32,0%
2. Hlaupareikningar..... (28,0%) 33,0%
3. Lán vegna útflutningsafurða.. 4,0%
4. Önnur afurðalán ..... (25,5%) 29,0%
5. Skuldabréf .......... (33,5%) 40,0%
6. Vísitölubundin skuldabréf..... 2,5%
7. Vanskilavextir á mán...........4,5%
Þess ber að geta, að lán vegna út-
flutningsafurða eru verötryggö miöað
viö gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjódslán:
Lifeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæð er nú 120 þúsund ný-
krónur og er lánið vísitölubundið með
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstimi er allt að 25 ár, en getur verið
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veð er i er lítilfjörleg. þá
getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aðild að
lifeyrissjóðnum 72.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjórðung umfram 3 ár
bætast viö lánið 6.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náð 5 ára aöild aö
sjóðnum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæðar 3.000 nýkrónur á
hverjum ársfjórðungi, en eftir 10 ára
sjóðsaðild er lánsupphæðin orðin
180.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aðild
bætast við 1.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjórðung sem líöur Því er í raun ekk-
ert hámarkslán í sjóðnum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur með
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravisitala fyrir maímánuð
1982 er 345 stig og er þá miðað viö 100
1. júni '79
Byggingavísitala fyrir aprilmánuð var
1015 siig og er þá miöaö viö 100 í októ-
ber 1975.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viðskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
ÍJtvarp kl. 16.20:
Barnatími helg-
aður lundanum
Á dagskrá útvarpsins
klukkan 16.20 er Litli barna-
tíminn sem Dómhildur Sig-
urðardóttir stjórnar á Akur-
eyri. Barnatíminn verður að
þessu sinni helgaður lundan-
um. Rósa Jónsdóttir, sem er
níu ára segir frá lundanum
og lesin verður sagan
„Lundapysja" eftir Eirík
Guðnason. Orðið pysja er oft
notað um unga lundans. í
þættinum syngur einnig
Katla María, „Ef væri ég
fugl“.
Sjónvarp kl. 22.05:
í friði frá umheiminum
Á dagskrá sjónvarpsins í
kvöld er bíómyndin Líf mitt í
spegli (Elisa, vida mia) eftir
Carlos Saura. Aðalhlutverk er
í höndum Fernando Rey og
Geraldine Chaplin. Myndin
segir sögu Luis, sextíu ára
gamals manns, sem hefur
ákveðið að búa einn síns liðs og
í friði frá umheiminum. Hann
er skrifa bók, þegar dóttir
hans, Elisa, kemur í heimsókn.
Samræður þeirra verða ýmist
hluti af verki hans eða tvinn-
ast skrifum hans. Smám sam-
an fléttast frásögnin í sögunni
og raunveruleikinn saman.
Sjónvarp kl. 21.15:
Gamlar og merkar
fréttamyndir
Á dagskrá sjónvarpsins í
kvöld klukkan 21.15 er mynd
um sögu Movietone frétta-
myndanna, sem sýndar voru
m.a. í kvikmyndahúsum
hérlendis. í þessari mynd eru
sýndar margar gamlar og
merkar fréttamyndir frá 50
ára sögu Movietone. Með til-
komu sjónvarpsfréttamynda
brast grundvöllur undan
Movietone og framleiðslu
þessara mynda var hætt.
Útvarp kl. 11.30:
Létt tónlist
Á dagskrá útvarpsins
klukkan 11.30 er létt tónlist
með víðfrægum tónlistar-
mönnum. Leikin verða m.a.
lög með hinum margsyrgða
látna bítli, John Lennon og
ekkju hans Yoko Ono, leikar-
anum og tónlistarmanninum
David Bowie, bresku hljóm-
sveitinni Dire Straits,
countrysöngvaranum Willie
Nelson o.fl. Ekki er að efa að
margir unnendur léttrar
tónlistar fái eitthvað við sitt
hæfi.
utvarp Reykjavík
FÖSTUDKGUR
4. júní
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.20 Leikfimi.
7.30 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgun-
oró: Gunnar Ásgeirsson talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Tónleikar.
