Morgunblaðið - 04.06.1982, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982
Fregnir af miklu afhroði
frelsissveita Afgana
Nýju Delhi, 3. júni. AP.
REYNIST fregnir á rökum reistar hafa frelsissveitar Múhameðstrúarmanna
í Afghanistan beðið sitt versta afhroð í borgarastyrjöldinni í landinu til
þessa. Fregnir bárust í dag þess efnis, að stjórnarliðar hefðu náð Panjsher-
dalnum, sem verið hefur í höndum stjórnarandstæðinga.
Að sögn útvarpsins í Afghanist-
an hafa allar bækistöðvar frels-
issveitanna í dalnum verið eyði-
lagðar. Ríkir nú alger friður í
dalnum að sögn útvarpsins.
Hjálparsveitir frelsissveitanna í
Pakistan og Indlandi segjast van-
trúaðir á að fregnir þessar reynist
réttar. Undanfarin tvö og hálft ár
hafa frelsissveitirnar hrundið
fimm öflugum árásum stjórnar-
hersins.
Vestrænar heimildir herma, að
geysilega harðir bardagar hafi
geisað í dalnum i gær og mikið
mannfall hafi orðið. Hafi stjórn-
arherinn náð nokkrum helstu
vígstöðvum frelsissveitanna á sitt
vald, en það hafi kostað fjölda
mannslífa.
Ecevit sleppt
úr fangelsi
Ankara, 3. júní. AP.
BULENT Ecevit, fyrrverandi for-
sætisráðherra Tyrklands, var lát-
inn laus úr fangelsi í Ankara í
dag, en hann hefur setið inni að
þessu sinni síðan 10. apríl. Ece-
vit neitaði að ræða við frétta-
menn og gefa yfirlýsingu þegar
hann fór úr fangelsinu. Her-
dómstóll kvað upp úrskurð um
það í dag að Ecevit skyldi látinn
laus, en ekki var búizt við að
honum yrði sleppt jafn fljótt og
raunin varð.
Ecevit, sem auk þess að vera
fyrrverandi stjórnmálamaður
er skáld gott, kom fyrir herrétt
í síðustu viku og ákærur á
hendur honum voru að hann
hefði reynt að sverta Tyrkland
í augum umheimsins. Ef hann
hefði verið sakfelldur hefði
hann getað átt yfir höfði sér 5
ára fangelsi. Saksóknari komst
að þeirri niðurstöðu, að ákær-
urnar ættu ekki við nein rök að
styðjast og síðan var skipað að
hann yrði leystur úr haldi
snarlega eins og í upphafi
sagði.
SINDRA^tSTÁLHE
Fyrirliggjandi í birgðastöð
svartar og
galvaniseraðar pípur
oOQ° o©o o °OOo
sverleikar: svart, % — 5“
galv., % — 4“
Borgartúni31 sími27222
JOGURT
J<feöRr
fWu-b-b.: °n ávaxta
°’129kakkm
I «*»
Endurbætt
eggí Kanada
Vancouver, 3. júní. AP.
KANADÍSKIR vísindamenn hafa
skýrt frá því, að þeir hafi náð að
endurbæta hænuegg, þannig að það
sé heilsusamlegra en áður. Eggið
kemur eftir sem áður úr hænunni, er
eins að lögun, bragðast eins, er
matreitt á sama hátt og er jafnstórt
og venjuleg hænuegg.
Breytingin felst fyrst og fremst
í annarri fitusýrusamsetningu í
eggjarauðunni. Gera þessar breyt-
ingar það að verkum, að egg verð-
ur framvegis kjörið, sem hluti
megrunarkúra. Gert er ráð fyrir
að þetta nýja egg komi á markað
síðla sumars.
Breytingarnar eru hins vegar
ekki algóðar því í ljós hefur komið
að með þeim getur eggið orðið
valdur að æðakölkun og hjarta-
súkdómum.
Óöur maður gekk
berserksgang
með kjotoxi
Hong Kong, 3. júní. AP.
ÓÐUR maður varð í dag tveimur að
bana og slasaði 43 til viðbótar er
hann gekk berserksgang með kjöt-
öxi í fjölbýlishúsi. Flestir þeirra, sem
slösuðust voru börn á barnaskóia-
aldri.
Maðurinn réðst fyrst að tveimur
konum í íbúð annarrar þeirra á 12.
hæð fjölbýlishúss í borginni, en
flúði síðan niður stiga. önnur
kvennanna er talin vera móðir
árásarmannsins. Lést hún af sár-
um sínum.
Hann flúði síðan niður stiga í
fjölbýlishúsinu. Á leið sinni niður
hjó hann til allra, sem á vegi hans
urðu. Á efstu hæð hússins er
kennslustofa og þar var fjöldi
barna er árásarmaðurinn kom
inn. Náði hann að slasa fjölda
barna áður en tókst að buga hann.
Margir þeirra, sem slösuðust voru
fluttir á gjörgæsludeild.