Morgunblaðið - 04.06.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982
5
Bjarni Jónsson
sýnir á Höfn
BJARNI Jónsson lístmálari opnaði í
gær sýningu á málverkum sínum i
Gagnfrteðaskólanum á Höfn í
Hornafirði. Sýningin verður opin
daglega frá kl. 18 til 22 og stendur
fram á sunnudag 6. júní, þ.e. fram á
sjómannadag.
Bjarni Jónsson er fæddur 15.
september 1934. Var fyrst ungur
mikið á vinnustofum margra af
okkar þekktustu málurum eins og
Ásgeirs Bjarnþórssonar, Ásgríms
Jónssonar, Kjarvals o.fl. Stundaði
síðan nám í skóla Frístundamál-
ara, átti þá m.a. mynd á sýningu,
sem hann gerði 10 ára gamall. Síð-
ar stundaði hann nám í Handíða-
skólanum hjá Valtý Péturssyni,
Hjörleifi Sigurðssyni og Ásmundi
Sveinssyni.
Bjarni tók fyrst þátt í samsýn-
ingu Félags ísl. myndlistarmanna
árið 1952, og flest ár síðan, auk
samsýninga erlendis. Fyrsta
sjálfstæða sýningin var í Sýn-
ingarsalnum í Reykjavík 1957,
önnur í Listamannaskálanum
1962, þriðja í Hafnarfirði 1963,
fjórða í Vestmannaeyjum 1969, og
sama ár í Galerie 6 í Reykjavík, og
í Hafnarfirði 1973. Jafnframt
samsýningar með hafnfirskum
málurum, síðast 1974. Sýningar á
Mokka 1958 til 1961. Þátttaka í
Paris Biennale 1961. Þrjár myndir
Bjarna hafa verið á farandsýn-
ingu í Bandaríkjunum á vegum
American People Encyclopædia.
Aðalfundur
*
BI á morgun
AÐALFUNDUR Blaðamannafélags
íslands verður haldinn á morgun,
laugardag. Fer hann fram í Síðu-
múla 23 og hefst kl. 14. Á dagskrá
eru venjuleg aðalfundarstörf.
Bjarni hefur auk þess mynd-
skreytt fjölda námsbóka og
kennsluspjöld fyrir Ríkisútgáfu
námsbóka, bækur margra útgáfu-
fyrirtækja; teiknaði nokkur ár
fyrir Spegilinn, ásamt leikmynd-
um fyrir Leikfélag Vestmanna-
eyja og Leikfélag Hafnarfjarðar
og leikmyndir fyrir kvikmyndina
Gilitrutt.
Bjarni Jónsson hefur haldið
sýningar um land allt. Á Akur-
eyri, Akranesi, Bolungarvík,
Stykkishólmi, ísafirði, Selfossi og
Keflavík, svo að eitthvað sé nefnt.
Mörg undanfarin ár hefur hann
unnið að heimildarteikningum í
hið mikla rit Lúðvíks Kristjáns-
sonar um íslenska sjávarhætti frá
fyrstu tíð, auk fjölmargra mynda í
nýju Skátabókina.
Á þessari sýningu eru þjóð-
lífsmyndir, dýramyndir, blóma-
myndir, landslagsmyndir, málað-
ur rekaviður o.fl.
Myndir þær sem sýndar eru hér,
hafa verið valdar með það fyrir
augum, að sýna sem flestar hliðar
á list Bjarna Jónssonar.
Bjarni Jónsson
Forsvarsmenn tæknimanna útvarps, talið frá vinstri: Ástvaldur Kristinsson, Runólfur Þorláksson og Þórir
Steingrímsson. Myndir Mbl. Emília.
Ekkert útvarp frá og með deginum í dag:
„Ríkið hefur ekki
staðið við samninga“
„VIÐ GÖNGUM ekki út á mið-
nætti vegna þess að við viljum fara,
um annað er bara ekk: að ræða,“
sagði Runólfur Þorláksson, tækni-
maður hjá útvarpinu, þegar Morg-
unblaðið hitti hann að máli um
miðjan dag í gær, ásamt þeim Þóri
Steingrímssyni og Ástvaldi Krist-
inssyni, en þeir þrír hafa staðið
framarlega í kjarabaráttu tækni-
manna útvarpsins.
