Morgunblaðið - 04.06.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ1982
15
Fundu 936 beinagrindur
í fjöldagröf í Alsír
París, 3. júní. AP.
FRANSKA dagblaðið Liberation
skýrði frá því í dag, að hvorki fleiri
né færri en 936 beinagrindur hefðu
fundist skammt frá frönsku fangelsi
og pyndingamiðstöðu í norðvestur-
hluta Alsír.
Margar beinagrindanna báru
þess merki, að viðkomandi hefði
verið pyntaður og sumar leiddu í
ljós, að líkin hefðu verið skorin í
tvennt áður en þau voru grafin. Að
sögn læknis, sem rannsakaði
beinagrindurnar hafa þær legið í
gröfum sínum í 20—25 ár. Á árun-
um 1954—1962 börðust Frakkar
við að halda nýlendu sinni í Alsír.
Að sögn blaðsins var talningu
beinagrindanna skyndilega hætt
eftir fyrirskipun yfirvalda í Alsír.
UPI selt
Sendiráð Alsír í Frakklandi hefur
staðfest fund þessara fjöldagraf-
ar. Reyndar var fundur hennar
gerður opinber í mars, en hann
vakti ekki athygli fyrr en í ljós
kom hversu margir hvíldu þar.
Eftir því sem háttsettur sendi-
ráðsstarfsmaður sagði í viðtali við
Liberation hyggjast Alsírbúar
ekkert gera frekar í málinu. Svo
langt væri um liðið, að ekki tæki
því að gera veður út af slíku nú.
Hitt væri svo annað og alvarlegra
mál hvernig siðmenntuð þjóð eins
og Frakkar gætu verið þekktir
fyrir slíkar gjörðir.
Fleiri fjöldagrafir hafa fundist
áður en þessi stærsta, sem fundist
hefður til þessa, kom í ljós. Voru
iðulega 100—200 lík í þeim gröf-
um. Þær grafir vöktu hins vegar
ekki mikla athygli þegar þær
fundust.
Brezkur hermaður kannar vélbyssu úr stafla af vopnum sem gerð voru upptæk þegar
Argentínumenn gáfust upp í Goose Green. simmmjmd ap.
New York, 3. júní. AP.
TILKYNNT var í New York á
miðvikudag, að bandaríska
fréttastofan UPI hefði verið seld
nýjun aðilum. Fréttastofan var í
eigu E.W. Scriops, útgáfufyrir-
tækis, en var nú seld Media
News Corp., sem er nýtt fyrir-
tæki í eigu nokkurra banda-
rískra dagblaða og sjónvarps-
stöðva.
Ástæðan fyrir sölu UPI er
að sögn versnandi fjárhags-
staða fyrirtækisins. Forsvars-
menn Media News Corp. telja
sig geta sinnt betur þeim kröf-
um sem gerðar eru til frétta-
stofa en UPI gat áður, með því
að flýta fyrir nýjum tækni-
framförum.
Mikið tjón
í flóðum í
Indónesíu
Pjakarta, Indónesíu, 3. júní. AP.
EITT hundrað og fimmtán hafa látið
lífið í flóðum á eynni Súmötru frá
því á þriðjudag. Þá eru rúmlega 1500
manns heimilislausir í kjölfar flóð-
anna.
Gífurleg rigning herjaði á fjöl-
býl svæði með áðurgreindum af-
leiðingum. I rigningunum eyði-
lögðust mörg þúsund hektarar
hrísgrjónaakra. Talið er að mörg
þúsund nytjadýr hafi farist.
Forsprakkar byltingartilraunar á
Spáni dæmdir í 30 ára fangelsi
Madríd, 3. júní. AP.
Yfirherdómsióll Spánar dæmdi
Antonio Tejero Molina ofursta og
Jaime Milans del Bosch hershöfð-
ingja í 30 ára fangelsi hvorn, fyrir
tilraun til stjórnarbyltingar á Spáni í
fyrra, en nýlokið er þriggja mánaða
réttarhöldum yfir 32 helztu for-
sprökkum byltingartilraunarinnar.
