Morgunblaðið - 04.06.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ1982
11
AIGIASIM.A
SÍMINN F.R:
22480
Castrol
er olían fyrir allar vélar sumar sem vetur
Margir hafa beðið um Castrol á is-
landi, en án árangurs - fremstu
smurolíu á heimsmarkaði. En nú er
hún komin. þÓR H/F hefur tekið
að sér sölu og dreifingu á íslandi.
Castrol framleiðir 450 gerðir af
smurolíum fyrir bila, báta- og ski-
pavélar, iðnvélar og buvélar. Órug-
gar oliur. sem auka slitþol vela og
gera þær hagkvæmari í rekstri -
olíur með 75 ara reynslu að baki.
Innan skamms fæst Castrol emnig
um allt land. hringið og spyrjið um
næsta sölustað og biðjið um
ókeypis smurkort.
SÍMI B15QQ-ÁRMÚLA11
ÍL
Castrol
Kynna sér heilbrigð-
ismál á íslandi
HÉR Á landi er nú staddur rúmlega
30 manna hópur á vegum Norsk
Korrespondens Institut, sem m.a.
veitir nám í stjórnun. Fólkið cr allt
úr heilbrigðisstéttum, flest bjúkrun-
arfrieðingar og er hingað komið til
að kynna sér hvernig heilbrigðis-
þjónustan er upp byggð á íslandi og
hvernig er háttað námi á því sviði,
einkum háskólanámi. Var í fyrra far-
in slík ferð til Englands og hug-
myndin er að fara næst til Rúss-
lands.
Þessi mynd var tekin morgun-
inn sem hópurinn kom í Nýja
hjúkrunarskólann, þar sem Marja
Tome og Guðrún Marteinsdóttir
sögðu frá námsbrautinni við Há-
skóla íslands. Þá var farið í
Landspítalann, þar sem Davíð Á.
Gunnarsson og Vigdís Magnús-
dóttir forstöðukona stóðu fyrir
fræðslu. Á Heilsuverndarstöðinni
tóku á móti þeim Skúli Johnsen
borgarlæknir og Bergljót Líndal
hjúkrunarforstjóri. Þá voru skoð-
uð heimili aldraðra á Dalbraut,
þar sem Robert Sigurðsson for-
stöðumaður sýndi staðinn og á
fimmtudag var farið í Ás í Hvera-
gerði, á Selfoss til að skoða
sjúkrahúsið og í náttúrulækninga-
hælið í Hveragerði.
Hafa Jón G. Stefánsson, læknir
og kennslustjóri við HÍ, og María
Pétursdóttir, skólastjóri Nýja
hjúkrunarskólans, skipulagt þessa
kynningu fyrir Norðmennina.
Nýtt útflutn-
ingsfyrirtæki
stofnað
í DESEMBER á síðastliðnu ári var
stofnað hlutafélag um rekstur nýs
fyrirtækis í Reykjavík. Hlutafélagið
hlaut nafnið íslenska markaösversl-
unin. Markmið þess er að beita sér
fyrir auknum útflutningi íslenskra
framleiðsluvara og aukinni mark-
aðshlutdeild þeirra á heimsmarkaði.
Félagið hyggst ná markmiðum
sínum með nýstárlegum söluað-
ferðum og víðtækri kynningar-
starfsemi. Nú þegar stendur yfir
hönnun viðskiptarits félagsins á
vegum samnefnds fyrirtækis, þar
sem íslenskar framleiðsluvörur
verða kynntar erlendum þjóðum.
Mun ritið verða gefið út í mjög
stóru upplagi og dreift erlendis af
umboðsmönnum íslensku mark-
aðsverslunarinnar.
Forsvarsmenn félagsins vilja
virkja þá markaði víða um heim
sem ísienskar framleiðsluvörur
hafa enn ekki náð til og ennfrem-
ur örva viðskipti í þeim löndum
þar sem íslendingar hafa þegar
getið sér gott orð.
íslenska markaðsverslunin hf.
hyggst einnig standa fyrir rann-
sóknum og könnunum á möguleik-
um og hagkvæmni rekstrar nýrra
fyrirtækja til nýtingar íslensks
hráefnis og sérstaklega kanna
markaðsmöguleika framleiðslunn-
ar erlendis.
Innflutningur þekkingar og
tækninýjunga til hagsbóta fyrir
framleiðsluiðnaðinn verður einnig
á stefnuskrá félagsins.
Skrifstofur íslensku markaðs-
verslunarinnar hf. eru að Skúla-
túni 4 í Reykjavík.
(FrétUtilkynning.)
Andstæðu-
bækurnar
IÐUNN hefur gefið út fimm litlar
barnabækur eftir Colin
McNaughton með þykkum spjöld-
um. Bækurnar eru með fallegum
myndum, sem hjálpa ungum börn-
um að átta sig á ýmsum algengum
orðum gagnstæðrar merkingar.
Bækurnar heita: Fela — leita,
Langt — stutt, Yfir — undir, Inn —
út og Breitt — mjótt. Þær bera
samheitið Andstæðubækurnar og
eru prentaðar í Hollandi.
Nú er Castrol
líka komin
til íslands..!