„Þegar menn byrja hér fá þeir
greidd laun samkvæmt 10. launa-
flokk, en þau eru 6,082 kr. á mán-
uði og þau laun verða þeir að
sætta sig við í 3 ár. Þá hækka
menn upp í 12. flokk, 2. þrep, sem
gerir 8,176 kr. og eftir 5 ára starf
færast menn upp í 15. flokk, 3.
þrep, sem gerir 9.382 kr. Hærra
komast menn ekki, nema hvað
þeir fá þær aldurshækkanir sem
aðrir ríkisstarfsmenn fá.“
„Það hefur lengi verið mikil
óánægja með kjörin hjá okkur, en
ástæðan fyrir því að við förum út
í þessar aðgerðir einmitt nú, er að
við teljum að ríkið hafi ekki stað-
ið við það ákvæði í aðalkjara-
samningi, sem gerður var í des-
ember og gildir fyrir tímabilið
jan,—ágúst 1982, sem kveður á
um það, að við gerð sérkjara-
samninga yrði tekið mið af kjör-
um sambærilegra stétta á al-
mennum vinnumarkaði."
„Við byggjum kröfur okkar á
samanburði á kjörum okkar og
annarra rafeindavirkja. Þar höf-
um við fyrir okkur samning sem
Rarik hefur gert við Rafiðnaðar-
samband íslands og annan, sem
Ríkisverksmiðjurnar og ASI fyrir
hönd Rafiðnaðarsambandsins
gerðu með sér. Byrjunarlaun
samkvæmt fyrrnefnda samningn-
um eru 9.635 kr. og eftir 5 ár 10.
792. Þarna er mikill munur á, sem
við viljum fá leiðréttan."
„Við sögðum upp 1. marz en
það skeði ekkert í samningamál-
unum fyrr en seinni partinn í
maí, að okkur var boðið upp á
viðræður um sérkjarasamning á
undan aðalkjarasamningi. Út úr
þeim viðræðum hefur ekkert
komið, því ríkið segist ekki til-
búið að semja nema við félagið í
heild, sem er Starfsmannafélag
Ríkisútvarpsins og sem við erum
ekki nema partur af. En við skilj-
um ekki, af hverju ekki má semja
við okkur sérstaklega, því það var
samið við sjúkraliða sérstaklega
og þeir eru í Starfsmannafélagi
Ríkisstofnana."
„Við höfum skrifað útvarps-
stjóra bréf, þar sem við bjóðumst
til að vinna svo halda megi opinni
nauðsynlegri neyðarþjónustu,
sem felst í því að veðurfregnum
og tilkynningum sem varða ör-
yggismál verður útvarpað. En við
vitum ekki ennþá hvort þetta boð
okkar verður þegið."
Heimur sólskins
og glaöværöar
<
jvffrmr/^
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu 1982
hefst 13. júní
Af íþróttaviöburðum heimsins er enginn sem vekur aðra eins athygli, eftirvæntingu og aðsókn og heims-
meistarakeppnin í knattspyrnu. Því ber vel í veiði fyrir farþega Útsýnar á Costa del Sol að geta oröiö vitni aö
þessum heimsviöburði i sumarleyfi sínu, jafnframt því að njóta lifsins við sól- og sjóböö og hvers kyns
skemmtun. Útsýn fer með umboö á Islandi fyrir heimsmeistarakeppnina og hefur tryggt sér takmarkaöan
fjölda aðgöngumiða að leikjunum, sem fram fara í Malaga og Sevilla, en þar eigast við hin heimsfrægu lið
Brasilíu, Sovétríkjanna, Skotlands og Nýja Sjálands.
Ferðamöguleikarnir eru nær óendanlegir frá Costa del Sol. til þorpa, bæja eða borga,
svo sem Sevilla og Cordova, að ógleymdri höfuöborg Costa del Sol. Malaga.
Skemmtanir eins og Tívolí, diskótek, kappakstursbila á brautum, golf
og mini-golf, spilavíti, næturklúbba, sjóskíöi og siglingabretti geta
allir stundaö á Costa del Sol.
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17, Reykjavík. Símar 20100 og 26611.
Kaupvangsstræti 4, Akureyri. Sími 96-22911.