Morgunblaðið - 04.06.1982, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNI 1982
Höföingjar hittast í Versölum
Þau hittast í Versölum. Myndin er tekin á leiAtogafundinum I Ottawa 1981: Gaston Thorn frá Evrópubandalag-
inu, Suzuki, Schmidt, Reagan, Trudeau, Mitterrand, Thatcher og Spadolini.
í öllum helstu iðnríkjum Vestur-
landa glíma menn við að komast
upp úr þeirri haglægð, sem þar hef-
ur ríkt undanfarin misseri.
Markmiðið er alls staðar hið sama,
hvort heldur jafnaðarmenn eða
íhaldsmenn eru við stjórn, að
draga úr atvinnuleysi með hag-
vexti, bæta lífskjörin með því að
auka framleiðslu og treysta undir-
stöður atvinnulífsins. Þetta eru
jafnt markmið stjórnmálamanna í
hinum fjölmennustu ríkjum sem
hinum fámennustu. í dag koma
leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims
saman til fundar í Frakklandi og
munu fram á sunnudag leggja á
ráðin um efnahagsmál og þróun
alþjóðamála í hinu fornfræga kon-
ungssetri Frakka, Versölum.
Þess er nú minnst í Frakk-
landi, að eitt ár er liðið síðan
Francois Mitterrand náði kjöri
sem forseti landsins og ruddi
brautina fyrir glæsilegum sigri
jafnaðarmanna á franska þing-
inu. Mitterrand getur varla
fagnað þessu ársafmæli með
höfðinglegri hætti en að stjórna
leiðtogafundinum um leiðir út úr
efnahagsvandanum með sameig-
inlegu átaki Frakklands, Bret-
lands, Ítalíu, Vestur-Þýskalands,
Bandaríkjanna, Kanada og Jap-
an, og jafnframt situr formaður
stjórnarnefndar Evrópubanda-
lagsins (Efnahagsbandalags
Evrópu) fundinn. Er þetta átt-
undi fundurinn, sem efnt er til
með þessu sniði.
Ronald Reagan hefur setið
nokkrum mánuðum lengur í háu
embætti sínu en Mitterrand. A
alþjóðavettvangi hefur athyglin
fremur beinst að efnahagsáætl-
unum Reagans en Mitterrands,
þótt báðir leiti þeir inn á nýjar
brautir. Reagan vill draga úr
ríkisafskiptum, minnka útgjöld
ríkisins og efla einkarekstur.
Mitterrand vill auka ríkisaf-
skipti, láta ríkið ráðstafa meiru
af aflafé borgaranna og þjóðnýta
banka og stórfyrirtæki. Hvorug-
um hefur tekist að draga úr at-
vinnuleysi, hins vegar minnkar
verðbólgan í Bandaríkjunum.
Frá því að síðasti leiðtogafundur
var haldinn í Ottawa á siðasta
ári, hefur verðbólgan í Banda-
ríkjunum lækkað niður fyrir
10% og er nú 5 til 6%. Háir vext-
ir í Bandaríkjunum — þeir eru
nú 16 til 17% — valda stjórnend-
um allra ríkjanna sjö jafn mikl-
um áhyggjum. Á Versalafundin-
um mun ekki koma til ágrein-
ings um það markmið að lækka
þurfi vexti í Bandaríkjunum.
Pierre Trudeau hefur verið
forsætisráðherra Kanada með
um það bil eins árs hléi
(1979—80) síðan 1968. Hann er
því aldursforseti leiðtoganna,
sem hittast i dag, sé miðað við
embættisaldur. Sá, sem næstur
honum kemur, er Helmut
Schmidt, kanslari Vestur-
Þýskalands síðan 1974. Þeim
Trudeau og Schmidt þykir lík-
lega nóg um tíð skipti á forystu-
mönnum ekki síst í Bandaríkj-
unum, þar sem enginn forseti
hefur setið í tvö kjörtímabil frá
því Dwight Eisenhower lét af
störfum 1960. í stjórnartíð Trud-
eaus hafa 4 forsetar setið í Hvíta
húsinu og það tekur hvern nýjan
forseta að minnsta kosti rúmt ár
að fóta sig í utanríkismálum,
eins og dæmin sanna.