Leopoldo Calvo Sotelo forsæt-
isráðherra lét í ljós áhyggjur og
kvaðst mundu áfrýja til hæsta-
réttar ýmsum dómum, sem honum
þóttu of vægir. Kvað hann óskilj-
anlegt hvernig hægt væri að
sýkna yfirmenn, sem héldu þing-
mönnum og ráðherrum í gíslingu í
18 stundir. Fyrrum ráðgjafi Juan
Carlosar Spánarkonungs fékk t. d.
aðeins sex ára dóm „fyrir aðild að
byltingarsamsærinu" , en sak-
sóknari hafði krafizt 30 ára fang-
ERLENT,
Einnig hlaut Luis Torres Rojas
hershöfðingi sex ár í stað 15, eins
og krafizt hafði verið, og Jose Luis
Cortina Prieto herforingi, sem átti
yfir höfði sér 12 ár, var sýknaður.
Jafnframt voru tveir höfuðsmenn
sýknaðir, Francisco Ignacio Rom-
an og Juan Baptista Gonzales, og
átta lautinantar.
Þá fékkk Juan Garcia Carres,
eini óbreytti maðurinn í hópnum
og fyrrum samstarfsmaður Franc-
os hershöfðingja, tveggja ára
fangelsi, en krafizt hafði verið 10
ára yfir honum.
Antonio Tejero var í forsvari
fyrir 288 þjóðvarðliðum, sem
þustu inn i neðri deild spænska
þingsins 23. febrúar í fyrra og
héldu þingmönnum og ráðherrum
í gíslingu í 18 klukkustundir. Við
réttarhöldin héldu verjendur
sakborninganna því fram að þeir
hefðu einungis verið að fram-
kvæma skipanir Spánarkonungs.
Konungur, sem yfirmaður alls
heraflans, sagði byltingartilraun-
ina hins vegar gagnstæða stjórn-
skipunarlögum landsins og skipaði
þjóðvarðliðunum að hverfa til
búða sinna.
Bandarískri konu vísað
frá Kína fyrir njósnir
Peking, 3. júní. AP.
BANDARÍSKRI konu, Lisa Wichs-
er, sem haldið var í fangelsi í 7 daga
var í dag gefinn 48 stunda frestur til
að koma sér úr landi. Er hún sökuð
um njósnir í þágu Bandaríkjamanna
í Kína. Kínversk yfirvöld segjast
hafa sterkar sannanir fyrir njósnum
Wichser, en leyfi henni að halda úr
landi til að stofna ekki tengslum
Bandaríkjanna og Kína í hættu. Bú-
ist er við að hún fljúgi heimleiðis á
morgun.
Vestrænar heimildir herma að
Wichser hafi viðurkennt að hafa
haft í fórum sínum pappíra, sem
fjölluðu um landbúnaðarstefnu
Kínverja. Þar í landi eru öll plögg,
sem ekki hafa verið tilkynnt eða
auglýst opinberlega, talin leynd-
armál.
Ástæðan fyrir'varðhaldi hennar
virðist enn ekki fyllilega ljós.
Kínverska utanríkisráðuneytið
hefur ekki viljað gefa upp nánari
skýringar á handtöku hennar aðr-
ar en þær að um njósnir hafi verið
að ræða. Wichser vann að rann-
sóknum um samyrkjubú Kínverja
og kenndi ennfremur ensku í Pek-
ing. Talið er að ástarsamband
hennar við Kínverja spili jafnvel
inn í atburðarásina.
Að hika
er sama og tapa.
ListahátíÖartilboð
á plötum
Human League og
Nú er
um að gera
að bregðast skjótt við.
í tilefni af tónleikum Human League og
Ego á Listahátíð höfum við lækkað
verðið á plötum þessara hljómsveita
úr 199 krónum í aðeins
169
krónur.