Morgunblaðið - 04.06.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ1982
17
þar sem hann varð yfirmaður
tónlistarskóla landgönguliðsins
(Royal Marines School of Music).
Síðan tók hann við yfirstjórn
Þriðju víkingastórdeildarinnar.
Hann stjórnaði landgönguliðum
við æfingar í Noregi, þar sem
þeir æfðu meðal annars land-
göngur og listina að lifa af við
heimskautaaðstæður. Árið 1979
varð hann tveggja stjörnu
hershöfðingi og síðan yfirmaður
strandhöggsliðsaflans.
irnar
árás?
■ðurhluU Argentínu.
hermenn til flugvallarins í Rio
Gallegos á meginlandi Argen-
tínu, þar sem þeir hefðu sprengt
upp allar Super Etendard-
flugvélarnar fimm, sem Argen-
tínumenn áttu eftir, snemma í
vikunni á undan. En John Nott
landvarnaráðherra bar á móti
því í yfirlýsingu í Neðri málstof-
unni 26. maí og sagði að tvær
Super Etendard-flugvélar hefðu
skotið Exocet-eldflaugunum
tveimur, sem hæfðu „Atlantic
Conveyor".
Seinna sagði í skeyti frá
brezkum fréttariturum, sem
vitnuðu í foringja í leiðangurs-
flotanum, að talið væri að brezk-
ar freigátur hefðu skotið niður
eina Super Etendard-flugvél á
sunnudaginn.
Lístahátíð:
Börnin í önd-
vegi í Nor-
ræna húsinu
DAGSKRÁ Norræna hússins á Listahátíð er einkum ætluð börn-
um. Hingað koma tveir sænskir iistamenn, sem hafa starfað
mikið með bömum, hvor á sínu sviði, en markmið beggja er hið
sama — að virkja börn í þroskandi sköpunarstarfi. Trúðurinn
Rúben hefur víða farið og vakið athvgli fyrir kúnstir sínar.
Hingað kemur hann frá Moskvu og fer síðan til Kanada, en
meðal þess sem hann tekur sér fyrir hendur í Norræna húsinu á
næstu dögum er að setja upp sirkusskóla, þar sem börnin sjálf
undirbúa sirkussýningu og velja sér hlutverk til að inna af hendi,
en þegar allt er klappað og klárt hefst sýningin sjálf og gefst
foreldrum og öðra áhugafólki þá kostur á að fylgjast með því
sem fram fer.
Myndlistarmaðurinn Jens Matthiasson verður með föndur-
vinnustofu þar sem börnin fá að mála og móta leir undir leið-
sögn listamannsins.
Að sögn Ann Sandelin, for-
stóra Norræna hússins, er sirk-
usskólinn ætlaður börnum og
unglingum á aldrinum 5—15 ára.
Haldin verða tvö námskeið og
komast 25 börn að í hvort skipti.
Skólahaldið verður dagana 9. og
10. júní og hefst kl. 15 báða dag-
ana, en undirbúningur fyrir sýn-
ingu tekur um tvær stundir. Kl.
17 verður húsið opnað þeim sem
ætla að sjá sýninguna, en hún
hefst kl. 17.30 og stendur í um
það bil eina klukkustund. Innrit-
un í sirkusskóla Rúbens í Nor-
ræna húsinu fer fram í skrif-
stofu hússins, en þátttökugjald
er 30 krónur. Trúðurinn leikur
listir sínar á sirkussýningum
sem verða í Norræna húsinu
sunnudaginn 6. júní og laugar-
daginn 12. júní kl. 16 báða dag-
ana. Aðgöngumiðar að sýningum
Rúbens fást í Norræna húsinu og
kosta 20 krónur fyrir börn en 40
krónur fyrir fullorðna.
15.—18. júní verður Jens
Matthiasson með föndurvinnu-
stofuna í Norræna húsinu. „Við
veltum því fyrir okkur," segir
Ann, „hvernig bezt mætti
tryggja það að sem flest börn
gætu tekið þátt í vinnustofunni
og niðurstaðan varð sú að leita
samstarfs við dagvistarheimili í
borginni. Undirtektirnar voru
svo góðar að við búumst við um
þrjú þúsund börnum hingað til
að vinna með Jens. Þessi mikla
þátttaka gerir það að verkum að
við verðum að takmarka aðgang
nokkuð, þannig að föndurvinnu-
stofan verður einungis opin öll-
um börnum laugardaginn 19.
júní. Aðgangur er ókeypis, en
innritun fer fram í Norræna
húsinu. Jens hefur farið víða um
Norðurlönd og einhver vinsæl-
asti þáttur í starfi föndurvinnu-
stofunnar er þegar börnunum er
úthlutað ákveðnu svæði á al-
mannafæri sem þau mega
skreyta að vild. Nýlega var til
dæmis heilt torg í bæ einum í
Svíþjóð málað í hinum fegurstu
litum, en þeir eru að vísu þannig
samansettir að þeir mást út á
nokkrum dögum. Við höfum leit-
að til borgaryfirvalda um að fá
slíkt svæði sem börnin fengju að
mála undir leiðsögn Jens
Matthiasson og var því erindi vel
tekið, svo allt útlit er fyrir að af
því verði."