Helmut Schmidt verður í for-
svari fyrir Evrópumenn, ef
Reagan gagnrýnir þá ákvörðun
þeirra að fjármagna gasleiðsl-
una frá Sovétríkjunum og gerast
háðir innflutningi á gasi þaðan.
Schmidt er rökheldur í því máli
og mun benda á, að við kaupin á
gasinu minnki olíuinnflutningur
Evrópuríkja frá Sovétríkjunum,
þannig að hættan á, að Kreml-
verjar geti beitt „orkuvopninu“
aukist ekkert við þessi viðskipti.
Að sögn háttsettra embætt-
ismanna, sem undirbjuggu fund-
inn í Versölum, gátu þeir í góðu
samkomulagi samið lokayfirlýs-
ingu um alla þætti væntanlegra
viðræðna á fundinum nema
viðskiptin milli austurs og vest-
urs. Olíklegt er þó, að mikið
verði gert úr ágreiningi um það
mál í fundarlok.
Margaret Thatcher, sem setið
hefur í Downingstræti síðan í
maí 1979, verður vafalítið með
hugann á Falklandseyjum. Þó
mun hún tæplega láta hjá líða að
benda á það, að nú sé verðbólga í
Bretlandi orðin minni en hún
var, þegar íhaldsmenn komust
til valda og komin undir 10%.
Breski forsætisráðherrann kann
einnig að beina máli sínu til
Gaston Thorn, formanns stjórn-
arnefndar Evrópubandalagsins,
þegar hún harmar, að með
meirihluta atkvæða hafi sjón-
armiði Breta um verðlag á land-
búnaðarvörum í bandalagslönd-
unum verið hafnað í síðustu viku
og þyki Bretum nóg um útgjöld
sín vegna aðildarinnar og hafi
ýmislegt út á stjórnarfyrir-
komulagið í EB að setja. Þó er
ekki líklegt, að Thatcher ræði
þetta mikið, því að þar með ein-
angrast hún frá öðrum Evrópu-
ríkjum og síst af öllu vilja Bret-
ar sitja einir á bekk núna vegna
átakanna á Falklandseyjum.
Efnahagsmál verða aðeins til
umræðu á hinum formlegu fund-
um en í óformlegum viðræðum
munu leiðtogarnir ræða stöðuna
í alþjóðamálum og í Bonn í
næstu viku ræða þeir þau svo að
nýju á leiðtogafundi Atlants-
hafsbandalagsins, að vísu ekki
Francois Mitterrand, þar sem
franski forsetinn hefur ekki tek-
ið þátt í slíkum fundum frá því á
dögum de Gaulle eða síðan 1966.
Zenko Suzuki, forsætisráðherra
Japan, verður að sjálfsögðu ekki
í Bonn, en hann hefur verið í
embætti síðan sumarið 1980 og
flokkur hans, Frjálslyndi flokk-
urinn, farið með stjórn í Japan
frá 1952. Giovanni Spadolini,
forsætisráðherra Ítalíu, er fyrsti
forsætisráðherra lands síns síð-
an 1946, sem ekki kemur úr röð-
um Kristilega demókrataflokks-
ins. Var hann valinn til að leiða
samsteypustjórn skömmmu
fyrir leiðtogafundinn í Ottawa í
júlí 1981 og kemur úr flokki lýð-
veldissinna.
Leiðtogarnir munu á fundin-
um staðfesta hollustu sína við
frelsi í alþjóðaviðskiptum, þeir
munu leggja áherslu á nauðsyn
samvinnu um orkumál og traust
samskipti norðurs og suðurs.
Frakkar vilja, að ákvörðun verði
tekin um tæknilega samvinnu,
sem þeir telja, að flýti fyrir ferð-
inni upp úr haglægðinni. Banda-
ríkjamenn eru ekki hrifnir af
þessari tillögu, þeim finnst hún
geti leitt til óæskilegra ríkis-
afskipta. Auðvitað setja ólík
grundvallarviðhorf leiðtoganna
til pólitiskra hugmynda svip
sinn á viðræður þeirra, en engin
áhersla verður lögð á að draga
fram ágreining heldur mun sam-
heldni og sáttfýsi verða í fyrir-
rúmi. Gildi slíkra funda felst
ekki í því, að þar finni menn
töfraformúlur í efnahagsmálum
til að leysa allan vanda, enda eru
þær hvergi til, heldur hinu, að
viðræður stuðla að kynningu,
traustari böndum og, síðast en
ekki síst, minnka líkur á mis-
skilningi og tortryggni.
