Morgunblaðið - 04.06.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982
19
Bolimgaryík:
Ólafur Kristjáns-
son endurkjörinn
forseti bæjarstjórnar
— meirihlutasamstarf D-, H- og B-lista
BolungarYÍk, 2. júní.
FIMMTUDAGINN 27. maí kom
nýkjörin bæjarstjórn Bolungarvíkur
saman til fyrsta fundar eftir að náðst
hafði samkomulag um meirihluta-
samstarf milli D-lista, H-lista og
B-lista.
I kosningunum nú var bæjar-
fulltrúum fjölgað úr 7 í 9 og sitja
nú í bæjarstjórn 4 fulltrúar af
D-lista, 2 af H-lista, 2 af B-lista og
einn af G-lista og er því fulltrúi
G-listans einn í minnihluta.
varaforseti var kjörinn Kristín
Magnúsdóttir af H-lista. Skrifar-
ar voru kjörnir Kristín Magnús-
dóttir af H-lista og Björgvin
Bjarnason af D-lista. í bæjarráð
voru kosnir eftirtaldir: Valdimar
L. Gíslason af H-lista, formaður,
Benedikt Kristjánsson af B-lista
og Guðmundur Agnarsson af
D-lista. Auk þess situr forseti
bæjarstjórnar í bæjarráði og hef-
ur þar málfrelsi og tillögurétt.
— Gunnar.
Ljósm. Mbl. <>unnar Hallsson.
Nýkjörin bæjarstjórn Bolungarvíkur ásamt bæjarstjóra. Talið frá vinstri: Björgvin Bjarnason (D), Valdimar L.
Gislason (D), Benedikt Kristjánsson (B), Ólafur Kristjánsson (D), Kristin Magnúsdóttir (H), Guðmundur Agnarsson
(D), Guðmundur Kristjánsson bæjarstjóri, Einar Jónatansson (D), Kristinn Gunnarsson (G) og Gunnar Leósson (B).
Á dagskrá þessa fyrsta funda:
var kjör forseta, varaforseta o(
skrifara og kosning í bæjarráð
Forseti bæjarstjórnar var kjörini
Ólafur Kristjánsson af D-lista, ei
hann gegndi því embætti einnig
fyrrverandi bæjarstjórn. Fyrst
varaforseti var kjörinn Benediki
Kristjánsson af B-lista og annai
Alþýðuleik-
húsið fékk auka-
fjárveitingu
FYRIR um tveimur vikum hlaut
Alþýðuleikhúsið aukafjárveitingu
úr Ríkissjóði að upphæð 600.000
krónur. Áð sögn forráðamanna
leikhússins var þessi aukafjárveit-
ing forsenda fyrir áframhaldandi
rekstri Alþýðuleikhússins.
Borgarfjarðar-
rall hefst
á morgun
RALLÖKUMENN undirbúa sig nú
af kappi fyrir Borgarfjarðar-rallið,
sem hefst á morgun.
Rallið hefst klukkan 6 að
morgni og lýkur síðdegis. Ræst
verður frá Hótel Borgarnesi og
koma bílarnir þar jafnframt í
mark að keppni lokinni. Yfir tutt-
ugu keppendur eru skráðir til
leiks. Þeirra á meðal eru bræðurn-
ir Ómar og Jón Ragnarssynir á
nýjum Renault 5 og sigurvegarar
síðasta ralls Hafsteinn Aðal-
steinsson og Birgir V. Halldórsson
á Ford Escort RS 2000.
Búast má við spennandi keppni
og fjölbreytilegar sérleiðir vítt og
breitt um Borgarfjörð munu vafa-
laust skapa mikil tilþrif hjá öku-
mönnum, en alls verða eknar 15
sérleiðir.
Vöruflutningar
hækka um 16%
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á
fundi í vikunni, að heimila 16 l/i%
hækkun á vöruflutningum með
vöruflutningabifreiðum út á land.
Fjölmargar hækkunarbeiðnir
liggja nú fyrir ráðinu og var af-
greiðslu þeirra frestað til fundar í
næstu viku. Ráðið samþykkti
einnig21% hækkun á ferðum milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
með Landleiðum og 20% hækkun
á taxta vinnuvéla.
INNLENT
Allir kostir
vönduóustu einingahUsa
-og sveigjanleiki aö auki
Nú býðst ný lausn fyrir þá sem gera
bæði kröfur um vandað og fallegt
húsnæði á hagkvæmu verði - og vilja
fullnægja óskum og þörfum fjöl-
skyldunnar. Sveigjanleikinn varðar
bæði stærð, efni, innréttingu, liti og
allan búnað og byggist á einingakerfi
hönnuðu af arkitektunum Torben Rix
og Leif Jensen m.a.a..
Flexplan húsin eru árangur af þró-
unarstarfi og samvinnu danskra og
íslenskra aðila. Hönnun og notkun
byggingarefna er nýstárleg og í fyllsta samræmi við
kröfur nútímans - enda hlaut húsið 1. verðlaun í sam-
keppni tímaritsins ,,Bo Bedre"
Tveir sýnilegir límtrésdreglar bera hallandi loftið sem er
klætt panel. Allir innveggir eru vandlega hljóð-
einangraðir og klæddir með panel
eða öðrum hefðbundnari klæðning-
um. Húsin eru rækilega einangruð og
þrefalt gler er í öllum gluggum. Gólf-
in eru steypt og f rjálslegt val um gólf-
efni. Allar innréttingar fylgja og eru
húsin búin fullkomnum tækjum í
baðherbergjum og eldhúsi. Hægt er
að fá húsin tilbúin til notkunar með
gardínum, lýsingu, húsgögnumo.fl.
Aukeinnarhæða einbýlishúsa gefst
kosturá2jahæða húsum, raðhúsum,
parhúsum og bílskúrum
Skjólbær sf. veitir ráðgjöf innanhúsarkitekta og hvers
konar fyrirgreiðslu, þ.á.m. uppsetningu, undirbygg-
ingu og aðstoð við lóðaútvegun.
Síðast en ekki síst ber að hafa í huga tímasparnaðinn
sem þessi byggingarmáti hefur í för með sér.
flexplan
■húsin
SKJÓLBÆR SF.
Borgartúni 29
Sími29393