8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Ólafs Oddssonar frá kvöldinu
áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Úr ævintýrum barnanna"
Þórir S. Guðbergsson les þýð-
ingu sína á barnasögum frá
ýmsum löndum (5).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Morguntónleikar
Konunglega filharmoníusveitin
í Lundúnum leikur Vais úr
„Eugene Onegin“ eftir Pjotr
Tsjaíkovský; Sir Thomas Beech-
am stj. / Maria Callas syngur
með hljómsveit Parísaróperunn-
ar „Habanera“ úr „Carmen“
eftir Georges Bizet; Georges
Prétre stj. / Barry Tuckwell og
St. Martin-in-the-Fields
hljómsveitin leika „Rondó“ úr
hornkonsert nr. 4 eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart; Neville
Marriner stj. / Konunglega fíl-
harmoníusveitin í Lundúnura
leikur „Salut d’amore" eftir
Edward Elgar; Lawrence Col-
lingwood stj. / Leo Driehuys og
I Musici kammersveitin leika
Óbókonsert i a-moll eftir An-
tonio Vivaldi.
11.00 „Mér eru fornu minnin
kær“
Einar Kristjánsson frá Her-
mundarfelli sér um þáttinn.
11.30 Létt tónlist
David Bowie, John Lennon,
Yoko Ono, Dire Straits, Wjllie
Nelson o.fl. syngja og leika.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
Á frivaktinni — Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
15.10 Faðir skeggsins
eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson
Karl Guðmundsson les.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Litli barnatíminn
Dómhildur Sigurðardóttir
stjórnar barnatíma á Akureyri.
— Lundinn. Rósa Jónasdóttir,
níu ára, segir frá lundanum og
lesin verður sagan „Lundapysj-
an“ eftir Eirik Guðnason.
16.40 Hefurðu heyrt þetta?
Þáttur fyrir börn og unglinga
um tónlist og ýmislegt fleira í
umsjá Sigrúnar Björnsdóttur.
17.00 Síðdegistónleikar
Fílharmoníusveitin í Berlín
leikur „Vald örlaganna'*, for-
leik eftir Giuseppe Verdi; Her-
bert von Karajan stj. / Maurice
Gendron og Lamoureux-hljóm-
sveitin leika Sellókonsert í B-
dúr eftir Luigi Boccherini;
Pablo Casals stj. / Filharmoniu-
sveitin í Vínarborg leikur Sin-
fóniu nr. 5 í B-dúr eftir Franz
Schubert; Karl Böhm stj.
KVÖLDIÐ
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.40 Á vettvangi
20.00 Lög unga fólksins
Hildur Eiríksdóttir kynnir.
20.40 Sumarvaka
a. Einsöngur: Guðmunda Elí-
asdóttir syngur. Magnús Blön-
dal Jóhannsson leikur á píanó.
b. Leiðið á Hánefsstaðaeyrum.
Jón Helgason rithöfundur
skráði frásögnina, sem Sigríður
Schiöth les.
c. „Horfðu á jörð og himins-
far“. Guðmundur Guðmunds-
son les úr Ijóðum Sigurðar
Breiðfjörð.
d. Frá ísraelsför í fyrrasumar.
Ágúst Vigfússon flytur ferða-
þátt, sem hann skráði eftir Rut
Guðmundsdóttur.
e. Kórsöngur: Hljómeyki syng-
ur íslensk lög.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Úr minningaþáttum Ron-
alds Reagans Bandaríkjafor-
seta, eftir hann og Richard G.
Hubbler. Óli Hermannsson
þýddi. Gunnar Eyjólfsson les
(5).
23.00 Svefnpokinn
Umsjón: Páll Þorsteinsson.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
FÓ8TUDAGUR
4. jéaf
19.45 Fréttaágrip á táknmáiL
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýangar og dagskrá
20.40 Prúðuieikararnir
Fjérði þáttur. Gestur prúðuleik
aranna er Shirley Bassey. Þýð-
andi: Þrándur Tboroddsen.
21.05 Á döfinni
Umsjón: Karl Sigtryggsson.
21.15 Movietone-fréttir
Bresk mynd um sögu Movie-
tonefréttamyndanna, sem sýnd-
ar voru 1 kvikmyndahúsum,
m.a. hérlendis. Framleiðslu
þessara mynda var hætt eftir að
samkeppnin við sjónvarp barðn-
aðL í þessari mynd eru sýndar
margar gamlar og merkar
fréttamyndir frá 50 ára sögu
Movietone. Þýðandi: Þorsteinn
Helgason.
22.05 Lif mitt í spegli
(Elisa, vida mia)
Spænsk bíómynd eftir Carlos
Saura. Aðalhlutverk: Fernando
Rey og Geraldine Chaplin.
Myndin segir sögu Luis, sextfu
ára gamals manns, sem hefur
ákveðið að búa einn sins iiðs og
f friði frá umheiminum. Hann
er að skrifa bók, þegar dóttir
hans, Elisa, kemur í heimsókn.
00.05 Dagskrárlok.