Bj-Bj.
Kiropraktik-háskólinn í
Englandi í nýtt húsnæði
Nýju háskólabyggingarnar.
EVRÓPSKA kírópraktorsambandió
var stofnaö fyrir 50 árura. 50. þing
kírópraktora verður i Bournemouth,
Knglandi í ár, og á sama tíma veröur
opinberlega opnuó ný skólabygging
Anglo-European College of Chiroprac-
tic.
Fyrstu sextán ár kírópraktorskól-
ans í Bournemouth Englandi voru í
2 íbúðarhúsum sem voru innréttuð
sem háskólahús og klinik. 1978 var
útséð um að háskólinn gat ekki
fengið opinberlega viðurkenningu í
Bretlandi við þær aðstæður, hann
þurfti að uppfylla vissar kröfur með
tilliti til rúms og fjölda nemenda í
huga í námi bæði í bókasafni og
rannsóknarstofu háskólans. 1980
náðist samstaða i Evrópska kíró-
praktorfélaginu um kaup á betri há-
skólabyggingu, The Convent of the
Cross, kaþólskum stúlknaskóla í
Boscombe Bournemouth. Kaupverð-
ið var 250.000 ensk pund og 115.000
til viðbótar til breytinga á skólahús-
inu. Stórum hluta af breytingarfénu
á að verja til að innrétta nýja „stúd-
entaklínik" við skólann.
Nýju skólabyggingarnar eru 4500
fermetrar að flatarmáli og miðað
við núverandi kennsluform mun há-
skólinn rúma 400 nemendur. Bygg-
ingarnar rúma auk kennslustofa,
rannsóknarstofur, bæði til kennslu
og rannsókna, sem verið er að inn-
rétta núna. Þá er framkvæmda-
stofa, og kennarar fá sérstakar
skrifstofur Einnig er eldhúsaðstaða
og nemendamatsalur auk leikfimi-
sals og tennisvalla. Þá er hátíðarsal-
ur og kapella. Samandregið þýðir
þetta að eini kírópraktorháskólinn í
Evrópu er kominn í bygginar sem
eru hannaðar til kennslu.
(Fréttatilkynning.)
Prenthúsið:
Gefur 79 af stöðinni
út á myndband
„EDDA FILM hefur legið nióri um
langan tíma en þurft aö greiða
skatta og skyldur til ríkisins og því
gripum við til þess ráðs að gefa 79 af
stöðinni út á myndbandi til að eiga
fyrir þessum smávægilegu útgjöld-
um,“ sagði Indriði G. Þorsteinsson,
forstjóri Edda Film og höfundur 79
af stöðinni.
Indriði sagði ennfremur að
Edda Film hefði ekki Iagt út í það
að gera nein stórverkefni þar sem
þetta væri komið út í það að hver
sá einstaklingur sem færi út í það
að gera kvikmyndir tæki á sig
miklar fjárhagslegar skuldbind-
ingar og sem hlutafélag gæti Edda
Film ekki tekið á sig slíkar
skuldbindingar.
Indriði sagði að útkoma 79 af
stöðinni á myndbandi væri gerð að
ósk Prenthússins og væri þetta
skemmtileg upprifjun þar sem nú
væru liðin 20 ár síðan að kvik-
myndin var gerð og 30 ár síðan
sagan gerðist og mjög góð aðsókn
hefði verið að myndinni þegar hún
var sýnd. Filman væri góð til
heimilisnota þar sem hún hefði
ekki lengur neina sölumöguleika
og ekki kæmi til greina að gefa út
á myndbandi myndir sem hefðu
einhverja sýningarmöguleika í
kvikmyndahúsum því að ágóðinn
af því að gefa út myndir á mynd-
bandi væri ekki rnikill.
Að lokum sagði Indriði að Edda
Film ætti í sínum fórum kvik-
myndina Sölku Völku, en hún
hefði verið gerð af Svíum á sínum
tíma, en nokkurt bras yrði að gefa
hana út þar sem þyrfti að fá kópíu
frá Svíþjóð og ekki væri heldur
búið að ræða þetta mál við Hall-
dór Laxness, höfund Sölku Völku.