Af öðrum atriðum Norræna
hússins á Listahátíð má nefna
höggmyndasýningu danska
myndhöggvarans John Rud, en
verk hans eru að mestu unnin í
grafík, sem er geysilega erfitt
efni í vinnslu. Sýning Ruds er í
forsal Norræna hússins og utan
dyra. Þau verk sem standa utan-
húss verða til sýnis í ágúst og er
þess að vænta að fleiri bætist
við, því að listamaðurinn mun
starfa hér á íslandi í sumar.
Verkin sem eru innandyra verða
til sýnis meðan á Listahátíð
stendur.
Vísnasöngvarinn Olle
Adolphsson kemur fram í Nor-
ræna húsinu tvívegis á Listahá-
tíð, 6. júní og 8. júní. Á.R.
Jens Matthíasson í fondurvinnu-
stofu sinni.
Jón Hjalti sagðist hann heita snáðinn sem kútveltist á milli höggmynda John
Ruds fyrir utan Norræna húsið i gær.
Ann Sandelin við eitt af grafikverkum Ruds. Ljósm. Mbi. Krútjáa öro.
Vanræksla pósthússins kom í veg fyr-
ir lögmæta vinnustöðvunarboðun
— segir Guðjón Jónsson formaður félags járniðnaðarmanna
EINS og fram hefur komið í fréttum
reyndist verkfallsboðun nokkurra
aðildarfélaga ASÍ dagana 10. og 11.
júní ólögleg vegna þess að boðunin
barst of seint i hendur hlutaðeigandi
viðsemjenda. Stafaði það af því að
ábyrgðarbréf, sem sett höfðu verið í
póst á miðvikudag, bárust ekki fyrr
en daginn eftir. Vegna þessa hafa
forystumenn viðkomandi félaga
gripið til þess ráðs að bera sjálfir út
verkfallsboðun, en hún mun aðeins
ná til þess 11. Meðal þessara félaga
eru Iðja, Felag járniðnaðarmanna,
Félag málm- og skipasmiða og Félag
blikksmiða. Þá er Ijóst að bréf
verkakvennafélagsins Framsóknar
barst einnig of seint, en engu að
síður hefur félagið auglýst vinnu-
stöðvun báða dagana.
Morgunblaðið hafði þess vegna
samband við Guðjón Jónsson, for-
mann félags járniðnaðarmanna og
félags málm- og skipasmiða, og
lýsti hann mikilli óánægju með
þjónustu Póststofunnar. Sagði
hann að ákveðið hefði verið að
boða vinnustöðvun 10. og 11..
Hefði bréf þess efnis verið sent
réttum aðilum í ábyrgðar- og
hraðpósti. Það hefði verið móttek-
ið á pósthúsi klukkan 14.11 á mið-
vikudag. Bréfið hefði svo ekki bor-
izt fyrr en í gær, þannig að vinnu-
stöðvunin hefði verið ólögleg og
yrði því afturkölluð. Þess í stað
hefði í gær verið boðað verkfall
þann 11.
fyrir mikilvægum sendingum.
„Það fylgja því veruleg leiðindi,
þegar verið er að boða vinnustöðv-
un og ákveðið hefur verið að vera
á sama tíma og aðrir, en við verð-
um það ekki vegna vanrækslu
pósthússins," sagði Guðjón.
Bjarni Jakobsson, formaður
Iðju, hafði sömu sögu af viðskipt-
um sínum við póstþjónustuna að
segja. Bréf hans hefði verið mót-
tekið klukkan 12.16. Bjarni sagði
meðal annars, að hann hefði póst-
ábyrgðarbækur aftur til ársins
1955 og verkfallsboðanir hefðu
ætíð verið sendar á þennan hátt
samkvæmt bókum sínum og þetta
hefði aldrei komið fyrir áður.
Þá sagðist Guðjón hafa undir
höndum póstskrá, sem gilti frá 1.
júní. Þar væri meðal annars
klausa, sem fjallaði um hraðboða-
gjald, sem væri 14 krónur. Skýr-
ingin á því væri innan sviga og svo
hljóðandi: „Hraðboðagjald: (Út-
burður, bréfa og tilkynninga,
böggla með sérstökum sendi-
manni, þegar eftir koinu send-
ingar á ákvörðunarpósthús)“.
Þetta hlyti að þýða, að sendingin
yrði borin út strax og í þessu til-
felli hefði þetta brugðist og hann
yrði að segja það að maður efaðist
um það framvegis að ábyrgð og
hraðpóstur dygði hjá póstinum.
Það væri alvarlegt að ekki væri
hægt að treysta póstþjónustunni