Morgunblaðið - 04.06.1982, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ1982
21
Ingólfur (>uðbrandsson, forstjóri Útsýnar, skálar hér við Ólaf Steinar Valdimarsson, skrifstofustjóra í sam-
gönguráðuneyti, og Heimi Hannesson, formann Ferðamálaráðs, en ýmsum gestum var boðið til athafnar þegar
Utsýn opnaði á ný eftir breytingarnar. i.jósm. Kmilí*.
Hraðari og betri þjón-
usta með tilkomu tölvu
— segir Kristín Aðalsteinsdóttir deildarstjóri hjá Útsýn
Fyrir nokkru voru gerðar umfangsmiklar breytingar i afgreiðslusal
ferðaskrifstofunnar Útsýn við Austurstrcti í Reykjavík. Aðalafgreiðslu-
salur hópferðadeildar hefur breytt um svip og öll hcðin verið endurnýjuð,
en skrifstofan er nú með afgreiðslu á jarðhcð, annarri hcð, og fjórðu
hcð hússins. Jafnframt þessum breytingum á húsncði hefur tölvukerfi
fyrir allar farpantanir verið tekið í notkun og starfsfólk verið þjálfað
síðustu mánuðina í notkun þess.
— Á jarðhæðinni fer fram öll
almenn farmiðasala, en fyrir
hópferðir í leiguflugi eða áætl-
unarflugi er sérstök deild starf-
andi og er hún hér á annarri
hæðinni, sagði Kristín Aðal-
steinsdóttir deildarstjóri í sam-
tali við Mbl. — Afgreiðslusalur-
inn hefur verið stækkaður all-
mikið og annast nú 11 starfs-
menn almenn sölu- og af-
greiðslustörf í hinum nýja sal.
Þá höfum við fengið til umráða
hálfa fjórðu hæð hússins og þar
er innanlandsdeildin til húsa og
afgreiðsla American Express. A
skrifstofunni starfa nú í sumar
um 30 manns og yfir 20 manns
eru við ýmiss konar störf erlend-
is.
Skrifstofur Útsýnar hafa fyrir
nokkru verið tölvuvæddar og
fara nú farpantanir að mestu
fram með aðstoð tölvu. Kristín
útskýrir þann þáttinn:
— Með tilkomu tölvunnar
hefur öll aðstaða hér breyst til
muna. Pantanir eru öruggari,
hægt er að veita upplýsingar
strax og störfin eru auðveldari
og tölvan hefur um leið hag-
kvæmni í för með sér. Við pönt-
un hópferðar þarf að vita hve
mörg sæti eru laus, hvaða gist-
ingarmöguleikar eru fyrir hendi
o.s.frv. og þessum upplýsingum
býr tölvan nú yfir, en áður þurfti
afgreiðslufólkið alltaf að fara í
lista og spjaldskrár til að kanna
málin. Nú eru tölvuskermar á
öllum afgreiðsluborðunum í
salnum og þangað koma við-
skiptavinir og fá svarað öllum
spurningum og möguleikum og
geta fengið pantanir sínar stað-
festar strax. Þarna hefur tölvu-
tæknin sparað okkur ótrúlega
mikla handavinnu og um leið
gert alla ferðapantanir öruggari,
engin hætta er nú á því að þær
geti misfarist.
— Á næstunni er síðan gert
ráð fyrir að við getum tengst
Alex, bókunartölvu Flugleiða
fyrir innanlands- og millilanda-
flug, og þá getum við boðið betri
þjónustu á því sviði. Um leið og
tölvan sparar mannskap skapast
aukið rými hér á skrifstofunni
og því var hægt að stækka af-
greiðslusalinn.
— í fyrravetur hófst leit að
hentugri tölvu og jafnframt leit-
uðum við eftir hugbúnaði.
Keyptum við breskan hugbúnað,
ætlaðan erlendum ferðaskrif-
stofum, sem við nú erum búin að
þýða að nokkru leyti og stað-
færa, en tölvan sjálf er System
34 frá IBM. Tölvukerfið tókum
við að nokkru í notkun í október
sl., en unnum jafnframt eftir
gamla kerfinu, en frá áramótum
höfum við eingöngu notað tölv-
una við bókanir.
r
afgreiðslusal Útsýnar. Hver starfsmaóur hefnr sinn tötvuskerm til að fcra
Ljóam. ÓLK.M.
m
Séð yfir hluta í nýjum og breyttum
inn á bókanir og leita upplýsinga.
„Vötn á himni“
Yfirlitssýning á verkum Kristins Péturssonar
LAUGARDAGINN 5. júní
nk. verður opnuð í tilefni af
Listahátíð sýning í Listasafni
alþýðu á myndlistarverkum
eftir Kristin Pétursson og
ber sýningin yfírskriftina
„Vötn á himni“.
Kristinn Pétursson andaðist 1.
september 1981, 84 ára að aldri, og
átti hann þá að baki 50 ára feril
sem skapandi listamaður.
Kristinn lét eftir sig mikið safn
málverka eða alls 1367 að tölu og
runnu þau óskipt til Listasafns al-
þýðu sem unnið hefur úr myndun-
um og efnir til yfirlitssýningar á
þeim.
Kristinn Pétursson var lítt um-
talaður listamaður á síðastliðnum
árum, enda ekki furða, þar sem
hann hafði ekki sýnt opinberlega
síðan 1954. Sýningin í Listasafni
alþýðu er því gott tækifæri til að
kynnast fjölbreytilegum ferli
listamannsins, þar sem gefur að
líta fyrst raunsæar náttúrumynd-
ir, en síðan sjáum við hvernig
listamaðurinn vinnur úr mögu-
leikum náttúrunnar og umskapar
hana á sinn listræna og persónu-
lega hátt. Þá kynnumst við nú í
fyrsta sinn algerlega óþekktum
málverkum eins og t.d. geometr-
ískum og expressionískum ab-
Listamaðurinn og nokkur verka
hans.
starctionum auk einlitamynda
sem listamaðurinn vann nokkru
fyrir andlátið.
Þá hefur verið sett saman lit-
skyggnuröð sem sýnd er ásamt
upplestri á brotum úr æviminn-
ingum listamannsins. Þar koma
vel fram hugleiðingar hans um
sina eigin list og sína stílsögulegu
þróun. Kemur það glöggt fram að
erfitt er að aðgreina listamanninn
frá fræðimanninum.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 2—10 fram til 27. júní nk.
(FrétUtilkynning.)
COfflBI CAfflP easy
Viö opnun Combi Camp tjaldvagnsins þá lýkst upp
nýr möguleiki til feröalaga. Combi Camp er sérstak-
lega sérhæföur fyrir íslenzka staöhætti bæöi fyrir
lélega vegi og kalda veðráttu. Hann er því bæöi hlýr
og traustur.
Einnig er gott geymslurými fyrir allan viölegubúnaö
5—8 manna fjölskyldu.
Verð frá 30.710.
til afgr. strax.
Benco
Bolholti 4, sími 21945.
82.06
alla þriðjudaga
Hafðu samband
EIMSKIP
Síllli 27100